Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 27
Viðtal 27Helgarblað 10.–12. febrúar 2012 Sér lífið í nýju ljósi Stjórnmálablinda hættuleg Hann segir það skemmtilegasta við starfið að ferðast og hitta nýtt fólk. „Það er það sem heldur manni gang­ andi í þessu – að það séu þúsundir manna um allt land sem eru í pólitík af því að það vill láta gott af sér leiða. Og ég efast ekki um að það sé slíkt fólk í öðrum flokkum líka. Þess vegna sárnar manni þegar verið er að tala um flokk­ ana sem sérhagsmunasamtök,“ segir hann en bætir við að hann muni vel hvernig sé að standa fyrir utan pólitík­ ina. „Það getur verið óþægilegt þegar maður heldur einhverju fram og veit um leið að ef maður hefði ekki sjálf­ ur farið í pólitík væri maður sjálfur á annarri skoðun. Þannig upplifir mað­ ur sig oft eins og í andstöðu við sjálfan sig. Ég velti oft fyrir mér hvort ég hefði trúað því sem ég er að segja sjálfur, ef ég stæði enn utan við stjórnmálin,“ segir hann og bætir við að ástæðan fyrir þessu sé tvískipt. „Í fyrsta lagi þá eru hlutirnir ekki jafn slæmir og mað­ ur ímyndar sér og í öðru lagi þá snýst þetta um stjórnmálablindu – þegar stjórnmálamenn ímynda sér að allir sjái hlutina eins og þeir. Við þingmenn erum dag eftir dag að spjalla um og velta hlutunum fyr­ ir okkur og förum að ímynda okkur að annað fólk hafi sömu forsendur og líti því málin sömu augum. Þetta getur verið hættulegt og erfitt að eiga við. Ég þarf að passa mig á þessu sjálfur.“ Inn í annan veruleika Aðspurður segir hann að foreldrum sínum hafi líklega ekki litist á blikuna þegar hann tilkynnti þeim að hann ætlaði sér frama innan stjórnmála. „Ég hugsa að þau hafi ekki verið hrifin framan af. Hvorugt þeirra hvatti mig til að fara út í stjórnmál enda held ég að flestir stjórnmálamenn myndu ekki hvetja börn sín til að fara í þetta starf. Þau studdu mig hins vegar þegar út í þetta var komið,“ segir hann og viður­ kennir að það hafi verið undarleg til­ finning að vera orðinn formaður elsta flokks landsins. „Þetta var bara eins og að stíga inn í annan veruleika, aðra vídd, og það tók mig smá tíma að venjast þessu. Ég fékk sendar hamingjuóskir og blóm frá for­ mönnum annarra flokka og ég man að ég hugsaði með mér að ég hafði ekki fengið heillaskeyti frá þeim formanni sem ég vildi helst fá kveðju frá en fatt­ aði fljótt að það var ég sjálfur.“ Aðspurður segist hann ekki hafa stefnt á að ílengjast í stjórnmálunum. „Ég ætlaði mér ekki að verða gamall pólitíkus þegar ég fór út í þetta en ég held að ég verði í þessu töluvert áfram. Hlutirnir gerast mjög hægt í þessum heimi en vonandi get ég breytt því ef ég kemst í ríkisstjórn.“ Topp 10 listi kjaftasagna Líkt og aðrir í sviðsljósinu hefur Sig­ mundur ekki farið varhluta af slúðri. Hann segist hafa verið ýmsu vanur eftir að hafa starfað sem fréttamaður en að netið auki verulega á sögurnar. „Maður venst þessu eins og öllu öðru,“ segir hann enda ýmsu vanur þar sem bæði faðir hans og tengdafaðir hafa verið áberandi í umræðunni og um­ deildir á stundum. „Í fyrstu ætlaði ég mér að skrifa fáránlegustu sögurnar – vildi eiga topp tíu lista yfir bullið. Þetta varð bara fljótt það mikið að ég hætti að geta haldið utan um það. Ég skil bara ekki hvernig þetta verð­ ur allt saman til. Stundum er enginn fótur fyrir þessu. Annaðhvort er mér ruglað saman við einhvern annan eða slúðrið búið til frá grunni. En það þarf svo lítið til að sögurnar spinnist,“ seg­ ir hann og tekur dæmi um það þegar hann og aðstoðarmaður hans voru staddir á Síldarævintýrinu á Siglu­ firði og fóru út að borða með hjónum af staðnum. „Við sátum þar eins og aðrir