Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2012, Blaðsíða 13
Þ
rjú hundruð börn deyja í
heiminum á hverri einustu
klukkustund vegna vannær-
ingar og fjórðungur barna
fær ekki nógu mikla næringu
til að þroskast eðlilega. Þetta kem-
ur fram í nýrri skýrslu samtakanna
Barnaheilla (e. Save the Children)
sem varpar ljósi á þann vanda sem
heimsbyggðin stendur frammi fyrir,
meðal annars vegna hækkandi mat-
vælaverðs.
Í skýrslunni kemur fram að 170
milljónir barna undir fimm ára aldri
þroskist ekki eðlilega vegna þess
hversu litla næringu þau fá.
Börn hætta í skóla til að vinna
Í skýrslunni, sem heitir A Life Free
from Hunger: Tackling Child Mal-
nutrition, var sjónum einna helst
beint að Afganistan, Pakistan,
Bangladess, Indlandi, Perú og Níger-
íu. Í þessum löndum býr helmingur
allra vannærðra barna í heiminum
og neyðast foreldrar margra þessara
barna til að draga börn sín úr skóla
og senda þau út á vinnumarkaðinn
til að eiga fyrir salti í grautinn.
Skýrslan byggist á rannsókn sem
framkvæmd var í umræddum lönd-
um og voru tekin viðtöl við foreldra
sem eru illa staddir fjárhagslega.
Þriðjungur þeirra foreldra sem rætt
var við sagði að börn þeirra kvörtuðu
reglulega undan því að fá ekki nóg að
borða. Tæplega fimmtungur foreldra
sagðist aldrei hafa efni á að kaupa
mjólk, kjöt eða grænmeti. Ástandið
virðist vera einna verst í Afganistan
þar sem sex af hverjum tíu börnum
þjást af vaxtarskerðingu (e. stunted
growth) sem er bein afleiðing viðvar-
andi vannæringar.
Matvælaverð hækkar og hækkar
„Ef ekki verður gripið til viðeigandi
ráðstafana munu 500 milljónir barna
þjást af vaxtarskerðingu á næstu
fimmtán árum,“ segir Justin Forsyth,
framkvæmdastjóri Barnaheilla í
Bretlandi, í samtali við Independent
um niðurstöður skýrslunnar.
Á undanförnum fimm árum hef-
ur matvælaverð í heiminum farið
hækkandi. Ástæðan er sú að veðurfar
hefur verið sveiflukennt og hafa flóð
og þurrkar haft slæm áhrif á upp-
skeru víða um heim. Þá er í síaukn-
um mæli farið að vinna lífeldsneyti
á svæðum sem áður voru notuð sem
beitilönd og leiða þessir þættir – og
fleiri til – til hækkandi matvælaverðs.
Samkvæmt skýrslu Barnaheilla hef-
ur matvælaverð í Afganistan hækkað
um 25 prósent á undanförnum fimm
árum en í ríkjum á borð við Kenía
hefur það hækkað um 40 prósent. Og
þeir fátækustu verða sem fyrr verst
úti vegna þessarar þróunar.
Vill aðgerðir – strax
Á undanförnum árum hefur tölu-
verður árangur náðst í baráttunni
gegn hungursneyð í heiminum.
Þannig hefur „óþörfum“ dauðsföll-
um barna fækkað úr tólf milljónum
á árinu í 7,6 milljónir. Forsyth seg-
ir að hækkandi matvælaverð stofni
þessum árangri í mikla hættu ef ekki
verður gripið til ráðstafana strax. „Oft
var þörf en nú er nauðsyn,“ segir For-
syth sem hefur kallað eftir því að Da-
vid Cameron, forsætisráðherra Bret-
lands, kalli þjóðarleiðtoga saman til
að ræða þessi mál af fullum þunga.
Forsyth áætlar að tíu milljarða dala,
1.230 milljarða króna, fjárveiting til
hinna bágstöddu, muni duga til þess
að bjarga tveimur milljónum manns-
lífa á hverju ári.
sveltandi börn
send út að vinna
Erlent 13Mánudagur 20. febrúar 2012
n Ástrali dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að útvega félaga sínum svæfingarlyf
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Þörf á aðgerðum Justin Forsyth, fyrir miðju á myndinni, segir að nú sé nauðsynlegt að grípa
til aðgerða. Á myndinni sést hann ræða við börn í Dadaab-flóttamannabúðunum í Kenía.
Minna
Snickers
Súkkulaðiframleiðandinn Mars
Inc., sem framleiðir meðal annars
Snickers-súkkulaðið vinsæla, hef-
ur ákveðið að hætta framleiðslu á
súkkulaðistykkjum sem innihalda
meira en 250 hitaeiningar. Ákvörð-
unin tekur gildi frá og með næsta
ári og á hún við um öll dreifingar-
svæði samkvæmt frétt Daily Mail.
Þetta mun væntanlega þýða að Ís-
land sé þar með talið.
Fyrirtækið framleiðir meðal
annars Twix, Mars og Snickers en
súkkulaðistykkin hafa öll verið til í
„king-size“ stærð sem inniheldur
allt að 540 hitaeiningum.
Stúlkum víxlað á
fæðingardeildinni
Tvær rússneskar konur hafa
höfðað mál á hendur sjúkrahús-
inu í Belyaevsk í Rússlandi. Önnur
kvennanna, Olga Buyanova, ákvað
að láta framkvæma DNA-próf þar
sem hana grunaði að hún væri
ekki líffræðileg dóttir foreldra
sinna. Niðurstöður DNA-rann-
sóknarinnar voru skýrar og reynd-
ist grunur hennar á rökum reistur.
Konan hafði samband við for-
svarsmenn sjúkrahússins sem
fóru að gramsa í gögnum og
kanna hvaða konur hefðu verið
á fæðingardeildinni sama dag
og móðir hennar. Leitin skilaði
árangri og kom í ljós að Olgu og
annarri stúlku, Nataliu Arhipova,
hefði verið víxlað á fæðingardeild-
inni. Höfðu foreldrar Olgu fengið
Nataliu í hendurnar og öfugt. Kon-
urnar hafa nú höfðað mál þar sem
þær krefjast þess að fá 48,6 millj-
ónir króna samanlagt í bætur.
Vannæring Þrjú hundruð börn deyja
á hverri einustu klukkustund vegna van-
næringar. Þessi drengur heitir Ranbir og
er tveggja ára og aðeins fimm kíló.
n Á hverri klukkustund svelta 300 börn í hel n Fjórða hvert barn vannært
„Tæplega fimmt-
ungur foreldra
sagðist aldrei hafa efni
á að kaupa mjólk, kjöt
eða grænmeti.