Dagblaðið Vísir - DV - 08.02.2012, Side 22
Á Super Bowl í boði Reebok
n Annie Mist og kærastinn skemmtu sér vel
Þ
etta var rosa flott og
gaman að sjá þetta,“
segir íþróttakonan
Annie Mist Þórisdótt-
ir um Super Bowl leikinn
sem fram fór á sunnudaginn
í Indianapolis í Bandaríkj-
unum. Super Bowl leikurinn
er stærsti einstaki íþróttavið-
burður í heiminum og þegar
mest lét horfðu 117 milljónir
Bandaríkjamanna á leik-
inn og þá eru ekki taldir með
þeir sem horfðu utan Banda-
ríkjanna. Annie Mist horfði
á leikinn ásamt kærastanum
sínum. Hún segir þetta hafa
verið skemmtilega upp-
lifun. Reebook sem er einn
helsti styrktaraðili Annie Mist
bauð þeim á leikinn og þau
ákváðu með viku fyrirvara
að láta slag standa. „Ree-
bok er einn helsti styrktarað-
ili Super Bowl og gaf okkur
miða á leikinn. Ég hef farið á
amerískan fótboltaleik áður
en ekki á Super Bowl. Þetta
var rosastórt og skemmti-
legt. Daginn fyrir leikinn var
svona leikur þar sem ýmsir
frægir spiluðu og það var
gaman að fylgjast með því.
Síðan var Madonna að syngja
í hálfleik og Kelly Clarkson
söng þjóðsönginn.“
Parið sat á besta stað.
„Við vorum í röð númer tvö
á öðrum enda vallarins hjá
öðru markinu og það voru
bara ljósmyndarar sem sátu
fyrir framan okkur. Þetta var
sjúkt sko, þeir voru bara upp
við mann allan tímann,“ segir
Annie Mist. Það er nóg um
að vera hjá Annie en nýlega
flutti hún sig yfir í Cross Fit
Reykjavík þar sem hún er
orðinn meðeigandi og æfir
þar og kennir á fullu. „Það er
allt á fullu hjá mér. Ég færði
mig yfir og það gengur bara
ofsalega vel. Þetta er flott fyr-
irtæki og við höldum áfram
að vera með flotta uppbygg-
ingu.“
22 Fólk 8. febrúar 2012 Miðvikudagur
Hitti frænku
í hjálpar-
tækjabúð
Hin eina sanna Vala Grand
skellti sér í hjálpartækjabúð-
ina Adam og Evu á dögunum
og lenti í heldur óheppilegri
uppákomu sem hún greinir
frá á Facebook-síðu sinni.
„Fór í Adam og Evu í dag að
versla mér eitthvað nammi,“
segir hún og tekur fram að
það neyðarlegasta sem hafi
komið fyrir hana á þessu ári
hafi hent hana í búðinni.
„Þegar ég var að fara borga
kom frænka mín inn á stað-
inn með kallinum sínum,“
segir hún og tekur fram að
það hafi verið nokkuð vand-
ræðalegt að rekast á ættingja
sína á þessum stað.
Leggöng en
ekki Vaðla-
heiðargöng
Hallgrímur Helgason er ekk-
ert vanur að spara við sig
stóru orðin. Í nýlegri Face-
book-stöðufærslu leggur
hann til að hætt verði við
Vaðlaheiðargöng og í stað-
inn verði boruð leggöng í
Davíð Þór Jónsson. „Legg til
að hætt verði við Vaðlaheið-
argöng og í staðinn boruð
leggöng í Davíð Þór Jónsson.
Myndi stytta leiðina að jafn-
rétti á Íslandi um allt að 200
km. Fá Möllerinn í málið,
hann klárar það hratt og vel.
Einkaframkvæmd með ríkis-
ábyrgð en reyndar nokkuð
háum vegtollum.“
Madonna
mæmaði
Söngatriði Madonnu í hálf-
leik á Ofurskálarleiknum
hefur vakið mikla athygli um
allan heim. Hún hefur fengið
misjafna dóma en flestir eru
þó á einu máli um að atriðið
hafi verið magnað. Söngvar-
inn Stefán Hilmarsson var þó
ekki jafnhrifinn. „Mjög vel
að verki staðið og magnað
tækni- og sjónarspil. Ég fékk
þó ekki betur séð og heyrt en
að Madonna mæmaði söng-
inn meira eða minna. En það
er kannski aukaatriði þegar
boðið er upp á svona flotta
búninga, bolvindur og koll-
hnísa,“ skrifaði söngvarinn
dáði á Facebook-síðu sína.
