Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2012, Qupperneq 18
Emo-útgáfan af Lisbeth Salander
B
ók Haruki Mura
kami,1Q84 er í heild
sinni heilar 926 blað
síður. Hún saman
stendur af þremur bókum,
bók 1, 2 og 3. Bækurnar
mynda eina heild.
1Q84 á sér stað í Tókýó
árið 1984. Fyrsta bók rekur
atburði frá apríl til júní, önnur
frá júlí til september og sú
þriðja frá október til desem
ber.
Í sögunni skarast frásagnir
tveggja aðalsöguhetja, Ao
mame og Tengo, sem tengd
ust órjúfanlegum böndum
í æsku eina svipstund. Þau
fjarlægjast og lifa hvort sínu
lífinu en þrá bæði að samein
ast aftur.
Haruki Murakami er rit
höfundur sem hefur sterk
sérkenni og kunnugleg minni
birtast í þessari sögu. Konur
hverfa iðulega í bókum Mura
kamis og söguhetjur bóka
hans flakka á milli heima.
Fantasían umlykur sögurnar
á lágstemmdan máta. Hann
notar hæga og persónulega
frásögn og endurtekur sig
markvisst. Tónlist, kynlíf og
matreiðsla markar frásögnina
eins og mörgum sinnum áður.
Það er ekki óalgengt að aðdá
endur Murakamis skiptist á
lagalistum úr bókum hans
eða uppskriftum.
Öll hans brögð til að toga
lesandann í langt ferðalag
(926 blaðsíðna ferðalag) virka
á lúmskan máta. Bókin 1Q84
er vissulega langdregin í heild
sinni því er ekki að neita. En
á sama tíma er viss ánægja
fólgin í því að draga ferðalag
ið á langinn og velta fyrir sér
öllum þeim spurningum sem
hann veltir upp á leiðinni.
Heimspekilegum spurn
ingum um raunveruleikann.
Hvað er raunverulegur heim
ur okkar, hvar skorðast hann?
Murakami rær á dýpið.
Hann fer lengra en hann
hefur nokkru sinni gert í fyrri
skáldsögum sínum. Hann
fjallar öðrum þræði um of
beldi gegn konum og tekur
loksins lengra það bragð sitt
að láta konur hverfa. Heim
ilisofbeldi, kynferðislegt of
beldi gegn konum og börnum
stillir hann fram með áleitn
um hætti. Aðalsöguhetjan
Aomame er „emo“útgáfan af
Lisbeth Salander. Hún myrðir
menn sem hata konur. Mura
kami fjallar einnig um sér
trúarsöfnuði, smættuð sam
félög sem hverfast um einn
sannleika.
Það er kröftug og ógnvekj
andi frásögn sem vekur upp
margar spurningar um hvað
við teljum vera satt og sam
þykkt þegar kemur að konum
sem hverfa.
Saga Murakamis er hins
vegar fyrst og fremst saga af
ást og samstöðu. Þar er vonin.
Ást milli tveggja einstaklinga,
þessi epíska ást sem sigrast á
öllum hindrunum og nær til
„handanheimsins“. Mér komu
til hugar Orfeus og Evridís.
Í ástinni og samstöðunni er
vonin og Murakami still
ir henni sterkt á móti þeim
hryllingi sem blasir við kon
um og börnum þessa heims.
18 Menning 20. febrúar 2012 Mánudagur
Kristjana
Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Bækur
1Q84
Höfundur: Haruki Murakami
Útgefandi: Knopf
926 blaðsíður
Murakami
rær á dýpið
Hann fer
lengra en
hann hefur
nokkru sinni
gert í fyrri
skáldsögum
sínum.
Samstarf
listmiðla
Flakkið kabarett úr verk
um Brechts og Kurt Weill
verður sýndur í menningar
húsinu Hofi á Akureyri á
þriðjudagskvöld. Listamenn
taka sig saman og rifja upp
listasöguna í gegnum list
miðlana tónlist, leiklist og
myndlist. Sýningin byggir á
miklu samstarfi en leikarar
frá Silfurtunglinu og Leik
félagi Akureyrar leiklesa brot
úr Villiöndinni eftir Hen
rik Ibsen, Fröken Júlíu eftir
August Strindberg og Kirsu
berjagarðinum eftir Anton
Chekhov. Nemendur Mynd
listarskólans á Akureyri
teikna upp leikmynd fyrir
verkin og þeim varpað upp
og nemendur úr Tónlistar
skólanum á Akureyri leika
tónlist í takt við verkin.
Boðið í
ferðalag
Sópransöngkonan Þóra Ein
arsdóttir og píanóleikarinn
Steinunn Birna Ragnars
dóttir bjóða til hádegistón
leika á þriðjudag klukkan
12.15. Þar flytja þær söng
lög Henri Duparc á þessum
fyrstu hádegistónleikum Ís
lensku óperunnar í Hörpu,
undir yfirskriftinni „Boðið í
ferðalag“. Tónleikarnir fara
fram í Norðurljósum og taka
um hálftíma í flutningi. Líkt
og venja var á hinum marg
rómuðu hádegistónleikum
Íslensku óperunnar í fyrra
húsnæði sínu í Gamla bíói
geta tónleikagestir keypt
sér hressingu fyrir og eftir
tónleika og þannig nælt
sér í andlega og líkamlega
næringu í einu og sama há
degishléinu. Yfirskrift tón
leikanna vísar til kvæðis
Baudelaire, L‘Invitation au
Voyage.
