Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Blaðsíða 3
Fréttir 3Miðvikudagur 8. febrúar 2012 Þ etta er sérkennilegasta meiðyrðamál sem höfðað hefur verið á Íslandi,“ sagði Jón Magnússon, lögmað- ur Björns Bjarnasonar, við aðal meðferð á máli sem Jón Ásgeir Jóhannesson fjárfestir hefur höfðað gegn Birni vegna meiðyrða. Aðal- meðferð málsins fór fram á þriðju- dag. Málið snýst um staðreyndavillur sem koma fram í bók Björns, Rosa- baugur yfir Íslandi, þar sem Baugs- málið svokallaða er rakið. Í bókinni var til að mynda rangt farið með fyrir hvað Jón Ásgeir var dæmdur í málinu en hann var dæmdur fyrir bókhalds- brot en ekki fjárdrátt líkt og sagði í fyrstu prentun bókarinnar. Ritvillur en ekki meiðyrði Enginn ágreiningur er uppi um að rangt sé farið með staðreyndir í bók- inni. Björn viðurkenndi sjálfur nokkr- um dögum eftir að hann fékk sent bréf frá lögmanni Jóns Ásgeirs opin- berlega að hann hefði ekki farið með rétt mál í bókinni á nokkrum stöðum. Björn vill hins vegar ekki meina að staðreyndavillurnar séu neitt annað en smávægilegar ritvillur. Björn vill líka meina að hann hafi farið að öll- um óskum Jóns Ásgeirs þegar hann gerði athugasemd við villurnar eftir að bókin kom út og því séu ekki for- sendur fyrir málsókninni. Þessu hafn- ar Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ás- geirs, hins vegar algjörlega. Gestur segir ekki um neina ritvillu að ræða og bendir á að ritvilla sé það sama og stafsetningarvilla og stað- reyndavillur séu allt annar hlutur. Hann segir að Jón Ásgeir hafi ekki fyr- irgert rétti sínum til málsóknar þó að hann hafi látið senda Birni bréf með athugasemdum þar sem hann hafi far- ið fram á að villurnar yrðu leiðréttar. Afsökunarbeiðnin ekki nóg Björn baðst afsökunar á ummælun- um á vefsíðu sinni og í grein í Morg- unblaðinu. Þar minntist hann hins vegar ekkert á það að Jón Ásgeir hefði sjálfur gert athugasemd við málið heldur sagði hann orðrétt: „Við undirbúning 2. prentunar sá ég mér til leiðinda fáeinar villur, einkum stafa- eða frágangsvillur.“ Þetta orða- lag Björns kom til umræðu við með- ferð málsins en ein ummælanna sem honum er stefnt fyrir voru ekki meðal þeirra sem Jón Ásgeir gerði athuga- semd við. Furðaði lögmaður Björns sig á því að stefnt væri fyrir ummæli sem aldrei hefðu verið gerðar at- hugasemdir við. Á móti benti lög- maður Jóns Ásgeirs á að Björn lýsti því opinberlega yfir að hann sjálfur hefði verið að fara yfir bókina og leit- ast við að leiðrétta þær villur sem í henni væru og væri því ekki hægt að skilja það þannig að Björn leiðrétti aðeins það sem honum væri bent á. Vill milljón frá Birni Villurnar hafa að mestu leyti verið leiðréttar í annarri prentun bókar- innar. Það er hins vegar ekki nóg að mati Jóns Ásgeirs sem vill fá miska- bætur fyrir ærumeiðingarnar sem birtust í fyrstu prentun bókarinn- ar. Hann vill fá eina milljón króna auk málskostnaðar. Jón Ásgeir vill einnig að Björn borgi fyrir birtingu dómsins opinberlega og að dómur- inn dæmi Björn til refsingar vegna ummælanna. Björn hefur hins veg- ar krafist sýknu í málinu og sagði lögmaður hans ótrúlegt að krafa væri gerð um að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk eftir að Björn hafði sjálfur sagt ummælin röng og beðist afsökunar á þeim. Hvorki Jón Ásgeir né Björn mættu í dómsal þegar málflutn- ingur fór fram. Málið bíður nú dóms. Staðreyndavillur „smávægilegar“ n Jón Ásgeir krefst miskabóta af Birni n Björn gerði villur í bók en leiðrétti „Björn baðst afsök- unar á ummælun- um á vefsíðu sinni. Pétur Blöndal íhugar að hætta P étur Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, útilokar ekki að hætta á Alþingi vegna lífeyrissjóðamálsins. Þetta sagði Pétur í samtali við DV.is á þriðjudag. „Í fyrsta lagi að átta mig á því að það voru mistök. Svo gæti ég hætt á þingi,“ sagði Pétur þegar hann var spurð- ur