Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Síða 6
6 Fréttir 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
Ingólfur vann Fjármálaeftirlitið
n Ákvörðun um vanhæfi dæmd ógild
I
ngólfur Guðmundsson var ekki
vanhæfur til að gegna starfi fram-
kvæmdastjóra Lífeyrissjóðs verk-
fræðinga eins og Fjármálaeftirlitið
hafði ákveðið. Ingólfur var stjórnar-
formaður Íslenska lífeyrissjóðsins á
árunum 2007 og 2008 en Fjármálaeft-
irlitið gerði athugasemdir við fjárfest-
ingar sjóðsins en eftirlitið vísaði mál-
inu til sérstaks saksóknara sem hefur
haft það til rannsóknar. Taldi eftirlitið
að fjárfestingarnar hefðu farið fram
úr því sem lög heimila. Fjármálaeftir-
litinu hefur verið gert að greiða Ing-
ólfi 1,3 milljónir króna í málskostnað.
Héraðsdómur féllst í raun á þau
rök Fjármálaeftirlitsins að stjórn Ís-
lenska lífeyrissjóðsins hefði sýnt af
sér alvarlega vanrækslu við eftirlit
með fjárfestingum sjóðsins. Það var
hins vegar meðferð eftirlitsins sjálfs
á niðurstöðu sinni um hæfi Ing-
ólfs sem leiddi til þess að dómurinn
sá sér ekki annað fært en að ógilda
ákvörðunina. Það var meðal annars
vegna þess að dómurinn taldi Ing-
ólf ekki hafa fengið andmælarétt eins
og honum átti að standa til boða auk
þess sem stjórn Fjármálaeftirlitsins
hefði ekki haft undir höndum leið-
réttar skýrslur um starfsemi sjóðsins
sem gætu hafa haft áhrif á mat á hæfi
Ingólfs.
Athygli hefur vakið að það var fyrr-
verandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins,
Jónas Fr. Jónsson, sem rak málið fyr-
ir hönd Ingólfs fyrir héraðsdómi. Jón-
as stjórnaði Fjármálaeftirlitinu allt til
ársins 2009 en hann var leystur frá
störfum eftir efnahagshrunið.
Frístundakor t
Tónheimar - Síðumúla 8 - tonheimar@tonheimar.is
Ástvaldur Traustason
skólastjóri Tónheima
Upplýsingar og skráning á tonheimar.is
og í síma 846 8888
Láttu drauminn rætast og lærðu að
spila þín uppáhaldslög eftir eyranu
á píanó, gítar eða ukulele.
Allir aldurshópar, byrjendur sem
lengra komnir.
Tónlistarnám fyrir þig
blús djass sönglögpopp
Gengu í skrokk
á húsráðanda
Þrír menn spörkuðu upp hurð
íbúðar í fjölbýlishúsi í Árbæjar-
hverfi aðfaranótt fimmtudags og
gengu í skrokk á húsráðanda með
hnefahöggum og spörkum.
Árásarmennirnir voru vopn-
aðir skrúfjárni sem þeir notuðu til
að hóta fórnarlambinu og öðrum
manni sem var gestkomandi í
íbúðinni. Hinum síðarnefnda
tókst hins vegar að afvopna
óboðnu gestina sem lögðu á flótta
í kjölfarið.
Samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu þekkjast mennirnir allir
og var um einhvers konar óút-
kljáðar deilur þeirra á milli að
ræða.
Húsráðandi tilkynnti sjálfur
húsbrotið og líkamsárásina til
lögreglu og óskaði eftir sjúkrabíl.
Áverkar hans reyndust hins vegar
minniháttar og fékk hann að-
hlynningu á sjúkrahúsi.
Árásarmennirnir voru þá
horfnir út í nóttina.
Mikil aukning
í sölu bifreiða
Árið 2011 voru 2.547 nýir bílar
seldir til almennings. Árið 2010
voru hins vegar aðeins 1.266 nýir
fólksbílar seldir til almennings og
nemur aukningin árið 2011 frá
árinu á undan rétt rúmum 100
prósentum. Alls seldust 5.045 nýir
fólksbílar á síðasta ári en hafa ber
í huga að um helmingur þeirra
var seldur til bílaleiga á landinu.
Þeir einstaklingar sem keyptu sér
nýjar bifreiðar á liðnu ári keyptu
flestir Toyota. Í næstu sætum þar
á eftir koma tegundirnar Chevr-
olet og Volkswagen. Yfir allar nýjar
bifreiðar sem seldust var Toyota
einnig vinsælust en í næstu sæt-
um á eftir komu Volkswagen og
Suzuki.
R
agna Erlendsdóttir, móðir
hinnar langveiku Ellu Dísar,
á ekki fyrir leigunni í Lond-
on. Hún flutti þangað á dög-
unum og hefur búið á hóteli.
Ragna fór af landi brott með
Ellu Dís og tvær aðrar dætur sínar
gegn ráði barnalækna á barnaspít-
ala Hringsins. Hún var búin að fá sig
fullsadda af Íslandi og sagðist í raun
ekki eiga annarra kosta völ en að fara
til London með dóttur sína þar sem
hún fengi þá læknishjálp sem hún
þyrfti. Þá var hún við að missa íbúð-
ina sem fjölskyldan bjó í hér á landi.
