Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.2012, Blaðsíða 54
54 Fólk 10.–12. febrúar 2012 Helgarblað
Berst fyrir
frídegi
Fréttakonan skelegga María
Sigrún Hilmarsdóttir vill að 29.
febrúar verði gerður að almenn-
um frídegi. 29. febrúar er eins og
kunnugt er bara á fjögurra ára
fresti. Þessari hugmynd varpaði
María Sigrún fram á fésbókarsíðu
sinni og fékk heilmikil viðbrögð
þar sem fólk var almennt sam-
mála þessari nýju tillögu hennar.
Viðbrögðin voru svo góð að hún
sá jafnvel stefna í fjöldasamtök um
frídag þann 29. febrúar.
Apar eftir
Anítu Briem
Bandaríska unglingastjarnan Va-
nessa Hudgens leikur aðalkven-
hlutverkið í kvikmyndinni Journey
2: The Mysterious Island en ís-
lenska Hollywood-stjarnan okkar,
Aníta Briem, var aðalkvenstjarna
fyrri myndarinnar. Framhalds-
myndin er komin í kvikmyndahús
og virðist ætla að gera góða hluti.
Athygli vekur að Hudgens mætti
í fallega lituðum gulum kjól frá
Mariu Luciu Hohan á frumsýn-
inguna í Grauman’s Chinese-kvik-
myndahúsinu í Los Angeles en
Aníta mætti einmitt í kjól í sama
gula litnum á frumsýningu fyrri
myndarinnar í Mann Village-leik-
húsinu í Westwood árið 2008.
Vill samnorræna
sönglagakeppni
Í kjölfar umfjöllunar á mannrétt-
indabrotum í Aserbaídsjan stingur
Stefán Hilmarsson upp á samnor-
rænni sönglagakeppni í stað Euro-
vision þar sem sú síðarnefnda sé
orðið of stórt batterí. „Samnorræn
keppni yrði viðaminni, ódýrari og
stæði þátttökuþjóðum nærri hug
og hjarta. Ég held aukin heldur,
með fullri respekt, að slík keppni
yrði líklegri til að kveikja áhuga
sterkra höfunda sem margir hafa
misst áhugann hin seinni ár. Það
væri hægt að rótera gestgjafa-
hlutverkinu, stærri löndin tækju
ca. tvær keppnir á móti einni hjá
minni löndunum, Ísland myndi
hosta ca. á 10 ára fresti,“ skrifar
Stefán meðal annars á fésbókar-
síðu sína.
L
ögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu er stolt af lögreglufull-
trúa sínum, Gísla Þorsteins-
syni, og sagði frá því í gær að
hann hefði farið 150 sinnum í
Blóðbankann í þeim erindagjörðum
að gefa blóð. Starfsfólk Blóðbankans
kann svo sannarlega að meta gjaf-
mildi Gísla og færði honum konfekt-
kassa vegna tímamótanna. Starfs-
fólkið lét þau orð falla að fáir hefðu
gefið blóð jafnoft og Gísli.
Sjálfur segir hann að honum finn-
ist sjálfsagt að gefa blóð og honum
finnist gott að fá að verða að liði.
Hann segist ekki hafa nægilega mik-
inn pening á milli handanna til að
gefa til góðgerðamála en líta á blóð-
gjöfina sem sitt framlag. „Þetta get
ég gefið og ég er feginn því að hafa
heilsu til. Það þarf alltaf að vera mik-
ið til af blóði. Þetta er auðvitað banki
allra landsmanna. Sá eini sanni.“
Hann segir blóðgjöfina veita góða
tilfinningu og stundum bíður fólk
blóðgjafarinnar meðan hann er í
Blóðbankanum. „Ég gef líka blóð-
flögur, þær fara aðallega til krabba-
meinsgjafa. Ég er svo heppinn að
vera ríkur af þeim. Það er venjulega
beðið þessara gjafa og mér líður því
eins og ég hafi gefið einhverjum eitt-
hvað afar dýrmætt, blóð er dýrmæt-
ara en gull,“ segir hann.
