Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 11.05.2012, Blaðsíða 44
44 Lífsstíll 11.–13. maí 2012 Helgarblað Eldheitt í veisluna Jalapeño-pipar er tilvalinn til þess að útbúa létta en eldheita bragð- sterka rétti í veisluna. Piparinn á sérstaklega vel við rjómaost. Þessi uppskrift að bökuðum jalapeño-pipar með rjómaosti og kóríander er ljúffeng og afar ein- föld í gerð. Þetta þarftu í 24 skammta: 12 jalapeño-piparbelgir 1 ½ bolli rjómaostur 1 ½ bolli mozzarellaostur ¼ bolli kóríanderlauf, söxuð 1/8 tsk. salt Brauðmolar, parmesanostur Aðferð: 1. Skerðu jalapeño-piparinn í tvennt. Fjarlægðu fræin. 2. Blandaðu saman osti, kóríander og salti. Settu í piparbelgina. Þeir sem vilja geta dýft belgjunum ofan í brauðmylsnu eða parmesanost. Það gefur fallega áferð. 3. Setjið á ofnplötu og bakið í 15 mínútur. Gleymir þú að drekka vatn? Flestir gleyma því miður að drekka nægilega mikið af vatni yfir dag- inn. Lítil vatnsdrykkja dregur úr afköstum og veldur þreytu og sleni. Það er því heillaráð að ákveða hversu mikið vatn skal drekka yfir daginn og merkja tíma- setningar á vatnsbrúsa. Vatns- brúsanum er svo stillt upp á skrif- borðinu. Athugaðu hvort líðanin batnar ekki við þetta. Gerðu það sjálf/ur: Falleg pappírsblóm Falleg pappírsblóm eru prýðis- skraut í veislum. Á myndinni fyrir ofan eru sýndar nokkrar aðferð- ir til þess að útbúa mismunandi gerðir blóma. Það þarf kreppappír í nokkrum litum, prjóna sem eru jafnvel með haus og pappír til að vefja með. Gerðu fyrst stöngulinn og klipptu út krónublöð. Vefðu krónublöðun- um um stöngulinn og festu með límbandi. Síðan eru blöðin dregin í sundur og þau mótuð með fingr- unum. Auktu sjálfstraust unglingsins n Hvatning er öflugt uppeldistæki og láttu hrósið hitta í mark Þ að er ekki einfalt skamm- tímaverkefni að auka sjálfs- traust unglings og það þarf meira til en klapp á bakið og stöku hrós. Hér á eftir fylgja nokkur ráð, samantekin af samtökum félags- ráðgjafa í Bandaríkjunum um hvern- ig má á markvissan máta auka sjálfs- traust unglinga. Hreyfing og hollt mataræði Hvettu unglinginn til að hreyfa sig og borða hollan mat. Góð hreyfing vinnur gegn þunglyndi og depurð og gefur unglingnum betri líkamsvitund. Það fylgir menningu unglingsáranna að sækja skyndibitastaði og borða sælgæti. Á unglingsárum verða oft til slæmar matarvenjur sem foreldrar þurfa að sporna við. Minna sjónvarp og net Samkvæmt dr. David Walsh, verða ung- lingar fyrir allt að 5.000 neysluskilaboðum á dag. Stór ástæða fyrir lágu sjálfsmati unglinga er mikið áhorf á sjónvarp. Önnur rannsókn sýndi að þeir unglingar sem verja miklum tíma á netinu eiga einnig frekar á hættu að þróa með sér þunglyndi. Eyddu tíma með unglingnum í staðinn. Hrósaðu rétt og hvettu óspart Á síðustu árum hefur umræða um inni- stæðulaust hrós fengið hljómgrunn. Það er hætta á því að unglingar þrói með sér slaka sjálfsmynd ef þeim finnst þeir ekki standa undir eigin væntingum eða annarra. Láttu því hrósið hitta í mark og lærðu að hvetja. Hvatning er öflugt uppeldistæki. Vertu opinskár Vertu opinskár og ræddu við unglinginn um áhyggjuefni hans. Það er mikilvægt að greina á milli þess að ræða við unglinginn og að beita aga. Gagnkvæm virðing er það sem gefur mestan árangur. Grennandi matur n Bættu þessum matvælum við mataræði þitt n Efnaskiptin verða hraðari 1 2 3 4 Ekki einfalt verkefni Það er langtíma- verkefni foreldra að byggja upp sjálfstraust