Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2012, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 20.02.2012, Blaðsíða 20
20 Sport 20. febrúar 2012 Mánudagur L íðanin er virkilega góð,“ segir Sverrir Sverrisson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur, í viðtali við DV. Sverrir stýrði Njarðvík- urstúlkum um helgina til síns fyrsta titils þegar þær lögðu Snæfell, 84–77, í bikarúrslitum í Laugardals- höll. „Þetta var virkilega gaman fyrir alla, leikmenn, þjálfara og stjórnar- menn. Það var fagnað vel í gærkvöldi og maður er bara hress í dag,“ segir Sverrir. Sigurhefð Njarðvíkur í körfu- bolta þekkir hver íþróttaáhugamaður enda á karlaliðið að baki þrettán Ís- landsmeistaratitla og átta bikarmeist- aratitla. Á meðan strákarnir liggja nú aðeins í dvala og byggja upp ungt lið hafa stúlkurnar stigið fram á sviðið og bætt nú í annars glæsilegt bikarasafn- ið í Ljónagryfjunni. Smá kæruleysi Njarðvík virtist vera að stinga af í úr- slitaleiknum í byrjun seinni hálfleiks en Snæfell sýndi mikinn karakter og bjó til leik í fjórða og síðasta leikhlut- anum. Á endanum var Njarðvík, sem er tíu stigum á undan Snæfelli í deild- inni, of sterkt fyrir stúlkurnar frá Stykk- ishólmi. „Þær komu sér inn í þetta og mér fannst þá fullmikið kæruleysi hjá mínum stúlkum. Við slökuðum full- mikið á,“ segir Sverrir um sitt reynslu- litla lið en aðeins tvær úr hópnum höfðu spilað í bikarúrslitum áður. „Auðvitað fer þetta í reynslubank- ann en þetta er bara spurning um að halda áfram sama agaða leiknum. Mér leið nú aldrei þannig að við værum að fara klúðra þessu. Mínir leikmenn héldu ró sinni og við fórum að taka betri ákvarðanir í sókninni og verjast betur. Sem betur fer lönduðum við þessu þó leikurinn hafi verið orðinn spennandi,“ segir Sverrir. Stoltur brautryðjandi Sverrir segist stoltur að vera fyrstur til að koma með titil í kvennaboltann í Njarðvík. „Það er virkilega gaman að eiga þátt í þessu. Þetta er bara annað árið mitt með liðið og það hafa komið nýjar stelpur inn sem hafa lagt mikið á sig. Liðið er bara að uppskera núna,“ segir Sverrir. Njarðvík hefur þar til í fyrra ekki þótt mikill risi í kvennabolt- anum en aðeins eru fimm ár síðan liðið skráði sig aftur til leiks á Íslandsmótinu. „Það var ekki nægilega mikill metnaður og þetta hefur verið lagt niður tvisvar sinnum á undanförnum fimmtán árum held ég. En nú er ég með stóran hóp stúlkna sem leggja mikið á sig. Svo erum við að uppskera úr yngri flokka starfinu og þar koma nokkrar stelpur upp á hverju ári. Njarðvík á nokkrar stelpur í unglinga- landsliðum þannig að vonandi eru bara spennandi ár fram undan,“ segir Sverrir sem stefnir nú á Íslandsmeist- aratitilinn. „Við verðum með í úr- slitakeppninni og þangað fer enginn bara til þess að vera með. Við stefnum auðvitað á að vinna Íslandsmeistara- titilinn.“ Fjögurra ára bið lokið Keflvíkingar urðu bikarmeistarar karla eftir sigur á Tindastóli, 97–95. Fjögurra ára bið Suðurnesjapilta eftir bikarnum lauk því í Höllinni á laugardaginn. Keflvíkingar höfðu frumkvæðið allan leikinn en Skag- firðingarnir sóttu heldur betur á undir lokin og fengu tvö dauðafæri til að jafna metin þegar stutt var eftir. Keflvíkingar héldu þó út og tryggði Magnús Þór Gunnarsson þeim sigur- inn af vítalínunni sekúndu fyrir leiks- lok. Þröstur Leó Gunnarsson, leik- maður Tindastóls, skoraði reyndar síðustu körfuna yfir endilangan völl- inn en hún skipti því miður engu máli. Skagfirðingar fjölmenntu í Höll- ina og bjuggu til frábæra stemningu ásamt sigurreifum Keflvíkingum. n Kvennalið Njarðvíkur bikarmeistari í fyrsta sinn n Tíundi titill karlaliðs Keflavíkur Nýtt afl í Njarðvík Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Körfubolti Hoppað af gleði Sverrir Sverrisson og stúlkurnar í Njarðvík skála í kampavíni eftir sigurinn. Mynd ToMaSz KolodziejSKi Meistarar Magnús Þór Gunnarsson fyrirliði Keflavíkur lyftir bikarnum. Mynd ToMaSz KolodziejSKi A rsenal átti enn eina mar- traðarvikuna nú síðustu viku. Strákarnir hans Wengers eru nánast dottnir út úr Meist- aradeildinni eftir niðurlægjandi, 4–0, tap gegn Milan og um helgina féll liðið úr ensku bikarkeppninni eftir tap gegn Sunderland á útivelli, 2–0. Arsenal hefur verið duglegt undanfarin ár að missa af tveimur til þremur