Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 48
40 Tækni 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
Brjálaðir í Angry Birds
n Nýtt niðurhalsmet hjá Rovio
Þ
að voru án efa margir sem fengu
iPhone-snjallsíma í jólagjöf ef
marka má vinsæl umræðuefni
á Twitter í kringum hátíðarnar.
Svo virðist vera sem stór hluti þessara
nýju eigenda iPhone hafi farið bein-
ustu leið inn í App Store-verslunina í
símum sínum og halað niður snjall-
símaleiknum Angry Birds.
Vefsíðan All Things D, sem rekin
er í samstarfi við Wall Street Journal,
greindi frá því í vikunni að 6,5 millj-
ónum eintaka af Angry Birds hafi verið
halað niður í kringum jólahátíðina. Nú
spyrja margir sig hvort símarnir eigi
ekki að koma með fyrirfram uppsetta
útgáfu af þessum sívinsæla leik sem
slegið hefur öll sölu- og niðurhalsmet
í App Store. Samkvæmt heimildum All
Things D nemur fjöldi niðurhalaðra
eintaka af Angry Birds um það bil jafn
mörgum og nýskráðum iPhone-sím-
um.
„Við erum virkilega spennt yfir því
að sjá svona háar tölur yfir nýtt fólk
sem er að kynnast Angry Birds yfir
jólahátíðina. Við erum með mikið af
spennandi nýjum útgáfum sem við
ætlum að senda frá okkur árið 2012 og
við getum varla beðið með að kynna
þær fyrir almenningi,“ segir Ville Heij-
ari hjá Rovio, fyrirtækinu á bak við
Angry Birds, í samtali við All Things D.
Mikil aukning var frá jólunum 2010
en þá var leiknum halað niður í um
tveimur milljónum eintaka. Niðurhal á
leiknum hefur því í raun rúmlega þre-
faldast á milli ára. Inni í þessum töl-
um eru allar útgáfurnar af Angry Birds
en nokkrar mismunandi útgáfur fást í
App Store-versluninni.
adalsteinn@dv.is
B
andaríska þingið hefur til
umfjöllunar afar umdeild
lagafrumvörp sem gætu
haft áhrif á hvaða vefsíð-
um þú hefur aðgang að á
netinu. Nái frumvörpin fram að
ganga fær bandaríska ríkið aðgang
og leyfi til þess að loka á erlendar
vefsíður á netinu með því að taka
út DNS-skráningu þeirra og taka
þær út úr niðurstöðum leitarvéla.
Tilgangurinn með frumvörpun-
um er að koma í veg fyrir höfund-
arréttarbrot en aðeins á að loka
á þær síður þar sem líklegt er að
brotið sé gegn höfundarréttarlög-
um í Bandaríkjunum.
Leiðin að efninu eyðilögð
Lagafrumvörpin eru tvö og ganga
undir heitunum SOPA og PIPA en
bæði frumvörpin hafa sama mark-
mið: að loka á vefsíður sem dreifa
höfundarréttarvörðu efni. Það er
samt nákvæmlega það sem hef-
ur verið hvað harðast gagnrýnt.
Segja má að með þessu yrði ríkis-
stjórninni gert kleift að brjóta allar
brýrnar sem þarf að komast yfir til
að hægt sé að sækja ólöglegt efni
án þess þó að ráðast gegn þeim
sem dreifa efninu sjálfu. Vefsíð-
urnar eru enn til þó að leiðin að
þeim hafi verið eyðilögð, efninu er
sem sagt áfram dreift.
Frumvörpin tvö snúa eingöngu
að vefsíðum sem eru hýstar utan
Bandaríkjanna. Bandaríkjamenn
hafa þegar veitt sjálfum sér heim-
ildir til að loka á vefsíður sem
hýstar eru innanlands. Stuðnings-
menn frumvarpanna segja það
hins vegar ekki vera nóg að horfa í
eigin barm heldur verði að bregð-
ast við þjófnaði á höfundarréttar-
vörðu bandarísku efni erlendis.
Hætta á misnotkun
Það sem andstæðingar frumvarp-
anna óttast mest er að lögin verði
misnotuð. Samkvæmt þeim nægir
eiganda höfundarréttarvarins efn-
is að senda bréf til vefþjónustuað-
ila þar sem farið er fram á að DNS-
upplýsingum verði eytt og að lokað
sé á greiðsluþjónustuaðila sem vef-
síðurnar nýta sér. Nokkrir dagar eru
gefnir frá því að bréfið berst vef-
þjónustufyrirtækinu þar sem for-
svarsmönnum vefsíðunnar sem
loka á fyrir gefst færi á að verja sig
fyrir bandarískum dómstólum.
