Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Side 4
Fékk ekki tryggt
vegna gjaldþrots
4 Fréttir 8. febrúar 2012 Miðvikudagur
Reykjavík rukkar meira
n Fasteignagjöld fyrir hesthús miklu hærri í borginni en annars staðar
Í
nágranna sveitafélögum Reykja-
víkur eru hesthús einnig flokkuð í
C-flokk fasteignagjalda sem þýðir
að húsin eru skattlögð hærra en ef
þau væru í A-flokki líkt og þau voru
áður. Þessi fasteignagjöld eru miklu
hærri í Reykjavík en í öðrum sveit-
arfélögum. Í Reykjavík voru hesthús
færð úr A-flokki fasteignagjalda í C-
flokk um síðustu áramót. Við það
hækkuðu fasteignagjöldin af hest-
húsum úr 0,22 prósentum af fast-
eignamati upp í 1,65 prósent. Þetta er
hækkun upp á 750 prósent og hefur
það í för með sér að eigandi hesthúss
á Fákssvæðinu í Víðidal, sem borg-
aði áður 56 þúsund krónur í þenn-
an skatt á ári, borgar eftir hækkunina
426 þúsund krónur á ári. Þessi gífur-
lega hækkun hefur vakið upp mikla
reiði hjá hestamönnum.
Dagur B. Eggertsson, formaður
borgarráðs, hefur skýlt sér á bak við
að borginni hafi ekki verið í sjálfs-
vald sett að gera þessar breytingar.
Borgin hefur hins vegar sagt að hún
vilji breyta þessum reglum þannig
að gjöldin á hesthús lækki aftur. Það
er hins vegar á forræði Alþingis að
gera lagabreytingar til þess að það sé
hægt.
Í Mosfellsbæ eru fasteignagjöld á
hesthús 0,45 prósent af fasteignamati
eða nærri fjórfalt lægri en í Reykjavík.
Í Garðabæ eru þessi gjöld 0,50 pró-
sent af fasteignamati og í Kópavogi
og Hafnarfirði eru þau 0,63 prósent
af fasteignamati. Þetta þýðir að hest-
húsaeigendur í Reykjavík greiða að
jafnaði tugum þúsunda króna meira
í fasteignagjöld á ári en aðrir.
valgeir@dv.is Hestamenn Margfalt dýrara er að eiga hesthús í Reykjavík en nágrannasveitarfélögunum.
B
ara af því að ég er gjaldþrota
vilja þeir ekki tryggja bílinn
minn,“ segir kona um fimm-
tugt með áratugareynslu
sem atvinnubílstjóri. Hún
komst að því fyrir rælni á dögunum
að hún væri á ótryggðum bíl sem
hún hafði eignast fyrir þó nokkru. Og
hafði því ekið óafvitandi á ótryggð-
um bíl í nokkra mánuði. Ástæðan var
sú að Tryggingamiðstöðin vildi ekki
tryggja bílinn. Hún segir hins vegar
að hún hafi aldrei verið látin vita af
því eftir að hafa gengið frá kaupum á
bílnum að hún hefði fengið höfnun á
bifreiðatryggingu.
Það var síðastliðið haust sem kon-
an var lýst gjaldþrota en eftir að hafa
skipt um bíl skildi hún ekkert í því
að henni barst ekki rukkun fyrir bif-
reiðatryggingunni á heimabankann.
Bara rukkun fyrir bifreiðagjöld. Hún
fór að grennslast fyrir um málið og
byrjaði á að hafa samband við fyrri
eiganda og spyrja hvort hann hefði
ekki gengið almennilega frá þessu.
Sjálf skráði hún TM sem trygginga-
félag sitt í viðskiptunum.
Tryggja ekki gjaldþrota fólk
„Ég kom við á bifreiðastöð á föstu-
daginn til að athuga hvað væri í gangi.
Ég vissi að ég þyrfti að fara að borga því
ég var komin fram yfir greiðsludaga
og í sekt. Sektin kom upp í kerfinu þar
og einnig þær upplýsingar að bifreið-
in væri með öllu ótryggð,“ segir kon-
an sem baðst undan því að vera nafn-
greind. Hún varð að vonum steinhissa
og leitaði til TM á mánudaginn.
„Þar fékk ég þau svör að ég væri á
afskrá, eða eitthvað þvíumlíkt, og því
væri ekki hægt að tryggja mig. Þeir
virðast því hafa fengið þessa beiðni
þegar gengið var frá sölusamningnum
en létu mig ekki vita að mér hefði verið
hafnað eða að ég gæti ekki tryggt bíl-
inn hjá þeim.“
Aftur á byrjunarreit
Konan kveðst hafa verið með trygg-
ingar hjá TM í mörg ár, verið með
fullan bónus en nú sé komið fram við
hana eins og nánast ótíndan glæpa-
mann bara af því að hún hafi orðið
gjaldþrota.
Hnípin leitaði hún umsvifalaust
til tryggingafélagsins Varðar þar sem
hún fékk að vísu að tryggja bílinn
sinn. En þar fær hún þó engan bónus
og þarf að borga hámarksgjöld, eða
eins og hún orðar það, eins og hún sé
17 ára, nýkomin með bílpróf. Þó sé
hún búin að vera tjónlaus atvinnu-
bílstjóri í rúmlega 20 ár.