titlum á einni og sömu vikunni. Sjónvarpsmaðurinn Piers Morg- an, sem er harður stuðningsmaður Arsenal, var sársvekktur eftir tapið og byrjaði að láta liðið heyra það á samskiptasíðunni Twitter. „Það er betra að Wenger hætti núna á meðan við elskum hann og virðum. Betra en að horfa á þessa hnignun liðsins verða meiri og meiri,“ skrifaði Morgan meðal annars á Twitter en orð hans fóru illa í ungstirnið Emm- anuel Frimpong sem svaraði Morg- an fullum hálsi. „Hættu þessu kjaftæði. Þú veist ekkert um fótbolta. Þú situr bara við ferðatölvuna og bullar,“ skrifaði Frimpong og Morgan var ekki lengi að svara. „Er það, herra Frimpong? Sannleikurinn er sár, ljúfur, og ég er óhræddur við að segja hann. Hafðu þig bara hægan, litli. Ég hef fylgst með Arsenal í 42 ár, tvisvar sinnum lengur en þú hefur lifað.“ Frimpong, sem er skrautlegur bæði innan sem utan vallar, svaraði þá Morgan: „Hvenær sástu síðast leik á Emirates-vellinum en ekki á internetinu? Hvað hefur þú gert fyrir Arsenal undanfarin 42 ár? Ekk- ert. Lið eiga góða og slæma tíma í fótboltanum en DYGGIR stuðnings- menn muna eftir þeim góðu og bíða eftir meira af honum.“ Morgan svar- aði: „Ég hef stutt þá, ekkert meira, ekkert minna. Eina sem ég vil er að við verðum samkeppnishæfir aftur, ekki eilífðarlúserar.“ Frimpong sagði þá Morgan hafa rétt á sinni skoðun en hann ætti ekki að segja þeim tveimur milljón- um sem fylgjast með Morgan svona þvælu um Arsenal. „Þú byrjaðir þetta með því að hrauna yfir harðan stuðningsmann liðsins. Það gerir lítið úr þér, Emmanuel. Ég hélt þú værir betri en þetta.“ Morgan lenti svo í orðaskaki við óþekktan tónlistarmann áður en hann lauk ræðu sinni um Arsenal með þessum orð- um: „Úr leik í báðum bikar- keppnum, úr leik í Meist- aradeildinni, úr leik í úrvals- deildinni þar sem við erum að reyna ná 4. sæti. Færri mæta á völlinn og við höfum ekki unnið titil í sjö ár. Tak- ist á við raunveruleikann, Arsenal- menn.“ n Piers Morgan og emmanuel Frimpong lenti saman á Twitter eftir tap arsenal Sjónvarpsstjarna reifst við leikmann Reiður Frimpong reiddist við að lesa orð Morgans. MyndiR ReuTeRS Úrslit Enski bikarinn Chelsea - Birmingham 1-1 0-1 Murphy (19.), 1-1 Sturridge (62). Millwall - Bolton 0-2 0-1 Miyaichi (4.), 0-2 N’Gog (59.). Everton - Blackpool 2-0 1-0 Drenthe (1.), 2-0 Stracqualursi (7.). Norwich - Leicester 1-2 0-1 St Ledger (5.), 1-1 Hoolahan (23.), 1-2 Nugent (72.). Sunderland - Arsenal 2-0 1-0 Richardsson (39.), 2-0 Oxlade-Cham- berlain (77. sm.). Crawley - Stoke 0-1 0-1 Walters (41. víti). n Rory Delap, Stoke (16.). Stevenage - Tottenham 0-0 Liverpool - Brighton 6-1 1-0 Skrtel (5. ), 1-1 Lua Lua (17.), 2-1 Bridcutt (44. sm.), 3-1 Carroll (57.), 4-1 Bridcutt (71. sm.), 5-1 Dunk (75. sm.), 6-1 Suarez (85.) Championship-deildin Barnsley - Portsmouth 2-0 Crystal Palace - Watford 4-0 Ipswich - Cardiff 3-0 Leeds - Doncaster 3-2 Nott. Forest - Coventry 2-0 Peterborough - Bristol City 3-0 Southampton - Derby 4-0 Staðan 1. Southampton 32 17 8 7 58:32 59 2. West Ham 30 17 6 7 47:31 57 3. Reading 31 16 6 9 39:27 54 4. Cardiff 32 14 11 7 50:39 53 5. Blackpool 31 14 10 7 52:38 52 6. Birmingham 30 14 9 7 47:27 51 7. Hull 30 15 5 10 31:25 50 8. Middlesbrough 30 13 11 6 35:31 50 9. Brighton 31 14 7 10 36:33 49 10. Leeds 32 14 6 12 52:48 48 11. Burnley 32 14 5 13 44:37 47 12. Cr.Palace 31 11 10 10 33:30 43 13. Leicester 31 11 9 11 42:37 42 14. Barnsley 31 12 6 13 44:48 42 15. Derby 31 12 6 13 33:41 42 16. Ipswich 31 12 4 15 50:57 40 17. Watford 32 10 10 12 36:47 40 18. Peterborough 31 10 7 14 50:51 37 19. Portsmouth 31 9 8 14 33:34 35 20. Millwall 31 7 10 14 30:41 31 21. Bristol City 32 8 7 17 27:49 31 22. Nottingham F. 31 8 4 19 26:49 28 23. Coventry 32 6 7 19 28:46 25 24. Doncaster 30 6 6 18 26:51 24 Klitschko varði titilinn Vitali Klitschko varði heims- meistaratitill sinn í þungavigt um helgina þegar hann lagði Bretann Briton Chisora á stigum. Nú hefur annar Breti, hinn háværi David Haye, upplýst að hann sé við það að fá bardaga gegn Vitali í sum- ar. Eftir að Vitali vann Haye auðveldlega á síðasta ári hætti Bretinn í hnefaleikum en honum snérist fljótlega hugur. Vitali Klitschko hefur nú varið heimsmeistaratitil sinn tíu sinnum í röð.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.