gestir þar til staðnum var lokað. Næsta morgun gekk sú saga um bæinn að bæjarstjórinn og formaður Fram­ sóknarflokksins hefðu látið opna lok­ aðan stað fyrir sig og setið þar fram eftir nóttu. Ég var ekki einu sinni með bæjarstjóranum. Þetta er samt eins og með margt í pólitíkinni sem er líklega erfiðara fyrir aðstandendur en mann sjálfan. Ég er hættur að fylgjast með þessu. Annars fengi ég á tilfinninguna að ég þyrfti að eltast við og leiðrétta bullið og ég hef engan tíma í það. Það væri bara best ef þeir sem heyra sögur sem þeir hafa áhyggjur af spyrji mig út í þær. Ég get þá farið yfir það með viðkomandi. Annars gæti ég trúað því að þetta væri erfiðara fyrir mann sem er ekki vanur því að þekkjast úti á götu.“ Lífið undirlagt Sigmundur segir starf formannsins verða til þess að hann geti ekki sinnt heimavígstöðvunum sem skyldi. „Reyndir menn segja mér að það sé nauðsynlegt að komast í frí inn á milli til að sinna fjölskyldu og hlaða batt­ eríin og ég er farinn að trúa því að það sé rétt. Ég hef töluvert samvisku­ bit enda er það oft þannig að maður umgengst þingmennina meira þann hluta sólarhringsins sem maður er vakandi en konuna sína. Það er ekki nógu gott. Konan mín hefur sýnt mér mikið umburðarlyndi og mun meira en hægt er að ætlast til. Lífið er ansi undirlagt af þessu,“ segir hann en bætir aðspurður við að hann telji ekki að barnið muni breyta sambandi þeirra Önnu Sigur­ laugar. „Það er einmitt eitt af mörgu sem maður velti fyrir sér þegar mað­ ur vissi að barn væri á leiðinni. En ég á ekki von á því. Það hefur allavega ekki gert það til þessa þótt það hafi augljós­ lega ekki skaðað það. En svo er spurning hvort maður geti búist við sama umburðarlyndi varðandi starfið nú þegar barn er komið inn í myndina. Fram að þessu hefur ekki borið á öðru en maður má ekki ganga á lagið,“ segir hann og bætir við að hann eigi það til að vera róman­ tískur. „Ég vil meina að ég sé það inni við beinið en ég veit ekki hvort öðr­ um finnist það. Ég vil að minnsta kosti vera rómantískur og vildi vera að gera eitthvað óvænt og skemmtilegt þótt reyndin sé ekki í samræmi við það sem er eðlilegt og maður ætlaði. Ég var fyrir löngu, á meðan ég var enn barn, far­ inn að hugsa um rómantíska hluti sem maður gæti framkvæmt með konunni sinni. Vandamálið er bara að ég fylgdi ekki planinu þó konan sem ég svo kynntist ætti það svo miklu meira skil­ ið en maður ímyndaði sér þegar mað­ ur var að bollaleggja þetta. Þetta spjall er hins vegar ágætis áminning um að fara að hrinda einhverju af þessu í framkvæmd.“ Langar í fleiri börn Aðspurður segist hann langa í fleiri börn. „Strax og hún fæddist fór ég að spá í hvað það gæti verið gaman að eignast fleiri. Ég held samt að frúin vilji lengri tíma og eftir að hafa fylgst með því hvernig þetta gengur fyrir sig skil ég það,“ segir hann og bætir við að til þess verði þurfi hann að læra að slaka meira á og njóta þess sem heimilið hafi upp á að bjóða. „Maður er alltaf meira og minna með hugann við póli­ tíkina en ég ætla að reyna að bæta úr því á þessu ári. Hugurinn opnast fyrir nýjum hugmyndum ef maður nær að slaka á. Sumir segja að maður eigi að fara í jóga eða slíkt og það er aldrei að vita nema maður prófi það. Nú þegar maður er orðinn pabbi sér maður lífið í nýju ljósi.“ n „Þetta var hrika- lega ógeðslegt. Þarna var úldið kjöt og alls kyns viðbjóður og lyktin eftir því. Stoltur faðir Sigmundur Davíð og eigin- kona hans eignuðust sitt fyrsta barn í janúar. Sigmundur býst við að föðurhlutverkið hafi breytt honum til frambúðar. mynd Eyþór ÁrnaSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.