Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 8
Þorvaldur Gylfason prófessor í hagfræði Ég er áskrifandi af því að DV þorir að segja sannleikann Vilja Vera áfram í Nato n Rúmur helmingur kjósenda hlynntur aðild að NATO n Borgum mest í hermálasjóð M eirihluti Íslendinga er hlynntur aðild Íslands að Atlantshafsbandalaginu (NATO). Í Alþingisprófi DV segjast 51,5 prósent vera frekar eða mjög hlynnt aðild. Aðeins um 21 prósent þátttakenda segist frekar eða mjög andvígt veru Íslands í bandalaginu. Stór hluti, eða tæp 27 prósent, segist hlut- laus. Spurt var „Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því að Ísland verði áfram aðili að NATO (Atlants- hafsbandalaginu)?“ og miðast þess- ar tölur við svör rúmlega 35 þúsund þátttakenda. Það sama er ekki uppi á teningnum þegar litið er á frambjóð- endur því þar er stærri hluti fram- bjóðenda andvígur aðild Íslands að bandalaginu. VG og Sjálfstæðismenn ósammála Þegar litið er á frambjóðendur flokk- anna sem á sama tíma höfðu svar- að prófinu kemur í ljós að 37 prósent frambjóðendanna styðja aðild Ís- lands að bandalaginu. Hinsvegar eru rúm 38 prósent frambjóðenda á móti aðild að NATO. Eini flokkurinn þar sem allir frambjóðendur eru sam- mála í andstöðu sinni við veru Ís- lands í bandalaginu er Vinstri græn. Á meðal frambjóðenda flokksins eru 89 prósent mjög andvíg aðild Íslands og ellefu prósent frekar andvíg. Sjálfstæðisflokkurinn er þá eini flokkurinn þar sem allir frambjóð- endur sem höfðu svarað prófinu voru hlynntir aðildinni. Samkvæmt svörum þeirra eru 58 prósent mjög hlynnt aðild Íslands að NATO á með- an 42 prósent eru frekar hlynnt. Frambjóðendur annarra flokka eru ekki á einu máli í afstöðu sinni þó að enginn flokkur sé með tvær stór- ar andstæðar fylkingar í málinu. Tæplega fjórðungur, eða 24 pró- sent, frambjóðenda allra flokkanna sagðist hlutlaus. NATO-framlög hafa hækkað Undanfarin ár hafa framlög Íslands til NATO tvöfaldast frá því sem var fyrir hrun. Mesta hækkunin átti sér stað árið 2010 en þá fóru framlögin úr 87,6 milljónum króna upp í 216,4 milljónir króna. Í fjárlögum ársins 2010 var ekki gert ráð fyrir jafn mik- illi hækkun og raunin varð en það var leiðrétt í fjáraukalögum sem samþykkt voru í lok ársins 2010. Samkvæmt fjárlögum ársins 2013 greiðir ríkið 264,2 milljónir króna til bandalagsins. Það er hækkun um 15,9 milljónir frá því sem var á síð- asta ári þegar framlögin voru 248,3 milljónir. Framlag Íslands til NATO jókst talsvert í kjölfar þess að bandaríski herinn yfirgaf varnarliðssvæðið á Suðurnesjum árið 2006. Þá ákvað ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks að Ísland gerð- ist aðili að mannvirkjasjóði NATO. Annars eru helstu skýringar hækk- unarinnar óhagstæð gengisþróun. Borgum mest í hermálasjóð Kostnaðurinn við bandalagið skiptist í ákveðnu hlutfalli á milli allra aðildarríkjanna og bera þau mismikinn kostnað hvert. Banda- ríkin standa undir langstærstum hluta þess og Ísland aðeins mjög litlum. Ísland hefur verið aðili að bandalaginu frá stofnun þess árið 1949 en á þeim tíma brutust út mik- il mótmæli á Austurvelli, fyrir utan Alþingi, þegar þingsályktun um að- ild Íslands að bandalaginu var sam- þykkt. Stærstur hluti framlags Íslands í sjóði Atlantshafsbandalagsins renna í hermálasjóðinn, eða 48 prósent af heildarframlaginu. Pen- ingarnir sem fara í þann sjóð eru notaðir til reksturs fastra herstjórna bandalagsins, stjórnstöðva fyrir að- gerðir, AWACS-ratsjárvélar banda- lagsins, ratsjár og fjarskipta banda- lagsins og herstjórnartengdra stofnana sem víða er að finna í bandalagsríkjum. n Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Hversu hlynnt(ur) eða andvíg(ur) ert þú því að Ísland verði áfram aðili að NATO (Atlantshafsbandalaginu)? 51,51% Hlynntir 20,6% Andvígir 24,08% Hlutlausir 38,65% Andvígir 36,65% Hlynntir 26,58% Hlutlausir 1,05% vilja ekki svara 1,30% vilja ekki svara n Kjósendurn FrambjóðendurUmdeild aðild Aðild Íslands að NATO hefur verið umdeild allt frá því að Alþingi samþykkti hana árið 1949. Samkvæmt Alþingisprófi DV er þó meirihluti Íslendinga hlynntir aðildinni. MyNd: ReUTeRS 8 Fréttir 15. apríl 2013 Mánudagur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.