Sátu á besta stað Annie og
kærastinn sátu í annarri sætaröð á
leiknum og sáu því vel það sem var
um að vera á vellinum.
É
g ætla aldrei að æfa skíði
aftur, ég ætla að finna mér
önnur markmið í lífinu
og ég ætla að vinna að
þeim af sama krafti,“ segir
Fanney Þorbjörg Guðmunds-
dóttir, tæplega tvítug fyrrver-
andi landsliðskona í skíða-
íþróttum.
Fanney slasaðist alvarlega á
skíðum á aðfangadag og brotn-
aði meðal annars á hrygg og
hálsi og bati hennar þykir með
ólíkindum.
Slysið átti sér stað í bænum
Geilo í Noregi þar sem Fanney
æfði skíðaíþróttina af miklu
kappi. Aðgerð sem hún fór í
heppnaðist afar vel en ljóst er
að skíðaferill hennar er á enda.
„Ég hlakka til að finna mér önn-
ur markmið. Get hugsað mér
að fara að æfa fótbolta og fara
oftar á hestbak. Hingað til hafa
skíðin verið mér allt, ég flutti
17 ára gömul að heiman frá Ís-
landi hingað til Noregs til að
stunda skíði. Mér gekk afar vel
en ég ætla ekki að leiða hugann
að því frekar. Mig langar ekki að
fara í þennan pakka aftur. Það
er að hluta til vegna slyssins,
það tekur svo langan tíma að
þjálfa sig til þess að taka þátt í
toppbaráttu. Ég vil frekar njóta
þess að fara á skíði þegar ég loks
kemst á þau aftur. En fyrst um
sinn ætla ég að taka því rólega
og leyfa þessu öllu saman að
gerjast hægt og rólega.“
Byrjuð í skólanum aftur
Fanney var farin að hreyfa
útlimi aðeins viku eftir slysið.
Tveimur vikum eftir slysið stóð
hún fyrst upp. Hún er nú á end-
urhæfingarsjúkrahúsi í tveggja
mánaða prógrammi og hefur
tekið gríðarlega miklum fram-
förum. Það er ljóst að Fanney
gefur ekkert eftir, þrátt fyrir að
hafa lent í alvarlegu slysi er hún
byrjuð í skólanum aftur.
„Ég hef nóg að gera, ég er í
sjúkra- og iðjuþjálfun á daginn
og stunda skólann líka. Ég fæ þá
kennara hingað til mín á sjúkra-
húsið fjórum sinnum í viku. Ég
á það til að fara geyst. Ég fékk
örlítið bakslag í dag, meiðsli í
hnakka. En ég læt það ekki á
mig fá.“
Flytur heim í vor
Hún ætlar að klára skólann úti
í Geilo í vor og flytja svo aftur
heim. „Ég tók stúdentsprófið
hér úti. Þegar ég kem heim þá
hugsa ég að ég sæki um í há-
skólanum. Ég hlakka til að
koma aftur heim,“ segir hún
glöð í bragði.
Aðspurð hvað hafi skilað
henni svo góðum bata segir
hún keppnisskapið hafa fleytt
sér áfram. „Ég hugsa aldrei: Ég
get þetta ekki. Ég hugsa í mark-
miðum.
Ég held að ég gefist aldrei
upp, það er vegna þess að ég
hef stundað íþróttir svo lengi.
Þetta hugarfar er innbyggt í
íþróttafólk.“
Gefst aldrei upp
n Fanney Þorbjörg hefur náð ótrúlegum bata eftir alvarlegt skíðaslys
Ætlar aldrei að æfa skíði aftur Fanney
var landsliðskona í skíðaíþróttinni en getur
ekki hugsað sér að æfa skíði aftur. „Ég vil
frekar njóta þess að fara á skíði þegar ég loks
kemst á þau aftur.“
Flytur heim í vor Fanney Þorbjörg
Guðmundsdóttir er farin að ganga og
stefnir á að flytja heim í vor.