Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 19
und konur hafi verið beittar ofbeldi
í nánu sambandi á Íslandi einhvern
tíma á ævinni.
Um það bil 20 prósent þeirra
höfðu orðið fyrir líkamlegu ofbeldi
af hálfu aðila sem þær voru í nánu
samandi við eða um tuttugu þús-
und konur, en rúm sex prósent höfðu
orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af
hálfu maka. Hlutfallið er hærra þar
sem stundum er um sömu konur að
ræða sem verða fyrir líkamlegu og
kynferðislegu ofbeldi.
Flestar konur sem beittar eru of-
beldi í nánum samböndum, skilja
eða fara úr þessum ofbeldissam-
böndum. Algengast var að konurnar
yrðu fyrir ofbeldinu meðan á sam-
bandinu stóð en tæp þrjú prósent
kvennanna urðu fyrir einhvers kon-
ar ofbeldi eftir að sambandinu lauk
og rúm tvö prósent þurftu að þola
ofbeldi bæði á meðan sambandinu
stóð og eftir að því lauk.
Morð tengd ástarsamböndum
Samkvæmt Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnuninni eru fjörtíu til sjötíu pró-
sent allra morða á konum í heimin-
um framin af mökum þeirra og oft
eftir ofbeldissamband. Hins vegar
er aðeins lítill hluti þeirra karla sem
eru myrtir drepnir af maka þeirra, og
þegar það gerist er það yfirleitt vegna
þess að konurnar eru að verjast eða
rísa upp gegn ofbeldisfullum mönn-
um.
Líkt og DV greindi frá í byrjun vik-
unnar lést kona í Hafnarfirði þann
6. febrúar síðastliðinn. Ungur mað-
ur gaf sig fram við lögregluna og er
grunaður um að hafa verið valdur
að andláti hennar. Málið hefur vakið
óhug á meðal þjóðarinnar en á síð-
asta ári var Axel Jónsson dæmdur til
að sæta öryggisgæslu á viðeigandi
stofnun eftir að hann banaði barns-
móður sinni í Heiðmörk. Þá var
Gunnar Rúnar Sigþórsson dæmd-
ur í sextán ára fangelsi fyrir að bana
sambýlismanni stúlku sem hann var
haldinn þráhyggju gagnvart. Þriðji
maðurinn, Ólafur Donald Helgason,
var einnig færður í gæsluvarðhald
vegna gruns um að hann hefði orð-
ið valdur að dauða eiginkonu sinn-
ar, Hallgerðar Valsdóttur. Áverkar á
Hallgerði og aðkoman í íbúð þeirra
þóttu benda til að eitthvað óeðli-
legt hefði átt sér stað. Ólafur Donald
var saklaus af þessum ásökunum en
harmurinn var mikill og hann lést
skömmu síðar. n
Opið á sunnudaginn
12. febrúar frá 12-16.
Fréttir 19Helgarblað 10.–12. febrúar 2012
Makinn Myrðir oftast
n Flestar konur sem eru myrtar eru myrtar af maka n Sterk tengsl á milli áfengisneyslu og ofbeldis n Ofbeldi gegn konum er alheimsvandi
Ísland 42% kvenna, 44–49 þúsund, hafa sætt
ofbeldi einhvern tímann frá sextán ára aldri. Þar af
2.600–4.400 á síðustu tólf mánuðum. Þá hafa 22%
kvenna sætt ofbeldi í nánu sambandi.
Danmörk 22% kvenna
hafa verið beitt ofbeldi í
nánu sambandi.
Tékkland 37% kvenna
hafa verið beitt ofbeldi í
nánu sambandi.
Rússland 36 þúsund
kvenna eru daglega lamdar
af eiginmönnum sínum eða
sambýlismönnum, samkvæmt
niðurstöðum óháðra samtaka.
Hong Kong
9% kvenna
hafa sætt
ofbeldi í nánu
sambandi. Filippseyjar
10% kvenna
hafa sætt
ofbeldi í nánu
sambandi.
Ástralía 27% kvenna
hafa sætt ofbeldi í nánu
sambandi.
Indland
22 konur voru
drepnar á hverjum
degi árið 2007
vegna heimamunds.
Egyptaland
35% kvenna
hafa tilkynnt
um barsmíðar
af hálfu eigin-
manna sinna.
Í sumum
tilfellum eiga
barsmíðarnar
sér stað í sjálfri
hjónavígslunni
Spánn Árið 2000
var kona myrt af
sambýlismanni
sínum á 5 daga fresti.
Kanada Kostnaður vegna
heimilisofbeldis nemur 195
milljörðum króna.
Bandaríkin
Konu er misþyrmt á
15 sekúndna fresti. Í
flestum tilfellum er
ofbeldismaðurinn eigin-
maður fórnarlambsins
eða sambýlismaður.
Bólivía
17% kvenna 20 ára
og eldri í Bólivíu
hafa sætt ofbeldi
síðust 12 mánuðina.
Perú
52% hafa fengið
kinnhest frá
eiginmanninum.
Gvatemala
Að meðaltali eru
tvær konur drepnar
á dag.
Bretland Um
það bil 2 konur á
viku eru myrtar
af sambýlis-
manni sínum.
Sambía 5 konur
á viku eru myrtar af
sambýlismanni eða
einhverjum úr fjölskyldunni.
S-Afríka Kona
er myrt á sex
klukkustunda
fresti af maka
sínum.
Sviss 10%
kvenna hafa verið
beitt ofbeldi í
nánu sambandi.
Ofbeldi gegn konum í heiminum
Ofbeldi í nánum samböndum Er alvarlegur vandi á Íslandi sem og annars staðar í heiminum. Samkvæmt rannsókn hefur fjöldi kvenna
upplifað bæði líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í nánu sambandi en flestar þeirra skilja við ofbeldismanninn.