Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Page 10
10 Fréttir 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað
www.ils.is | Sími: 569 6900 | Grænt númer: 800 6969 | Borgartúni 21, 105 Reykjavík
Kynntu þér lán og aðra
þjónustu Íbúðalánasjóðs
Lán til íbúðarkaupa
Lán til endurbóta og viðbygginga
Aukalán vegna sérþarfa (skert starfsorka)
Ráðgjöf og úrræði í greiðsluvanda
G
eirmundur Vilhjálmsson,
fyrrverandi fangelsisstjóri á
Kvíabryggju, hefur kært Pál
Winkel fangelsismálastjóra
fyrir þjófnað og brot í opin
beru starfi. Sjálfur var Geirmundur
fangelsisstjóri á Kvíabryggju þar til í
lok nóvember 2010, en var sagt upp
störfum eftir að rannsókn fangelsis
málastofnunar leiddi í ljós að hann
hafði um árabil misnotað reikninga
fangelsisins í eigin þágu. Hann var
í kjölfarið ákærður fyrir fjárdrátt í
opinberu starfi með því að hafa á ár
unum 2008 til 2010 misnotað stöðu
sína og dregið sér í 39 tilvikum fjár
muni í eigu íslenska ríkisins. Hann
bíður þess að málið verði tekið fyrir
dóm.
„Það fauk í mig“
Geirmundur sakar Pál um að hafa
selt líkamsræktartæki sem voru í
fangelsinu að honum forspurðum
og fer fram á að málið verði rann
sakað. Geirmundur heldur því fram
að margir munir í hans eigu hafi orð
ið eftir á Kvíabryggju eftir að honum
var vikið frá störfum og gerir kröfu
um að fá þá afhenta. „Það var á síð
asta ári sem föngum var bannað að
lyfta þungum lóðum, þannig að það
voru tekin út þung lóð í öllum fang
elsum á landinu og sett í geymslu. Ég
hafði verið starfandi á Kvíabryggju í
25 ár og átti þarna sjálfur svolítið af
líkamsræktartækjum. Þar voru með
al annars lóð sem ég eignaðist tólf
ára gamall, sem heita Brooklyn og
hafa ekki verið framleidd í 30 ár eða
svo. Ég frétti það síðan um daginn að
það væri búið að selja fullt af tækjum
af Kvíabryggju, svo ég fór að athuga
málið og komst þá að því að hluti af
því var dótið mitt. Og það fauk í mig“
segir Geirmundur.
Lagði til eigin tæki vegna skorts
Í kjölfarið fór Geirmundur og spurði
settan forstöðumann Kvíabryggju
hver hefði gefið leyfi fyrir því að
tækin yrðu seld að honum forspurð
um. „Hann benti á Pál Winkel. Þá lá
beinast við að kæra hann fyrir þjófn
að og það gerði ég. Hann er að selja
hluti sem hann á ekki og hann þarf
að svara fyrir það eins og ég þarf
að svara fyrir mín mál.“ Aðspurður
hvers vegna hann geymdi eigin lík
amsræktartæki í fangels
inu segir Geirmundur að
lítið hafi verið til af lík
amsræktartækjum á Kvía
bryggju á sínum tíma og
því hafi hann lagt til eigin
tæki til afnota fyrir fanga
og einnig hafi hann sjálf
ur notað aðstöðuna til
æfinga. „Þetta voru mín
tæki þannig að ég æfði
þarna á staðnum. Ég er
gamall frjálsíþróttamað
ur og er búinn að
æfa alla mína ævi.“
Hann segir að þeir
starfsmenn Kvía
bryggju sem hafi
unnið þar til langs
tíma hafi vitað að
æfingatækin væru í
hans eigu.
Er leiður yfir
þessu
Hluti tækjanna var
seldur líkamsrækt
arstöð á Stykkis
hólmi, en annað var
keypt af einstaklingi
á nærliggjandi bæ.
Geirmundur segir lóðin hafa verið
í slæmu ástandi þegar hann skoð
aði þau á lík
amsræktarstöð
inni og þau hafi
greinilega ver
ið geymd á stað
í fangelsinu þar
sem raki hafi
komist á þau.
„Þetta var allt
orðið ryðgað og
ljótt þannig að
þeir eru búnir að
skemma þetta
fyrir mér líka. En
þetta var keypt í
góðri trú og ég er ekki að falast eftir
því að fá tækin aftur. Það er fangelsis
málastjóri sem þarf að svara fyrir
þetta. Ég er bara leiður yfir þessu.
