Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Side 40

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Side 40
Lífræn hjónabandssæla n Edda Björgvins gefur uppskrift Þ essa vikuna ætlar leikkonan Edda Björgvinsdóttir að deila með lesendum uppskrift að lífrænni hjónabandssælu. „Þessi er ekki ósvipuð því sem við Laddi erum að leika í Gamla bíói,“ segir Edda brosandi og á við sýn- inguna Hjónabandssælu sem er sýnd í Íslensku óperunni um þessar mundir. n 1 ½ dl lífrænn hrásykur n 3 ¾ dl lífrænt hveiti/heilhveiti/ spelt n 180 gr kókósfeiti (lífræn) n 1 tsk. vínsteinslyftiduft (lífrænt) n ¾ tsk. matarsódi (frá Pottagöldr- um) n 3 ½ dl lífrænt haframjöl n 1 stk. hamingjusamt egg Blandið öllu saman í hræri- vélarskál og hrærið varlega þar til deigið er komið vel saman, ekki hræra of mikið. Takið 2/3 af deig- inu og þjappið í smurt tertuform með fingrunum, vel í botninn og upp með köntunum. Smyrjið líf- rænni rabbarbarasultu yfir, magn af sultu fer eftir smekk hvers og eins. Rúllið út restina af deiginu og skerið niður í strimla og raðið yfir. Bakað við 180°C í um 40 mín- útur. 40 Lífsstíll 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað E inu sinni gerði ég svolítið sem ég skammast mín frekar mikið fyrir að segja frá. Enda fannst mér gjörningurinn fáránlegur frá upp- hafi. En stundum gera eðlilegar konur með eðlilegar þarfir óeðlilega hluti. Ég sem sagt ákvað viljandi að „gleyma“ hálsmeni heima hjá ungum manni sem ég var frekar skotin í. Þ etta var þó alls ekki úthugsað ráðabrugg hjá mér, heldur þvert á móti algjör skyndi- ákvörðun. É g var að safna saman dótinu mínu, svona eins og gengur og gerist eftir næturgistingu að heiman, og fann ekki háls- menið mitt. Þetta var reyndar ekki merkilegt hálsmen en mig langaði samt ekkert til að glata því. Eftir nokkra leit kom ég auga á menið falið undir sokk á gólfinu og fékk þessa líka fáránlega góðu hug- mynd. Í gegnum huga mér flaug skot- held atburðarás sem mér fannst tilvalið að setja af stað við þessar aðstæður. Mig langaði mikið til að hitta manninn aftur og kynnast honum betur. Það var sosum ekk- ert sem benti til að það myndi ekki gerast, en stundum grípur mann örvænting. Líkt og þarna. Til að gulltryggja áframhald- andi samskipti við unga manninn breiddi ég sokkinn laumulega aftur yfir hálsmenið og ýtti undir rúm. Já, ég gerði það. Svo skutlaði hann mér heim, án hálsmens. S íðar sama dag hélt ég skot- heldu atburðarásinni gang- andi. Ég sendi manninum SMS-skilaboð. „Hæ, getur nokkuð verið að ég hafi gleymt hálsmeni hjá þér?“ Svarið fékk ég um hæl. Hann hafði fundið háls- menið og sagði að nú hefðum við allavega ríka ástæðu til að hitt- ast aftur. Ég yrði jú að fá þetta fína hálsmen aftur. Jess! Þetta hafði tekist hjá mér og málið var komið í réttan farveg. Næstu mánuðina héldum við ungi maðurinn áfram að hitt- ast, alveg eins og ég hafði séð fyrir mér þegar ég ýtti sokknum undir rúmið. Oftar en ekki var hálsmenið notað sem fyrirsláttur fyrir hitting- unum, sem var fyndið. Alveg þang- að til maðurinn loksins mætti með hálsmenið til mín og skilaði því. Þá vissi ég hvað klukkan sló, þetta var búið. Ekkert hálsmeninu að kenna, okkar tími var bara liðinn. Þ etta var í fyrsta og eina skipti sem ég hef leikið þennan leik, allavega viljandi. Í fyrstu þorði ég ekki einu sinni að viður- kenna gjörninginn fyrir vinkonum mínum, enda höfum við yfirleitt ekki umburðarlyndi fyrir svona kjánaskap. Ég veit ekkert hvernig málin hefðu þróast ef ekki