Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Qupperneq 28
28 | Viðtal 6.–8. janúar 2012 Helgarblað
É
g er alltaf síðust til að
heyra slúðrið um mig
enda hef ég margt ann-
að að gera en að vera
að pæla í því sem aðr-
ir eru að tala um,“ segir Hildur
Líf Hreinsdóttir sem kom eins
og stormsveipur inn í íslenska
umræðu á síðasta ári. Umdeilt
VIP-partí hennar og vinkvenna
hennar vakti til að mynda
mikla athygli en á gestalista
voru helstu stjörnur landsins
auk hóps vafasamra einstak-
linga en Hildur Líf segir partíið
hafa verið grín af þeirra hálfu.
Frægir eru jarðaðir
„Eftir þetta varð vinsælt hjá
blaðamönnum að nota mig
sem ljóskubrandara. Auð-
vitað voru sumir fjölmiðla-
menn almennilegir en langt
því frá allir. En það sem skipt-
ir mig máli er hvað mér finnst
um það sem ég er að gera. Ég
les ekki mikið af netmiðlun-
um en ég veit hvað umræð-
an getur verið ljót. Þeir allra
fúlustu eru að skrifa um fólk
sem þeir þekkja ekki neitt. Ég
veit að ég er ekki sú eina sem
lendir í þessu. Það er verið að
jarða fleiri en mig,“ segir Hild-
ur Líf og tekur dæmið um Egil
„Gillz“ Einarsson.
„Fólk veit samt ekkert
hvort hann sé sekur eða ekki.
Umræðan er orðin svo ýkt
og þótt ég sé ekkert að velta
mér upp úr því sem fólk er
að segja um mig þá veit ég
að fólkið í kringum mig tekur
þetta stundum inn á sig. Ég
skil bara ekki hvað er að. Sjálf
hef ég ekki tíma til að pæla
svona mikið í öðrum. En það
hefur alltaf verið til slúður og
einstaklingar sem gefa lífinu
lit verða fyrir því að um þá er
talað. Ég geri mér alveg grein
fyrir því og get alveg haft gam-
an af.“
Ekki í félagsskap ofbeldis-
manna
Hildur komst aftur í um-
ræðuna þegar í ljós kom að
hún hafði farðað fórnar-
lamb handrukkara áður en
farið var með fórnarlambið
inn á hárgreiðslustofu. Þó
þvertekur hún fyrir að vera
í félagsskap með ofbeld-
ismönnum. „Alls ekki. Ég
þekki þessa menn ekki neitt
og veit ekkert hvað þeir eru
að gera. Ég var bara beðin
um að farða þennan mann
og ég vil bara fá að gleyma
þessu máli.
Þetta var allt út í hött.
Hvernig átti ég að svara
spurningum í dómssal um
mál sem ég vissi ekkert um?
Ég var kurteis en þeir komu
fram við mig eins og ég vissi
meira. Ég kom bara þarna
inn í þessar aðstæður og
ákvað að spyrja sem minnst.“
Ánægð með skaupið
Létt grín var gert að Hildi í
áramótaskaupinu enda lík-
lega ein óvæntasta og um-
talaðasta stjarna ársins 2011.
Sjálf var hún í símanum þeg-
ar skaupið byrjaði en hljóp
að sjónvarpinu eftir að fjöl-
skylda hennar kallaði á hana
í ofboði að koma og sjá.
„Margir vinir mínir höfðu
sagt mér að það yrði pott-
þétt gert grín að mér í skaup-
inu og mér fannst þetta bara
gaman. Mér fannst leikkon-
an ná mér mjög vel og pabbi
hafði orð á því að hún léki
ljósku enn betur en ég,“ segir
hún hlæjandi og bætir við að
hún hafi bara haft gaman af
því að vera hluti af skaupinu.
„Þetta var ýktur, svartur
húmor sem er ekta fyrir mig.
Atriðið, þegar hún var að taka
viðtal við forsetann og fór svo
að kalla á Ladda, er alveg ég.
Svona get ég dottið út upp
úr þurru. Við grenjuðum úr
hlátri. Þetta var alveg frábært,“
segir Hildur létt í bragði.
Ýkir ljóskuna í viðtölum
Hildur Líf verður 22 ára á
sunnudaginn. Hún þótti efni-
leg í handbolta á yngri árum
og virtist eiga framtíðina fyrir
sér í boltanum en varð að gefa
íþróttina upp á bátinn sökum
liðagigtar.
„Það fór mjög illa í mig að
þurfa að hætta í handbolt-
anum en ég er ennþá íþrótta-
Indíana Ása
Hreinsdóttir
indiana@dv.is
Viðtal
„Ég er ekki
þessi ljóska“
Um fáa var rætt jafn mikið á síðasta ári og Hildi Líf Hreinsdóttur. Hildur Líf skaust fram
í sviðsljósið eftir umdeilt VIP-partí og eftir að hafa komist óvænt inn í ógnvænlegan heim
handrukkara. Hún segist ekki kippa sér upp við kjaftasögurnar en furðar sig á grimmdinni
í netheimum. Hún gengst við ljóskustimplinum en segist ýkja taktana upp á húmorinn.
Hildur Líf, sem var ein af stjörnum áramótaskaupsins, segir síðasta ár hafa kennt henni
margt. Hún er þó alsátt við lífið og tilveruna og sér ekki eftir neinu.