Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 14
14 Fréttir 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað
Páll lesi ekki fréttir
n Lagabreytingar um RÚV
Æ
tlun nefndarinnar er að
ítreka að fólk gangi ekki í
önnur störf og einbeiti sér að
sínu starfssviði,“ segir Katrín
Jakobsdóttir, mennta- og menningar-
málaráðherra, í samtali við DV.is um
drög að frumvarpi til laga um Ríkis-
útvarpið sem nefnd um endurskoðun
laga stofnunarinnar hefur skilað af sér.
Í drögunum stendur orðrétt að út-
varpsstjóri Ríkisútvarpsins skuli ekki
gegna öðrum störfum á vettvangi Rík-
isútvarpsins. Páll Magnússon er út-
varpsstjóri en hann er einnig frétta-
þulur Sjónvarpsins.
Í samtali við vef Morgunblaðsins
segir Páll að með þessu sé verið að
fara krókaleið að augljósu marki. Seg-
ir hann ráðamenn eiga að segja það
hreint út ef þeir vilji ekki að hann lesi
fréttir.
„Það má auðvitað draga þá álykt-
un líkt og hann gerir,“ segir Katrín við
DV.is en ítrekar að ætlun nefndarinn-
ar sé að ítreka að fólk gangi ekki í önn-
ur störf og einbeiti sér að sínu starfs-
sviði. birgir@dv.is
Ó
lafi F. Magnússyni mátti sem
borgarstjóra vera ljóst að
Frjálslynda flokknum bar að
fá framlagið sem Ólafur lét
Reykjavíkurborg greiða inn
á reikning í sinni umsjá árið 2008.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
Héraðsdóms Reykjavíkur sem á mið-
vikudag dæmdi borgina til að greiða
Frjálslynda flokknum liðlega 6,8
milljónir króna. „Þetta er dýrt fyrir
borgina,“ segir Sigurjón Þórðarson,
formaður flokksins, sem gagnrýnir
harkalega að borgarstjóri hafi ekki
reynt að leysa málið utan dómstóla.
Sagði skilið við frjálslynda
Frjálslyndi flokkurinn stefndi borg-
inni vegna þess að fjárframlag ársins
2008, vegna kosninganna 2006, var
millifært á félag Ólafs F. Magnússonar.
Ólafur náði kjöri sem fulltrúi Frjáls-
lynda flokksins árið 2006 þegar flokk-
urinn fékk um 10 prósent atkvæða.
Ólafur varð borgarstjóri í kjölfarið en
sagði svo skilið við frjálslynda. Hann
stofnaði Borgarmálafélag F-lista og
lét borgina millifæra peningana, 3,4
milljónir, inn á það félag í óþökk sinna
gömlu flokksfélaga.
Í áliti samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytisins kom fram að borg-
inni hefði borið að greiða Frjálslynda
flokknum fjárframlagið en ekki fé-
lagi Ólafs. Sigurjón Þórðarson, for-
maður Frjálslynda flokksins, lýsti
óánægju sinni með framgöngu borg-
arstjóra í málinu í DV fyrir skemmstu.
Hann lítur svo á að ráðuneytið hafi
falið Reykjavíkurborg að leysa málið
utan dómstóla. Það hafi borgarstjóri
ekki reynt að gera. Ekki stendur ber-
um orðum í álitinu að borginni beri
að leysa málið utan dómstóla en þar
segir þó að óumdeilt sé að Frjálslynda
flokknum hafi borið að fá framlagið.
Björn Blöndal, aðstoðarmaður
borgarstjóra, sagði við DV í janúar að
forsvarsmönnum Frjálslynda flokks-
ins væri frjálst að leita réttar síns, eins
og þeir væru að gera.
Afdráttarlaus dómur
Borgarlögmaður hélt því fram að á
þeim tíma sem greiðslan var innt af
hendi hefði ekki legið annað fyrir
en að Ólafur hefði verið til þess bær
að vísa á þann reikning sem fram-
lagið átti að fara inn á. Hann hefði
verið oddviti Frjálslynda flokksins.
Í dómnum er ekki fallist á þessi
rök og er hann raunar mjög afdrátt-
arlaus. „Samkvæmt þeirri stöðu var
hann æðsti yfirmaður starfsmanna
stefnda [Reykjavíkurborgar] og var
meðal annars prókúruhafi borgar-
sjóðs […] Samkvæmt þeim gögn-
um sem liggja fyrir í málinu mátti
honum vera ljóst að stefnandi
[Frjálslyndi flokkurinn] sem var
rétthafi fjárframlagsins, æskti þess
að framlagið yrði greitt inn á til-
tekinn reikning í eigu stefnanda. Í
ljósi þeirrar stöðu sem réttargæslu-
stefndi Ólafur gegndi hjá stefndu
telur dómurinn hana ekki geta bor-
ið því við að hafa verið grandalaus
um að hann skorti heimild rétthafa
greiðslunnar til að ákveða hvert
henni yrði ráðstafað.“
Krefur borgin Ólaf um féð?