Tækin höfðu tilfinningalegt gildi og
voru búin að fylgja mér lengi. “
Kæran hefur verið afhent lög
reglu og fer Geirmundur fram á að
málið verði rannsakað sem þjófn
aður og brot í opinberu starfi. Þá
fer hann einnig fram á að Páli verði
gerð refsing og fer fram á 400 þúsund
í bætur vegna þess tjóns sem hann
hafi orðið fyrir.
Einkaeigur eiga ekki að vera í
fangelsi
Páll Winkel fangelsismálastjóri hafði
ekki heyrt af kærunni þegar blaða
maður bar hana undir hann. Það
væri hins vegar rétt að hann hafi gef
ið fyrirmæli um að laus lyftingalóð í
eigu fangelsanna yrðu seld, „… en
ekki að selja einkaeigur starfsmanna
enda eiga þær ekki að vera í fangels
um ríkisins,“ sagði hann við DV.
Geirmundur kærir
Pál fyrir þjófnað
n Segir fangelsismálastjóra hafa látið selja líkamsræktartækin sín
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Fangelsismálastjóri
Páll Winkel fangelsis-
málastjóri hafði ekki heyrt
af kærunni á hendur sér.
Kærir Geirmundur Vilhjálmsson, fyrrver-
andi forstöðumaður Kvíabryggju, sakar Pál
um þjófnað og brot í opinberu starfi. Hann
hefur sjálfur verið ákærður fyrir fjárdrátt.
Líkamsræktartæki Eitt af þeim
líkamsræktartækjum sem Geirmund-
ur segir að hafi verið í hans eigu.
Lóð Hluti af lóðum sem Geirmundur segist hafa eignast 12 ára gamall en hafi verið seld án hans vitneskju.
„Tækin
höfðu
tilfinninga-
legt gildi
og voru
búin að
fylgja
mér lengi
Ríflega 200 fá listamannalaun:
291 þúsund
á mánuði
Alls ver íslenska ríkið rúmlega 466
milljónum króna í listamannalaun
í ár til að greiða 217 einstaklingum
mánaðarlegar greiðslur til mislangs
tíma. Í ár eru launin rúmlega 291
þúsund krónur en samtals eru 1.600
mánaðarlaun til ráðstöfunar.
Þessi fjöldi mánaðarlauna hækk
aði umtalsvert með lagabreytingum
sem núverandi ríkisstjórn gerði á
Alþingi í apríl 2009. Þá fjölgaði þess
um heildarfjölda mánaðarlauna úr
1.200 í 1.600 en á sama tíma hafa
mánaðarlaunin hækkað úr rúmlega
266 þúsund krónum í rúmlega 291
þúsund. Með fjölgun úthlutana og
mánaðarlauna til ráðstöfunar þýðir
það að útgjöld ríkisins hafa hækkað
úr 319 milljónum á ári í rúmlega
466 milljónir á ári. Hækkun sem
nemur rúmum 147 milljónum
króna. Stærstan skerf af úthlutuð
um mánaðarlaunum fá myndlistar
menn (435 mánaðarlaun) og rithöf
undar (555 mánaðarlaun).
Katrín Jak
obsdóttir lét
hafa eftir sér
í samtali við
Morgunblað
ið, nokkrum
mánuðum
eftir hrun, í
mars 2009 að
hún hefði sem
menntamálaráðherra verið að leita
leiða til að fjölga listamönnum á
starfslaunum í „ljósi þess atvinnu
ástands sem ríkir og bakhjarlar
listamanna halda að sér höndum í
ljósi aðstæðna.“
Óhætt er að segja að afar skiptar
skoðanir séu um listamannalaunin
og verða þau árlega að miklu hita
máli í umræðunni. Það listafólk
sem hlýtur þessi laun er án nokkurs
vafa vel að þeim komið og vinna
þess skilar sér oft og tíðum marg
falt út í samfélagið. Hafa ber einnig í
huga að greiddir eru skattar af lista
mannalaunum.
Einn þeirra sem sér þessa út
hlutun í öðru ljósi er Vilhjálmur
Birgisson, verkalýðsforingi af Akra
nesi. Hann hlekkjar á frétt um lista
mannalaunin á Facebooksíðu sinni
og bendir á að nýlega hafi 30 manns
verið sagt upp störfum og fjöl
margir lækkað í launum á Sjúkra
húsi Akraness þegar deild sem veitir
eldra fólki með heilabilun umönn
un var lokað. „Skýring ráðamanna
þessarar þjóðar var sú að ekki væri
til fjármagn og þessi niðurskurður
óhjákvæmilegur, ég segi bara núna,
ja hérna.“
Lista yfir þá sem fá listamanna
laun má sjá á DV.is.