Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Side 10
K
onan sem fannst látin í húsi
við Skúlaskeið 8 í Hafnarfirði
á mánudag hét Þóra Eyjalín
Gísladóttir. Hún var 35 ára
gömul.
Hlífar Vatnar Stefánsson, 22 ára
Hafnfirðingur, hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 21. febrúar,
grunaður um að hafa valdið dauða
hennar.
Þóra og Hlífar höfðu átt í ástar-
sambandi og voru um tíma trúlofuð.
„Þetta var svona „haltu mér, slepptu
mér“ kærustupar,“ segir vinkona
Þóru. Sambandið var stormasamt og
erfitt að vita hvenær þau voru saman
og hvenær ekki. Vinir Þóru telja líklegt
að hún hafi verið búin að missa tökin
á fíkninni, hún hefði annars ekki verið
stödd á Skúlaskeiði. „Ég held að hún
hefði ekki verið þar nema í neyslu,“
segir vinkona hennar. Enginn hefði
þó trúað að endirinn yrði svona.
Erfitt samband
Facebook-síða Hlífars Vatnars ber
þess merki að samband hans og
Þóru hafi verið erfitt. Í september
2010 skrifaði Þóra á Facebook-vegg
Hlífars að þau hefðu ekki góð áhrif
hvort á annað og ættu frekar að vera
vinir en í ástarsambandi. „Ekki taka
þessu nema af ást. Við drögum bara
úr hvort öðru. Verum vinir. Núna á
ég allt sem hugurinn girnist eftir að
þú fórst. Ég vona að þú hafir farið
í meðferð því þú skildir ekki neitt
hvað ég var að elska þig mikið. N
bað mig að sleppa þér og hætta með
þér.“
Þau voru þó ekki lengi í sundur
því ellefu dögum síðar skrifaði hún:
„Ha, ha glætan ég sleppi þér aldrei.
Best að drífa mig núna beint í fangið
þitt í næsta herbergi. Hi, hi elska þig
ástin mín.“
Góð vinkona og yndisleg mann-
eskja
Vinir Þóru lýsa henni sem elsku-
legri stúlku sem hafi átt í erfiðri og
langvarandi baráttu við fíkniefni.
Hún hafði oft tekið sig á og reynt að
snúa baki við fíkniefnaheiminum
með misjöfnum árangri, en þeg-
ar vel gekk leitaði hún til vina sem
reyndu að styðja við bakið á henni.
Önnur vinkona Þóru, sem kynnt-
ist henni þegar þær voru báðar í
neyslu, segir Þóru hafa verið ynd-
islega manneskju. „Hún var mjög
listræn og hafði gaman af því að
mála. Hún teiknaði og málaði mjög
fallegar myndir.“ Hún segir Þóru
hafa sýnt sér mikinn stuðning fyr-
ir tveimur árum þegar hún var að
hætta í neyslu. „Hún hjálpaði mér
rosalega mikið og studdi mig þeg-
ar ég þurfti á því að halda. Hún var
góð manneskja og góð vinkona.“
Vinkonan segir að sjálf hafi Þóra
verið að reyna að hætta að neyta
fíkniefna á sama tíma.
„Hún átti erfitt“
Þóra leitaði sér aðstoðar í sumar á
meðferðarstofnuninni Vogi eftir erf-
ið veikindi en hún hafði fengið heila-
blóðfall. „Hún átti mjög erfitt,“ segir
vinkona hennar. Þóra hafði verið bú-
sett í Mýrinni, stuðningsheimili fyrir
konur sem hafa verið heimilislausar
og er staðsett í Norðurmýri. Úrræðið
er á vegum Reykjavíkurborgar og er
nú heimili fimm kvenna sem hafa ver-
ið hvað verst settar og erfiðlega hefur
gengið að veita þjónustu. Konur sem
þar eru búsettar hafa áður leitað at-
hvarfs í Konukoti, en Konukot er að-
eins hugsað sem tímabundið úrræði.
