Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2011, Blaðsíða 27
Erlent 27Helgarblað 2.–4. desember 2011
Þumall á hægri – stór tá á vinstri
n Missti þumal en dó ekki ráðalaus
Sölustaðir um land allt
dreifingaraðili
YAKTRAX hálkugormana
eða nýju hálkubroddana
Færð vegna Anders Fogh
S
usanne Larsen, 44 ára kona
sem þjáist af beinmergs-
krabbameini, er afar ósátt við
þá meðferð sem hún fékk á
Rigshospitalet í Kaupmannahöfn,
stærsta sjúkrahúsi Danmerkur, í vik-
unni.
Susanne var að jafna sig eftir að-
gerð á sjúkrahúsinu og var komið
fyrir í einkaherbergi þar sem hún
fékk góða þjónustu. Skyndilega var
Susanne hins vegar færð yfir í lít-
ið, gluggalaust herbergi. Hún komst
síðar að því að hún hefði verið færð
vegna þess að leggja þurfti Anders
Fogh Rasmussen, fyrrverandi for-
sætisráðherra Danmerkur og núver-
andi framkvæmdastjóra NATO, inn á
sjúkrahúsið. Rasmussen hafði dott-
ið á hjóli með þeim afleiðingum að
hann handleggsbrotnaði.
Enginn neyðarhnappur var í her-
berginu sem Susanne var færð í.
Hún segist hafa fengið þau skilaboð
frá starfsfólki sjúkrahússins að kalla
mjög hátt ef hún þyrfti á aðstoð að
halda eða berja skeið í skál sem var
á borðinu við sjúkrarúmið. Svo fór
að Susanne fékk flog fljótlega eftir að
hún var færð. Hún féll í gólfið og lá í
eigin ælu í fjórar klukkustundir áður
en starfsfólk kom að henni. Susanne
hefur kvartað formlega yfir meðferð-
inni við forsvarsmenn Rigshospit-
alet. Forstjóri sjúkrahússins, Torben
Stentoft, segist vera miður sín vegna
atviksins.
Fársjúk kona reið yfir meðferð á sjúkrahúsi:
Góð meðferð
Anders Fogh hefur
væntanlega ekki
kvartað yfir með-
ferðinni sem hann
fékk. Susanne
Larsen er hins
vegar skiljanlega
afar ósátt.
Berjast um útnefningu
flokksins, hefur kynnt áætlun um
billjón dala niðurskurð í ríkisfjár-
málum landsins – á einu ári. Þegar
hann setti áætlunina fyrst fram, í
lok október, þótti hann setja mikla
pressu á aðra flokksmenn sem
keppast um útnefninguna. Paul
vill að skorið verði niður í stríðs-
rekstri í Afganistan og Írak, hætta
allri þróunaraðstoð og leggja niður
fimm ráðuneyti. Meðal ráðuneyta
sem hann vill leggja niður eru orku-
málaráðuneytið og menntamála-
ráðuneytið. Þá segir blaðið The
Washington Post að Paul vilji setja
öll aukin útgjöld annarra ráðuneyta
á ís. Hugmyndir Pauls ríma ágæt-
lega við hugmyndir annarra þing-
manna repúblikana, bæði í fulltrúa-
deild og öldungadeild bandaríska
þingsins. Meðal þeirra hugmynda
er að færa fyrirtækjaskatt niður í 15
prósent, binda enda á eignaskatt og
framlengja skattaafslætti sem stjórn
George W. Bush kom á. Þessi áform
myndu líklega binda enda á sjúkra-
tryggingakerfi sem stjórn Baracks
Obama hefur komið á fót.
Romney talinn líklegur
Margir stjórnmálaskýrendur vestan-
hafs telja Mitt Romney vera einna
líklegastan til að hljóta útnefningu
Repúblikanaflokksins. Þetta er þó ekki
í fyrsta skipti sem hann berst fyrir út-
nefningu flokks síns fyrir forsetakosn-
ingar en hann tókst á við öldunga-
deildarþingmanninn John McCain
fyrir forsetakosningarnar árið 2008.
Demókrataflokkurinn virðist trúa
því að Romney sé helsti keppinautur
Baracks Obama en flokkurinn hefur
birt fjölda auglýsinga þar sem ráðist
er gegn Romney. Hann hefur þó und-
anfarið fengið harða samkeppni frá
Newt Gingrich sem mælist með meira
fylgi en Romney í nokkrum lykilríkj-
um.
Michele
Bachmann
55 ára
Fulltrúadeildarþing-
maður fyrir Minnesota.
Herman Cain
65 ára
Stjórnarformaður
Seðlabanka Kansas
City.
Newt Gingrich
68 ára
Fyrrverandi forseti
fulltrúadeildar
bandaríska þingsins.
Jon Huntsman
51 árs
Fyrrverandi sendiherra
Bandaríkjanna í Kína.
Gary Johnson
58 ára
Fyrrverandi ríkisstjóri
í Nýju-Mexíkó.
Ron Paul
75 ára
Fulltrúardeildarþing-
maður fyrir Texas.
Rick Perry
61 árs
Ríkisstjóri í Texas.
Buddy Roemer
67 ára
Fyrrverandi ríkisstjóri
í Louisiana.
Mitt Romney
64 ára
Fyrrverandi ríkisstjóri
í Massachusetts.
Rick Santorum
53 ára
Öldungadeildarþing-
maður fyrir
Pennsylvaníu.