Sigurjón segist í samtali við DV afar
ósáttur við Jón Gnarr borgarstjóra.
„Mér finnst þetta endanlega stað-
festa það að það þurfi annan borg-
arstjóra með Jóni Gnarr. Það þarf að
vera manneskja sem getur og nennir
að setja sig inn í hluti og mál. Þetta
er dýrt fyrir borgina.“ Hann segir
dóminn umhugsunarefni fyrir Reyk-
víkinga og stjórnkerfið. Það hljóti
að vera hægt að gera kröfu um bætt
samskipti. „Mér finnst þetta alveg
með ólíkindum og svona gera menn
ekki,“ segir hann.
Borgarlögmaður hefur sagt í
fréttum að næstu skref hafi ekki ver-
ið ákveðin. Niðurstaðan verði lögð
fyrir borgarráð.
Ekki er hægt að útiloka að Reykja-
víkurborg geri þá kröfu á Ólaf að
hann afhendi peningana sem hann
ranglega fékk. Frjálslyndi flokkurinn
stefndi Ólafi til réttargæslu í málinu,
til að gera honum kleift að koma
sínum sjónarmiðum á framfæri en
það nýtti hann sér ekki fyrir dóm-
inum.
n Ólafur F. lét ranglega leggja peninga inn á sig n Var prókúruhafi borgarsjóðs
Mátti vita að hann
átti ekki að fá féð
„Mér finnst þetta
endanlega stað-
festa það að það þurfi
annan borgarstjóra með
Jóni Gnarr.
Baldur Guðmundsson
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
Deilt fyrir dómi Sigurjón Þórðarson og
félagar höfðu betur gegn borginni. Hún þarf
að reiða fram á sjöundu milljón króna.
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugard. kl. 11–16, sunnud. 14–16
Erum að taka á móti verkum
á næsta uppboð
Áhugasamir geta haft
samband í síma 551-0400.
Listmuna-
uppboð
Hjalti
Parelius
2012
Gallerí Fold í 20 ár 1992–2012
Opnun kl. 15
laugardag 11. febrúar
Allir velkomnir
Sýning
Krókaleið Heyra má á Páli að hann er
ósáttur við breytingarnar.
270 milljónir
í skólalóðir
Á næsta ári stendur til að gera
endurbætur á skólalóðum við
Hamraskóla, Réttarholtsskóla og
leikskólana Árborg og Laugasól.
Jafnframt verður ráðist í annan
áfanga við endurbyggingu lóðar
við Seljaskóla. Þetta kemur fram
í tilkynningu frá Reykjavíkurborg
en samhliða þessum endurbótum
á skólalóðum verður ráðist í ýmsar
framkvæmdir á lóðum leikskól-
anna Barónsborgar, Hólaborgar,
Nóaborgar og Stakkaborgar. Þá
verða gerð boltagerði við Folda-
skóla og Breiðagerðisskóla. Gert er
ráð fyrir að þessar framkvæmdir
muni kosta 270 milljónir króna.
Klapparstígur
fær andlitslyft-
ingu í sumar
Miklar framkvæmdir eru fyrir-
hugaðar á Klapparstíg í sumar en
endurnýja á götuna frá grunni ofan
Laugavegar að Skólavörðustíg.
Þegar framkvæmdum verður lokið
í sumar er ráðgert að útlit götunnar
verði svipað og er á Skólavörðustíg.
Þetta kemur fram á vef Reykja-
víkurborgar. Allt yfirborð götu og
gangstétta verður endurnýjað,
ásamt lögnum sem komnar eru á
tíma. Þá verður sett snjóbræðslu-
kerfi í götu og gangstéttar. Göngu-
leiðir verða breikkaðar og akbraut
mjókkuð, auk þess sem hún verður
upphækkuð á gatnamótum.
Meginþungi framkvæmda
verður frá miðjum marsmánuði til
loka júní. Að því loknu er áætlað
að gróðursetningu ljúki í sept-
ember. Í frétt Reykjavíkurborgar
kemur fram að kynning á fram-
kvæmdinni hafi verið send til íbúa
og hagsmunaaðila. Verkið verður
boðið út á næstunni í takt við inn-
kaupareglur Reykjavíkurborgar að
því er fram kemur á vef borgar-
innar.
Var æðstur Sam-
kvæmt dómnum mátti
Ólafi vera ljóst að Frjáls-
lyndi flokkurinn ætti að
fá peningana..
Sætir gagnrýni Sigurjón hefur gagnrýnt
Jón Gnarr harðlega fyrir að leitast ekki við
að leysa málið.