Konurnar mega ekki neyta áfengis eða
fíkniefna inni á heimilinu, en ekki er
gerð krafa til þess að þær séu hættar
neyslu.
Ógæfumaður
Hlífar hefur ítrekað komið við sögu
lögreglu og kom sjálfur á lögreglu-
stöðina við Flatahraun í Hafnar-
firði um klukkan ellefu á mánudags-
morgun og greindi óljóst frá atviki
sem hann sagði að hefði átt sér stað
á heimili hans. Hann var í annarlegu
ástandi og fóru því lögreglumenn
strax að Skúlaskeiði og fundu þar
konuna látna. Aðkoman mun hafa
verið mjög óhugguleg og mikið blóð
á vettvangi. Áverkar voru á líkinu og
samkvæmt lögreglu er talið að þeir
séu eftir eggvopn. Hnífur sem fannst
á vettvangi hefur hann verið sendur
í rannsókn ásamt öðrum lífsýnum.
Talið er að Þóra hafi látist aðfaranótt
mánudags.
Hlífar Vatnar hefur verið úrskurð-
aður í gæsluvarðhald til 21. febrúar og
mun sæta geðrannsókn.
Þekkt hús í Hafnarfirði
Hlífar var áður búsettur í húsinu við
Skúlaskeið ásamt föður sínum. Þeir
feðgarnir höfðu verið búsettir þar í
nokkurn tíma en nú er enginn skráð-
ur þar til heimilis. Húsið er í eigu Ar-
ion banka. Nágrannar staðfesta að
Hlífar hafi lengi verið í óreglu og
stundum ónáðað nágranna sem oft
urðu varir við að hann væri í annar-
legu ástandi. „Þetta er bara sorglegt
og afar óhugnanlegt,“ sagði íbúi við
Skúlaskeið í Hafnarfirði í samtali við
DV. Húsið er nokkuð vel þekkt í bæn-
um enda sérstakt í útliti og oft kallað
„Kastalinn“.
Hefur áður beitt ofbeldi
Hlífar Vatnar er góðkunningi lög-
reglunnar og mun hafa fjármagnað
fíkniefnaneyslu sína að miklu leyti
með minniháttar afbrotum. Hann
hefur einnig verið dæmdur fyrir lík-
amsárás. Nú í byrjun janúar hlaut
hann dóm fyrir árás sem átti sér stað
einu og hálfu ári áður, sumarið 2010,
í gistiskýlinu við Þingholtsstræti.
Gistiskýlið er rekið af Reykjavíkur-
borg og er ætlað heimilislausum
karlmönnum. Hann hafði slegið
mann þar hnefahöggi í andlitið, með
þeim afleiðingum að fórnarlambið
hlaut sprungna vör og brotnaði upp
úr tönn. Fyrir þetta var hann dæmd-
ur í sjö mánaða fangelsi í janúar.
Dómurinn var skilorðsbundinn og
því þurfti hann ekki að sitja í fang-
elsi, þrátt fyrir að hann hefði verið
dæmdur í skilorðsbundið fangelsi
síðasta sumar.
Síbrotamaður
Í júní í fyrra var hann dæmdur fyrir
ellefu misalvarleg og margvísleg brot.
Hann stal bíl við bensínstöð N1 við
Lækjargötu í Hafnarfirði haustið 2009,
ók undir áhrifum fíkniefna og án öku-
leyfis og stal áfengi í verslun ÁTVR í
Kringlunni. Auk þess kastaði hann
gangstéttarhellu í rúðu á einbýlishúsi
í Hafnarfirði og stal tveimur fartölv-
um. Þá stal hann fartölvu í Mennta-
skólanum í Kópavogi og seðlaskipti-
kassa á Landspítalanum í Fossvogi.