hvernig hann hyggst bera ábyrgð vegna lífeyrissjóðamálsins. Sem kunnugt er töpuðu lífeyris- sjóðirnir gríðarlegum fjármunum eins og nýútkomin skýrsla um starfsemi sjóðanna í aðdraganda hrunsins ber vitni um. Í viðtali við Ríkisútvarpið sagðist Pétur Blöndal, sem er fyrrver- andi formaður efnahags- og skatta- nefndar Alþingis, axla sína ábyrgð á því að hafa átt þátt í lagabreytingum á Alþingi sem juku heimildir lífeyris- sjóða til að kaupa hlutabréf. Árið 1997 mátti 35 prósent af hreinni eign lífeyr- issjóða liggja í hlutabréfum en rétt fyrir hrun var þessi heimild komin upp í 60 prósent. Líkt og Pétur segir við DV.is þá get- ur það komið til greina að hann axli ábyrgð með því að hætta á þingi. Þeg- ar hann er spurður hvort að það muni koma til þess svarar hann: „Ég veit það ekki. Ef ég fengi tækifæri til þess þá myndi ég hætta því,“ sagði Pét- ur og bætti við: „Ég er alltaf að íhuga það. Það er ekki eftirsóknavert að vera á þingi ef menn skyldu halda það,“ sagði hann og bætti við að hann vissi ekki hvort hann myndi klára kjör- tímabilið. „Mér þykir einnig ankanalegt að stjórnmálamaður á að bera ábyrgð en ekki stjórn sjóðanna sem tóku ákvarð- anir um fjárfestinguna,“ sagði Pétur. Hann benti á að lagabreytingunni, þar sem lífeyrissjóðum var leyft að fjár- festa meira í hlutabréfum, hafi einnig verið fagnað af stjórnarandstöðunni fyrir hrun. Pétur sagði að það hefði vel mátt setja spurningarmerki við þessar laga- breytingar á þeim tíma. „Og þá sér- staklega eftir á. Það er athyglisvert hvað margir verða klókir eftir á,“ sagði hann. n Þingmaðurinn íhugar stöðu sína vegna lífeyrissjóðamálsins Útilokar ekki að hætta Pétur segir að það sé ekki eftirsóknarvert að vera á Alþingi. Hann íhugar stöðu sína í ljósi lífeyrissjóðamálsins. Minniháttar mistök Í greinargerð Björns vegna málsins segir að um minniháttar villu sé að ræða. Vill milljón Jón Ásgeir vill eina milljón í miskabætur frá Birni vegna ummælanna. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Ögmundur stýrði lífeyrissjóði sem fjárfesti fyrir milljarða í bönkum Björgólfsfeðga að ráðstafa fjármagni sjóðsins og er henni skylt að ávaxta það með hliðsjón af þeim kjörum sem best eru boðin á hverjum tíma með til- liti til áhættu og langtímaskuld- bindinga. Ákvarðanir í öllum málum sem telja verður meiri- háttar eru á forræði stjórnar. Laun framkvæmdastjórans hafa hins vegar lækkað, því árið 2007 voru þau um 1,6 milljón- ir króna á mánuði. Haukur hef- ur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir, neitað að svara spurningum DV um boðsferðir sjóðsins á árun- um fyrir hrunið. Fyrir mánuði síðan spurði DV Hauk út í boðs- ferðirnar en hann svaraði ekki. Þrátt fyrir ítrekanir hefur hann enn ekki séð tilefni til þess að svara. „Stjórnarmenn bera ábyrgð“ Björn Valur Gíslason, þingmaður VG, segir að væntanlega muni Ögmundur Jónasson ræða sína aðkomu að málum LSR við þing- flokkinn, sjái hann ástæðu til þess. Hann segist ekki hafa óskað eftir því að Ögmundur ræði mál- ið. „Ég hef ekki gert það ennþá, en ég reikna með því að hann taki þetta upp við okkur og fari yfir þessi mál þegar við hittumst aftur.“ Spurður hvort honum finn- ist Ögmundur hafa skýrt mál sitt vel, svarar hann: „Almennt hafa viðbrögð manna með niður- stöðu skýrslunnar valdið pínu vonbrigðum. Það virðast allir hrökkva í sama gírinn alveg sama við hvern er átt. Það ætti að sýna okkur sem erum að greiða í þessa lífeyrissjóði meiri auðmýkt.“ Björn Valur segir alveg ljóst að stjórnarmenn LSR, Ögmundur sem aðrir, beri ábyrgð á tapinu. „Það er alveg sama hverjir þeir eru. Menn sem bera ábyrgð verða að axla ábyrgð. Það er eins það sé meiri lenska hér á landi að menn vilji bera ábyrgðina en síður axla hana.“ Ekki náðist í Ögmund við vinnslu fréttarinnar. gagnrýndi bankana en keypti samt í þeim

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.