Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Síða 20
20 | Sport 3. október 2011 Mánudagur
Klárar samninginn í Garðabænum
n Gullskóhafinn Garðar Jóhannsson stefnir ekki aftur í atvinnumennsku
Þ
að var frekar svekkj-
andi að ná þessu ekki og
eiga ekki betri leik fyrst
tækifærið gafst,“ segir
markahæsti leikmaður Pepsi-
deildarinnar, Garðar Jóhanns-
son, um tapið gegn Breiðabliki
í lokaumferðinni. Með sigri
hefði Stjarnan getað stolið Evr-
ópusætinu af ÍBV sem tapaði
nokkuð óvænt fyrir Grindavík
í Eyjum. Blikarnir launuðu því
ekki gestrisnina frá því í fyrra
þegar liðin gerðu markalaust
jafntefli á teppinu í Garða-
bænum og það dugði Blikum
til síns fyrsta Íslandsmeistara-
titils.
„Þeir hefðu getað gefið okk-
ur eitt mark í stað þess að stela
sigrinum sjálfir,“ segir Garðar
léttur en hann er tiltölulega
sáttur við fjórða sætið í deild-
inni. „Þetta var fínt. Við erum
svona sirka á pari. Ég vildi ná
Evrópusæti en það tókst ekki.
Þetta er samt ásættanlegt. Það
er samt gaman að hafa sýnt
að liðið er ekki eins lélegt og
menn héldu fyrir tímabil-
ið,“ segir Garðar sem skoraði
fimmtán mörk í deildinni og
fær að launum gullskóinn sem
markahæsti leikmaðurinn.
„Það er alltaf gaman að fá
viðurkenningar. Það er gam-
an að ná svona árangri og fá
þennan skó. Þetta fór hægt af
stað hjá mér en þegar leið á
tímabilið fór ég að komast í
betra form og læra betur inn á
leikmennina í liðinu. Þetta var
náttúrulega bara fyrsta tíma-
bilið,“ segir Garðar sem stefnir
ekki aftur út í atvinnumennsku
þrátt fyrir gott tímabil hér
heima.
„Ég er ekkert að spá í það.
Ég er samningsbundinn
Stjörnunni í eitt ár í viðbót og
ég reikna með að klára árið. Ég
fer ekkert aftur út nema eitt-
hvað stórkostlegt komi upp á,“
segir Garðar Jóhannsson.
tomas@dv.is
Stefnir
á minnst
tíu mörk
Brasilíumaðurinn Anderson
hjá Manchester United skoraði
sitt annað mark í ensku úrvals-
deildinni um helgina þegar
liðið lagði Norwich, 2–0. Það
væri svo sem ekki í frásögur
færandi nema fyrir þær sakir
að markaskorun hefur reynst
Anderson afar erfið. Það tók
hann 78 leiki að skora sitt fyrsta
mark og eftir það skoraði hann
eitt á sautján mánuðum. Hann
virðist þó vera að finna net-
möskvana núna. „Eitt af mark-
miðum mínum er að skora að
minnsta kosti tíu mörk. Ég mun
reyna hvað ég get til að skora
fleiri mörk,“ segir hinn síkáti
Anderson.
Í bann
fyrir lífstíð
Óþekktur serbneskur tenni-
skappi, David Savic, sem er
númer 659 á styrkleikalistan-
um hefur verið dæmdur í lífs-
tíðarbann frá íþróttinni eftir
að upp komst að hann væri
að hagræða úrslitum leikja.
Einnig var hann sektaður um
100.000 dollara fyrir að ger-
ast sekur um brot á þremur
reglum Alþjóða tennissam-
bandsins sem varða spillingu.
Bannið hefst samstundis og
spilar hann því aldrei tennis
framar. Savic er annar maður-
inn í sögunni sem er dæmdur
í lífstíðarbann frá tennis en
Austurríkismaðurinn Daniel
Koellerer var sá fyrsti en hann
varð einnig uppvís að því að
hagræða úrslitum leikja.
Gullskórinn Garðar var marka-
hæsti leikmaður deildarinnar.
Mynd Fótbolti.net
Lausnin að
láta hann spila
Manchester City opinberaði
um helgina að Champions-
hip-liðið West Ham vildi fá
Carlos Tevez
að láni frá
félaginu en
bóninni var
hafnað. Að-
spurður um
málið um
helgina játti
stóri Sam
Allardyce, stjóri West Ham,
því að hann vildi fá Tevez. „Ef
hann vildi koma og stjórnin
vildi borga myndi ég auðvitað
vilja fá hann,“ sagði stóri Sam,
en hvað með öll vandamálin
sem honum fylgja? „Ég hef
verið með erfiðari leikmenn
en Tevez. Lausnin er bara að
láta hann spila. Það er svarið,“
sagði stóri Sam.
