Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 19

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Blaðsíða 19
Fréttir 19Helgarblað 6.–8. janúar 2012 ENGLAND • ÍTALÍA • KANADA • SKOTLAND • SPÁNN Með samstarfi við alþjóðlega fag- háskóla í fimm löndum getum við boðið mikið úrval námsleiða. Nemendur koma víða að úr heiminum og þannig skapast alþjóðlegt umhverfi sem gerir dvölina að ógleymanlega. Auk þess eiga nemar góða möguleika á að hitta „rétta“ fólkið og komast áfram á alþjóðlegum markaði. Dæmi um nám í boði: Fatahönnun • Textíl- og tíska • Skartgripahönnun • Auglýsinga- stjórn • Grafísk hönnun • Marg- miðlun • Vöruhönnun • Markaðs- fræði • Ljósmyndun • Kvikmynda- gerð • Leikmyndagerð • Marg- miðlun • Arkitektúr • Innanhúss- hönnun • Iðnhönnun • Ljósahönn- un • Blaðamennska • Sýninga- hönnun • Viðburðastjórnun. Siðbót klýfur Samfylkinguna n Árni Páll í uppreisn n Stjórnmálum Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur hafnað n Ráðherrakapall Jóhönnu og Steingríms ögrun við frjálslynda arm flokksins illa skipulagðri uppreisn gegn for- manni flokksins.“ Vandinn við þessa greiningu er að Árni Páll hefur að baki sér mæl- anlegan styrk. Hann leiðir öflug- asta kjördæmi Samfylkingarinnar en enginn þingmaður flokksins hef- ur fleiri atkvæði að baki sér. Kjör- fylgi Árna nær út fyrir raðir Samfylk- ingarinnar og hans áherslur virðast höfða vel til kjósenda sem skilgreina sig hægra megin við miðju þar sem margir kjósendur staðsetja sjálfa sig. Hvort sá stuðningur nýtist honum á leiðinni til valda innan flokksins er óráðið. Pólitískir andstæðingar strjúka Árna Óneitanlega vekur athygli hve mik- inn stuðning Árni Páll hefur meðal andstæðinga Samfylkingarinnar. „Af fenginni reynslu sjáum við að aðrir ráðherrar hafa ekki farið hönduglega með forræði Icesave-málsins. Við treystum því að þau vinnubrögð, sem efnahags- og viðskiptaráðherra hefur sýnt, verði viðhöfð,“ sagði Þor- gerður Katrín Gunnarsdóttir í ræðu í þinginu um miðjan desember. Þor- gerður hrósaði vinnubrögðum Árna í Icesave-deilunni og var meðal þeirra þingmanna sem börðust fyrir því að málið yrði enn á hans forræði en ekki utanríkisráðherra eins og ákveðið var. Ákveðnir þingmenn Samfylking- arinnar sem og hópur þingmanna í VG sem starfar með Samfylking- unni í ríkisstjórn eru sagðir afar pirr- aðir á lofi Sjálfstæðismanna í garð Árna Páls. Við bætist kunningsskap- ur hans og Þorgerðar Katrínar, en þau eru sögð heilsast með faðmlagi á göngum þingsins. „Það er hrein og klár ögrun við okkur, samstarfsmenn hans,“ sagði þingmaður um málið. Að búa til klofning Það er þekkt aðferð til að kljúfa raðir pólitískra andstæðinga að strjúka og styrkja einstaklinga sem standa fyrir umdeildum hlutum. Í því samhengi má til dæmis nefna að fyrrverandi landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra, Jón Bjarna- son, sem var gríðarlega umdeild- ur meðal flokksfélaga VG, var oftar en ekki hrósað fyrir skelegga fram- göngu af andstæðingum flokks- ins. Erfitt er að meta hvort kenn- ingar þeirra flokkstjórnarfulltrúa um að pólitískir andstæðingar Samfylkingarinnar séu að gera til- raun til að mynda klofninga innan raða flokksins eru á rökum byggð- ar. Aðferðin er sannarlega þekkt úr stjórnmálasögunni. Veikur meiri- hluti ríkisstjórnarinnar og undir- liggjandi gremja innan Samfylk- ingarinnar um hvert skal stefna eru kjöraðstæður fyrir vænisýki og tor- tryggni. Flokkstjórnarfundinum er raun- ar lýst sem fullkominni hysteríu af einum fundargesta. Jóhanna sterk eftir fundinn Átökin á flokkstjórnarfundinum leiða einnig í ljós hversu mikið Jó- hanna Sigurðardóttir getur leyft sér í skjóli þess að þeir eru teljandi á fingr- um annarrar handar, flokksfélag- ar Samfylkingarinnar sem vilja láta bendla sig við að hafa sprengt fyrstu „hreinu vinstristjórn“ sögunnar. Fyrst og fremst virðist þar vera ótt- inn við að fá nafn sitt skráð í söguna sem áhrifavalds í að fella sögulega ríkisstjórn og um leið langþráð tæki- færi vinstriflokkanna til að láta að sér kveða við stjórn landsins. Eins og áður segir er niðurstaða nefndarinnar álitin samfelldur áfell- isdómur yfir ákvörðunum flokks- forystunnar fyrir hrun. Í stuttu máli má segja að skýrslan hafni með öllu, þeim stjórnmálum sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi for- maður flokksins stóð fyrir. Það hefur hleypt illu blóði í þá sem henni stóðu næst. Umbótaskýrslan gagnrýnd