Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Blaðsíða 18
18 | Menning 3. október 2011 Mánudagur
n Tónleikar Mugison í Fríkirkjunni n Gleymdi texta í miðju lagi n Þurfti aðstoð tónleikagests til að flytja lagið
T
ónleikar Mugison í Frí
kirkjunni voru haldnir
fyrir fullu húsi. Mug
ison söng lög af nýút
kominni plötu sinni,
Hagléli. Tónleikagestir héldu
vart vatni yfir góðum tónleik
um. „Þetta var mikil og pers
ónuleg upplifun,“ sagði einn
tónleikagestur. „Mér verður
hlýtt í allan vetur,“ sagði annar
gestur. „Loksins syngur hann á
íslensku,“ sagði enn einn gest
ur sem sagðist alltaf hafa óskað
sér þess. „Þetta er besta platan
hans,“ sagði kona sem var kom
in alla leið að vestan til að hlýða
á hann þótt að hann leggi leið
sína vestur seinna í vetur.
„Það er svo fallegt hérna í
Fríkirkjunni og góður hljóm
ur,“ útskýrði hún.
Gleymdi textanum
Mugison og sambýliskona
hans Rúna sungu saman á
tónleikunum og gestum þótti
einnig mikið til koma um
kröftugt ljósaspil sem gaf lög
unum aukna dýpt. Gestir fyr
irgáfu honum og hlógu með
honum þegar hann þurfti að
hætta í miðju erindi. Hann
mundi ekki textann og einn
hjálpsamur tónleikagestur
stökk fram á sviðið og lánaði
honum textabókina sína sem
fylgdi diskinum.
Fjallabræður á svið með
Mugison
Í lok tónleikanna stigu svo
Fjallabræður á svið með Mug
ison og sungu með honum og
klapp gesta eftir tónleikana
var linnulaust. Mugison seg
ist lengi hafa ætlað sér að gera
plötu í líkingu við Haglél. „Það
var lengi búinn að vera draum
ur hjá mér að gera plötu sem
er eins týpulaus og mögulegt
er. Ég veit ekki hvort mér tókst
það. Ég er líka með svo litla at
hyglisgáfu að mér tekst aldrei
að halda út einhverja eina
stemningu á einni plötu. Ef ég
geri eitthvað of lengi í einu þá
fæ ég svo mikinn leiða. Mér
fannst líka eftirsóknarvert að
hafa hana tímalausa. Á henni
er einhver þjóðlagabragur hef
ég heyrt. Mig langaði til að
gera klassísk, íslensk dægur
lög í anda sjöunda og áttunda
áratugar. Á þau á alltaf að vera
hægt að hlusta, þau falla aldrei
úr gildi. Mig langaði líka að
gera plötu sem bæði mamma
og amma gætu hlustað á. Sum
lög hlustar amma náttúrlega
ekki á,“ segir hann og kímir. „Ég
hef spilað lög fyrir ömmu þar
sem ég er að öskra og með orð
bragð og svona. Þá lækkar hún
bara í laginu og býður mér upp
á meira kaffi.“
„Hlýtt í allan vetur“
Horfir til himna Mugison sló í gegn í Fríkirkjunni.
Fullt út úr dyrum Það komust færri að en vildu á tónleika Mugison.
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Tónleikar
N
ý bók eftir Jónínu Leósdóttur er
væntanleg á Íslandi, að henn
ar sögn fjörug og spennandi
unglingabók sem fjallar meðal
annars um þunglyndi og önnur við
kvæm mál sem mikilvægt er að ung
lingar þekki til. Bókin fjallar um há
alvarlegt málefni, um nokkra unglinga
sem komast að því að einhver í vina
hópnum glímir við mikla vanlíðan. Þau
reyna að komast að því hver félaginn er
og finnst þau vera í kappi við tímann.
Hvað ef félaganum líður svo illa að hann sviptir sig lífi?
Jónína er á leiðinni á bókamessu í Frankfurt þar sem skáld
saga hennar, Allt fínt … en þú?, er komin út í Þýskalandi og ber
þýska titilinn Am liebsten gut. Þýðandi er Tina Flecken og for
lagið Kiepenheuer & Witsch gefur bókina út.