hefði verið fyrir hálsmensgjörninginn. Með honum þróuðust þau hins vegar vel. Ég mæli ekkert endilega með þessum leik, enda skammast ég mín ennþá. En stundum geta skömmustulegar skyndiákvarðanir gert lífið skemmtilegra. Þó ekki sé nema í skamman tíma. Leyndarmáli ljóstrað upp Líf mitt í hnotskurn Sólrún Lilja Ragnarsdóttir Lífræn og góð Edda gefur lesendum uppskrift að hjóna- bandssælu sem er lífræn og góð. 1 5 2 6 3 7 4 8 Gubbio Umbríuhéraði, Ítalíu n Sérlega fallegur miðaldabær í miðju Umbriuhéraði á Ítalíu. Upplagt að anda að sér andrúmslofti liðinna tíma, taka þátt í mikilli árlegri þorpshátíð 15. maí og skoða keramik. Árstími: Vor, sumar, haust  Flug: Næstu flugvellir eru Ancona; flug með Ryanair frá London og Fiumicino, Róm; flug með EasyJet frá London. Seefeld Tíról, Austurríki n Skíðabær á veturna, dvalarstaður göngufólks á sumrin. Fallegur og notalegur bær, skammt frá Innsbruck. Margir Íslend- ingar hafa komið þarna við. Skoðunarferð upp á fjöllin í kring með kláf er skilyrði. Árstími: Allt árið  Flug: Til dæmis með EasyJet frá London til Innsbruck. Sardinía Ítalíu n Næst stærsta eyjan í Miðjarðarhafi og tilheyrir Ítalíu. Fjölbreytt menning, mannlíf og saga, heillandi umhverfi og ósnortnar strandir. Árstími: Vor, sumar, haust  Flug: Til dæmis Ryanair frá London til borgarinnar Olbia á austurströnd Sardiníu. Mittenwald S-Þýskalandi n Sérkennilegt og fallegt þorp í Bæjara- landi, veggir húsanna skrautlega málaðir ýmis konar myndum. Þekkt fyrir hljóð- færasmíð, fiðlur, víólur og selló. Miklir tréskurðarmeistarar í þorpinu. Árstími: Allt árið  Flug: Til dæmis með EasyJet frá London til Innsbruck. Sýrakúsa Sikiley, Ítalíu n Fæðingarstaður Arkimedesar hins gríska stærðfræðings. Mikið grísk menningar- arfleifð, fornminjar og arkitektúr. Gamli borgarhlutinn algjör gullmoli. Árstími: Vor, sumar, haust  Flug: EasyJet/British Airways frá London til Cataniu. St. Neot Cornwall, Bretland n Fallegt og sérstakt lítið þorp á miðri Bodmin „heiði“ í Cornwall. Upplagt að gera þaðan út í gönguferðir um Bodmin Moor sem býr yfir fjölda jötunsteina sem eru nokkur þúsund ára gamlar fornminjar. Árstími: Sumar  Flug: Frá London til Newquay Cornwall með Flybe lággjaldaflugfélaginu eða taka lest eða rútu frá London til Newquay. Krk eyja Króatíu n Stærsta eyjan í Adríahafinu. Hrjóstrug og sérstök. Margir smábæir og þorp. Mikil saga enda undir yfirráðum Rómverja, Feneyinga, Austurríkismanna og Ítala í gegnum tíðina. Vagga króatískrar menningar engu að síður. Árstími: Vor, sumar, haust  Flug: Með til dæmis Ryanair frá London til Rijeka og síðan með ferju til Krk. St. David’s Wales n Minnsta borg Bretlands í Pembrokeshire í Wales. Borgin byggðist upp í kringum dóm- kirkju heilags Davíðs sem var vinsæll staður fyrir pílagríma að sækja heim á miðöldum. Góður áningastaður fyrir göngufólk. Árstími: Sumar  Flug: Skemmtilegast að vera á bíl til dæmis frá London en einnig er hægt að fljúga til Cardiff frá Glasgow (Flybe). Margrét Gunnarsdóttir hefur um árabil starfað við fararstjórn erlendis og heldur úti vefsíðunni ferdalangur.net. Nú hefur hún gefið út rafbókina Vertu þín eigin ferðaskrifstofa: Einföld ráð til að lækka ferðakostnaðinn, sem er handbók fyrir þá sem vilja skipuleggja ferðalög sín á hagkvæman hátt. Margrét hefur tekið hér saman átta spennandi áfangastaði sem hún mælir með fyrir þá sem huga að ferðalögum. Átta spennandi áfangastaðir Matargerð Átta uppáhalds

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.