Fréttablaðið - 14.12.2015, Qupperneq 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r34 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð
Hver er þinn jólailmur?
ILMUR DESEMBER
MÁNAÐAR
„Christmas Garland“
greniilmurinn fæst í nokkrum
stærðum og útfærslum.
Verðdæmi: Millistórt
kerti í glerkrukku
Fullt verð: 4.290 kr.
Aðeins 3.218 kr.
Dormaverð aðeins 8.990 kr.
Sængurföt frá MistralHome
100% bómullarsatín
þrír litir. 300 tc.
Jólatilboð 20.900 kr.
O&D dúnsæng
· 90% dúnn
· 10% smáfiður
Fullt verð: 25.900 kr.
verð
Frábært
og gæði
Afgreiðslutími
Mán. til fös. frá kl. 10–18
Laugardaga frá kl. 11–16
www.dorma.is
Holtagörðum
512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
558 1100
MEIRA Á
dorma.is
Aðeins 19.900 kr.
TVENNUTILBOÐ
dúnsæng + koddi
O&D dúnsæng – Stóri björn
· 50% dúnn og 50% smáfiður
Fullt verð: 19.900 kr.
+ Dúnkoddi – Stóri björn
Fullt verð: 5.900 kr.
Fullt verð samtals:
25.800 kr.
Hafðu það
notalegt um jólin
Komdu í Dorma
JÓLA-
TILBOÐ
25%
AFSLÁTTUR
Ilmur mánaðarins
Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og handritshöfundur, fékk á dögunum framleiðslu-
styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands
fyrir nýrri stuttmynd sinni sem ber
nafnið Ungar og mun stórleikarinn
Ólafur Darri leika aðalhlutverkið.
Þetta er önnur stuttmyndin sem
Nanna Kristín leikstýrir, því hún
sendi frá sér stuttmyndina Tvíliða-
leikur árið 2013 en myndin hefur
vakið mikla athygli. „Ég skrifaði Tví-
liðaleikinn í námi mínu í Vancouver
þar sem ég var að læra handritaskrif
fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Þá var
ég ekkert að sækja um styrk hjá Kvik-
myndasjóði því ég vildi prófa mig
áfram án allra fjárhagslegra skuld-
bindinga, smá hrædd um að ég hefði
ekkert í leikstjórahlutverkið að gera
og þess háttar ótti í manni,“ segir
Nanna Kristín. Sá ótti var hins vegar
ástæðulaus því myndin var frumsýnd
á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Toronto og hefur farið víða og hlotið
prýðis dóma. „Myndin er núna búin
að fara góðan rúnt um allar helstu
kvikmyndahátíðirnar. Hún er fáan-
leg á iTunes og RÚV búið að kaupa
sýningarréttinn sem er stór plús, þá
veit maður að fólkið í landinu mun
sjá afraksturinn,“ bætir Nanna Kristín
við.
Eins og fyrr segir fékk hún styrk
fyrir nýju myndinni en Zik Zak kvik-
myndir, Askja Films og Skot Pro-
ductions framleiða myndina ásamt
Nönnu Kristínu sjálfri. Kvikmynda-
töku annast Árni Filippusson, Drífa
Freyju-Ármannsdóttir hannar leik-
mynd og Margrét Einarsdóttir bún-
inga.
Ungar fjallar um neikvæðar staðal-
myndir um ákveðna hópa samfélags-
ins. Ólafur Darri leikur einstæðan
föður sem vill verða við þeirri einföldu
ósk dóttur sinnar að halda fjörugt
náttfatapartí með vinkonum sínum.
Það reynist honum hins vegar þrautin
þyngri.
Spurð út í hvort það sé skemmti-
legra að leikstýra heldur en leika
segir Nanna Kristín hvort tveggja vera
skemmtilegt. „Mér finnst skemmti-
legast að blanda þessu öllu saman,
ég hef unnið hörðum höndum að því
undanfarin ár að geta leyft mér að
vinna sjálfstætt sem listamaður. Mér
finnst spennandi að geta brugðið mér
í ábyrgðarhlutverk framleiðandans,
vinna með frásagnarform handrits-
höfundarins, haft skapandi sýn leik-
stjórans og síðan er hlutverk leikarans
mér afar kært,“ segir Nanna Kristín.
Tökur á Ungum fara fram í febrúar
2016 og er undirbúningur kominn
á fullt. Eins og áður sagði fer Ólafur
Darri Ólafsson með hlutverk föður-
ins en leit stendur yfir að 10-11 ára
stúlkum í þrjú helstu kvenhlutverkin,
auk leikkvenna í önnur hlutverk.
Nanna Kristín er ekkert að stressa
sig á því að koma myndinni út sem
fyrst. „Ég er ekki að horfa á að reyna
koma henni út fyrir einhverja sér-
staka hátíð, myndin verður bara
tilbúin þegar hún er tilbúin. Það er
líka frumsamin tónlist í myndinni
þannig að þetta tekur allt tíma.“ Tón-
listarkonan Þórunn Antonía semur
þemalag myndarinnar.
Meðfram stuttmyndinni er hún
einnig að vinna að heimildarmynd
um stöðu kvenna í íslenskum kvik-
myndageira. „Við Hallur Örn Árna-
son erum að vinna heimildarmynd
sem byggist á óformlegri rannsókn á
stöðu kvenna í íslenskri kvikmynda-
gerð og um hvort það séu færri tæki-
færi fyrir konur í þessum bransa. Hug-
myndin að þessari mynd kom þegar
ég vann Tvíliðaleikinn, þá var maður
eitthvað svo smeykur við að koma
sér fyrir í þessum harða heimi. Við
Hallur fórum í kjölfarið að spjalla og
ákváðum að kýla á þetta. Við tökum
viðtöl við konur og karlmenn innan
kvikmyndageirans og veltum upp
öllum þeim spurningum sem vakna
varðandi þetta efni. Efnið virðist vera
ansi eldfimt og það er áhugavert að
sjá að skoðanir viðmælenda hafa lítið
með kyn að gera.“
Hallur Örn fylgdi Nönnu Kristínu
eftir við gerð Tvíliðaleiksins og ætlar
einnig að fylgja henni eftir við gerð
Unga og er heimildarmyndin því
væntanleg á eftir Ungum.
gunnarleo@frettabladid.is
Blandar öllu saman
Leikkonan og handritshöfundurinn Nanna Kristín Magnúsdóttir
leikstýrir sinni annarri stuttmynd sem ber nafnið Ungar.
Ólafur Darri Ólafsson leikur aðalhlutverkið í myndinni.
Nanna Kristín segist hafa unnið hörðum höndum að því undanfarin ár að geta leyft
sér að vinna sjálfstætt sem listamaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN
Nanna Kristín og Ólafur Darri, sem leikur aðalhlutverkið í stuttmyndinni fara hér yfir málin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN
1
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:2
5
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
C
-9
A
5
4
1
7
A
C
-9
9
1
8
1
7
A
C
-9
7
D
C
1
7
A
C
-9
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K