„Ég er bara að byrja upp á nýtt. Ég
fæ engan bónus, þarf að borga mik-
ið meira bara af því að ég er á hausn-
um. Og það liggur við að ég þyrfti að
borga alla trygginguna út bara til að
tryggja bílinn.“
Hún veltir fyrir sér hvort ein-
hverjir af þeim fjölmörgu í hennar
sporum á Íslandi í dag séu kannski
óafvitandi í sömu stöðu. „Það er
liggur við helmingur þjóðarinn-
ar á hausnum, svo hún hlýtur að
keyra hér um á ótryggðum bílum.
Kannski það sé þess vegna sem
verið var að klippa á 160 númera-
plötur á dögunum?“ spyr konan
hvumsa.
Meta hvert tilvik fyrir sig
Ragnheiður Agnarsdóttir, fram-
kvæmdastjóri einstaklingsþjónustu
og samskipta hjá Tryggingamiðstöð-
inni, segir alla nýja viðskiptavini fara
í gegnum ákveðið áhættumat. Ann-
ars vegar hvað varðar vátryggingalega
áhættu sem fyrirtækið tekur og einn-
ig sé greiðslugeta viðskiptavinarins
metin. Ragnheiður segir það ekki vera
stefnu Tryggingamiðstöðvarinnar að
tryggja ekki einstaklinga sem hafa far-
ið í gegnum gjaldþrotameðferð eða
lent í vanskilum. Hún segir þá sem
eigi viðskiptasögu hjá fyrirtækinu
almennt fá áframhaldandi tryggingu.
„En auðvitað vegum við og metum
hvert tilvik fyrir sig, en það er alls ekki
nein stefna hjá okkur að tryggja ekki
aðila sem hafa lent í því að fara í van-
skilaferli.“
Aðspurð hvernig geti staðið á því
að konunni hafi ekki verið tilkynnt
um að bílatrygging hennar væri fallin
úr gildi segist Ragnheiður ekki þekkja
þetta tiltekna mál og því ekki geta
svarað fyrir það. Hún sagði jafnframt
ferlið vera þannig „… að menn þurfi
staðfestingu á að ökutækið sé tryggt
til að geta ekið því og ef sú staðfesting
liggi ekki fyrir þá beri vátryggingataka
að kanna hvort að ökutækið sé tryggt.
En yfirleitt liggja einhverjar skýringar
að baki, við erum einmitt þekkt fyrir
það að leggja okkur fram við að reyna
að aðstoða okkar viðskiptavini í svona
vanda og finna lausnir sem gætu
mögulega hjálpað fólki yfir erfiðasta
hjallann.“
„Ég fæ engan bón-
us, þarf að borga
mikið meira bara af því
að ég er á hausnum.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
n Tryggingafélagið lét hana ekki vita n Ók ótryggðum bíl um tíma
Hættulegt í umferðinni Konan hefði verið í vondum málum ef hún hefði lent í óhappi.
Meirihlutaviðræður í Kópavogi:
Ómar er
bjartsýnn
„Ég er bjartsýnn,“ segir Ómar Stef-
ánsson, bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins í Kópavogi, um meiri-
hlutaviðræður sem staðið hafa yfir
á milli Framsóknar, Sjálfstæðis-
flokks og Lista Kópavogsbúa að
undanförnu. Í samtali við DV á
þriðjudag vildi hann ekki staðfesta
neitt um hvernig viðræðurnar
stæðu né hver hefði verið nefndur
sem bæjarstjóri nýs meirihluta.
Heimildir DV herma að Ár-
mann Kr. Ólafsson, oddviti Sjálf-
stæðisflokksins í bæjarstjórninni,
geri tilkall til bæjarstjórastólsins
en Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti
flokkurinn í bæjarstjórninni með
fjóra kjörna fulltrúa af ellefu.
Ómar vildi ekki staðfesta þetta
í samtali við DV en hann viður-
kenndi að auðvitað hefðu bæjar-
stjóramálin verið rædd.
„Ég veit það ekki, ég ætla bara
að halda áfram að vera bjartsýnn
þangað til að það er búið að skrifa
undir,“ sagði Ómar þegar hann var
spurður hvenær hann teldi að við-
ræðum yrði lokið.
Ofsaakstur
í Garðabæ
Karlmaður á fertugsaldri var stað-
inn að ofsaakstri á Reykjanes-
braut í Garðabæ um síðustu helgi.
Bíll hans mældist á 151 kílómetra
hraða en manninum var veitt
eftirför uns hann nam staðar í
Hafnarfirði. Þá kom jafnframt í
ljós að ökumaðurinn var í annar-
legu ástandi en lögreglan fann
enn fremur fíkniefni í fórum hans.
Maðurinn, sem hefur alloft áður
gerst sekur um umferðarlaga-
brot, var handtekinn og færður á
lögreglustöð.
Í tilkynningu frá lögreglu kem-
ur fram að talsvert hafi verið um
hraðakstur á höfuðborgarsvæðinu
um helgina og voru nokkrir tugir
ökumanna stöðvaðir vegna þessa.
Hefur þú rek-
ist á svona
lyftara?
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
lýsir eftir vinnuvél sem var stolið
var úr Kjalarvogi við Vogabakka í
Reykjavík sl. fimmtudagsmorgun.
Um er að ræða tæki af gerðinni JCB
540-70T með vinnuvélanúmerið JF-
0349. Vinnuvélin var innan öryggis-
hliðs Faxaflóahafna þegar þjófurinn
lét til skarar skríða. Þeir sem geta
gefið upplýsingar um hvar tækið er
niðurkomið eru vinsamlegast beðn-
ir um að hafa samband við lög-
regluna í síma 444-1000 eða senda
tölvupóst á netfangið abending@
lrh.is. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá lögreglunni.