Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Side 10
10 Fréttir 2.–4. desember 2011 Helgarblað
Smákaka ársins
n Kitchen Aid-hrærivél í verðlaun fyrir þá bestu
D
V heldur nú í fyrsta skipti smá-
kökukeppni þar sem smákaka
ársins verður valin. Í verðlaun
er nýjasta gerð af Kitchen Aid-
hrærivél frá Einari Farestveit & Co hf.
að verðmæti 82.990 krónur.
Skilyrði sem sett eru fyrir þátt-
töku eru eftirfarandi: Hver keppandi
getur sent tvær sortir af smákökum
í keppnina. Viðkomandi má ekki
vera fagmaður og kökurnar þurfa að
hafa verið bakaðar í heimahúsi. Með
hverri tegund þarf að fylgja nafn þess
sem bakar, símanúmer og netfang í
lokuðu umslagi en auk þess þarf að
fylgja nafn smákökusortarinnar og
uppskrift hennar. Ef sortinni fylgir
saga um uppruna hennar má sú saga
gjarnan fylgja með.
Þátttakendur þurfa að senda inn
smákökurnar fyrir 12. desember en
úrslit verða tilkynnt í blaðinu þann
16. desember þegar valin dómnefnd
hefur lokið störfum sínum.
Kökurnar skulu sendar á ritstjórn-
arskrifstofur DV að Tryggvagötu 11,
101 Reykjavík.
gunnhildur@dv.is
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
mánudaginn 5. desember, kl. 18
í Galleríi Fold, á Rauðarárstíg
Jóhann Briem
Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og
fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna.
Verkin verða sýnd í dag föstudag 10–18, laugardag 11–17,
sunnudag 12–17, mánudag 10–17
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Jólauppboð
í Galleríi Fold
Uppboð nr. 70
Sendu DV smákökur Þú gætir unnið
hrærivél af bestu gerð.
É
g svaf ekki í nótt út af þessu.
Þetta er það ómerkilegasta
sem hægt er að segja um
nokkurn mann,“ segir söngv-
arinn Geir Ólafsson sem var
á myndbandasíðunni YouTube sak-
aður um að vera barnaperri. Um-
mælin voru skrifuð undir tónlist-
armyndbandi Geirs við lagið Við
hoppum af nýrri barnaplötu hans.
Í myndbandinu er Geir umkringd-
ur fjölda barna að syngja og hoppa,
líkt og nafn lagsins gefur til kynna.
Ummælin, sem skrifuð voru undir
dulnefninu Kardokongurinn, hafa
nú verið fjarlægð en Geir hefur kært
málið til lögreglu. „Það fyrsta sem ég
gerði þegar ég vaknaði í morgun var
að fara til lögreglunnar,“ segir Geir.
Ummælin voru rituð á miðviku-
dagskvöldið síðastliðið en virðast hafa
verið fjarlægð á fimmtudagsmorgun.
Lögregla hefur ummælin þó í hönd-
unum eins og þau birtust.
Vill sækja til saka
„Þetta er mesti viðbjóður sem hægt
er að gera af sér í hvaða formi sem
er. Það má segja hvað sem er um mig
og öll mín verk. Fólk má segja hvað
því finnst, en þegar kemur að því
að kalla mig barnaperra þá dreg ég
mörkin. Það er alveg á hreinu,“ segir
Geir ákveðinn en það er greinilegt að
ummælin særðu hann. Hann hvet-
ur þann sem skrifaði ummælin til
að hafa samband við sig en ekki fela
sig bak við dulnefni á netinu. Þá vill
hann að umræddum aðila verði refs-
að fyrir ásökunina. „Hann á bara að
biðjast afsökunar á þessu og hann á
að vera sóttur til saka fyrir þessi um-
mæli.“
Dæmt fyrir meiðandi ummæli
Fordæmi eru fyrir því að dæmt hafi ver-
ið fyrir meiðandi ummæli á netinu. Á
miðvikudaginn síðastliðinn féll dóm-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur þar sem
bloggarinn Andrés Helgi Valgarðsson
var dæmdur til að greiða samtals 950
þúsund krónur vegna skrifa á blogg-
síðu sína um Aratúnsmálið svokall-
aða. Ummælin sem dæmd voru dauð
og ómerk voru einungis inni á síðunni
í 12 til 20 klukkustundir og eru þau
hvergi til í dag. Þrátt fyrir það var Andr-
és Helgi dæmdur fyrir skrif sín.
