Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 16
16 Fréttir 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað E ignarhaldsfélag Ólafs Ólafs­ sonar, Ker hf., sem var einn af kaupendum Búnaðarbankans í ársbyrjun 2003, afsalaði sér húsi á Hverfisgötu 33 til Fram­ sóknarflokksins í desember 2002. Húsið hýsir skrifstofur Framsóknar­ flokksins í dag. Kaupverðið var greitt með yfirtöku skulda upp á 45 millj­ ónir króna þó svo að fasteignamat þess hafi verið talsvert hærra. Þetta kemur fram í afsölum hússins frá því 19. desember 2002 sem DV hefur undir höndum. Tæpum mánuði síðar, þann 16. janúar 2003, var Ólafur Ólafsson einn þeirra sem skrifuðu undir kaupsamn­ ing við íslenska ríkið þar sem S­hóp­ urinn svokallaði, meðal annars eign­ arhaldsfélagið Egla sem var í eigu Kers hf., keypti Búnaðarbankann af íslenska ríkinu. Ker var á þessum tíma eigandi olíufélagsins Esso. Ólafur Ólafsson var einn stærsti hluthafinn í Kaupþingi, áður Kaupþingi­Búnaðar­ banka, þar til bankinn féll um haustið 2008. Pólitísk afskipti af sölunni Framsóknarflokkurinn var í ríkis­ stjórn með Sjálfstæðisflokknum á þessum tíma og stóð fyrir einkavæð­ ingu ríkisbankanna tveggja, Búnaðar­ bankans og Landsbankans. Um­ fjöllun um einkavæðingu bankanna síðastliðin ár hefur rennt stoðum undir það að ríkisstjórnarflokkarnir hafi skipt bönkunum á milli sín; að Landsbankinn hafi verið seldur til manna sem voru handgengnir Sjálf­ stæðisflokknum á meðan Búnaðar­ bankinn hafi verið seldur til aðila sem voru handgengnir Framsóknar­ flokknum. Meðal annars bar Valgerður Sverr­ isdóttir, viðskiptaráðherra Framsókn­ arflokksins sem skrifaði undir kaup­ samningana vegna Landsbankans og Búnaðarbankans fyrir hönd íslenska ríkisins, því við í skýrslu rannsókn­ arnefndar Alþingis að Davíð Odds­ son forsætisráðherra hefði viljað „að Samson keypti Landsbankann“ og að Halldór Ásgrímsson, formaður Fram­ sóknarflokksins, hefði hugsanlega „orðið fyrir einhverjum þrýstingi“ um að selja Búnaðarbankann til S­hóps­ ins. Valgerður vitnaði einnig til þess, sem áður hefur komið fram í opin­ berri umræðu, að Halldór hefði gjarn­ an viljað að S­hópurinn og Kaldbakur, fjárfestingarfélag KEA og Samherja á Akureyri, myndu bjóða saman í Bún­ aðarbankann. Af þessu varð þó ekki og S­hópurinn keypti Búnaðarbank­ ann einn. Aðalsamningamaður S­ hópsins í sölunni á bankanum var Ólafur Ólafsson en Finnur Ingólfs­ son, fyrrverandi ráðherra Framsókn­ arflokksins og fyrrum aðstoðarmað­ ur Halldórs Ásgrímssonar, var einnig mikilvægur þátttakandi í viðskiptun­ um. Afsalað í tveimur hlutum Í afsölunum kemur fram að þann 19. desember 2002 afsalaði Ker hf. sér fasteigninni í tveimur hlutum. Afsöl­ in voru útbúin af Kristni Hallgríms­ syni, lögmanni Ólafs Ólafssonar, sem hafði yfirumsjón með kaupum S­ hópsins á Búnaðarbankanum á ár­ unum 2002 til 2003, og undirrituð af Geir Magnússyni, forstjóra Kers, fyrir hönd þess félags. Athygli vekur að kaupverð hússins virðist einungis hafa verið 45 milljónir króna út frá afsölunum að dæma en hugsanlegt er að frekari fjármunir hafi skipt um hendur þó ekki komi það fram í afsalinu. Ker afsalaði sér rúmlega 62 pró­ sentum hússins til Skúlagarðs ehf. eign­ arhaldsfélags í