Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Page 27
Viðtal 27Helgarblað 6.–8. janúar 2012
tamningamann á Hofi sem sér
um hestana á meðan. Þá erum
við með ráðsmann sem sér um
búið meðan við erum í burtu.
Það eru miklar framkvæmdir
á Hofi. Við erum að gera upp
gamla bæinn sem er spennandi
verkefni.“
Gæti ekki verið heppnari
Ástríða hans fyrir kvikmynda-
gerð og leiklist er ekki nærri
eins mikil og þegar kemur að
ástríðunni milli hans og eigin-
konunnar Lilju.
„Lilja átti svo mikið í bygg-
ingu og hönnun heimilis okkar
að Hofi og ég er stoltur af henni.
Það sem vel er gert og er gert
af ástríðu vekur alltaf athygli.
Það hefur verið fjallað um Hof
úti um allan heim. Og sund-
laugina, henni má ekki gleyma.
Lilja er einstök kona. Það sem
hún er búin að gera fyrir norð-
an. Byggja upp eitthvað sem er
einhvers virði. Hún setur allan
kraft í allt það sem hún ákveð-
ur að gera og sækist aldrei eft-
ir athygli eða að vera metin að
verðleikum. Það er virkilega
fallegur eiginleiki. Hún er með
mikið egó eins og ég. Það er
mjög gaman hjá okkur. Við
erum skapstórar manneskjur.
Við erum ekki auðveld hvort
öðru og við höfum bæði miklar
skoðanir. Við eigum náið sam-
band finnst mér. Við erum búin
að vera saman í 16 ár, ég hefði
ekki haldið að það væru mín ör-
lög að vera með sömu konunni
í svo langan tíma. Sambandið
er kraftaverk. Ekki vegna þess
að ég eða hún höfum haft það
svona erfitt heldur vegna þess
að það urðu örlögin að ég lenti
á manneskju eins og henni. Ég
gæti ekki verið heppnari,“ segir
Baltasar.
Lilja kemur inn í þessum
töluðu orðum og heilsar. Hún
er íklædd grænni hermanna-
kápu og með stóran loðkraga
um hálsinn. Ungleg og falleg
að vanda. „Æi, má hann ekki
koma inn?“ spyr hún Baltasar
og horfir út á Bingó sem enn sit-
ur og horfir fast á Baltasar. Lilja
bíður ekki svars og nær í Bingó.
„Hérna, karlinn, fáðu þér smá
beikon,“ segir hún og teygir sig
í nokkrar beikonsneiðar af diski
Baltasars sem Bingó tekur feg-
inn við meðan hann virðir fyrir
sér blaðamann og ljósmyndara
sem hafa rænt hann mikilvæg-
um tíma með pabba. Lilja segist
aðspurð sakna sveitarinnar. „Ég
verð fegin þegar ég kemst þang-
að aftur,“ segir hún.
Ræturnar eru hjá Lilju„Já,
þetta
er fallvalt
og getur
runnið út í
sandinn á
einu auga-
bragði
Baltasar og Bingó Baltasar segist heppinn að eiga
konu eins og Lilju að. „Við erum búin að vera saman í 16
ár, ég hefði ekki haldið að það væru mín örlög að vera
með sömu konunni í svo langan tíma. Sambandið er
kraftaverk. Ekki vegna þess að ég eða hún höfum haft
það svona erfitt heldur vegna þess að það urðu örlögin
að ég lenti á manneskju eins og henni.“ myndir siGtryGGur ari