Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Side 17
G
reinilegt var að æðri mátt-
arvöld voru mótmælendum
hliðholl við þingsetningu
helgarinnar. Veðurguðirnir
skutu sólarglætu inn á milli
skúranna og rokið breyttist í hressi-
legan andvara. Einn þessara guða,
sá sem við þekkjum best, skaut að
vanda skjólshúsi yfir þingmenn en
þeir guðlausu áttu einnig sinn sama-
stað í nafni Siðmenntar. Allir þing-
menn gátu því undirbúið sig undir
komandi eggjakast. Að slíkt sé orð-
ið að viðtekinni venju er hinsvegar
verðugt umhugsunarefni: Af hverju
er fólki svona uppsigað við þingið?
Vissulega voru meira en 300 þús-
und íslendingar annars staðar en á
Austurvelli umræddan laugardags-
morgun. Sá stóri hópur er að auki
eflaust klofinn í afstöðu sinni til Al-
þingis. Mæting tvö þúsund Íslend-
inga er samt teikn sem alþingis-
menn ættu að taka alvarlega.
Hverfa inn í flokksþokuna
En hverju er verið að mótmæla?
Ríkisstjórninni og verkum hennar
eða stjórnarandstöðunni og verkum
hennar? Alþingi sem stofnun, fjór-
flokkakerfinu, jafnvel útrásarvíking-
unum? Eða er þjóðin að reyna að
afsanna eigið getuleysi? Hver er eig-
inlega munurinn á fólkinu sem gekk
inn í þinghúsið og hinu sem horfði
á? Myndu mannaskipti hafa ein-
hver áhrif til batnaðar eða yrði nýtt
fólk samdauna? Reynslan ýtir undir
þetta síðastnefnda, nýir þingmenn
hafa ekki verið boðberar þeirra
breytinga sem samfélagið þarfnast.
Flestir hafa horfið inn í flokksþok-
una og týnst þar. Það litla nýjabrum
sem finnst í störfum Alþingis hefur
fylgt nýjum hreyfingum, hreyfing-
um sem vegna smæðar sinnar ráða
engu.
En hvers vegna er flokkakerfið
að bregðast? Í síðustu kosningum
tók hrein vinstri stjórn við stjórnar-
taumunum og gat gert það sem fyr-
ir lá. Hún gat þokað því sem henni
sýndist. En í hverju málinu á fætur
öðru er hún gerð afturreka og það
held ég vera grunntóninn í mót-
mælum dagsins. Ekki væntingar til
stjórnarandstöðunnar eða krafa um
kosningar heldur að ríkisstjórnin
gangi í þau verk sem hún lofaði.
Fjórflokkurinn getur ekki
Fólk veltir eflaust fyrir sér hvers
vegna afskriftakökunni er svona
misskipt, hvers vegna heimilin séu
ekki í forgangi, hvers vegna fyrning-
arleiðin var ekki farin, hvers vegna
handfæraveiðar séu ekki orðnar
frjálsar, hvers vegna allt þetta fum
varðandi nýja stjórnarskrá og hvers
vegna öll orka þessa ríkisstjórnar-
samstarfs fer í ESB og utanríkismál
en ekki okkar eigin innanríkismál.
Að mínum dómi er svarið þetta:
Fjórflokkurinn megnar ekki að
ganga gegn þeim hagsmunaaðil-
um sem hér stjórna, stjórnsýslunni
sjálfri, samtökum atvinnulífsins og
bönkunum. Allar stjórnvaldsað-
gerðir fara leynt og ljóst í gegnum
þeirra síur og því er niðurstaðan sú
að snobbverkefni eins og tónlistar-
hús og háskólasjúkrahús eru upp-
hafin, kvótakerfinu hrósað sem því
besta í heimi, ný stjórnarskrá rökk-
uð niður sem óþurft, allt í nafni hag-
ræðingar. Þessa hagræðingu þekkja
því miður aðeins 500 fjölskyldur í
landinu og þess vegna þurfa alþing-
ismenn að sæta þessari árlegu nið-
urlægingu.
Samantekið er því aðeins eitt
ráð til gagngerra breytinga sem er
að kjósa ekki eina litla hreyfingu á
þing heldur stóra og helst risastóra.
Þá held ég eggjakastinu muni linna
nema þá ef áðurnefndar 500 fjöl-
skyldur tækju sig til.
Umræða | 17Mánudagur 3. október 2011
Tókst þú þátt í mótmælunum á laugardaginn?