unglingsins. Hitaeiningarnar burt Við brennum hitaeiningum með því að tyggja matvæli eins og grænmeti, ávexti og heilkorn. Matur sem þarf að tyggja Fitulítið kjöt, hnetur, ávextir og grænmeti n Þessi matvæli láta líkamann fara að vinna frá því að þú stingur þeim upp í þig. Til að hámarka tyggingaráhrifin veldu mat- væli sem eru eins nálægt upprunalegu ástandi og mögulegt er. Borðaðu ávextina eins og þeir eru en ekki í einhverri unninni út- gáfu af þeim. Matvæli sem innihalda mikið af próteini eru bandamenn þínir í þessu mataræði þar sem þú ert lengur að tyggja þau og maginn er lengur að vinna á þeim. Það tekur því lengri tíma að neyta þeirra og þú upplifir seddukenndina lengur. Matur sem fyllir magann Ávextir, grænmeti, brún hrísgrjón, heilkornavörur og morgunkorn n Fyrir utan þá orku sem þú eyðir í að tyggja þessi matvæli þá eru þau stútfull af trefjum svo þau taka meira pláss í maganum, miðað við önnur matvæli sem innihalda sama magn af hitaeiningum. Þar með er minni hætta á að maður fái sér auka skammt. Matvæli sem þarf að tyggja vel gera það að verkum að munnurinn vinnur meira og auka þar með brennsluna við að borða og melta matinn. Matur sem gefur orku Kaffi, svart og grænt te, dökkt súkkulaði n Koffín eykur brennsluna en það fær maður úr kaffi og svörtu tei; varastu þó að setja mikla mjólk, rjóma og sykur út í. Koffín örvar miðtaugakerfið og þar með getur daglegur kaffibolli aukið brennsluna um 5 til 8 prósent en það samsvarar 80 til 128 hitaeiningum á dag. Grænt te inniheldur ekki jafn mikið af koffíni en þess í stað inn- heldur það „catechin“, andoxunarefni sem örvar brennsluna um allt að 4 prósent eða 80 hitaeiningar á dag. Í dökku súkkulaði má bæði finna koffín og „catechin“ en haltu þig við einungis um það bil 30 grömm á dag til að forðast fituna og hitaeiningarnar sem í því eru. Matur sem lætur mann svitna Chili-pipar, kanill, engifer, hvítlaukur, negull, sinnep, edik n Til að þess að virkja sem best hitaeiningarnar úr matnum, er gott að bæta smá hita í matinn. Virka efnið „capsaicin“ sem finna má í chili-pipar eykur úthald þeirra sem neyta þess í marga klukku- tíma og eykur þar með brennslu. Jafnvel mildari tegundir af pipargrænmeti innihalda efni sem hjálpa til við að eyða allt að 100 hitaeiningum á dag með því að bindast við taugaviðtaka og senda merki um að brenna fitu til heilans. Kanill, negull, lárviðarlauf og hvítlaukur eru matvæli sem einnig eru gagnleg í þessu samhengi. Brennslan Hitaeining er hitaeining og besta leiðin til að léttast er að innbyrða minna af þeim, eða svo er sagt. Þeir sem aðhyllast mataræði virkra hitaeininga (The Active Calorie Diet) segja að sérstakar matartegundir hjálpi til við að setja auka orku í brennsluna, slá á matarlyst og hjálpa þannig fólki að léttast. Samkvæmt kenningum þeirra þá tekur það mikla orku að borða sumar matartegundir og þar af leiðandi brennir maður hita- einingum við að borða þær. Bara það að tyggja matvæli eins og grænmeti, ávexti, heilkorn og þunnar kjöt- sneiðar getur aukið brennsluna um 30 prósent. Kaffi og te og krydd eins og chili-pipar, kanill og engifer setja meiri kraft í miðtaugakerfið og hraða þannig efnaskipt- unum um allt að 12 prósent. Það er auðvelt að bæta þessum mat- vælum í mataræði okkar og fá þar með örlítinn auka kraft í brennsluna. Samkvæmt þessu mataræði er matnum skipt niður í fjóra hópa af virkum hitaeiningum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.