Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 15
Lífinu
lýkur ekki
Ekki í neinum ágrein-
ingi við formann
Gerður Unndórsdóttir, móðir Sigmars Vilhjálmssonar, á eftir að sakna útvarpsins. – DV Friðrik Friðriksson hætti sem formaður kosningastjórnar Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi. – mbl.is
Loforðahlaup í Öxará
Spurningin
„Já.“
Kolbrún Sigurðardóttir
47 ára fornfræðingur
„Já, peningar í ríkissjóð eru
nánast alltaf jákvæður hlutur.“
Örn Ýmir Arason
24 ára listnemi
„Já.“
Martador Dali
21 árs listnemi
„Upp að vissu marki, já.“
Heiðrún Sveinsdóttir
52 ára bóksali
„Ég held það.“
Sviatoslav Jurjevich
23 ára ræstitæknir
Er mikil fjölgun
ferðamanna á
Íslandi jákvæð
þróun?
1 Risaþorskur á Raufarhöfn Einn stærsti þorskur sem vitað er um
að veiðst hafi á Evrópumiðum kom í
netin hjá Þorsteini GK-15 frá Raufarhöfn
á dögunum. Vó hann heil 41,5 kíló og
mældist 1,46 metrar á lengd.
2 Chi Cheng látinn Bassaleikari rokksveitarinnar Deftones lést en hann
slasaðist alvarlega í bílslysi árið 2008
og bar þess aldrei bætur.
3 Hvernig losna á við þynnku Á vefnum Wikihow má finna ráð við
nánast öllu milli himins og jarðar.
Timburmenn eru óvelkominn gestur hjá
flestum eftir góða stund.
4 Jón Ásgeir fékk greiddar þóknanir til Þú Blásólar Jón
Ásgeir Jóhannesson fékk greiddar
þóknanir til eignarhaldsfélags síns Þú
Blásólar ehf. vegna viðskipta sem hann
átti þátt í að koma á milli hlutafélaga og
fjármálafyrirtækja.
5 Leitin ekki enn borið árangur Önnu Kristínar Ólafsdóttur hefur verið
saknað síðan á fimmtudagskvöld en
umfangsmikil leit hefur engan árangur
borið.
6 „Við getum ekki gert neitt meira fyrir þig“ Steinunn
Jónsdóttir sagði kraftaverkasögu sína
í helgarblaði DV en hún náði sér af
óútskýrðum veikindum.
Mest lesið á DV.is
A
llt frá hruni hefur búið innra
með mér vonin um að nú væri
tækifæri til að hjálpa almenn
ingi að brjótast úr hlekkjum
verðtryggingar, skulda og vonleysis.
Úrtölumenn eru þó á hverju
strái. Úrtölumenn sem vita það eitt
að verðtrygging, skuldir og höft eru
meitluð í stein. Lögmál sem ekki má
brjóta.
Við framsóknarmenn höfnum
þessu. Við erum sannfærð um að
hægt sé að takast á við þann þríhöfða
þurs sem ógnar íslenskum heimilum.
Í fyrsta lagi þarf að taka á uppsafnaða
skuldavandanum, hinum stökkbreyttu
verðtryggðu húsnæðislánum. Ekkert
réttlæti er í að lánþegar verðtryggðra
húsnæðislána sitji einir uppi með af
leiðingar þess að lánin stökkbreyttust
af völdum efnahagshrunsins. Við höf
um lagt fram okkar eigin tillögur, en
erum tilbúin að ræða allar góðar hug
myndir um skuldaleiðréttingu sama
hvaðan þær koma. Sú leið sem okkur
hugnast best er að samhliða uppgjöri
búa föllnu bankanna og afnámi gjald
eyrishaftanna verði komið til móts við
skuldsett heimili.
Í öðru lagi tryggja að fortíðarvandi
verði ekki að framtíðarvanda. Því
verður að afnema verðtryggingu neyt
endalána. Aðeins þannig rjúfum við
þann vítahring verðbólgu og skulda
söfnunar sem sligar heimilin. Innleiða
þarf nýtt húsnæðiskerfi þar sem fólk
með verðtryggð lán getur skipt yfir í
óverðtryggð, lántakendum bjóðast
stöðugir vextir og áhættunni er skipt
eðlilega á milli lánveitenda og lán
taka. Vextir eru verð á peningum. Nú
verandi lánafyrirkomulag felur raun
verulegan kostnað lánanna og skekkir
eðlilega verðmyndun á peningum. Því
verður að breyta.
