Dagblaðið Vísir - DV - 03.10.2011, Page 22
Eltir ástina til Stokkhólms
n Tónlistarmaðurinn Daníel Óliver
É
g er að flytja í miðbæ
Stokkhólms til að vera
hjá nýja kærastanum,“
segir tónlistamaðurinn
Daníel Óliver sem er fluttur til
Svíþjóðar. Nýi kærastinn hans
heitir Simon, er sænskur og
vinnur sem fyrirsæta. Daní
el Óliver hefur sjálfur unnið
sem fyrirsæta en segist frek
ar stefna á að starfa í tónlist
inni. „Mig langar að prófa nýja
hluti og það er ýmislegt sem er
í gangi en ekkert sem ég get tal
að um á þessu augnabliki. Það
er margt spennandi fram und
an og Svíar hafa sýnt tónlist
minni áhuga og því langar mig
að sjá hvort ég geti ekki gert
eitthvað sniðugt þar. Auðvi
tað væri líka gaman ef ég fengi
einhverja vinnu sem módel en
það er ekki það sem ég er að
stefna að,“ segir Daníel sem er
greinilega yfir sig ástfanginn af
Simon. „Við kynntumst á Face
book, ótrúlegt en satt. Í gegn
um sameiginlegan vin. Þetta er
rosalega fallegur og bara alveg
æðislegur strákur.“
Aðspurður segir hann for
eldra sína ánægða fyrir hans
hönd. „Þau bjuggu í Stokk
hólmi áður en ég fæddist og
eru bara spennt yfir að ég sé
að flytja þangað. Þau vilja auð
vitað bara að ég sé ánægður.“
Brasilíufangi
fær ekki íbúð
Brasilíufanginn Karl M.
Grönvold er að koma undir
sig fótunum á Íslandi eftir
fjögurra ára dvöl í erlendum
fangelsum. Karli gengur ekki
vel að leita að íbúð og segir
farir sínar ekki sléttar á Face
booksíðu sinni.
„Ég hef verið að leita
mér að íbúð í nokkra mán
uði núna og hefur ekkert
gengið, eins og allir vita er
leigumarkaðurinn mjög
erfiður og hef ég aldrei séð
svona ástand á Íslandi áður.“
Karl fann loks draumaíbúð
ina í Fossvoginum þar sem
hann ólst upp og taldi sig
hafa handsalað leigusamn
inginn. „Mikill léttir að fá
loksins íbúð og hringdi ég
útum allar trissur til að fá
bíl undir húsgögn og fleira.“
En svo fékk Karl símtal þar
sem honum var tjáð að hann
fengi ekki íbúðina eftir allt
saman. Hann spurði hvers
vegna og fékk þau svör að
það væri vegna sögu hans.
Karl varð reiður og sár en
sagðist hins vegar ekki ætla
að gefast upp. „Það er örugg
lega fullt af fólki sem að
hefur lent í svona dæmum
og þykir fyrir því að svo hafi
komið fyrir sér í lífinu, en
við megum ekki gefa upp
öndina og leggjast á bakið
og hætta.“
n Björgólfur Thor og Kristín eignuðust dóttur á dögunum n Fæddist fyrir tímann og var
tekin með keisaraskurði n Björgólfur skemmti sér á Kaffibarnum í heimsókn á Íslandi
Fæddist fyrir tímann
Ú
trásarvíkingurinn Björgólf
ur Thor Björgólfsson og Krist
ín Ólafsdóttir eignuðust sitt
þriðja barn á dögunum. Fyrir
eiga hjónin tvo drengi, fædda
2005 og 2008. Nú hefur lítil stúlka bæst
í hópinn.
Samkvæmt heimildum DV fædd
ist stúlkubarnið nokkrum vikum fyrir
tímann og var tekið með bráðakeisara
skurði á spítala í London.
Móðir og dóttir eru þrátt fyrir þetta
alhraustar og það staðfestir Ragn
hildur Sverrisdóttir upplýsingafulltrúi
Novator. „Þeim heilsast öllum vel,“
segir hún.
Hjónabandssæla og barnalán
Hjónin giftu sig í kyrrþey á borgarskrif
stofu Rómarborgar í nóvember í fyrra
eftir að hafa verið saman í 12 ár og hafa
þau unað sér vel þar sem þau búa í fal
legu húsi í Notting Hill sem metið er á
1,5 milljarða króna. Húsið gerði hann
upp með Kristínu.
Þótt hjónin búi í London koma þau
reglulega til landsins með strákana
sína. Þau dvelja þá í húsi sínu í mið
bænum sem stendur við Óðinsgötu.
Kristín ræddi um líf sitt sem móðir í
viðtali við Nýtt Líf. Þá sagði hún dreng
ina tala bæði íslensku og ensku og að
sá eldri færi bæði í leikskóla á Íslandi
og í London. Í því sama viðtali sagði
hún einnig nauðsynlegt að vera með
barnfóstru.
Stoltur faðir fór út á lífið
Björgólfur kom í stutta heimsókn til
landsins stuttu eftir fæðingu dóttur
sinnar. Hann notaði tækifærið og
fagnaði með íslenskum vinum sín
um. „Hann var hér á landi í einn sólar
hring,“ segir Ragnhildur og vildi ekki
gefa upp hver ástæða heimsóknar
innar var. Heimildir blaðsins herma
að Björgólfur hafi ljómað af stolti og
hamingju úti á lífinu í borginni. Nánar
tiltekið á Kaffibarnum.
22 | Fólk 3. október 2011 Mánudagur
Hjónabandssæla og
barnalán Björgólfur og
Kristín giftu sig í nóvem-
ber. Þau eru lukkuleg
hjón og eignuðust sitt
þriðja barn á dögunum.
Módel og músíkant
Daníel Óliver hefur einnig
unnið sem fyrirsæta. Sætur kærasti Simon, kærasti Daníels Ólivers, er algjört
augnayndi.
Nýr tónn á
Nýju Lífi
Fyrsta tölublað af Nýju Lífi
undir ritstjórn Þóru Tómas
dóttur er komið út en Þóra
fagnaði með útgáfuteiti síð
asta föstudag. Það er athafna
konan Lilja Pálmadóttir sem
prýðir forsíðuna en í blaðinu
kveður við annan og alvar
legri tón en undir stjórn síð
asta ritstjóra. Veggur Face
booksíðu Þóru er þakinn
hamingjuóskum kvenna sem
eru ánægðar með breyting
arnar. Þóru er meðal annars
þakkað fyrir að búa til alvöru
blað fyrir konur sem tekur
ekki aðeins á tísku.