Nú dvelur Ragna tímabundið á
íbúðahóteli þar úti ásamt dætrun-
um þremur og segist ekki hafa efni
á borga leigu af því húsnæði sem
hún var búin að finna handa þeim.
Ástæðuna segir hún vera svikin lof-
orð lækna á barnaspítalanum sem
ætluðu að aðstoða hana við að fá
sjúkrahúskostnað Ellu Dísar endur-
greiddan frá tryggingunum. Hún
segist þó vera flutt út.
Komst úr landi í annarri tilraun
Fulltrúar barnaverndaryfirvalda
höfðu stöðvað Rögnu á leið úr landi
með Ellu Dís nokkrum dögum áður,
með því að framvísa bréfi frá barna-
læknum. Þar kom fram að hún væri
of veik til að fljúga. Ragna komst þó
vandræðalaust úr landi í annarri til-
raun. „Það eina var að ég var stoppuð
við hliðið að flugvélinni og mér tjáð
að flugstjórinn vildi fá vottorð um
að barnið væri í ástandi til að ferðast
með flugvél og ég var með vottorðið
sem ég fékk frá Sverri, lækninum
hennar Ellu, og það var tekið gilt,“ út-
skýrir Ragna, en Sverrir Bergmann,
heila- og taugalæknir, hefur séð um
Ellu Dís í rúmt ár. „Ella Dís var fín,
eins og ég mat, en það var bara ekki
tekið mark á mér.“
Gerði ráð fyrir 20 milljónum
Ragna var á hótelherbergi með dæt-
ur sínar þrjár þangað til á þriðjudag-
inn í þessari viku, en þá fluttu þær sig
á íbúðahótel sem er töluvert ódýr-
ara. Ragna segir þær þó aðeins geta
verið þar í viku. Eftir það veit hún
ekki hvað tekur við. Hún segist vera
löngu búin að finna draumahúsið
fyrir fjölskylduna en hafi hvorki efni
á tryggingunni sem leggja þarf fram
við gerð leigusamningsins né leig-
unni sjálfri. Hún treysti á að fá all-
an sjúkrahúskostnað Ellu Dísar, 20
milljónir króna, endurgreiddan frá
tryggingunum en þeirri beiðni hef-
ur verið hafnað. „Fólk heldur að ég
hafi hlaupið út með hvorki pening né
samastað en ég var búin að plana allt
með endurgreiðsluna í huga.“
Ragna segir að ef hún fengi bara
hluta af þessum peningum þá gæti
hún hafið nýtt líf.
Hún segist þó halda bæði um-
önnunar- og örorkubótum þrátt fyrir
að vera flutt úr landi. DV reyndi ítrek-
að að fá svör frá Sjúkratryggingum Ís-
lands um hvort það væri reglan að
fólk héldi slíkum réttindum flytti það
úr landi, en án árangurs.
„Þessi sviknu loforð og öll þessi
leiðindi, þetta er að taka orku og
pening frá okkur sem við gætum ver-
ið að nota til að hjálpa litlu barni.
Mér finnst það gleymast burtséð frá
því hvað fólki finnst um mig,“ segir
Ragna.
Aðeins tveggja vikna bið
Að sögn Rögnu kemst Ella Dís inn á
barnaspítalann við Great Ormond
Street þann 12. janúar. „Í öll þau skipti
sem ég hef farið á Great Ormond
Street þá hef ég aldrei verið kölluð
inn með barnið eftir tvær vikur. Ég
hef alltaf þurft að bíða í þrjá mánuði.
Læknarnir skoðuðu hana og sögðu
að þetta væri engan veginn örugg
öndun og að það væri hræðilegt að
sjá kokið á henni,“ segir Ragna og
bendir á að það sýni hve aðkallandi
það sé orðið að öndunarvél Ellu Dís-
ar verði tengd í gegnum barkann en
ekki ofan í kokið á henni sem er mjög
þrútið og hálflokað. Hún segir spítal-
ann þó krefjast þess að ákveðin eyðu-
blöð komi útfyllt frá Íslandi en vonar
að það verði engin leiðindi út af því.
„Þeir neita henni ekki um aðstoð og
ég hef mestar áhyggjur af húsnæðis-
málunum. Ég er alveg með kvíðahnút
í maganum og þarf hugsanlega að
hefja söfnun til að geta haldið húsinu
sem ég er búin að finna,“ segir Ragna
sem reynir að vera sterk þrátt fyrir að
vera hálfráðalaus.
ragna Á ekki
fyrir leigunni
n Ragna Erlendsdóttir er flutt til London með fjölskylduna n Fær ekki 20 milljónir
endurgreiddar frá Sjúkratryggingum Íslands n Hefur ekki efni á að leigja draumahúsið „Ég var búin að
plana allt með
endurgreiðsluna í huga.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Flutt til London Ragna er flutt með dætur sínar þrjár til London. Hún segist ekki hafa átt
annarra kosta völ. mynd EyþóR ÁRnASon
Greiða yfir milljón í málskostnað
Fjármálaeftirlitið þarf að greiða Ingólfi 1,3
milljónir króna í málskostnað.