Í þriðja lagi verður að efla atvinnu
lífið, enda verður vinna alltaf forsenda
vaxtar og velferðar til framtíðar. Ein
falda þarf starfsumhverfi fyrirtækja og
hvetja til atvinnusköpunar hjá litlum
og meðalstórum fyrirtækjum, undir
stöðu íslensks atvinnulífs.
Við ætlum okkur að leysa þessi
viðfangsefni á næsta kjörtímabili. Til
þess þurfum við þinn stuðning. Látum
þetta verða svanasöng úrtölumanna.
Veljum von fyrir heimilin í landinu.
Framsókn fyrir heimilin.
K
osningabaráttan hefur verið
einn samfelldur loforðaflaum
ur. Framsókn lofar heimilum
skuldaniðurfellingu á grund
velli ógerðra samninga við kröfuhafa
gömlu bankanna. Sjálfstæðisflokkur
vill halda uppi velferðinni og lækka
skatta samhliða. Vinstri græn og
Samfylking segjast skila góðu búi og
vilja halda áfram á sömu braut. Nán
ast öll framboð vilja gera allt fyrir alla,
hér og nú, alls staðar og strax, gildir
þá einu hvort talað sé um göng, nýtt
sjúkrahús, aldraða, öryrkja, geðsjúka
eða menningu. Fjórflokkurinn veit
sem er, að loforðaflaumurinn lætur
vel í eyrum og miklu betur en það
sem sannara reynist. Eftir kosningar
byrjar svo yfirhylmingin. Þessi gamal
kunni matseðill færir þjóðina eitt
skref fram fyrir kosningar og síðan tíu
skref afturábak að þeim loknum.
Lýðræðisvaktin hafnar þessari
draumalandsför. Við viljum kort
leggja þjóðarbúið og raunverulega
stöðu þess. Við verðum að vita hvar
við erum til að ákveða hvert skal fara.
Staða bankanna er óljós, við vitum
ekki hverjir eru kröfuhafar, hvernig
hlutfalli innlendra og útlendra krafna
er háttað, eru lífeyrissjóðir í þessum
hópi, eru lánasöfnin í vanskilum
og hver er staða Íbúðalánasjóðs? Er
samningsstaða kröfuhafa betri en ís
lenska ríkisins, eru þeir í tímaþröng
eða við, getur ríkið tekið þessa fjár
muni eignarnámi og er það viturlegt,
eru þetta kannski loftbólupeningar,
froða? Hér er um að ræða flókin hag
fræðileg viðfangsefni samofin mikilli
óvissu. Kortlagning er hér augljóslega
skynsamleg sem fyrsta skref.
Fljóti þjóðin enn og aftur með
loforðaflaumnum mun þjóðarbúið
áfram verða rekið frá degi til dags
með skyndilausnum og skítaredding
um. Slíkt mun enn skerða lífskjör
og auka á landflótta. Við þessu vill
Lýðræðisvaktin sporna og tjalda til
margra nátta. Eða eins og vaktstjóri
Lýðræðisvaktarinnar orðar þetta svo
fallega: Fé skal að morgni lofa.
Dansflæði Íslenski dansflokkurinn renndi í gegnum verkið Walking Mad í síðustu viku þar sem ljósmyndari DV náði þessari skemmtilegu mynd af flæðinu.
MynD Sigtryggur ariMyndin
Kjallari
Lýður Árnason
Umræða 15Mánudagur 15. apríl 2013
„Þessi gamalkunni
matseðill færir
þjóðina eitt skref fram
fyrir kosningar og síðan
tíu skref afturábak að
þeim loknum.
Eiginlega bara
kraftaverkasaga
Steinunn Jónsdóttir reis nýlega upp úr hjólastólnum eftir erfið veikindi. – DV
„Látum þetta
verða svanasöng
úrtölumanna.
Af blogginu
Eygló
Harðardóttir
Úr hlekkjum verðtryggingar og skulda