eigu Framsóknarflokksins. Í afsalinu kemur fram að kaupverð hins selda hafi verið að fullu greitt við undirritun kaupsamn­ ingsins, meðal annars með yfirtöku á 20 milljóna veðskuld við Landsbankann og yfirtöku á 9,5 milljóna veð­ skuld við Búnaðarbankann sem var á 2. veðrétti. Ákvæðin í hinu af­ salinu eru svipuð en þar kemur fram að Húsbyggingasjóður Framsóknarfélaganna í Reykjavík eignist með afsalinu nærri 38 prósent í hús­ inu. Yfirtaka á skuldum vegna þessa hluta húss­ ins nam 25 milljónum og voru þær einnig við Landsbanka Íslands. Ekki er tekið fram hvort og þá hversu mik­ ið reiðufé Framsóknarflokkurinn átti að greiða fyrir húsið, aðeins er rætt um yfirtöku skulda. Nefndarmaður í einkavæðingar­ nefnd skrifaði undir afsalið Sérstaka athygli vekur að einn af þeim sem skrifa undir afsalið af síðarnefnda hluta hússins fyrir hönd Húsbyggingasjóðs Framsóknarfélag­ anna í Reykjavík var Sævar Þór Sigur­ geirsson endurskoðandi. Á þessum tíma var Sævar einnig fulltrúi Fram­ sóknarflokksins í framkvæmdanefnd um einkavæðingu, nefndinni sem seldi S­hópnum Búnaðarbankann ásamt ráðherranefnd um einkavæð­ ingu þar sem fjórir ráðherrar ríkis­ stjórnarflokkanna sátu, þau Davíð Oddsson, Geir H. Haarde, Halldór Ásgrímsson og Valgerður Sverris­ dóttir. Fasteignamat hússins í dag er rúmlega 110 milljónir króna. Skúla­ garður á ennþá stærri hluta húss­ ins en hluturinn sem var í eigu Hús­ byggingasjóðs Framsóknarfélaganna færðist yfir til Glitnis árið 2006. Engir ársreikningar eru til fyrir Húsbygg­ ingasjóðinn og því er ekki hægt að sjá kaupverð hússins. Ker veitti Framsókn veðleyfi 2007 Hluti af skuldunum sem hvíldu á húsinu var vegna 9,5 milljóna króna láns frá Búnaðarbankanum til Fram­ sóknarflokksins árið 1999. Lánið var til fimm ára. Olíufélagið hf., síðar Ker hf., veitti Framsóknarflokknum skil­ yrt veðleyfi til að veðsetja fasteignina fyrir láninu og fólst það meðal annars í skilyrðum veðleyfisins að 9,5 millj­ ónirnar yrðu greiddar inn á banka­ reikning Olíufélagsins hf. Þetta kemur fram fram í veðleyfinu sem undirrit­ að var af Geir Magnússyni í septem­ ber 1999. Framsóknarflokkurinn virð­ ist því hafa orðið að greiða umrædda fjárhæð til Olíufélagsins samkvæmt veðleyfinu. Hugsanlegt er að 9,5 millj­ ónirnar hafi átt að ganga upp í kaup­ verð hússins. Framsóknarflokkurinn varð hins vegar ekki eigandi hússins fyrr en nokkrum árum síðar. 9,5 milljóna króna skuldabréfinu útgefnu af Búnaðarbankanum var Ólafur afsalaði sér húsi til Framsóknarflokksins n Meðlimur í S-hópnum seldi Framsókn hús mánuði fyrir sölu Búnaðarbankans 2003„Tilfinning mín er sú að kaupin hafi verið ákveðin nokkrum árum áður en gengið var frá þessu þarna. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Ólafur Ólafsson Eignarhaldsfélag Ólafs Ólafssonar, Ker, seldi Fram- sóknarflokknum hús á Hverfisgötu sem í dag hýsir skrifstofur flokksins. Mánuði áður Halldór Ásgrímsson var for- maður flokksins á þessum tíma. Framsókn eignaðist húsið mánuði fyrir einkavæðingu Búnaðarbankans. Gekk frá afsalinu Kristinn Hallgrímsson, lögmaður S-hópsins og Ólafs Ólafssonar, gekk frá afsalinu þar sem Framsóknar- flokkurinn eignaðist húsið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.