Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 34
6 Heilsa 6.–8. janúar 2012 Helgarblað n Voru áramótaheitin of háleit? n Sérðu fram á að geta ekki staðið við þau? n Einföld ráð í átt að heilbrigðara lífi Vendu þig af þessu Þú gleymir að nota tannþráð n Þú getur burstað í þér tennurnar þar til þær glansa en sleppir þú því að nota tannþráð ná bakteríur og matarleifar að festast á milli skjannahvítu tannanna þinna. Flúor í tannkremi hreinsar einungis yfirborð tannanna og bakteríur og matarleifar getað orsakað tannskemmdir og tannholds- sjúkdóma. Það er ekki einungis tannheilsan sem bíður hnekki. Rannsókn sem American Heart Association kynnti í fyrra sýnir fram á að tannskemmdir og sjúkdómar í tannholdi geta orsakað hjartaáfall, heilablóðfall og aukna hættu á hjartabilun. Ráðlegging: Ákveddu að nota tannþráðinn einu sinni á dag. Hvort sem það er kvölds eða morgna skiptir ekki öllu máli. Notaðu þráðinn varlega. Til þess að ná sem bestum árangri er best að gera þetta áður en þú burstar tennur svo þú burstir í burtu það sem þú náðir á milli tannanna. Það er í lagi þótt það blæði örlítið í byrjun en ef það heldur áfram skaltu hafa samband við tannlækni. Að segja lækninum litlar hvítar lygar n Fólki getur þótt vandræðalegt að segja einhverjum sem það hittir í örfá skipti á ári frá öllum eymslum, verkjum og slæmum ávönum. Það getur þó verið skaðlegt heilsunni að ljúga að lækninum sínum. Fólk á það þó til að draga úr eða segja ósatt um mataræði sitt, hvaða lyf það tekur, hreyfingu, álag og svefnvenjur þegar það ræðir við lækninn sem getur leitt til að það fær ekki rétta meðferð. Ráðlegging: Áður en þú ferð til læknisins er gott að taka saman upplýsingar um þau lyf sem þú hefur tekið, aðra lækna sem þú hefur farið til, notkun á áfengi og lyfjum, upplýsingar um hvort þú hafir stundað óábyrgt kynlíf, skapgerð, svefnvenjur, mataræði og hreyfingu. Skipulagning upplýsinganna gerir þér auðveldara að koma þeim frá þér. Það er þó mikilvægast að þú sért hjá lækni sem þú treystir og mundu að starf læknisins er að hjálpa þér. Þú ert þræll vanans í ræktinni n Hleypur þú á brettinu í hálftíma, lyftir nokkrum lóðum og teygir á sama hátt í hverri viku? Sérðu engan árangur? Ef þú gerir sömu æfingarnar yfir ákveðinn tíma fer líkaminn að venjast þeim. Þegar þú lærir nýjar æfingar brennir þú fleiri hitaeiningum en eftir því sem á líður eyðum við æ minni orku. Það er því góð hugmynd að bæta við og breyta æfingum. Ráðlegging: Gott ráð er að breyta um stefnu í þeim æfingum sem þú gerir. Ef þú ert hlaupari og æfingin þín gengur út á að hlaupa áfram er tilvalið að reyna æfingar þar sem þú hreyfir til hliðar, til dæmis tennis eða skvass. Það að breyta örlitlu í æfingunni getur breytt heilmiklu fyrir árangur þinn. Ögraðu sjálfum/sjálfri þér í líkamsræktinni; ef þú heldur að þú getir ekki dansað eða stundað jóga er kominn tími til að prófa. Næturferðir í ísskápinn n Þú fitnar kannski ekki af því að borða seint á kvöldin en ef þú færð þér til dæmis rjómaís klukkan 23.00 á kvöldin ertu líklega búinn að fá dagskammt- inn af hitaeiningum. Það eru meiri líkur á að þig langi í sætan eftirrétt en hitaeiningasnauðan þegar þú ert þreyttur. Þó við fitnum kannski ekki af kvöldsnarlinu þá hefur það slæm áhrif á tennurnar en rannsókn frá árinu 2010 sýnir að þeir sem borða seint á kvöldin eða næturnar eru í meiri hættu á tannskemmdum. Það orsakast af því að þá framleiðir munnurinn minna af munnvatni sem leiðir til hægari niðurbrots á matnum. Ráðlegging: Ein helsta ástæða þess að við fáum okkur mat fyrir svefninn er sú að okkur leiðist. Önnur ástæða er að það er orðinn vani hjá okkur að narta í eitthvað á kvöldin á meðan horft er á sjónvarpið. Þá er gott ráð að fá sér vatnsglas áður en haldið er í háttinn. Annað ráð er að sitja á öðrum stað fyrir framan sjónvarpið en þú ert vanur. Það getur haft jákvæð áhrif á slæman vana. Að svindla á svefni n Ef þú hefur vanið þig á að vaka lengi yfir sjónvarpi eða ókláruðum verkefnum færðu það í hausinn daginn. Það orsakar ekki einungis að þú geispar út í eitt heldur hefur það verri áhrif, veldur einbeitingarleysi, hefur slæm áhrif á ónæmiskerfið og framleiðslu hormóna sem stjórna matarlyst. Ein andvökunótt ruglar allt kerfið en sem dæmi má nefna að rannsókn frá árinu 2010, sem birtist í Journal of Endocrinology and Metabolism, sýnir að þeir sem sofa í fjóra tíma á nóttu hafa meira þol gagnvart insúlíni en þeir sem sofa átta og hálfan tíma. Þetta eru slæmar fréttir fyrir sykursjúka. Ráðlegging: Búðu til þín eigin venjur sem hjálpa líkamanum að vita hvenær kominn sé tími til að fara að sofa. Þú getur lesið, farið í heitt bað eða gert aðra afslappandi hluti. Það er ekki ráðlagt að eyða síðasta vökutímanum fyrir framan sjónvarpið eða tölvuna. Fjölmargir taka fartölvuna eða síma með sér í rúmið en þessi tæki eru afar örvandi og streituvaldandi. Alveg eins og fólk breytir venjum í sambandi við heilsurækt og mataræði til að öðlast heilbrigðara líf ætti það að breyta svefnvenjum. Þú situr á rassinum allan daginn n Fjölmargir sitja við skrifborð frá níu til fimm alla virka daga. Jafnvel þó þú æfir fyrir maraþon þess á milli vinnur það ekki upp á móti þeim skaða sem kyrrstaðan veldur. Rannsókn Medicine & Science in Sports & Exercise frá árinu 2009, sem náði til 17.000 manns á aldrinum 18 til 90 ára, sýnir að dánartíðni þeirra sem eyða mestum hluta vinnudagsins við skrifborð er hærri, burtséð frá hvers konar líkamsrækt þeir stunda. Ein tilgáta er sú að líkami okkar framleiði ekki eins mikið af fitubrennandi ensími þegar við sitjum allan daginn. Önnur er sú að líkaminn venjist þessari líkamsstöðu og vöðvarnir hætti að virka eins vel þegar við hreyfum okkur. Ráðlegging: Stattu upp við hvert tækifæri sem gefst. Drekktu mikið af vatni svo þú neyðist til að standa upp reglulega og fara á klósettið. Stattu á meðan þú talar í síma eða taktu þér pásu, stattu upp og talaðu við samstarfsmenn. Aldrei sleppa reglulegu líkamsræktinni þinni. Líkamsræktin er ávallt af hinu góða þó hún nái ekki að vega á móti skaðanum sem kyrrsetan veldur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.