Alþjóðlegur
móður-
málsdagur
Þriðjudagurinn 21.
febrúar er alþjóðlegur
móðurmálsdagur. Af
því tilefni blæs aðal
safn Borgarbókasafns
Reykjavíkur til dagskrár
tileinkaða því. Skemmti
atriði verður á vegum
félagsins Móðurmál og
einnig verður hægt að
fara á tungumálatorgið
og nálgast hin mismun
andi móðurmál á marg
víslegan hátt, hlusta á
sögur, búa til ljóð, fara í
leiki og fleira. Frú Vigdís
Finnbogadóttir er heið
ursgestur samkomunn
ar sem hefst klukkan 17
og fer fram í aðalsafni
Borgarbókasafns Íslands,
Tryggvagötu 15.
É
g skemmti mér vel,“ segir
sjónvarpsmaðurinn Logi
Bergmann Eiðsson sem
var kynnir á Eddunni í
ár. Logi byrjaði kvöldið
með vel heppnuðu uppistandi
þar sem hann skaut í allar áttir
og lét kollega sína finna fyrir
því. Gerði hann stólpagrín að
mörgum miður heppnuðum
verkefnum í sjónvarpi á árinu
við hlátrasköll í Gamla bíói þar
sem Eddan var haldin í ár.
„Ég fékk bara góð við
brögð,“ segir Logi. „Það höfðu
allir gaman af þessu. Ég skaut
nú aðeins þarna á Sjónvarpið
því tilnefningarnar í ár voru
svolítið sérstakar. En það þýðir
ekkert að fara í fýlu,“ segir Logi
sem tók þætti eins og Tríó og
Kexvexsmiðjuna af lífi.
Einn sem hló þó ekki var
Rúnar Rúnarsson, leikstjóri
Eldfjalls. Í myndinni er Theó
dór Júlíusson, aðalleikari
myndarinnar, mikið að pússa
bát og sagði Logi að framhald
væri á döfinni. Hún myndi
fjalla um mann sem væri að
bóna bíl allan tímann. „Ég
horfði beint á Rúnar þegar ég
sagði þetta og hann var alveg
stjarfur. Það var bara ekkert að
frétta,“ segir Logi og hlær við.
Rúnar gat þó brosað í enda
kvöldsins enda tók Eldfjall öll
stóru verðlaun kvöldsins.
Logi segir hugmyndina að
byrjuninni vera sótta til stærri
hátíða eins og Óskarsverð
launanna og Emmy þar sem
vel þekktir grínistar og sjón
varpsfólk gerir grín að elít
unni. „Það var svona pælingin.
Það er nefnilega margt fyndið
í sjónvarpssögu okkar þó hún
sé ekkert rosalega löng og við
höfum alveg húmor fyrir okk
ur. Þeir sem geta ekki hlegið
verða vera í öðrum bransa.
Mér finnst að svona athafnir
eigi að vera skemmtilegar,“
segir Logi.
Eitt starf kynnis á svona
hátíðum er að passa fara ekki
of langt yfir tímann en leik
konan María Heba Þorkels
dóttir gerði Loga erfitt um vik
með það. María vann Edduna
fyrir besta leik í aukahlutverki
fyrir leik sinni í kvikmyndinni
Okkar eigin Osló. Hún eyddi
öllum tímanum sem hún hafði
í að þakka leikstjóranum, Reyni
Lyngdal, og þegar músíkin gaf
til kynna að hún ætti að ljúka
sér af sagði hún: „Ég er ekki
búin.“ Hún var heldur ekkert að
grínast og fór svo langt yfir tím
ann að músíkin stoppaði.
Logi skellihlær. „Ég hélt
að það væri nú bara eitthvað
vinnustaðagrín eða einhver
gjörningur. Tónlistin hækkaði
og hækkaði en hún fór hvergi.
Mér fannst það og þegar Pétur
Jóhann kom fram í hlébarða
gallanum fyndnast á kvöldinu.
En annars jafnaðist tíminn út
og við fórum bara þrjár mín
útur fram yfir,“ segir Logi.
Eftir að útsendingu lauk
urðu allir eftir í Gamla bíói og
áttu stund saman. „Menn voru
þarna að reyna við Íslandsmet
ið í trúnó. Eftir það fóru menn
hingað og þangað,“ segir Logi
Bergmann Eiðsson.
tomas@dv.is
„Rúnar var
alveg stjarfur“
n Logi Bergmann Eiðsson fór á kostum sem kynnir Eddunnar
Skaut í allar áttir
Logi Bergmann fór á
kostum sem kynnir
Eddunnar. Mynd PreSSPHotoS
Hló ekki Rúnari Rúnarssyni stökk ekki bros á vör við brandara Loga.