Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 22
S
tjórnvöld á Filippseyjum eru
ekki vongóð um að björg-
unarsveitum og hermönn-
um takist að finna fleiri eft-
irlifendur í rústum borga og
bæja eftir að öflugur jarðskjálfti upp á
6,9 varð í Negros-héraði á mánudag.
Nær þrjátíu lík hafa fundist en á átt-
unda tug er enn saknað. Flestir þeirra
sem saknað er eru grafnir í skriðu-
haugum sem féllu í kjölfar skjálftans.
Illa byggðir vegir
Benigno Aquino, forseti Filippseyja,
heimsótti hamfarasvæðið á miðviku-
dag og var sleginn vegna eyðilegg-
ingarinnar. Hann fyrirskipaði að um-
svifalaust skyldu hjáleiðir byggðar
þar sem mikilvægar samgönguæðar
fóru í sundur og gagnrýndi harðlega
ömurlega illa byggða vegi á svæðinu.
Auk þess sem fjölmargir vegir fóru
í rúst eins og sjá má meðfylgjandi
myndum, skemmdust ellefu brýr í
Negros Oriental, þar af þrjár algjör-
lega.
Vantar líkkistur
Jarðfræðingar hafa viðurkennt að
hafa ekki vitað af því neðansjávar-
misgengi sem jarðskjálftinn stóri átti
upptök sín í og varð til þess að grjót-
hnullungar, tré og annað brak féll
með gríðarlegum þunga í skriðum á
tvær borgir sem verst urðu úti, Gui-
hulngan og La Libertad.
Bæjarstjórinn í Guihulngan hefur
látið hafa eftir sér, í ljósi þess að enn
er á þriðja tug einstaklinga saknað
þar, að yfirvöld standi frammi fyrir
þeim raunveruleika að skortur verði
á líkkistum fyrir fórnarlömb hamfar-
anna.
Filippseyjar eru staðsettar í hin-
um svokallaða „Eldhring“ Kyrrahafs-
ins þar sem öflugir jarðskjálftar og
eldgos eru tíð. Mannfall er iðulega
mjög mikið og skemmdir miklar þeg-
ar skjálftar verða á hinum fátæku Fil-
ippseyjum þar sem mikið erum illa
byggð hús og byggingar sem standast
engar reglugerðir. Árið 1990 létust
nærri tvö þúsund manns í risaskjálfta
sem mældist 7,7 stig.
22 Erlent 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað
Ofsóttur eftir skrif á Twitter
n Hamza Kashgari efaðist um Múhammeð spámann
Í
slamskir öfgamenn krefjast þess að
ungur Sádi-Arabi verði tekinn af lífi
fyrir færslu á Twitter-síðu sinni sem
vakti hörð viðbrögð í Sádi-Arabíu.
Hamza Kashgari er 23 ára múslimi
sem virðist efast um trú sína og þorði
að tala um það opinberlega. Á Twitter
skrifaði hann um Múhammeð spá-
mann. „Ég hef alltaf elskað uppreisn-
armanninn í þér. Þú hefur alltaf veitt
mér innblástur. Mér líkar hins vegar
ekki geislabaugurinn og heilagleikinn
í kringum þig. Ég mun ekki biðja fyr-
ir þér. Ég mun ekki kyssa hönd þína.
Hins vegar mun ég taka í höndina á
þér eins og jafningjar gera. Ég mun
brosa til þín þegar þú brosir til mín.
Ég mun ekki tala við þig sem vin minn
lengur.“
Allt ætlaði um kolla að keyra þegar
þegar Kashgari birti færsluna á Twitter.
Hann fékk meira en 30.000 svör á ein-
um degi. Mörg þeirra komu frá æva-
reiðum samlöndum hans sem kröfð-
ust þess að hann yrði líflátinn hið
snarasta. Kashgari hefur reyndar eytt
út reikningi sínum á Twitter og beð-
ist afsökunar. Það dugði þó skammt
til þess að lægja óánægjuöldurnar.
Heimilisfang hans var birt á Youtube
og æstur múgur hefur leitað hans og
haldið til fyrir utan moskvuna hans.
Einn frægasti klerkur Sádi-Arabíu
hefur krafist þess að réttað verði yfir
Kashgari fyrir guðlast, en við því liggur
dauðarefsing. Þegur hefur verið gefin
út handtökuskipun á hendur honum
í heimalandinu, en hann flúði land
vegna þess að hann óttast um líf sitt.
