Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2012, Síða 11
Fréttir 11Mánudagur 20. febrúar 2012
Sími: 561 1433
• Austurströnd 14
• Hringbraut 35
• Fálkagötu 18
• Lönguhlíð
góðar
ástæður
til að heimsækja
...okkur
3
mánudaga-föstudaga...........7.30 -17.30
laugardaga.........................8.00 -16.00
KONUDAGUR....................8.00 -18.00
BOLLUDAGUR....................7.30 -18.30
B
O
LLU
R
Á
B
O
LLU
D
A
G
IN
N
U
R
Á
UU
D
U
D
U
D
G
A
G
A
G
A
G
INININ
NNN
B
R
A
U
Ð
O
G
R
Ú
N
STY
K
K
I
A
LLA
D
A
G
A
B
R
A
U
Ð
O
G
R
Ú
N
S
A
L
A
L
A
LLALALA
DDD
G
A
G
A
G
A
G
AAA
B
O
LLU
O
B
O
B
O
B
O
LLLLLLUUUU
STY
K
K
I
K
A
K
A
Á
R
SIN
S 2
0
1
2
Á
K
O
N
U
D
A
G
IN
N
P
R
EN
TU
N
.IS
n Minnihluti þingmanna samþykkti gengislánalögin
Níu þingmenn
fjarverandi
Þ
að er alveg sama hvað Stein-
grími og Jóhönnu finnst um
niðurstöðu Hæstaréttar.
Dómurinn segir beinlínis
að ákvæði laganna brjóti í
bága við stjórnarskrána,“ segir Sig-
urður Hreinn Sigurðsson sem ný-
lega vann ásamt konu sinni Elviru
Mendez mál gegn Frjálsa fjárfest-
ingabankanum vegna gengis-
tryggðra lána. Hann segir ummæli
oddvita ríkisstjórnarinnar ekki hafa
aðra vigt en að vera þeirra persónu-
legu skoðun. Niðurstaða Hæstarétt-
ar standi í dómnum og sé skýr.
Í dómi Hæstaréttar er vitnað til
laga um breytingar á vöxtum og
verðtryggingu sem sett voru í kjöl-
far tveggja dóma Hæstaréttar um
ólögmæti gengistryggðra lána. Lög-
in sem Árni Páll Árnason, þáverandi
efnahags- og viðskiptaráðherra,
mælti fyrir voru tilraun til þess
að slá á óvissu í kjölfar dómanna.
Helsta niðurstaða Hæstaréttar er að
ekki sé heimilt að breyta lánasamn-
ingum aftur í tímann með almennri
lagabreytingu eins og gert var ráð
fyrir í lögunum.
Reyndu sjálf að vara Alþingi við
lagasetningunni
Bæði Sigurður Hreinn og Elvira
Mendez skiluðu á sínum tíma um-
sögn til efnahags- og skattanefndar
vegna fyrirhugaðrar lagasetning-
ar. Í umsögn Sigurðar segir segir að
verði frumvarpið að lögum sé það
ekki til þess fallið að skapa sátt
eða leiða til sanngirni. Þá segir að
þau muni hafa í för með sér veru-
legar breytingar sem varðar samn-
ingsskilmála gengistryggðra lána.
„Með neikvæðum og ófyrirséðum
afleiðingum fyrir efnahag þúsunda
neytenda.“ Sigurður segir að hvorki
hann né Elvira hafi fengið viðbrögð
frá öðrum þingmönnum en Hreyf-
ingunni og Lilju Mósesdóttur.
Elvira, sem er sérfræðingur í Evr-
ópurétti, segir í sinni umsögn að
lögin gætu brotið í bága við neyt-
endatilskipun EES, sem sé í fullu
gildi hér á landi. Þá segir að þótt
markmið lagasetningarinnar sé að
tryggja rétt neytenda í kjölfar dóma
Hæstaréttar sé margt í frumvarp-
inu sem seinna varð að lögum, sem
vinni gegn því markmiði.
Sigurður segir umsagnir þeirra
hjóna ekki hafa beinlínis með eigin
málaferli að gera. Þau hafi hins veg-
ar haft færi á að kynna sér hlutina
vegna eigin málaferla. „Áður en lög-
in voru samþykkt þá hafði ég kynnt
mér drögin vel. Ég hafði svona lán
og því hafði ég allar forsendur til
þess að reikna út hver niðurstað-
an yrði. Ég komst að því að miðað
við frumvarpið myndi þetta þyngja
greiðslubyrðina verulega,“ segir Sig-
urður.
Samþykkt með þingminnihluta
Lögin númer 151/2010, sem köll-
uð hafa verið Árnalög, voru sam-
þykkt með atkvæðum 27 þing-
manna stjórnarmeirihlutans en
aðeins þingmenn Hreyfingarinnar
lögðust gegn lögunum. Athygli vek-
ur að Lilja Mósesdóttir, þingkona
Samstöðu, sem farið hefur mikinn
undanfarið kaus með lögunum á
fyrri stigum málsins en gekk að eig-
in sögn úr sal fyrir atkvæðagreiðslu
í þriðju umræðu. Sömuleiðis hefur
Guðmundur Steingrímsson, þing-
maður Bjartrar framtíðar, gefið
skýringu á sinni fjarveru en í ræðu
á þingi sagðist hann ekki hafa mætt
vegna þess að hann sjálfur hefði
gengistryggt lán.
Hafa verður í huga að á þessum
tíma var þingmeirihluti ríkisstjórn-
arflokkanna fjórir þingmenn en
ekki einn eins og í dag. Sé lokaat-
kvæðagreiðsla laganna skoðuð má
sjá að ellefu þingmenn voru fjar-
verandi en tveir stjórnarliðar höfðu
tilkynnt fjarvist. Níu þingmenn
mættu ekki til atkvæðagreiðslu og
tilkynntu ekki fjarvist. Þar af fimm
stjórnarliðar. Fjórir þingmenn
stjórnarandstöðunnar voru fjar-
verandi, tuttugu og tveir þingmenn
stjórnarandstöðunnar voru í saln-
um en sátu hjá við atkvæðagreiðslu.
Sé þetta haft og huga og sú staða að
lög á Alþingi falla á jöfnu má leiða
að því líkur að sjaldan hafi stjórnar-
andstaðan haft jafn góðan mögu-
leika á að fella lög.
Í þessu samhengi er þó mikil-
vægt að hafa í huga að líklega hefði
meirihlutinn brugðist við með
sama hætti og smalað stjórnarlið-
um til kosningar. Því er ekki hægt
að skella skuldinni vegna laganna
á stjórnarandstöðuna. Það vekur
hins vegar óneitanlega athygli að
svo mikilvæg og afgerandi lög hljóti
brautargengi löggjafans með sam-
þykkt þingminnihluta en meiri-
hluta greiddra atkvæða, án þess að
þingmenn hafi tilkynnt fjarveru.
Þau skrópuðu
n Árni Johnsen
n Björgvin G. Sigurðsson
n Einar K. Guðfinnsson
n Guðmundur Steingrímsson
n Jón Bjarnason
n Kristján Þór Júlíusson
n Lilja Rafney Magnúsdóttir
n Lilja Mósesdóttir
n Össur Skarphéðinsson
Atli Þór Fanndal
blaðamaður skrifar atli@dv.is
„Með neikvæðum
og ófyrirséðum
afleiðingum fyrir efnahag
þúsunda neytenda.
Vann málið Sigurður Hreinn skilaði
umsögn til efnahags- og skattanefndar
vegna fyrirhugaðrar lagasetningar.