Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 2
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is TILBOÐ Hugræn teygjuleikfimi ásamt heilsumeðferð Hópa- og einkatímar • opnar orkuflæði • slökun • losar um spennu og kvíða • dregur úr verkjum • styrkir líkamann • jafnvægi fyrir líkama og sál • o.fl. Leiðbeinandi: Qing TAI CHI INNIFALIÐ Baráttan um Bessastaði Ljóst er að baráttan fyrir komandi forsetakosningar verður hörð en Ólafur Ragnar Grímsson til­ kynnti í nýárs­ ávarpi sínu að hann hygðist ekki bjóða sig fram að nýju. Fjölmargir hafa verið nefndir til sögunnar sem mögulegur arftaki en DV bað fólk um að tilnefna þá sem helst koma til greina. Meðal þeirra eru Davíð Odds­ son, fyrrverandi forsætisráðherra og ritstjóri Morgunblaðsins, Jón Baldvin Hannibalsson fyrrverandi ráðherra, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leik­ kona og Jón Gnarr borgarstjóri. Afar fáir voru hins vegar tilbúnir til að gefa upp afstöðu sína. Skaupið háð án ádeilu „Þetta var háð án ádeilu,“ sagði Bjarni Benedikts­ son, formaður Sjálfstæðisflokks­ ins, við DV á miðvikudag. Um fátt annað hefur verið rætt undanfarna daga en ára­ mótaskaup Sjónvarpsins. Þar fengu sjálfstæðismenn sinn skerf af háði og virðast margir þeirra vera súrir yfir skaupinu í ár. „Það var margt skemmtilegt í áramótaskaupinu en annað ekki,“ sagði Tryggvi Þór Her­ bertsson, þingmaður flokksins, á Face book­síðu sinni. Sagði hann meðal annars að það væri ekki í lagi að staðhæfa að menn hefðu framið stórfelld lögbrot án þess að fótur væri fyrir því. Fréttir vikunnar í DV 1 2 2 Fréttir 6.–8. janúar 2012 Helgarblað Hættir að borða í mótmælaskyni Al­ bert Jensen féll niður af bygg­ ingar­ palli í tíu metra hæð fyrir 21 ári og lamaðist. Nú er hann orðinn áttræður og leiður á lífinu. Hann er ósjálfbjarga og treystir alfarið á aðstoð annarra en það er verið að skera niður þá þjónustu sem gaf lífinu eitthvert gildi í hans huga. Eftir stendur að Albert upplifir sig einskis virði og vill frekar deyja en að lifa lífi sem hann vill ekki lifa. Hann hefur því ákveðið að fara í hungurverk­ fall og gerir ráð fyrir að það muni aðeins taka hann um tvo daga að fara. 3 Dópleit í skóla var ólögmæt Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að fíkniefnaleit lögreglu í Tækni­ skólanum í febrúar 2010 hafi verið ólögmæt. Lögregla fór með fíkniefnaleitarhunda inn í skólann og lokaði samtímis öllum útgönguleiðum þannig að um þúsund nemendur, sem voru í skólanum þegar leitin fór fram, komust ekki út. Umboðs­ maður Alþingis hóf athugun á málinu að eigin frumkvæði og komst að þeirri niðurstöðu að leit lögreglu hafi ekki verið í samræmi við gildandi lög. Leitin var gerð að frumkvæði skólans og sagði skólameistari hans í viðtali við Fréttablaðið dag­ inn eftir að enginn rökstuddur grunur hefði verið uppi um að fíkniefni væru í skólanum. Þá sagði hann að leitin hefði ákveð­ ið forvarnargildi. Engin fíkniefni fundust í leitinni. Borgin hirðir ekki jólatrén Borgarbúar þurfa sjálfir að fara með jólatré sín á endurvinnslu­ stöð eða kaupa þjónustu hjá sorphirðufyrirtækjum og íþrótta­ félögum. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Borgin hirðir ekki jólatré. Nokkur íþróttafélög í Reykja­ vík munu á nýju ári bjóða borgar­ búum upp á þá þjónustu að hirða jólatré að hátíðunum loknum. Íþróttafélögin kynna þessa þjón­ ustu í sínum hverfum. Skógrækt­ arfélag Reykjavíkur og Gámaþjón­ ustan hafa samstarf um hirðingu jólatrjáa. Allar upplýsingar er að finna á heimasíðu skógræktar­ félagsins en verkefnið nefnist Tré fyrir tré.  Má ekki fara út í Grímsey n Hundahald stranglega bannað í Grímsey n Málinu ekki lokið, segir óánægður hundaeigandi n Getur ekki heimsótt fjölskylduna vegna bannsins Þ etta bitnar á mér og minni fjöl­ skyldu. Í mínum huga er þessu máli ekki lokið,“ segir Einar Guðmann, ósáttur hunda­ eigandi á Akureyri, varðandi bann sem hefur verið sett á hunda­ hald í Grímsey, en hundahald er nú óheimilt með öllu. Ekki er einu sinni leyfilegt að fara með hunda þangað í heimsókn. Einar segist ætla að fara með málið til umboðsmanns Alþingis, en hann telur að þarna séu meðalhófs­ reglur og reglur um jafnræði brotnar. Hundar stranglega bannaðir Þegar Akureyrarbær og Grímseyjar­ hreppur sameinuðust árið 2009 komu upp spurningar um það hvort hunda­ hald væri leyfilegt á eynni en þangað til voru ekki til neinar skriflegar sam­ þykktir um það. Þar sem hundahald