Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 06.01.2012, Qupperneq 35
Um áramót stíga menn gjarnan á stokk og strengja heit um g öfug markmið og fögur fyrir- heit. Oft gjarnan um heilbrigt líferni, líkams- rækt og útiveru. Ferðafélag Íslands hefur nú í þrjú ár staðið fyrir verkefninu Eitt fjall á viku sem upphaflega var áramótaheit framkvæmda- stjóra félagsins Páls Guðmundssonar. ,, Ég lenti í því haustið 2008 að lokast inni á sjúkrahúsi í Frakklandi í rúma tvo mánuði og át lítið annað en sjúkrahúsbjúgu og franskt brauð og var orðinn nokkuð þjakaður af hreyf- ingarleysi þegar ég komst loks heim í desember og langaði að strengja eitthvað skemmtilegt áramótaheit. Þetta varð niðurstaðan; að ganga á eitt fjall á viku allt árið. Þetta var auglýst upp sem verkefni hjá Ferðafélaginu og viðtökurnar voru afar góðar og síðan hefur verkefnið dafnað vel og haldið áfram i umsjón margreyndra farar- stjóra. Verkefnið fer nú af stað enn og aftur í upphafi nýs árs og erum við með sex fararstjóra í verkefninu og verkefnisstjóri er Páll Ásgeir Ásgeirsson.“ Í þessu fjallaverkefni er gengið á Eitt fjall á viku allt árið og endað á gamlársdag með því að ganga á fjall númer 52. Þá er búið að vera að ganga á fjöll allt árið og meðal annars á Hvannadalsnúk í mai sem og farnar helgarferðir bæði í Þórsmörk og Landmannalaugar þar sem gengið mörg fjöll yfir hvora helgi. ,,Við höfum séð miklar framfarir hjá þátttakendum og óhætt að segja að fjallgöngur eru frábær líkamsrækt. Um leið og fólk nýtur útiverunnar og félags- skaparins er það að bæta við þekkingu sína og reynslu í fjallamennsku og auka þol og styrk um leið. Eitt fjall á mánuði Í kjölfarið á þessu verkefni hafa myndast fleiri verkefni hjá Ferðafélaginu, til dæmis Eitt fjall á mánuði þar sem gengið er á Eitt fjall á mánuði og hentar betur þeim sem vilja ekki eins mikla skuldbindingu og í Eitt fjall á viku. Þá hafa einnig orðið til sérstök framhalds- verkefni þar sem bætt er við erfiðari fjöllum og um leið meiri fræðslu. Verkefnið Eitt fjall á mánuði er einnig að hefjast nú i janúar og fengum við þá fjallabræður Örvar og Ævar Aðal- steinssyni, margreynda fjallamenn og björgunarsveitarmenn til að taka að sér umsjón verkefnis og hafa þeir með sér fleiri reynda farar- stjóra. FÍ Garpar Nýjasta verkefnið sem sprottið hefur úr þessu starfi er verk- efnið FÍ Garpar. Þá er gengið á 8 – 10 virkilega krefjandi fjöll og er eingöngu ætlað þátt- takendum í mjög góðu formi og með reynslu af fjalla- ferðum. ,,Við höfum fengið Einar Stefánsson Everestfara og verkfræðing og marg- reyndan fjallagarp og Auði Kjartansdóttur sem starfar sem sérfræðingur á ofan- flóðasviði Veðurstofunnar og hefur 20 ára reynslu af fjalla- mennsku og björgunarsveitar- störfum til að vera fararstjórar í þessu verkefni. Bæði þessi verkefni, Eitt fjall á mánuði og FÍ Garpar verða kynnt á sérstökum kynningarfundi 10. Janúar nk. í sal Ferðafélagsins Mörkinni 6 kl. 20. Ferðaáætlun 2012 Ferðaáæltun Ferðafélagsins kemur út 21. Janúar og er þar að finna ferðaáætlun ársins. Páll segir FÍ bjóða fjölda áhugaverðra ferða, dagferðir, helgarferðir, sumarleyfisferðir, allt frá einföldum gönguferð- um um borgina og upp í krefjandi jöklaferðir. Um þær megi fræðast í ferðaáætlun félagsins sem kemur út þann 21. janúar, sem verður á prentformi og netinu. „Þá hefur skíðafólk, jeppa- og sleðamenn ærna ástæðu til að gleðjast þar sem útlit er fyrir góðan og snjóþungan vetur, og ætlum við meðal annars að bjóða upp á skálavörslu í Landmannalaugum og jafnvel víðar þar sem skálaverðir taka vel á móti gestum. Fjallgöngur besta líkamsræktin Eitt fjall á viku með FÍ Á leið á Hvannadalshnúk Páll Guðmundsson, framkvæm- dastjóri Ferðafélags Íslands Kaffipása á leið á Snæfellsjökul Upp Snæfellsjökul Ferðafélag Íslands www.fi.is | sími: 568 2533 d v e h f. 2 0 12
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.