Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 8. febrúar 2012 Miðvikudagur
Læknafélagið fær á baukinn
n Mátti ekki birta upplýsingar úr sjúkraskrám
P
ersónuvernd hefur kom-
ist að þeirri niðurstöðu að
siðanefnd Læknafélags Ís-
lands hafi verið óheimilt að
birta upplýsingar úr sjúkraskrám
Páls Sverrissonar í úrskurði nefnd-
arinnar sem birtist í Læknablaðinu
síðastliðið haust. Þar kom fram að
hann væri með vitræna skerðingu
F07.9, en Páll hafði sjálfur aldrei
heyrt á það minnst.
Hann greindi frá forsögu máls-
ins í DV í september síðastliðn-
um. Páll fékk veður af úrskurðin-
um í gegnum kunningja sinn sem
benti honum á frétt á vefmiðlinum
Pressunni. Þar var greint frá deilum
tveggja lækna, en annar þeirra var
kærður til siðanefndarinnar fyrir
að kalla hinn „fyllibyttu frá Borg-
arnesi“. Tenging Páls við málið var
sú að hann heyrði ummælin og
kom þeim á framfæri. Greining úr
sjúkraskýrslum hans rataði því inn
í úrskurð nefndarinnar. Páll benti
sjálfur á það í bréfi til Persónu-
verndar að hann kæmi umræddu
máli í raun ekkert við.
Honum var þó eðlilega brugðið
við að lesa um það í fjölmiðlum að
hann væri með vitræna skerðingu.
„Vitræn skerðing, hvað er það? Eru
það sjóntruflanir? Þefskyn? Eða
hvað? Vitræn skynjun mín hlýtur að
vera skert ef ég finn ekki lykt. Ég vil
fá úr því skorið hvað felst í þessum
orðum og fyrst það er búið að gera
þetta opinbert þá hlýt ég að geta
fengið aðgang að þessum gögnum.
Ég vil vita hvað þetta þýðir,“ sagði
Páll í samtali við DV.
Í svarbréfi til siðanefndar
Læknafélagsins frá Persónuvernd
kemur fram að fyrrgreindi aðilinn
beri fulla ábyrgð á því að láðst hafi
að afmá persónuupplýsingar um
Pál úr úrskurðinum. Siðanefndin
benti þó að ef Páll hefði sjálfur ekki
stigið fram hefði enginn getað vitað
með vissu að hann væri umræddur
einstaklingur.
Páll var þó ekki sammála því.
„Það er hægt að lesa það úr gögn-
unum um hvern er verið að ræða.
Það vita allir hver ég er.“
Siðanefndinni er gert að eyða
upplýsingunum um Pál úr vefút-
gáfu úrskurðarins í Læknablaðinu.
solrun@dv.is
Kletthálsi 7 - Reykjavík
Fuglavík 18 - Reykjanesbæ
Furuvöllum 15 - Akureyri
Pallettu
tjakkur
EP Pallettu-tjakkur
2 tonna lyftigeta
31.990,-
Þ
ó gæti komið til mála að
leggja ríkari refsiábyrgð á
forsætisráðherra sem hefur
vissa eftirlitsskyldu gagnvart
samráðherrum sínum. Hér
hefur þó ekki verið horfið að því ráði,“
segir í greinargerð frumvarps að lög-
um um ráðherraábyrgð frá 1963. Þetta
hyggst Andri Árnason, verjandi Geirs
Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra,
nýta við vörn hans. Í greinargerð verj-
anda segir að þótt forsætisráðherra sé
sá ráðherra sem fer fyrir ríkisstjórn á
hverjum tíma sé ríkisstjórn Íslands
ekki fjölskipað stjórnvald. „Heldur
vettvangur fyrir pólitískt samráð og
samhæfingu starfandi ráðherra.“
Bent er á að ráðherrar eru æðstu
embættismenn stjórnsýslunnar hver
á sínu sviði og bera ábyrgð á sínum
málahóp óháð öðrum ráðherrum.
Þessu til stuðnings er vitnað til fjór-
tándu greinar stjórnarskrárinnar en
þar segir að ráðherrar beri ábyrgð á
stjórnarframkvæmdum öllum.
„Þó að forsætisráðherra fari fyrir
ríkisstjórn hefur hann þannig ekki
heimild til að ganga inn á verksvið
annarra ráðherra,“ segir Andri sem
þó bætir við að vegna stöðu forsæt-
isráðherra sé ekki hægt að útiloka
aðstæður þar sem forsætis ráðherra
beri að taka til málefna sem heyri
beint undir aðra ráðherra.
Davíð undanskilinn eftirliti
Andri bendir á að þótt mál er vörð-
uðu hagstjórn almennt, Seðlabanka
Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóð-
inn, hafi samkvæmt reglugerð um
Stjórnarráð Íslands heyrt undir for-
sætisráðherra sé Seðlabankinn
samkvæmt lögum sjálfstæð stofn-
un. Helsta verkefni Seðlabankans
hafi verið að stuðla að stöðugu
verðlagi og sinna viðfangsefn-
um líkt og að varðveita gjaldeyris-
forða og stuðla að virku og öruggu
fjármálakerfi. Seðlabankastjórar í
forsætisráðherra tíð Geirs voru þeir
Davíð Oddsson, Eiríkur Guðnason
og Ingimundur Friðriksson.