er leyfilegt á Akureyri gengu margir að því vísu að hið sama gilti um Gríms­ ey. Það virðist engu að síður hafa ver­ ið svo að það væri almenn vitneskja að hundahald væri bannað í Gríms­ ey, þrátt fyrir skort á reglugerðum. Í síðustu sveitarstjórnarkosningum var kosið um málið og þá fór það svo að fleiri kusu með því að hundahald yrði bannað og hundum alfarið meinað að vera á eynni. Umhverfisráðuneytið samþykkti þetta. Ósáttur Akureyringur kærir Einar Guðmann kærði því málið. Þar sem foreldrar eiginkonu hans, Gyðu Henningsdóttur, búa í Grímsey auk stórfjölskyldu hennar ferðast þau hjónin oft þangað. En nú er svo kom­ ið að það er ekki hægt þar sem hund­ urinn má ekki svo mikið sem koma og bíða í bílnum. Einar bendir á að björgunarhundar megi ekki einu sinni koma í eynna. Einar telur reglunar því vera klárt brot á rétti hans, til dæmis til að ferðast um landið. Þar sem Akur­ eyri og Grímsey hafi sameinast eigi sömu reglur að gilda á báðum stöðum. Telur hann að með banninu séu með­ alhófsreglur stjórnsýslulaga brotnar sem og jafnræðisreglur, illa hafi verið staðið að kosningunni um málið og samþykktin sé gölluð. Einar bendir á að það voru hundar í Grímsey þegar kosningin fór fram og telur langsótt að vísa til hefðar um hundabann. Hann segir að tengdaforeldrar hans hafi átt tvo hunda sem þeim var gert að losa sig við. Hann kærði málið til úrskurð­ arnefndar sem samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir tók málið fyrir. Í úrskurði hennar er ekki fallist á að brotið hafi verið gegn með­ alhófsreglum stjórnsýslulaga. Nefndin kvað því ekki vera forsendur til annars en að staðfesta ákvörðun Akureyrar­ bæjar um að banna alfarið hundahald í Grímsey. „Þeir virðast vera sammála mínum rökum að mestu leyti, en þeir komast að þeirri niðurstöðu að Akur­ eyrarbær hafi ekki haft rangt fyrir sér með þessum lögum heldur hafi þeir verið studdir af því að hundahald er bannað í mörgum bæjarfélögum,“ segir Einar. Hann segist ekki hafa ver­ ið neitt sérstaklega bjartsýnn á niður­ stöðu nefndarinnar en það er engu að síður baráttuhugur í honum. Næsta skref hjá Einari er að kæra málið til umboðsmanns Alþingis. Geta ekki verið í Grímsey Málið bitnar á fjölskyldu Einars þar sem hún getur ekki ferðast án hunds­ ins, Kúts. „Við höfum ekki getað verið í Grímsey síðastliðin tvenn jól og höfum snarlega dregið úr ferðum til Gríms­ eyjar. Við vorum búin að fara þang­ að mörg undanfarin ár með hundinn vegna ljósmyndunar og til að fylgjast með fjölskyldunni– mæta í fermingar og fleira. En nú er svo komið að það er ómögulegt að fara án þess að hafa hundinn með sér.“ Hann segist ekki fara fram á að lausaganga hunda verði leyfð í Gríms­ ey, aðeins að honum verði leyft að ferðast með hundinn til bæjarfélaga á Íslandi. „Þetta er spurning um ferða­ frelsi og jafnræði. Það er ekkert annað bæjarfélag á Íslandi sem bannar þér að ferðast með hundinn þinn í bíln­ um. Þetta er fordæmalaust bann að þessu leyti.“ Þurfti að gefa hundinn sinn Mayflor Perez Cajes þurfti að losa sig við chiuahua-hund sinn þegar hún fluttist til Grímseyjar árið 2009. Það var áður en reglurnar um hundahald voru formlega settar, en hún segist ekki hafa viljað taka áhættuna. Hún fann hundinum sínum því nýtt heimili á Akureyri áður en hún flutti. „Ég frétti það áður en ég flutti að hundahald væri bannað. Það voru ekki ákveðnar reglur komnar en ég vissi það að hundar voru ekki velkomnir til Grímseyjar. Ég tók því ekki áhættuna á því að taka hann með mér,“ segir Mayflor. „Það var auðvitað mjög erfitt að láta hundinn frá sér. Ég var búin að eiga hann í rúmt ár. Hann er æðislegur og pínulítill.“ Ein af ástæðunum fyrir hundabanninu í Grímsey er óttinn við að hundarnir hafi neikvæð áhrif á fuglalíf sem þar er. Mayflor segist skilja það en segir að enginn sé að tala um lausagöngu hunda í eynni, heldur skynsamlegt hundahald. „Margir halda að hundarnir verði lausir, en það á auðvitað að vera með hundana í ól,“ segir hún og vill frekar að settar verði skýrar reglur um hundahaldið. Ásta Sigrún Magnúsdóttir blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is Gefst ekki upp Einar ætlar að kæra málið til umboðsmanns Alþingis. Mynd GyðA / EinAr GuðMAnn Baráttan um Kút Einar segist hafa gert grín að málinu með því að senda mynd af hundinum Kúti, enda er hann ekki stór og er af tegundinni shitsu. Mynd EinAr GuðMAnn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.