með hjáleiðum Opinberlega er gagnrýni á niður- stöður umbótaskýrslu Samfylking- arinnar ekki mikil innan flokksins. Almennt er umbótastarfi flokks- ins lýst sem „viðamesta umbóta- starfi sem íslenskur flokkur hefur farið í“ og gagnrýni á starfið er ekki vel tekið innan flokksins. Ýmsir hafa þó leyft sér að gagnrýna inni- hald og niðurstöður skýrslunnar án þess að nefna skýrsluna sjálfa. Þar má nefna skrif Árna Páls nokkr- um dögum fyrir landsfund þar sem fjalla átti um þær tillögur sem unn- ar voru í umbótastarfi flokksins. „Í fyrsta lagi er það útbreiddur mis- skilningur að lýðræðislegt umboð aukist með því að flokksstofnanir taki fleiri og fleiri ákvarðanir um alla þætti stefnu flokka. Fólk sem mætir á fundi endurspeglar ekki kjósendahóp Samfylkingarinn- ar, frekar en flokksmenn annarra flokka endurspegla kjósendahóp þeirra. Fólk vill sinna sínu. Ef fólk- ið sem mætir á fundi myndi endur- spegla kjósendahópinn væri það ekki á fundi, heldur heima hjá sér að tala við börnin sín, lesa eitthvað skemmtilegt eða horfa á sjónvarp- ið. Þar er jú kjósendahópurinn. Kjósendahópurinn á ekkert síðri rétt en flokksbundið fólk,“ skrif- aði Árni Páll Árnason, fyrrverandi ráðherra, á bloggi sínu stuttu fyr- ir landsfund. Þótt Árni Páll nefni umbótaskýrsluna aldrei í færslunni þarf ekki mikið innsæi til að lesa gagnrýni á niðurstöðu skýrslunn- ar úr skrifunum. Helstu niðurstöð- ur skýrslunnar eru að styrkja verði stofnanir flokksins auk þess sem opnum prófkjörum er hafnað sem aðferð við val á framboðslista. Opinn eða lokaður flokkur Margir sem teljast til hægri í flokknum telja að umbótaskýrslan kalli eftir því að Samfylkingin verði lokaðri flokkur. Erfitt er að halda fram að það sé efnislega röng túlk- un. Í skýrslunni segir meðal ann- ars að til greina komi að settar verði reglur um lágmarkstíma sem flokksfélagar verði að hafa verið skráðir í flokkinn, áður en þeir gefa kost á sér í embætti á hans vegum. Á móti segja þeir sem taka undir tillögur umbótanefndarinnar að í rauninni sé verið að opna flokk- inn með því að skýra uppbyggingu flokksins, reglur og valdakeðju. Deilurnar innan Samfylkingar- innar sem birtust svo vel á flokks- tjórnarfundinum eru því sam- bland af persónulegum metnaði einstaka aðila, hugmyndafræði- legum deilum og raunar ósætti um hvers konar flokkur Samfylkingin á að vera. sögð gagnrýnin á stjórnarsamstarfið við VG en ekki afhuga því. Margrét K. Sverrisdóttir Aðalfulltrúi Reykjavík Ekki náðist í Margréti Sverrisdóttur við vinnslu fréttarinnar. Hún hefur þó verið staðsett til hægri í flokknum og gæti hugsanlega greitt atkvæði með hug- myndum um landsfund í vor. Bergvin Oddsson Aðalfulltrúi Akureyri Frambjóðandi til stjórnlagaráðs og bauð sig fram til ritara Samfylkingarinnar á síðasta landsfundi. Hann sat flokkstjórnarfundi Samfylkingarinnar og er sagður frekar hafa talað með tillögu forsætisráðherra um upp- stokkun í ríkisstjórn. Ekki er talið líklegt að hann styðji hugmyndir um landsfund í vor. Kristín Sævarsdóttir Aðalfulltrúi Kópavogi Kristín er sögð vilja sjá breytingu í æðstu stjórn flokksins. Mun líklega styðja hug- myndir um landsfund í vor. Ásgeir Beinteinsson Aðalfulltrúi Reykjavík Var formaður SffR árið 2009, þegar frægur Þjóðleikhúsfundur var haldinn og félagið ályktaði að slíta skyldi ríkisstjórnar- samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn. Vill sjá umbætur í flokknum og deilir ekki hugmyndum stuðningsfólks Árna Páls um eðli þeirra umbóta. Mun ekki greiða atkvæði með tillögu um landsfund í vor. Þó er ekki ólíklegt að Ásgeir telji skynsamlegt að halda skuli landsfund seinna á árinu svo endurnýja megi forystu flokksins fyrir næstu kosningar. Valdimar Guðmannsson Aðalfulltrúi Blönduósi Formaður Samfylkingarfélagsins í Austur- Húnavatnssýslu. Valdimar sat flokks- tjórnarfundinn um áramótin en tjáði sig ekki á þeim fundi. Hann er þó sagður líklegur til þess að hafna hugmyndum um landsfund í vor. Hrafnhildur Ragnarsdóttir Fyrsti varafulltrúi Afar ólíklegt verður að teljast að hún styðji tillögu um breyttan tíma fyrir landsfund. Fyrsti varamaður framkvæmdastjórnar og því óvíst hvort hún situr fundinn. Fyrrverandi starfsmaður Ungra jafnaðar- manna. Þau taka ákvörðun um landsfund „Ákvörðun Jóhönnu um uppstokkun í ríkisstjórninni sýnir að hún er tilbúin að gefa skít í frjálslynda arm flokksins ef svo ber undir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.