Gísli segist sjá þörfina fyrir blóð-
gjafir í starfi sínu. „Margir aðrir
starfsmenn lögreglunnar hafa gefið
blóð og munu gera það áfram. Við
sjáum klárlega þörfina í störfum okk-
ar.“
Gísli vill hvetja þá sem hafa
heilsu til að gefa blóð og bendir á
að blóðgjafar fái afar góðar upp-
lýsingar um blóðhag sinn. „Ef það
er eitthvað að þá kemur það í ljós
í blóðgjöf. Þannig fá blóðgjafar
eitthvað í skiptum fyrir gjafmildi
sína.“ kristjana@dv.is
Hefur gefið blóð 150 sinnum
n Gísli Þorsteinsson lögreglumaður hefur gefið blóð í 40 ár
Gísli á bekknum Gísli Þorsteinsson hefur gefið blóð 150 sinnum.
S
teinunn Ólína Þorsteins-
dóttir vinnur ötullega að
forsetaframboði sínu um
þessar mundir. Fjölskyld-
an hefur flutt sig yfir hálfan
hnöttinn, frá Los Angeles til Reykja-
víkur. Yngstu börn þeirra hjóna eru
að sækja landið heim í fyrsta sinn
og því er viðbúið að viðbrigðin séu
mikil. Hjónin hafa búið í Bandaríkj-
unum í sex ár en tóku ákvörðun um
að flytja aftur heim til landsins ný-
verið og búa nú í leiguíbúð í gamla
vesturbænum.
Steinunn Ólína segir börnin loks
vera komin í íslenska skóla og lífið
gangi sinn vanagang. „Yngstu börn-
in eru komin á Laufásborg, þá er
eitt barna okkar í Landakotsskóla
og það elsta í Menntaskólanum í
Hamrahlíð. Það er svo ánægjulegt
hvað það gekk vel að koma þeim í
skóla. Þau mætti kalla skiptinema,“
segir hún og hlær
Hjallastefnan er við lýði á Lauf-
ásborg og Steinunn Ólína er ánægð
með skólann. „Þetta er frábær skóli,
sú eldri er hrifinn en sá yngri er enn
að ákveða sig,“ segir hún frá.
Bjó til kosningamyndband
fyrir 2 dollara
Steinunn Ólína hefur litast
um eftir kosningaskrifstofu
en hún gaf það út á síðasta
ári að hún ætlaði sér að
bjóða sig fram í embætti
forseta Íslands. Hún var á
meðal þeirra sem
lesendur
DV.is
ákváðu að skora á í embætti for-
seta. Steinunn Ólína var í þriðja
sæti, Ragna Árnadóttir í öðru sæti
og Ólafur Ragnar Grímsson efstur.
Kosningabarátta hennar hef-
ur hingað til farið fram á Facebo-
ok-síðu hennar og hún kostar eins
litlu til og mögulegt er. Fjölskyld-
an vann til að mynda í sameiningu
að kosningamyndbandi fyrir Stein-
unni Ólínu. Í myndbandinu er
fjölskyldan á Bessastöðum
í líki leirkalla. „Börnin sáu
um listrænt aðhald. Gerð
myndbandsins tók þrjá-
tíu mínútur
og kost-
aði tvo
doll-
ara,“ sagði hún á Facebook-síðu
sinni.
Það er vonandi að Steinunni
Ólínu takist að halda kostnaði kosn-
ingabaráttunnar í lágmarki í ís-
lenskri dýrtíð en svo virðist sem það
kosti hvítuna úr augunum að bjóða
sig fram. „Þetta kostar mikla pen-
inga, jafnvel milljónatugi að fara í
forsetaframboð og eins gott að fólk
viti það,“ sagði Halldór Guðmunds-
son, stjórnarformaður auglýs-
ingastofunnar Hvíta hússins, til að
mynda við Pressuna á fimmtudag.
Yngstu börnin til
landsins í fyrsta sinn
n Steinunn Ólína undirbýr forsetaframboð af miklum móð„Það er svo
ánægjulegt hvað
það gekk vel að koma
þeim í skóla.
Flutt heim eftir 6 ár Mynd þessi
er tekin áður en Stefán Karl og
Steinunn Ólína fluttust búferlum til
Los Angeles. Þau eru nú flutt aftur
til landsins eftir 6 ára búsetu ytra.