S
kagamaðurinn og
naglinn Ólafur Þórð-
arson var tilkynntur
sem nýr þjálfari Vík-
ings á lokahófi félags-
ins á laugardagskvöldið. Batt
tilkynningin enda á sögusagnir
sem höfðu farið að stað eftir að
Ólafur sagði starfi sínu lausu
hjá Fylki fyrir lokaumferðina
en í henni tapaði Árbæjarliðið
fyrir FH, 5–3. Ólafur fylgir því
Víkingum niður í 1. deild en
Fossvogsstrákarnir féllu úr
Pepsi-deildinni í sumar. Er
þetta í fyrsta skipti sem Ólafur
stýrir liði í næstefstu deild síð-
an hann vann yfirburðasigur í
henni með Fylki árið 1999. Síð-
an þá hefur hann þjálfað ÍA,
Fram og Fylki í efstu deild nán-
ast samfellt fyrir utan tímabil-
ið 2008 þegar hann var án liðs.
Helgi Sigurðsson verður spil-
andi aðstoðarþjálfari Ólafs hjá
Víkingi en Helgi, sem lék al-
gjört lykilhlutverk í að koma
liðinu upp um deild árið 2010,
gat lítið verið með í Pepsi-
deildinni í ár vegna meiðsla.
Spennandi í Víkinni
„Þetta leggst mjög vel í mig.
Aðstæður eru flottar og Vík-
ingur er stór klúbbur þó skort
hafi árangur undanfarið. Þetta
er klúbbur með mikla og góða
sögu,“ segir Ólafur í viðtali við
DV en hann skrifaði undir
þriggja ára samning við Vík-
ing. Aðdragandann segir Ólaf-
ur einfaldan. „Þeir höfðu bara
samband við mig. Ég þurfti
vissulega að hugsa mig um en
eftir góða umhugsun ákvað ég
að láta slag standa,“ segir hann.
En hvað lokkaði hann í Vík-
ina? „Mér finnst spennandi
hvað Víkingar ætla að gera.
Þeir ætla sér strax upp aftur og
hafa vilja og metnað til að spila
aftur á meðal þeirra bestu.
Metnaður Víkings hentar því
minni hugmyndafræði,“ seg-
ir Ólafur sem reiknar með að
hitta leikmannahópinn í vik-
unni. „Ætli ég hitti ekki hóp-
inn í vikunni og fer þá yfir stöð-
una,“ segir hann.
Mitt mál að koma á friði
og ró
Víkingur hefur verið mikið í
umræðunni í sumar og oft í
neikvæðu ljósi vegna háleitra
markmiða, þjálfararáðninga
og nú síðast agavandamála
sem fráfarandi þjálfari, Bjarn-
ólfur Lárusson, hefur sagst
vera taka á. Ólafur segir þetta
ekki hafa hindrað hann í að
skrifa undir og agamál eru eitt-
hvað sem hann mun sjálfur
passa rækilega upp á.
„Nei, nei, þetta er ekkert
vandamál. Það verður núna
mitt mál að koma á friði og ró
þarna og að því stefni ég. Það
er alveg á hreinu að ég mun
taka agamál föstum tökum,“
segir hann.
„Ég er spenntur fyrir þessu
og það er hugur í mér,“ bætir
Ólafur við. „Það eru efnileg-
ir strákar þarna en ég hef svo
sem ekkert skoðað það ofan
í kjölinn. Ég fæ samt tíma til
þess núna. Það er nú allur vet-
urinn framundan,“ segir Ólaf-
ur og hlær við, en hefur hann
eitthvað fylgst með 1. deildinni
undanfarið?
„Já. Ég hef farið reglulega
á leiki til dæmis með Skaga-
mönnum þannig ég þekki
þetta umhverfi alveg.“
erfið staða hjá Fylki
Ólafur kveður nú Fylki en hann
hefur stýrt Árbæingum frá því
2009. Hann náði sínum besta
árangri strax á fyrsta ári er liðið
endaði í þriðja sæti en níunda
sætið varð niðurstaðan í fyrra
og það sjöunda í ár. Hann horf-
ir glaður í bragði til baka á tím-
ana í lautinni. „Þetta voru mjög
góð ár. Það voru samt svolít-
ið erfiðir tíma á köflum. En ég
tók við Fylki í erfiðri stöðu og
við gerðum vel saman. Þetta er
búinn að vera fínn tími og fullt
af ungum strákum sem hafa
fengið dýrmæta reynslu. Þetta
gæti orðið dýrmætt fyrir félagið
til lengri tíma litið,“ segir Ólaf-
ur sem þurfti að horfa á eftir
góðum leikmönnum yfirgefa
Fylkisliðið og hann fékk lítið í
staðinn. „Það var ekki bara það
að við misstum leikmenn. Það
komu fáir inn. Þegar hópurinn
var farinn að þynnast svo mik-
ið var staðan orðin erfið,“ seg-
ir Ólafur Þórðarson, nýráðinn
þjálfari Víkings.
Ólafur fer niður
með Víkingum
n naglinn af Skaganum gerir þriggja ára samning n yfirgefur Pepsi-deildina fyrir 1. deild
n Metnaður Víkings hentar því minni hugmyndafræði, segir ólafur n Átti góð ár hjá Fylki
Aðstoðarmaðurinn Helgi
Sigurðsson verður spilandi aðstoðar-
þjálfari. Myndir toMASz KolodzieJSKi
Kveður Fylki Ólafur stýrir Víkingum í næstefstu deild að ári.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti