Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Qupperneq 2
2 Fréttir 8. febrúar 2012 Miðvikudagur
Ö
gmundur Jónasson innan
ríkisráðherra var stjórnar
formaður Lífeyrissjóðs ríkis
starfsmanna, LSR, árið 2007.
Í stjórnarformennsku Ög
mundar það ár keypti sjóðurinn fyrir
milljarða króna í Landsbankanum og
Straumi Burðarási, en báðir bankarn
ir voru að stærstum hluta í eigu Björg
ólfsfeðga og urðu báðir gjaldþrota.
Þetta ár jók LSR einnig hlutabréfa
eign sína í Glitni banka. Ögmund
ur bar sem stjórnarformaður höfuð
ábyrgð á fjárfestingum sjóðsins ásamt
öðrum stjórnarmönnum. Tap sjóðs
ins frá hruni lendir alfarið á skatt
greiðendum, þar sem lífeyrisgreiðslur
úr LSR eru tryggðar af ríkinu. Það eru
því ekki iðgjaldagreiðendur sem taka
á sig skellinn af misheppnuðum fjár
festingum heldur almenningur.
Keyptu fyrir milljarða í bönkum
Í nýútkominni skýrslu úttektar
nefndar Landssamtaka lífeyrissjóða
kemur fram að LSR hafi markað sér
fjárfestingarstefnu um að innlend
hlutabréfakaup skuli vera 5 til 20%
af fjárfestingum sjóðsins. Ekki liggja
fyrir nákvæmar upplýsingar um
fjárfestingar sjóðsins árið 2007, en
slíkar tölur eru til fyrir árið 2008. Ef
skráð innlend hlutabréfaeign sjóðs
ins fyrir árin 2006 og 2007, eins og
hún birtist í ársskýrslum sjóðsins, er
borin saman, þá fæst mynd af hluta
bréfakaupum í stjórnarformannstíð
Ögmundar. Í árslok 2006 átti sjóð
urinn 1,79% hlut í Landsbankanum
sem var metinn á 5.222 milljónir
króna. Í árslok 2007 var eignin kom
in upp í 2,35% og hluturinn metinn á
9.328 milljónir króna.
Í árslok 2006 átti sjóðurinn 0,42%
hlut í Straumi sem metinn var á 750
milljónir króna. Ári síðar átti sjóður
inn hins vegar 1,41% hlut sem met
inn var á rúma 2,2 milljarða króna.
Ljóst er að LSR hefur fjárfest veru
lega í Straumi árið 2007.
Sjóðurinn jók einnig hluta
bréfaeign sína í Glitni árið 2007, úr
1,10% í 1,22% hlut sem metinn var
á tæpa fjóra milljarða króna. Það
er á forræði eignastýringardeildar
LSR að stýra innlendu verðbréfa
safni sjóðanna. Það eru hins vegar
ekki einstaka starfsmenn sem bera
ábyrgð á fjárfestingunum.
Lífeyrissjóðir byggja á braski
Rifjað hefur verið upp að Ögmundur
mærði árið 2008 stjórnendur Bakka
varar, Ágúst og Lýð Guðmundssyni, í
bloggfærslu á sama tíma og sjóðurinn
var að fjárfesta í félaginu.
Í Kastljósi svaraði Ögmundur fyrir
þetta. „Ég viðurkenni enn margt gott
sem þessir menn gerðu. Það sem við
vorum að gera á þessum árum var að
reyna að finna mótvægi við fjárfesting
um í bönkum og fjárfestingarfélögum.
Og það voru íslensk framleiðslufyrir
tæki, til dæmis Bakkavör, sem voru
að gera mjög góða hluti í Bretlandi
og er reyndar enn,“ sagði Ögmund
ur sem viðurkenndi þó að að hluta til
hafi þetta reynst rangt hjá honum en
að uppistöðu hafi það sem í færslunni
kom fram verið rétt.
Ögmundur sagði enn fremur í við
talinu að lífeyrissjóðakerfið byggði á
braski. Lífeyrissjóðirnir hafi með laga
breytingum verið settir í braskstöðu
með því að þeir ættu alltaf að leita að
hámarksávöxtun. Það var einn maður
á Alþingi sem andmælti þessu og hann
situr hér,“ sagði hann í viðtalinu.
Gagnrýndi óhóf bankamanna
Óhætt er að segja að árið 2007 hafi
hlutverk Ögmundar verið marg
þætt. Hann var þingmaður VG og á
sama tíma stjórnarformaður í sjóði
sem stóð í stórfelldum áhættufjár
festingum fyrir lífeyri ríkisstarfs
manna. Þá var hann formaður BSRB
og barðist fyrir réttindum launa
fólks. Verkalýðsdaginn 1. maí árið
2007 flutti Ögmundur ræðu á bar
áttufundi verkalýðsfélaganna á Ak
ureyri. Þar gagnrýndi hann stjórn
völd og sakaði þau um dekur við
bankana. Hann gagnrýndi einn
ig lífsstíl útrásarvíkinga. Hann bar
saman lágtekjumanninn og útrás
arvíkinginn og sagði: „Hann heldur
ekki upp á afmælið sitt á glæsihót
elum í útlöndum fyrir tvö hundr
uð milljónir, hann kaupir sér ekki
prívat þotu í Bandaríkjunum eða
glæsivillu á Bahamaeyjum.“ Þarna
vísaði Ögmundur vafalítið í Björgólf
Thor Björgólfsson sem þá var eig
andi Straums og Landsbankans.