Árið 2010 var hann farinn að stela sér
mat. Hann tók fimm kleinuhringi í 10-
11 án þess að borga. Þeir kostuðu að-
eins 495 krónur. Loks gekk hann út úr
verslun Krónunnar við Reykjavíkur-
veg í Hafnarfirði með matarkörfu að
verðmæti sex þúsund krónur, án þess
að borga.
Hlífar Vatnar fékk vægan dóm fyr-
ir afbrot sín vegna þess að hann ját-
aði möglunarlaust öll brotin. Ástæð-
an fyrir því að Hlífar var ekki dæmdur
fyrir að rjúfa skilorð, þegar líkams-
árásardómur féll yfir honum í janú-
ar, var að hann framdi líkamsárásina
áður en hann hafði verið dæmdur fyr-
ir hin afbrotin.
Samkvæmt frásögn lögreglu gekk
Hlífar sjálfviljugur inn á lögreglu-
stöðina í Hafnarfirði og greindi frá láti
kærustu sinnar.
10 Fréttir 8. febrúar 2012 Miðvikudagur
Harmleikur
í Hafnarfirði
n Þóra Eyjalín var 35 ára þegar hún fannst látin n „Góð manneskja og góð vinkona“ „Ég vona að þú haf-
ir farið í meðferð
því þú skildir ekki neitt
hvað ég var að elska þig
mikið.“
14. október
Reykjavík
Bústaðavegur
Gripinn dópaður
á stolnum bíl
sem hann
hafði tekið við
bensínstöð N1
við Lækjargötu í
Hafnarfirði.
22. október
Reykjavík
Kringlan
Tekinn við að
stela áfengis-
pela í ÁTVR.
2012201120102009
26. nóvember
Garðabær
Reykjanesbraut
við Álftanesveg
Tekinn á bíl undir
áhrifum eiturlyfja.
16. desember
Hafnarfjörður
Austurgata 25
Braut rúðu í
einbýlishúsi með
gangstéttarhellu
og stal tveimur
fartölvum úr
húsinu.
18. desember
Reykjavík
Landspítalinn
í Fossvogi
Reif seðlaskipti-
kassa og kastaði
honum út um
glugga.
11. janúar
Kópavogur
Menntaskólinn í
Kópavogi
Stal Mitac-far-
tölvu og reiknivél
að andvirði 80
þúsund krónur.
24. apríl
Hafnarfjörður
10-11 við
Fjarðargötu
Stal fimm kleinu-
hringjum fyrir 495
krónur.
16. júní
Hafnarfjörður
Krónan
Gekk með
matarkörfu út
úr versluninni án
þess að borga.
27. júní
Hafnarfjörður
Gjótuhraun 6
Tekinn af
lögreglu með
amfetamín.
30. júní
Hafnarfjörður
Hellisgata 16
Braust inn á
skrifstofu við og
stal skjávarpa
og verðmætum.
9. ágúst
Reykjavík
Gistiskýlið
í Þingholts-
stræti
Sló mann
hnefahöggi í
andlitið.
23. júní
Hafnarfjörður
Héraðsdómur
Sex mánaða
skilorðs-
bundið fangelsi
fyrir margvísleg
brot.
3. janúar
Sjö mánaða skil-
orðsbundið fangelsi
fyrir líkamsárás.
Slapp við að sitja
inni.
6. febrúar
Hafnarfjörður,
Skúlaskeið 8.
Grunaður um að
hafa banað konu.
7. febrúar
Hafnarfjörður
Dæmdur í
gæsluvarðahald,
grunaður um
manndráp.
Þessi brot framdi Hlífar Vatnar frá 2009
Afbrotaferillinn
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
blaðamaður skrifar astasigrun@dv.is
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Þóra Eyjalín Gísladóttir
f. 1.10. 1976 – d. 6.2. 2012
Grunaður Hlífar Vatnar Stefánsson er 22
ára. Hann hefur verið hnepptur í gæsluvarð-
hald, grunaður um að hafa banað kærustu
sinni.