Í Bandaríkjunum eru vefþjón-
ustuaðilar oftar en ekki tengdir
þeim sem eiga höfundarrétt á ýmsu
efni. Sem dæmi má nefna Comcast
sem á og rekur sjónvarpsstöðina
NBC. Fyrirtækið getur sjálft lokað á
erlendar síður telji það sig hafa rök-
studdan grun að síðuna sé hægt að
nota til að brjóta á höfundarrétti.
Comcast er einmitt eitt þeirra fyrir-
tækja sem styðja frumvarpið.
n Bandaríska þingið hefur til umfjöllunar umdeild lagafrumvörp n Reyna að verja
höfundarréttarhagsmuni í Bandaríkjunum n Gæti haft áhrif á hvað þú sérð á vefnum
Vilja völd til að loka
á erlendar vefsíður
Vilja hafa mikil
áhrif Bandarískir
þingmenn vilja geta
stjórnað því hvaða
vefsíðum fólk hefur
aðgang að.
Bluetooth-
armbandsúr
Casio í Japan hefur lagt drög að
markaðssetningu G-Shock-úrs
sem tengist við snjallsíma. Úrið
tengist í gegnum Bluetooth
og getur til dæmis
sýnt hver er að
hringja án þess
að þú þurfir að
taka símann
úr vasanum.
Þá gefur úrið
líka til kynna
þegar þú færð
tölvupóst eða
smáskilaboð. Sam-
kvæmt umfjöllun
TechCrunch um úrið
getur það aðeins tengst Andro-
id-snjallsímanum Medias LTE
N-04D frá NEC. Þetta er reynd-
ar ekki fyrsta úrið sem getur
tengst við farsíma en þetta er
fyrsta úrið sem notar Bluetooth
til þess. Úrið átti í fyrstu að fara
á markað fyrir jól en vegna flóð-
anna í Taílandi þurfti að fresta
því fram í mars á þessu ári.
84 tommu
4K-sjónvarp
Kóreska tæknifyrirtækið LG hefur
tilkynnt um nýtt risasjónvarp sem
sýnt verður á CES 2012 ráðstefn-
unni í Las Vegas núna í byrjun
janúar. Sjónvarpið er 84 tommur
horn í horn, með þrívíddarmögu-
leika og 4K-upplausn (sem er
3.840×2.160 pixlar). Til að setja
þessa ofurupplausn í samhengi
er hún fjórum sinnum betri en
í bestu háskerpusjónvörpunum
sem eru á markaði í dag. LG er
ekki eina fyrirtækið sem hefur
risastór 4K-sjónvörp í þróun hjá
sér heldur hefur Toshiba kynnt
til leiks 55 tommu þrívíddarsjón-
varp þar sem ekki þarf sérstök
gleraugu til að sjá myndina í
þrívídd og Sharp hyggst setja 60
tommu 4K LCD-sjónvarp á mark-
að í Japan á árinu.
Tvær gerðir
iPad í janúar
Orðrómur er á kreiki um að
bandaríska fyrirtækið Apple muni
kynna til leiks tvær nýjar iPad-
spjaldtölvur á ráðstefnunni iWorld
sem verður haldin í lok janúar.
Á sama tíma verður iPad-tölvan
sem Apple er nú með í sölu lækka
í verði. Samkvæmt heimildum
Digitimes verða báðar nýju tölv-
urnar með 9,7 tommu skjá með
hærri upplausn en tölvan sem er á
markaði í dag. Upplausnin í nýju
útgáfunum verður 1.536×2.048 í
stað 768×1.024.
Slá í gegn Reiðu fuglarnir
slógu vægast sagt í gegn um
jólin en þeim var halað niður í
6,5 milljónum eintaka.
Tækni 36.271 1,4
Um hvað snúast
SOPA og PIPA?
Þetta eru þær leiðir sem bandarískum
stjórnvöldum verða færar ef frumvörpin
ná fram að ganga.
n Fyrirskipa vefþjónustufyrirtækjum að
breyta DNS-skráningum á vefþjónum
sínum til að loka á vefsíður utan Banda-
ríkjanna sem hýsa ólögleg afrit af mynd-
böndum, tónlist og myndum.
n Fyrirskipa leitarvélum á borð við
Google að breyta leitarniðurstöðum og
loka á vefsíður utan Bandaríkjanna sem
hýsa ólöglegt efni.
n Fyrirskipa greiðsluþjónustuaðilum á
borð við PayPal að loka á greiðslur og
reikninga tengda vefsíðum utan Banda-
ríkjanna sem hýsa ólöglegt efni.
n Fyrirskipa auglýsingaþjónustuað-
ilum á borð við AdSense frá Google að
auglýsa eða greiða fyrir auglýsingar
tengdar vefsíðum utan Bandaríkjanna
sem hýsa ólöglegt efni.
Aðalsteinn Kjartansson
adalsteinn@dv.is
Tækni