Ábyrgðin stjórnarinnar
Eins og fram hefur komið í DV er
Haukur Haraldsson, framkvæmda
stjóri LSR, með 1,4 milljónir króna
í laun á mánuði, samkvæmt síðustu
ársskýrslu LSR. Það eru um fjór
falt hærri laun en meðallaun starfs
manna LSR. Það eru líka hærri laun
en forsætisráðherra og seðlabanka
stjóri hafa. Haukur sat í stóli fram
kvæmdastjóra. Í skýrslu úttektar
nefndar Landssamtaka lífeyrissjóða,
er lítillega vikið að starfsskyldum
framkvæmdastjórans. Honum hafa
ekki verið settar sérstakar afmark
aðar starfsreglur. Þrátt fyrir háu
launin er ekki að sjá að hann beri
neina formlega ábyrgð á stærstu
ákvörðunum sjóðsins. Stjórnin fer
með æðsta vald í málefnum sjóðs
ins og skal sjá um skipulag og starf
semi sjóðsins. Stjórnin hefur eftirlit
með reikningshaldi og meðferð fjár
muna sjóðsins. Þá sér sér hún um
n Ögmundur stýrði lífeyrissjóði sem fjárfesti fyrir milljarða í bönkum Björgólfsfeðga
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Fjárfestingar LSR 2006–2007
Tölurnar eru í milljónum króna. Prósentin
standa fyrir eignarhlut í fyrirtækjunum.
2006 2006 2006 2006 20062007 2007 2007 2007 2007
Kaupþing Landsbanki Straumur-Burðarás Exista Glitnir
2,6% 1,79% 0,42% 1,05% 1,1%1,07% 2,35% 1,41% 0,53% 1,22%
16
.4
61
19
.8
48 5
.2
22
75
0
2.
55
2
3.
65
6
2.
20
9
3.
38
0 3.
99
1
9.
32
8
„Það er alveg sama
hverjir þeir eru.
Menn sem bera ábyrgð
verða að axla ábyrgð.
Það er eins það sé meiri
lenska hér á landi að
menn vilji bera ábyrgðina
en síður axla hana.
gagnrýndi bankana
en keypti samt í þeim
Ögmundur Jónasson
Innanríkisráðherra var
stjórnarformaður LSR árið
2007 og bar ábyrgð á fjár-
festingum þess árs ásamt
öðrum stjórnarmönnum.
„Með lógó
og allt“
„Það kemur svolítið á óvart að hún
skuli velja akkúrat þetta nafn án
þess að hafa samband við okkur,“
sagði Haukur Már Sigurðsson, for
maður Samstöðu á Patreksfirði, í
samtali við fréttavefinn Vísi. Nýtt
framboð Lilju Mósesdóttur, sem
kynnt var á þriðjudag, hefur tekið
sér sama nafn.
Samstaða á Patreksfirði var
stofnuð fyrir fjórtán árum, árið
1998, og hefur boðið fram í sveit
arstjórnarkosningum síðan. „Ég
er svolítið hissa að þau skuli velja
þetta nafn án þess að hafa sam
band. Við erum ekkert tengd þess
um stjórnmálaflokki,“ hefur Vísir
eftir Hauki sem segir næstu skref
vera óljós en að hann ætli að hafa
samband við Lilju og ræða málið.
„Við munum ekki breyta um nafn,
þetta er okkar nafn. Við erum með
ákveðið lógó og allt.“
Réttindi ekki
glamúr
„Mannréttindi númer eitt, glam
úr númer tvö,“ sagði Páll Óskar
Hjálmtýsson í samtali við Smug
una aðspurður hvort Ísland eigi að
draga sig í hlé í Eurovisionkeppn
inni vegna frétta af síendurteknum
mannréttindabrotum í námunda
við höllina í Baku, höfuðborg
Aserbaídsjan þar sem til stendur að
halda keppnina. Páll Óskar segir að
skoðun hans sé afdráttarlaus. „Það
virðist sem sami vibbinn fari fram
við undirbúning keppninnar og á
Ólympíuleikunum í Kína 2009, þar
sem að blóði saklauss fólks var út
hellt til þess að fegra ásjónu lands
fyrir gests augað,“ segir Páll Óskar
ómyrkur í máli. „Það er oftast gam
an að vera glamúröss, en alls ekki í
kristalshöll úr blóði.“
Ekið á tvö
börn
Tvö slys urðu í umferðinni á
þriðjudag þegar ekið var á tvö
börn á leið í skóla. Annað slysið
varð í Garðabæ en hitt í Hafnar
firði en um var að ræða 10 ára
stúlku og 12 ára dreng.
Eftir því sem lögreglan á höfuð
borgarsvæðinu kemst næst sluppu
börnin blessunarlega án alvar
legra meiðsla.
Lögreglan hvetur ökumenn til
að fara varlega í umferðinni, ekki
síst í nágrenni við skóla. Þá brýnir
lögreglan fyrir gangandi vegfar
endum mikilvægi þess að vera
sýnilegir í skammdeginu með
notkun endurskinsmerkja.
„Lögreglan reynir hvað hún
getur að fylgjast með umferð
við skóla og í og við íbúðagöt
ur. Hvergi verður slakað á þeim
efnum og eftirlitið frekar hert, ef
eitthvað er. Næstu daga mega öku
menn því eiga von á að sjá lögregl
una jafnvel oftar en þeir eru vanir,“
segir í tilkynningu lögreglunnar.