Vörn Geirs mun benda á að þar
sem kveðið sé á um sjálfstæði Seðla-
bankans séu bankastjórarnir um leið
undanskildir yfirstjórnunar- og eftir-
litsheimildum forsætisráðherra. Það
þýði jafnframt að gjörðir eða van-
gjörðir bankans falli ekki undir ráð-
herraábyrgð forsætisráðherra enda
sé honum ekki heimilt að hafa af-
skipti af störfum þeirra.
Björgvin með fjármálamarkað
Málefni fjármálamarkaðsins heyrðu
undir Björgvin G. Sigurðsson við-
skiptaráðherra samkvæmt greinar-
gerð Andra. Þó er bent á að opin-
bert eftirlit með fjármálastarfsemi
er og var á því tímabili sem lands-
dómsákæran nær til í höndum FME,
sem einnig er sjálfstæð stofnun með
sama hætti og Seðlabankinn.
Að hengja bakara fyrir smið
Ljóst er af þessu að Geir H. Haarde
telur sig ákærðan fyrir gjörðir eða
skort á gjörðum annarra. Í greinar-
gerðinni er einkum vitnað til þeirra
ákæruliða sem lúta að Icesave og
skorti á aðgerðum til að draga úr
stærð bankakerfisins. Í vörn Geirs
kemur fram að Fjármálaeftirlitið hafi
farið með mál er varða eignir ríkisins,
skatta og aðrar ríkistekjur, lánsfjármál
og ríkisábyrgðir.
„Af hálfu ákærða er á því byggt að
honum verði ekki gerð refsing vegna
atriða sem heyrðu beinlínis undir
verksvið og lagalega ábyrgð annarra
ráðherra. Í öllu falli verði að gefa
þeirri staðreynd verulegt vægi við
mat á sök ákærða.“
Nánar verður fjallað um vörn
Geirs H. Haarde fyrir landsdómi á
næstu dögum. DV hefur undir hönd-
um hluta þeirra gagna sem vörn
Geirs hefur lagt fram en þau telja
mörg þúsund blaðsíður. Í skrá yfir
framlögð skjöl verjanda Geirs má
finna allt frá ríkisreikningum ársins
2007, Rit Seðlabanka Íslands um fjár-
málastöðuleika til frétta í erlendum
tímaritum.
„Þó að forsætis
ráðherra fari fyrir
ríkisstjórn hefur hann
þannig ekki heimild til
að ganga inn á verksvið
annarra ráðherra.
Leiðrétting
Í umfjöllun DV á föstudag sem bar yfir-
skriftina „Ákæruvaldið sanni hættuna“
kom fram að skýrsla rannsóknarnefndar
Alþingis væri lögð fram sem gagn í mál-
inu. Hið rétta er að í greinargerðinni segir
að „skýrslur“ teknar vegna rannsóknar-
skýrslunnar séu lagðar fram í málinu.
Gat ekki
hróflað
við Davíð
n Geir segist ákærður fyrir verkleysi annarra ráðherra
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
Bar ábyrgð Björgvin G. Sigurðsson fór
með málefni fjármálamarkaðsins sem við-
skiptaráðherra.
Undanskilinn eftirliti
Geir H. Haarde, fyrrverandi
forsætisráðherra, ásamt
Davíð Oddssyni, ritstjóra
Morgunblaðsins og fyrr-
verandi seðlabankastjóra.
Páll Sverrisson Las um það í fjölmiðlum
að hann væri með vitræna skerðingu.
Frávísunarbeiðni hafnað:
Framhald
á máli
Héraðsdómur Reykjavíkur
hefur vísað frá frávísunarkröfu
Ingunnar Gyðu Wernersdóttur,
eins af fyrrverandi eigendum
Milestone, og verður riftunar-
máli þrotabús félagsins vegna
meintra ólöglegra hluthafal-
ána upp á 2,5 milljarða því fram
haldið.
DV fjallaði ítarlega um dóms-
málið í síðasta mánuði þar sem
Ingunn fór fram á að stefnu
þrotabúsins yrði vísað frá á
þeim forsendum að birting
stefnunnar gegn henni hefði
verið ólögleg.
Lögmaður þrotabús Mile-
stone sagði meðal annars í
dómsal að Ingunn hefði flúið
land til að komast hjá því að
hægt væri að birta henni stefnu
í málinu og hart var tekist á um
málið.
Málið snérist um að þann
12. nóvember 2010 tókst þrota-
búinu að birta Ingunni stefnu
fyrir utan lögheimili hennar í
Fossvogi, rétt áður en fyrningar-
frestur til málshöfðunar rann út.
Ingunn dvaldi á þessum tíma í
Bandaríkjunum og því var ekki
hægt að birta henni stefnuna
persónulega. Lögmaður þrota-
búsins fór því þá leið að kalla til
mann að nafni Kristján Ólafs-
son, hæstaréttarlögmann og
stefnuvott í Kópavogi, að heimili
hennar í Fossvogi þar sem bók-
að var að henni hefði verið birt
stefnan löglega.
Hún var
síðan sett inn
um bréfalúg-
una á heim-
ili hennar
þar sem hún
fannst í blaða-
bunka á gólf-
inu nokkru
síðar. Sig-
urður G. Guðjónsson, lögmaður
Ingunnar Gyðu, vildi meina að
þessi gjörningur væri ólöglegur.
Lögmaður þrotabús Mile-
stone, Grímur Sigurðsson,
var þessu vitanlega algjörlega
ósammála og taldi stefnubirt-
inguna lögmæta. Nú hefur hér-
aðsdómur komist að niðurstöðu
og er dómari málsins sammála
lögmanni þrotabúsins.