Jónína Leósdóttir:
Skrifar um unglinga
og þunglyndi
Kokkteilar
og hársprei
Þ
óra Tómasdóttir, ritstjóri Nýs Lífs, fagn
aði útgáfu fyrsta eintaksins í hennar
ritstjórn. Hún bauð vinum og sam
starfsfólki í kokkteilboð á 1919 bar í mið
bænum.
Gestum var boðið upp á bleika kokkteila,
snittur og gjafapoka sem í voru sjampó og hár
sprei. Á forsíðu nýja tímaritsins er Lilja Pálma
dóttir sem segir í viðtali af uppvextinum og bú
setu sinni á Hofi í Skagafirði þar sem hún rekur
hestabúgarð. Í blaðinu er enn fremur að finna
umfjöllun um konur og líkamsvöxt og ritstjór
inn nefnir í leiðara að hún hafi viljað þroskaðar
konur til að sitja fyrir í einum tískuþætti blaðsins.
Fyrir valinu urðu Erla Tryggvadóttir og Helga
Kristjánsdóttir sem eru báðar um þrítugt og stór
glæsilegar konur. Fjölmennt var í boði Þóru, fullt
út úr dyrum eins og stundum er sagt.
kristjana@dv.is
n Útgáfuteiti nýs ritstjóra Nýs Lífs
Ritstjórinn Þóra Tómasdóttir er tekin við
Nýju Lífi og fagnaði fyrsta tímaritinu.
Fjör Auglýsingastjórinn
Atli Bergmann ánægður
með nýja blaðið sem og Lilja
Katrín Gunnarsdóttir,
ritstjóri Séð og Heyrt.
Styður systur sína Sóley Tómas-
dóttir mætti að sjálfsögðu í teitið.
Hressar Þóra og félagar
hennar í góðu stuði.
R
IFF, Reykjavík Int
ernational Film
Festival, lauk á
sunnudaginn en
hátíðin hefur verið hald
in á ári hverju frá árinu
2005. Sýndar eru myndir
úr alls kyns áhugaverð
um flokkum. Einnig eru
sýndar heimildamyndir
og tónlistarmyndir svo eitthvað sé nefnt. Hátíðin var í þetta sinn
haldin frá 22. september og lauk á sunnudagskvöldið með stórri
bíósýningu í Eldborgarsal Hörpu.
Á hverju ári er veittur fjöldi verðlauna fyrir kvikmyndirnar
sem sýndar eru en ein aðalverðlaunin eru Gyllti lundinn sem
leikstjóri getur fengið fyrir sína fyrstu eða aðra mynd. Í ár var
það hin rússneska Angelina Nikonova sem vann fyrir myndina
Twilight Portrait en dómnefndin sem skipuð var þremur er
lendum fagmönnum vildi einnig benda sérstaklega á tvær aðrar
myndir; Shun Lie and the poet eftir Andreu Segre og Osló, 31.
ágúst eftir Joachim Trier.
Íslenska myndin Eldfjall eftir Rúnar Rúnarsson, sem jafn
framt er framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna, vann verðlaun
í tveimur flokkum. Hún fékk Fipresciverðlaunin sem veitt eru
af Alþjóðasamtökum kvikmyndagagnrýnenda og kvikmynda
verðlaun kirkjunnar en í dómnefnd hennar eru þrír prestar.
Eldfjall hefur fengið mikið lof gagnrýnenda og var á meðal
þeirra mynda sem kepptu á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Samhliða öllum verðlaununum eru veitt peningaverðlaun úr
nýstofnuðum minningarsjóði sem var settur á laggirnar af RIFF
og Félagi íslenskra kvikmyndagerðarmanna til að minnast Thors
Vilhjálmssonar. Verðlaunin eru 200.000 króna innistæða hjá Ice
land Express og 150.000 króna innistæða hjá Eymundsson.
Eldfjall sigraði í
tveimur flokkum