Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Page 42
42 Lífsstíll 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað
Á pöllunum
Sjávargyðjur
Á sýningu Chanel söng Flo-
rence Welch eftirminnilega
úr opinni skel og fyrirsætur
liðu áfram á sviðinu í flíkum er
minntu í lit og áferð á sjávar-
djúpin. Fiskar og kóralrif eru
í mynstrum Mary Katrantzou
og hjá Versace voru það kross-
fiskar og sæhestar.
Djarfur leikur
Undirföt eru í tísku og eiga
að sjást. Brjóstahaldarar og
lífstykki sáust hjá Viktor og
Rolf og Christopher Kane.
Brjáluð mynstur
Erdem hélt sig við litrík
blómamynstur meðan
Victoria Beckham skreytti
flíkur sínar með köttum.
Hjá Moschino, Dolce &
Gabbana og Issa var matur
í aðalhlutverki meðan
Prada setti bíla í mynstur.
Leður er enn í tísku
Balmain var í rokkaðri kant-
inum og Celine sýndi leðurkjóla
og skyrtur með belti. Giles
sýndi silfrað leður með út-
skornu mynstri sem sló í gegn.
The Great Gatsby
Tískuheimurinn vinnur með
kvikmyndaiðnaðinum og
nokkrir hönnuðir eru upp-
teknir af hlutverki tískugyðj-
unnar Carey Mulligan sem Daisy
Buchanan í The Great Gatsby
sem sýnd verður á árinu. Ralph
Lauren og Gucci voru greinilega
undir sömu áhrifum.
Á
stæðan fyrir því að ég
keypti mér prjónavél er
sú að ég var búinn með
einhver miðannarskil í
skólanum og leiddist.
Þá fór ég í heimsókn til ömmu
sem henti í mig prjónum og
garni og sagði mér að prjóna.
Mér fannst það ekki nógu
skemmtilegt og fór í tölvuna
og gúgglaði orðið prjónavél til
þess að sjá hvort hún væri til.
Fann svo prjónavél og hef ekki
stoppað síðan,“ segir Alexand-
er Kirchner hönnuðurinn að
baki merkinu 2305. Hann hóf
nýlega að hanna trefla sem
vakið hafa athygli. Treflana
byrjaði hann að hanna þeg-
ar hann ætlaði að gera peysu
fyrir vinkonu sína. „Vinkonu
mína langaði svo í peysu sem
var mikið gegnsæ þannig að
ég ákvað að búa til einn svona
gríðarlangan renning úr garni.
Úr því kom þessi trefill og þetta
endaði á því að ég gaf henni
trefil frekar en peysu. Síðan
byrjaði þetta að spyrjast út,“
segir Alexander.
Treflarnir koma ýmist ein-
litir eða í nokkrum litum. „Það
er hægt að fá þá einlita, tvílita,
þrílita eða fjórlita. Síðan ef fólk
hefur einhverjar sérstakar óskir
um liti og eða lengd þá er hægt
að óska eftir því,“ segir Alexand-
er og lýsir treflunum. „Þetta er
mjó tíu metra lengja sem er í
rauninni vafið í allar áttir. Það
er hægt að nota þetta sem trefil,
belti og bara á alla vegu. Það er
hægt að binda þá saman, lengja
og leika sér með þá. Það fer eig-
inlega bara eftir hverjum og
einum hvernig hentar og hvað
hverjum finnst flott.“
Treflana hans Alexanders
er hægt að kaupa á vefsíðunni
lakkalakk.com og einnig er
hægt að finna merkið hans 2305
á Facebook. viktoria@dv.is
Prjónaáhuginn kviknaði
í heimsókn hjá ömmu
n Alexander hannar trefla undir merkinu 2305
Alltaf prjónandi
Alexander býr til fallega
trefla á prjónavélinni sinni.
2305 Treflarnir
hans Alexanders eru
í ýmsum litum og
einnig er hægt að
óska eftir sérstökum
litasamsetningum.
Vor -og sumartískan 2012
Jackson Pollock-neglur
Neglur skreyttar með naglaskrauti og formum í mis-
munandi litum hafa verið vinsælar síðustu miss-
eri. Nú er í tísku að mála með mismunandi litum
fríhendis á hverja nögl í abstraktstíl, Jackson Pollock
má vera fyrirmyndin, því óreiðukenndara, því betra.
Litasprei í
tísku
Hársprei í áber-
andi litatónum
eru vinsæl um
þessar mundir.
Fléttaðu hárið
og festu upp
með spennum.
Spreiaðu svo
hárlitnum yfir
fléttuna en láttu
þinn náttúru-
lega hárlit sjást
við ræturnar. Um
þessar mundir
fást lituð hársprei
víða, til að mynda
í leikfangabúð-
um, enda nálgast
öskudagur.
Fylgstu með tískuvikunni í New York
Nú stendur yfir tískuvika í New York og þeir
sem komast ekki þangað geta fylgst með fram-
vindu hennar með ýmsum leiðum. Flestar
tískuvefsíður gera viðburðum skil en það má
líka fylgjast með Twitter-færslum tískuspekinga
svo sem Alexu Chung.