Fréttatíminn - 06.11.2015, Page 18
Þ
Það er alþjóðlegur svipur á miðborg Reykja-
víkur þessa dagana en nú stendur yfir tónlist-
arhátíðin Iceland Airwaves. Talið er að gestir
hátíðarinnar séu um níu þúsund, að meðtöld-
um tónlistarmönnum og fjölmiðlafólki. Það
er raunar ekki nýtt, sé litið til undanfarinna
missera og ára, að fjöldi erlendra ferðamanna
spóki sig á götum borgarinnar. Þessir gestir
okkar hafa hleypt lífi í borgina og fjöldi veit-
ingahúsa, verslana og ýmissa þjónustufyrir-
tækja nýtur góðs af.
En ferðamennirnir eru ekki
bara á borgarstrætum, þeir
ferðast um land allt og sækja
í íslenska náttúru og víðerni,
auðlind sem er ákaflega dýr-
mæt. Fagrir staðir hér á landi
vekja æ meiri athygli. Í liðinni
viku bættist enn við en þá birti
ferðabókaútgáfan Lonely Plan-
et árlegan lista sinn yfir eftir-
sóknarverðustu áfangastaði
komandi árs í f lokki landa,
landsvæða og borga á heimsvísu. Þar var
Vesturland í öðru sæti í flokki landsvæða.
Bent var á náttúru svæðisins og dýralíf, jökla,
fossa og hraun og sérstaklega á íshellinn í
Langjökli, Snæfellsjökul, lunda- og hvala-
skoðun, auk hestaferða.
Vestlendingar mega því í framhaldinu
búast við auknum ferðamannastraumi enda
hefur val sem þetta áhrif. Vesturland hefur
upp á margt að bjóða en hefur ekki verið eins
mikið í sviðsljósinu og Suðurland, þangað
sem flestir ferðamenn leita, ekki síst til þess
að skoða Gullfoss, Geysi, Skógafoss, Dyr-
hólaey, Jökulsárlón og aðrar náttúruperlur.
Varla minnkar áhuginn á sunnanverðu land-
inu í kjölfar nýs myndbands kanadíska ungst-
irnisins Justin Bieber sem frumsýnt var fyrr
í vikunni. Myndbandið með lagi söngvarans
var tekið á Suðurlandi fyrr í haust og má sjá
stjörnuna víða við þekkt kennileiti, Skóga-
foss, Seljalandsfoss, Sólheimasand, Jökulsár-
lón og Fjaðrárgljúfur.
Söngvarinn nýtur aðdáunar ungs fólks víða
um lönd og má greinilega sjá á skrifum aðdá-
endanna að íslenskt landslag vekur athygli,
ekki síður en söngur poppstjörnunnar. Þar
spyrja sumir hvort slíkt landslag sé í raun-
inni til og hvar það sé að finna. Til gamans
má birta eitt „kommentið“ en það er lýsandi
fyrir þau áhrif sem landslagið í myndbandinu
hefur á aðdáendur – greinilega skrifað með
hjartanu og viðeigandi tungutaki ungmenn-
is: „omg what place is this?? i wanna go man..
this place is heaven dude!“
Ósagt skal látið hvort ungt fólk streymir
hingað til lands í kjölfar myndbandsins en
dropinn holar steininn. Einhverjir geyma
minninguna um landið og koma þegar þeir
verða eldri en myndbandið er vissulega
óvænt landkynning sem gríðarlega margir
sjá. Strax á fyrstu dögum horfðu milljónir
manna á það og mun fjölga verulega ef að
líkum lætur, slík er frægð Justin Bieber.
Nefna má sem dæmi að horft hefur verið á
vinsælasta myndband hans yfir 1.200 milljón
sinnum.
Allar líkur eru á því að næsta ár toppi
yfirstandandi ár í ferðamannafjölda, líkt
og verið hefur ár hvert að undanförnu.
Reikna má með því að erlendir ferðamenn
sem hingað koma á þessu ári verði nálægt
1250 þúsund. Það má því reikna með því, sé
varlega reiknað, að hingað komi um og yfir
ein og hálf milljón erlendra ferðamanna á
næsta ári. Þetta hefur mikil og jákvæð áhrif
á efnahagsmál hér á landi, enda er gjaldeyr-
isinnflæði mikið. Mikill vöxtur er í ferða-
þjónustufyrirtækjum um land allt, stórum
og smáum, en verður einna best lýst í um-
fangi íslensku flugfélaganna. Hagnaður
Icelandair Group nam um 13,4 milljörðum
króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs, var
20% meiri en í fyrra. Þá tilkynnti WOW
air fyrr í vikunni að það muni hefja áætl-
unarflug til Los Angeles og San Fransisco
næsta sumar og bæta af því tilefni við þrem-
ur nýjum breiðþotum í flugflota sinn. Með
þessari aukningu mun WOW air meira en
tvöfalda sætaframboð sitt á næsta ári, frá
900 þúsund sætum í ár í tæplega 2 millj-
ónir sæta.
Vesturland og Suðurland í sviðsljósinu
Landkynning stórstjörnu
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýsdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Fréttastjóri: Hösk-
uldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Auglýsingastjóri og stjórnarformaður: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri: Teitur Jónasson
teitur@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
www.forlagid.is – alvöru bókabúð á netinu
KOMIN AFTUR
18 viðhorf Helgin 6.-8. nóvember 2015