Fréttablaðið - 14.12.2015, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 14.12.2015, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 5 m Á N U d A G U r34 L í f i ð ∙ f r É T T A b L A ð i ð Hver er þinn jólailmur? ILMUR DESEMBER MÁNAÐAR „Christmas Garland“ greniilmurinn fæst í nokkrum stærðum og útfærslum. Verðdæmi: Millistórt kerti í glerkrukku Fullt verð: 4.290 kr. Aðeins 3.218 kr. Dormaverð aðeins 8.990 kr. Sængurföt frá MistralHome 100% bómullarsatín þrír litir. 300 tc. Jólatilboð 20.900 kr. O&D dúnsæng · 90% dúnn · 10% smáfiður Fullt verð: 25.900 kr. verð Frábært og gæði Afgreiðslutími Mán. til fös. frá kl. 10–18 Laugardaga frá kl. 11–16 www.dorma.is Holtagörðum 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri 558 1100 MEIRA Á dorma.is Aðeins 19.900 kr. TVENNUTILBOÐ dúnsæng + koddi O&D dúnsæng – Stóri björn · 50% dúnn og 50% smáfiður Fullt verð: 19.900 kr. + Dúnkoddi – Stóri björn Fullt verð: 5.900 kr. Fullt verð samtals: 25.800 kr. Hafðu það notalegt um jólin Komdu í Dorma JÓLA- TILBOÐ 25% AFSLÁTTUR Ilmur mánaðarins Nanna Kristín Magnúsdóttir, leikkona og handritshöfundur, fékk á dögunum framleiðslu- styrk frá Kvikmyndasjóði Íslands fyrir nýrri stuttmynd sinni sem ber nafnið Ungar og mun stórleikarinn Ólafur Darri leika aðalhlutverkið. Þetta er önnur stuttmyndin sem Nanna Kristín leikstýrir, því hún sendi frá sér stuttmyndina Tvíliða- leikur árið 2013 en myndin hefur vakið mikla athygli. „Ég skrifaði Tví- liðaleikinn í námi mínu í Vancouver þar sem ég var að læra handritaskrif fyrir kvikmyndir og sjónvarp. Þá var ég ekkert að sækja um styrk hjá Kvik- myndasjóði því ég vildi prófa mig áfram án allra fjárhagslegra skuld- bindinga, smá hrædd um að ég hefði ekkert í leikstjórahlutverkið að gera og þess háttar ótti í manni,“ segir Nanna Kristín. Sá ótti var hins vegar ástæðulaus því myndin var frumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Toronto og hefur farið víða og hlotið prýðis dóma. „Myndin er núna búin að fara góðan rúnt um allar helstu kvikmyndahátíðirnar. Hún er fáan- leg á iTunes og RÚV búið að kaupa sýningarréttinn sem er stór plús, þá veit maður að fólkið í landinu mun sjá afraksturinn,“ bætir Nanna Kristín við. Eins og fyrr segir fékk hún styrk fyrir nýju myndinni en Zik Zak kvik- myndir, Askja Films og Skot Pro- ductions framleiða myndina ásamt Nönnu Kristínu sjálfri. Kvikmynda- töku annast Árni Filippusson, Drífa Freyju-Ármannsdóttir hannar leik- mynd og Margrét Einarsdóttir bún- inga. Ungar fjallar um neikvæðar staðal- myndir um ákveðna hópa samfélags- ins. Ólafur Darri leikur einstæðan föður sem vill verða við þeirri einföldu ósk dóttur sinnar að halda fjörugt náttfatapartí með vinkonum sínum. Það reynist honum hins vegar þrautin þyngri. Spurð út í hvort það sé skemmti- legra að leikstýra heldur en leika segir Nanna Kristín hvort tveggja vera skemmtilegt. „Mér finnst skemmti- legast að blanda þessu öllu saman, ég hef unnið hörðum höndum að því undanfarin ár að geta leyft mér að vinna sjálfstætt sem listamaður. Mér finnst spennandi að geta brugðið mér í ábyrgðarhlutverk framleiðandans, vinna með frásagnarform handrits- höfundarins, haft skapandi sýn leik- stjórans og síðan er hlutverk leikarans mér afar kært,“ segir Nanna Kristín. Tökur á Ungum fara fram í febrúar 2016 og er undirbúningur kominn á fullt. Eins og áður sagði fer Ólafur Darri Ólafsson með hlutverk föður- ins en leit stendur yfir að 10-11 ára stúlkum í þrjú helstu kvenhlutverkin, auk leikkvenna í önnur hlutverk. Nanna Kristín er ekkert að stressa sig á því að koma myndinni út sem fyrst. „Ég er ekki að horfa á að reyna koma henni út fyrir einhverja sér- staka hátíð, myndin verður bara tilbúin þegar hún er tilbúin. Það er líka frumsamin tónlist í myndinni þannig að þetta tekur allt tíma.“ Tón- listarkonan Þórunn Antonía semur þemalag myndarinnar. Meðfram stuttmyndinni er hún einnig að vinna að heimildarmynd um stöðu kvenna í íslenskum kvik- myndageira. „Við Hallur Örn Árna- son erum að vinna heimildarmynd sem byggist á óformlegri rannsókn á stöðu kvenna í íslenskri kvikmynda- gerð og um hvort það séu færri tæki- færi fyrir konur í þessum bransa. Hug- myndin að þessari mynd kom þegar ég vann Tvíliðaleikinn, þá var maður eitthvað svo smeykur við að koma sér fyrir í þessum harða heimi. Við Hallur fórum í kjölfarið að spjalla og ákváðum að kýla á þetta. Við tökum viðtöl við konur og karlmenn innan kvikmyndageirans og veltum upp öllum þeim spurningum sem vakna varðandi þetta efni. Efnið virðist vera ansi eldfimt og það er áhugavert að sjá að skoðanir viðmælenda hafa lítið með kyn að gera.“ Hallur Örn fylgdi Nönnu Kristínu eftir við gerð Tvíliðaleiksins og ætlar einnig að fylgja henni eftir við gerð Unga og er heimildarmyndin því væntanleg á eftir Ungum. gunnarleo@frettabladid.is Blandar öllu saman Leikkonan og handritshöfundurinn Nanna Kristín Magnúsdóttir  leikstýrir sinni annarri stuttmynd sem ber nafnið Ungar. Ólafur Darri Ólafsson leikur aðalhlutverkið í myndinni. Nanna Kristín segist hafa unnið hörðum höndum að því undanfarin ár að geta leyft sér að vinna sjálfstætt sem listamaður. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN Nanna Kristín og Ólafur Darri, sem leikur aðalhlutverkið í stuttmyndinni fara hér yfir málin. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFáN 1 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :2 5 F B 0 5 6 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 A C -9 A 5 4 1 7 A C -9 9 1 8 1 7 A C -9 7 D C 1 7 A C -9 6 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 5 6 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.