Fréttablaðið - 14.12.2015, Síða 49
20 mg, 14 og 28 stk. – fáanlegt án lyfseðils í næsta apóteki
Notkunarsvið: Omeprazol Actavis inniheldur virka efnið ómeprazól sem tilheyrir flokki lyfja sem kallast „prótónpumpuhemlar“ og verka með því að draga
úr sýruframleiðslu magans. Omeprazol Actavis er ætlað til notkunar hjá fullorðnum til skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis (t.d. brjóstsviða og
nábít). Frábendingar: Ofnæmi fyrir ómeprazóli eða öðru innihaldsefni lyfsins. Ofnæmi fyrir lyfjum sem innihalda aðra prótónpumpuhemla. Ef þú tekur lyf
sem inniheldur nelfinavír (við HIV sýkingu). Varúð: Ekki taka Omeprazol Actavis lengur en í 14 daga án samráðs við lækni. Ef einkennin minnka ekki, eða
ef einkennin versna, skaltu ræða við lækninn. Omeprazol Actavis getur dulið einkenni annarra sjúkdóma. Því skaltu ræða strax við lækninn ef eitthvað af
eftirfarandi kemur fyrir þig áður en þú tekur eða meðan þú tekur Omeprazol Actavis: Ef þú léttist að ástæðulausu og átt í erfðleikum með að kyngja, færð
magaverk eða meltingartruflanir, kastar upp mat eða blóði, hefur svartar hægðir (blóðlitaðar hægðir), ert með alvarlegan eða langvarandi niðurgang
(ómeprazól hefur verið tengt við lítillega aukningu á smitandi niðurgangi), hefur verið með magasár eða gengist undir skurðaðgerð á meltingarfærum, ert
á samfelldri meðferð við einkennum meltingartruflana eða brjóstsviða í 4 vikur eða lengur, þjáist stöðugt af meltingartruflunum eða brjóstsviða í 4 vikur
eða lengur, ert með gulu eða alvarlegan lifrarsjúkdóm, ert eldri en 55 ára með ný eða nýlega breytt einkenni. Sjúklingar skulu ekki nota ómeprazól í
fyrirbyggjandi tilgangi. Omeprazol Actavis inniheldur súkrósa. Meðganga og brjóstagjöf: Segðu lækninum frá því ef þú ert barnshafandi eða ert að reyna
að verða barnshafandi áður en þú tekur Omeprazol Actavis. Læknirinn mun ákveða hvort óhætt sé fyrir þig að nota Omeprazol Actavis ef þú ert
barnshafandi eða með barn á brjósti. Skömmtun: Sýruþolnu hylkin má taka fyrir máltíð (t.d. morgunmat eða kvöldmat) eða á fastandi maga. Mælt er með
að hylkin séu tekin inn að morgni dags. Venjulegur skammtur er eitt 20 mg hylki eða tvö 10 mg hylki einu sinni á sólarhring í 14 daga. Hafðu samband við
lækninn ef einkennin hafa ekki horfið á þessum tíma. Nauðsynlegt getur verið að taka hylkin í 2–3 daga samfellt áður en einkennin réna. Hylkin á að gleypa
með glasi af vökva. Ekki má tyggja eða mylja hylkin. Aukaverkanir: Hafðu samband við lækni strax ef eftirfarandi einkenni koma fram: Öndun verður skyndi-
lega hvæsandi, þroti í vörum, tungu og hálsi eða líkama, útbrot, yfirlið eða kyngingarörðugleikar (alvarleg ofnæmisviðbrögð). Roði í húð með blöðrum og
húðflögnun. Einnig getur verið um að ræða verulega blöðrumyndun og blæðingar í vörum, augum, munni, nefi og kynfærum. Þetta getur verið „Stevens-
Johnsons heilkenni“ eða „eitrunardrep í húðþekju“. Gul húð, dökkt þvag og þreyta sem geta verið einkenni lifrarsjúkdóms. Algengar aukaverkanir: Höfuð-
verkur. Áhrif á maga eða þarma (niðurgangur, magaverkur, hægðatregða, vindgangur). Ógleði eða uppköst. Markaðsleyfishafi: Actavis Group PTC ehf.
Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Lesið vandlega leiðbeiningar sem fylgja lyfinu. Nóvember 2015.
Omeprazol Actavis
– Við brjóstsviða og súru bakflæði
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
/
A
ct
av
is
5
1
1
1
4
0
Hvað? Jólafönn
Hvenær? 20.30
Hvar? Sauðárkrókskirkja
Swing Kompaníið heldur í jóla-
tónleikaför um landið í desember
og kemur fram í kirkjum með
kórum á hverjum stað.
Tónleikaförin ber yfirskriftina
Jólafönn og er óhætt að fullyrða
að þar sé eitthvað á boðstólnum
fyrir alla. Skemmtilegar og hress-
andi útsetningar á jólalögum í
bland við hátíðleika skapa ein-
stakan atburð sem enginn má láta
fram hjá sér fara.
Hvað? DJ Anna Brá
Hvenær? 21.00
Hvar? Lebowski Bar
Plötusnúðurinn Anna Brá snýr
skífum á Lebowski Bar í kvöld.
Hvað? Sætabrauðsdrengirnir á Selfossi
Hvenær? 20.00
Hvar? Selfosskirkju
Sætabrauðsdrengirnir Bergþór
Pálsson, Gissur Páll Gissurarson,
Hlöðver Sigurðsson og Viðar
Gunnarsson ásamt Halldóri Smára-
syni, útsetjara og píanóleikara,
verða í jólastuði í kvöld á Selfossi.
Vinnustofur og sýningar
Hvað? Vinnustofa í kertagerð
Hvenær? 16.00
Hvar? Loft Hostel
Námskeiðið hefst kl. 16. Þetta er í
annað sinn sem svona námskeið er
haldið á staðnum.
Hvað? Gáttir – Gleym mér ey
Hvenær? 13.00
Hvar? Listasafni ASÍ
Sýningin mótast í innblæstri og
samræðu þriggja listamanna.
Aðskildar í tíma og rúmi mætast
þær í formi og viðfangi. Með
sendingum á borð við hreyfingar,
takt, liti og form. Hún hefur verið í
gangi frá 28. nóvember og stendur
fram til 20. desember.
Hvað? Kanill
Hvenær? 10.00
Hvar? Hafnarstræti 16
Kanill er jólasýning félagsmanna
Sambands íslenskra myndlistar-
manna, árið 2015. Lagt var upp með
að setja upp fjölbreytta samsýningu
þar sem stærð, verð og miðill verk-
anna væri frjáls. Einnig voru lista-
menn eindregið hvattir til að sýna
annað en hefðbundin „listaverk“,
s.s. bækur/bókverk, fjölfeldi, inn-
rammaðar skissur og svo framvegis.
Uppákomur
Hvað? Grín á Gauknum
Hvenær? 21.00
Hvar? Gaukurinn, Tryggvagata
Opinn míkrafónn á Gauknum, grín
og glens á ensku. Allir grínistar
eru velkomnir. Þessi kvöld hafa
heppnast vel og er um að gera fyrir
þá sem vilja reyna fyrir sér í uppi-
standi að stíga á svið.
Hvað? Stúfur í Þjóðminjasafninu
Hvenær? 11.00
Hvar? Myndasalur Þjóðminjasafnsins
Jólasveinarnir skemmta börnum í
Þjóðminjasafninu daglega frá því
þeir fara að koma til byggða. Í dag
ætlar Stúfur að ræða við þau.
Jólasveinarnir mæta á ýmis söfn. Í
dag verður Stúfur meðal annars á
Þjóðminjasafninu.
M e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 29M Á n U D A g U R 1 4 . D e s e M B e R 2 0 1 5
1
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
C
-C
6
C
4
1
7
A
C
-C
5
8
8
1
7
A
C
-C
4
4
C
1
7
A
C
-C
3
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K