„Nei, ég gerði það ekki.“
Halldóra Hrund Guðmundsdóttir
29 ára dýralæknir í fæðingarorlofi
„Nei, því ég var að vinna.“
Stefán Birgir Guðmundsson
45 ára framkvæmdastjóri
„Nei.“
Gestur Jónasson
30 ára nemi
„Nei, því mér fannst óljóst hverju var verið
að mótmæla.“
Hjördís Jóhannesdóttir
29 ára bankastarfsmaður
„Nei, ég er mjög ánægður með þessa ríkis-
stjórn.“
Jóhannes Þorvarðarson
50 ára sjómaður
1 Ellen: „Hættum að borga“Söngkonan Ellen Kristjánsdóttir
sagði það eiga eftir að skapa ótta hjá
bönkunum ef fólk hættir að borga af
verðtryggðu lánunum.
2 Dorrit rökræddi við mótmælandaForsetafrúin rökræddi við mót-
mælanda sem taldi hana vera með
uppgerð í mótmælunum.
3 Sautján ára keyrði á gangandi vegfarendur
Ekið var á tvo gangandi vegfarendur
í Lækjargötu í Reykjavík aðfaranótt
sunnudags.
4 Segir lögreglu reka „hatur-skenndan þjóðernispopúlisma“
Bloggaranum Hilmari Magnússyni
ofbauð fréttatilkynning Landssam-
bands lögreglumanna.
5 Mótmælin breiðast út um Bandaríkin
Lögreglan handtók 700 manns sem
mótmæltu á Brooklyn-brúnni í New
York á laugardag.
6 Átökin á AusturvelliDV birti myndir af mómælunum á
Austurvelli.
Mest lesið á dv.is
Myndin Austurvöllur Það var nóg við að vera á Austurvelli á laugardagsmorgun þegar forsetafrúin hafði snarað sér yfir
varnarvegg lögreglunnar og tók alþýðuna tali. Á meðan hlýddu þingmenn á guðsþjónustu. Mynd SiGtryGGur Ari
Maður dagsins
Horfir upp
til Vigdísar
forseta
Helga Hausner
Helga Hausner er formaður Róta, félags
áhugafólks um menningarfjölbreytni.
Félagið stendur fyrir kvikmyndahátíð
á Ísafirði í vikunni í samvinnu við RIFF
en sjálf er Helga spenntust fyrir kvik-
myndunum Historias og The Hunter.
Hvar ertu alin upp?
„Ég er alin upp í Berlín.“
Af hverju ertu á Ísafirði?
„Vestfirðir voru fyrsti aðkomustaðurinn
minn hér. Mér finnst skemmtilegt að búa á
litlum stað, sem er þó ekki of lítill.“
Áhugamál?
„Leikhús, dans, útivist og garðurinn.“
Áttu þér fyrirmynd?
„Fyrrverandi forseti okkar, frú Vigdís
Finnbogadóttir, er flott fyrirmynd. Mér
finnst hún alltaf til staðar og svo veitir hún
kvennamálum samstöðu.“
uppáhaldskvikmynd?
„Engin uppáhalds en þær eru margar góðar.“
Af hvaða mynd á kvikmyndahá-
tíðinni ætlar þú ekki að missa?
„Mig langar mest að sjá myndirnar Historias
og The Hunter.“
Eru Vestfirðingar duglegir að taka
þátt í hátíðinni?
„Við vonum það á hverju ári. Það mæta ekki
margir og þetta er oftast sama fólkið en
við erum heppin því við fáum yfirleitt heilan
árgang úr grunnskólanum.“
Fyrir hvað stendur félagið rætur?
„Við viljum tengja saman fólk af mismun-
andi uppruna, íslenskt og fólk af erlendu
bergi brotið. Fá fólk til að hittast og komast
í kynni við aðra.“
Hvað er fram undan?
„Hjá félaginu er næst ráðstefna um framtíð
Róta en okkur vantar nýtt fólk í stjórnina.
Við erum hluti af stofnendum Fjölmenn-
ingarsetursins sem hefur gert hér góða hluti
og svo er margt annað spennandi fram
undan.“
Eggjakast á Austurvelli
Dómstóll götunnar
„Fjórflokkurinn
megnar ekki að
ganga gegn þeim hags-
munaaðilum sem hér
stjórna, stjórnsýslunni
sjálfri, samtökum atvinnu-
lífsins og bönkunum.
Lýður Árnason
Læknir og fyrrverandi
meðlimur stjórnlagaráðs
Aðsent
M
y
n
d
S
iG
tr
y
G
G
u
r
A
r
i