Tileinkar plötuna látnum
bróðursyni
Geir gaf nýlega út barnaplötuna Amma
er best. Lagið Við hoppum má finna á
henni ásamt fjölda annarra fjörugra
barnalaga. Hann segir lögin hafa verið
til og fannst tilvalið að setja þau á plötu
og sinna þannig yngstu aðdáendum
sínum. En hann hefur hingað til verið
þekktari fyrir að syngja fyrir eldri kyn-
slóðina. Plötuna tileinkar Geir bróður-
syni sínum heitnum, Eyþóri Darra
Róbertssyni. Eyþór Darri lést þann
14. ágúst síðastliðinn af áverkum sín-
um eftir alvarlegt bílslys á Geirsgötu í
Reykjavík.
Geir Ólafsson kærir
meiðandi ummæli
n Kallaður barnaperri af nafnlausum aðila á YouTube n Vill afsökunarbeiðni
vegna ummælanna n Bloggari var nýlega dæmdur fyrir meiðandi skrif á netinu„Fólk má segja
hvað því finnst, en
þegar kemur að því að
kalla mig barnaperra þá
dreg ég mörkin. Það er al-
veg á hreinu.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Lagði fram kæru Geir Ólafs-
son var kallaður barnaperri af
nafnlausum aðila á YouTube.
Hann hefur kært málið.
Hvetja til
snjómoksturs
Reykjavíkurborg hvetur borgar-
búa til að moka frá sorpskýlum
til að tryggja góða þjónustu. Í til-
kynningu frá borginni segir að það
geti tekið á fyrir sorphirðumenn
Reykjavíkurborgar að draga fullar
tunnur í þungri færð. Guðmundur
B. Friðriksson hjá Umhverfis- og
samgöngusviði segir veðrið geta
sett strik í reikninginn og að sorp-
hirðan taki lengri tíma í erfiðri
færð. Starfsmenn leggi sig þó fram
við að halda áætlun. Hann segir
einnig að auðvelt sé að komast að
því hvenær sorphirðumenn borg-
arinnar komi til að sækja sorpið
og því geti íbúar séð hvaða daga
leiðin þurfi að vera greið að sorp-
tunnunum. Það má sjá með því
að slá inn götuheiti í sorphirðu-
dagatali Reykjavíkurborgar á vef
borgarinnar.
Fréttatöku-
menn í BÍ
Félagsdómur hefur úrskurðað að
fréttatökumenn á RÚV vinni störf
sem eru jafngild þeim störfum
sem blaðamenn vinna. Þetta
þýðir að þeir eiga heima í Blaða-
mannafélagi Íslands og eiga rétt
á launum í samræmi við kjara-
samninga félagsins. Deilt var um
hvort fréttatökumennirnir ættu
heima í stéttarfélaginu og fór því
málið fyrir félagsdóm. Málið náði
til sex nafngreindra tökumanna á
Ríkissjónvarpinu. „Það er mikið
fagnaðarefni að hafa fengið jafn
afdráttarlausa viðurkenningu á af-
stöðu Blaðamannafélagsins í mál-
inu og skiptir þá félagsmenn í fé-
laginu sem í hlut eiga miklu máli,“
segir Hjálmar Jónsson, formaður
Blaðamannafélagsins í samtali við
vefinn press.is. „Dómurinn skiptir
ekki bara þessa starfsmenn RÚV
máli heldur staðfestir í eitt skipti
fyrir öll að þeir sem vinna fjöl-
miðlastörf á fjölmiðlum og eru í
Blaðamannafélaginu eiga kröfu
til þess að um kjör þeirra fari eftir
kjarasamningum BÍ.“