„Ég er hræddur og ég veit ekkert hvert
ég á að fara,“ sagði Kashgari.
Bloggari í Sádi-Arabíu segir að við-
brögðin við færslunni hafi verið ótrú-
leg. Ungi maðurinn hafi vissulega far-
ið yfir strikið en málið minni á mál
Salmans Rushdie sem skrifaði bókina
Söngvar Satans, sem gerði að verkum
að Íransstjórn gaf út morðtilskipun
á hendur honum. Rushdie hefur að
mestu farið huldu höfði undanfarin ár.
n Tuga er enn saknað eftir öflugan jarðskjálfa á Filippseyjum
Líkkistuskortur á
hamfarasvæðum
„Flestir þeirra sem
saknað er eru
grafnir í skriðuhaugum.
Sigurður Mikael Jónsson
blaðamaður skrifar mikael@dv.is
Líkbíll í vanda Jarðskjálftinn, sem var öfl-
ugur, gjöreyðilagði vegakerfi í La Libertad.
Hér má sjá magnaða mynd af bifreið sem
reynir að þræða rústir vegar til að flytja lík.
Mokað Hermenn og björgunarsveitarmenn hafa leitað eftirlifenda í aurskriðum sem
féllu. 71 er enn saknað.
Gjörónýtar brýr Eins og sjá má kubbuðust brýrnar á Negros Oriental bara í sundur.
Mikil neyð Tugþúsundir urðu að yfirgefa
heimili sín og annar eins fjöldi missti heimili
sín vegna hamfaranna.
Æstur múgur Öfgamenn hafa hundelt unga manninn og vilja hann feigan. Mynd úr safnI.
Illa lyktandi
nemandi
Kennari í barnaskóla á Nýfundna-
landi gæti verið í vondum málum
eftir að hann tók þátt í að stríða
tíu ára nemanda. Forsaga máls-
ins er sú að drengurinn, Christian,
kom með fisk í skólann sem hann
borðaði í hádegismat. Lyktin af
fiskinum fór eitthvað fyrir brjóstið
á samnemendum hans og gerðu
þeir óspart grín að honum vegna
þess hversu mikil fiskilykt var
af honum. Í stað þess að stöðva
stríðnina ákvað kennarinn að
taka þátt í henni. Kennarinn tók
drenginn út úr kennslustofunni og
úðaði á hann Febreze sem er efni
sem eyðir vondri lykt.
„Ég er mjög sár út af þessu og
finnst eins og ekki hafi verið kom-
ið fram við hann eins og mann-
eskju,“ segir móðir drengsins, Patti
Rideout, í samtali við CBC News.
Hún vill að umræddur kenn-
ari verði rekinn úr starfi en sam-
kvæmt frétt CBC staðfestu skóla-
yfirvöld að kvörtun hefði borist
vegna málsins og að málið sé í at-
hugun.
Óhugnanleg upptaka:
Sjö ára slapp
frá morðingja
Myndband sem sýnir sjö ára
stúlku, Brittany Baxter, berjast á
móti karlmanni sem reyndi að
nema hana á brott úr Walmart-
verslun í Bandaríkjunum á dög-
unum hefur vakið mikla athygli.
Atvikið átti sér stað í bænum Bre-
men í Georgíu-
ríki en mað-
urinn, Thomas
A. Woods, sem
er með dóm
fyrir manndráp
á bakinu, sést
lyfta stúlkunni
upp og ganga
með hana
áleiðis út úr versluninni. Stúlkan
bregst skiljanlega illa við og öskrar
og sparkar í Woods sem verður
til þess að hann sleppir henni og
hleypur út úr versluninni. Lög-
reglan fór yfir myndir úr eftirlits-
myndavél verslunarinnar en á
þeim sást meðal annars bílnúmer
bifreiðar hans. Því átti lögregla
auðvelt með að hafa hendur í hári
hans. „Ég var að skoða prinsessu-
og álfadót. Svo sparkaði ég eins
fast og ég gat,“ segir stúlkan í sam-
tali við Sky News.
Maðurinn var á skilorði vegna
manndráps þegar atvikið átti sér
stað en hann á nú yfir höfði sér
ákæru fyrir tilraun til mannráns.
„Það er skelfilegt að hugsa til þess
hversu hratt þessir hlutir geta
gerst. Ég fékk gæsahúð þegar ég sá
myndbandið,“ segir Keith Pesnell,
lögreglustjóri í Bremen.