Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 16
Ísland aftur í fyrsta flokk Guðfinnur Sigurvinsson Sæl Ella. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins leggur til að „þörf samfélagsins fyrir ríkisfjölmiðil verði endurskilgreind og Ríkisútvarp- ið ohf. verði lagt niður í núverandi mynd ef ástæða þykir til.“ Hver er þín skoðun?  Elín Hirst Ég er alveg sammála því. Ég vil hafa Ríkisútvarp áfram, en ég vil breyta rekstrarforsendum þess. Ég tel að ohf. hafi misheppnast hvað RÚV snertir, að því leyti að það er eiginlega eins og ríki í ríkinu. Natan Kolbeinsson Væri ekki besta lausnin fyrir Sjálfstæðisflokkinn að halda Bjarna sem formanni en gera Hönnu Birnu að forsætisráðherraefni flokksins líkt og Samfylking gerði með Ingibjörgu Sólrúnu 2003?  Elín Hirst Nei, ég held að það sé ekki ráðlegt. Formaður flokksins á að vera forsætisráð- herraefni ef flokkur kemst í þá aðstöðu að leiða ríkisstjórn eftir kosningar. Gunnar Ballzus Sæl Elín og takk fyrir að sjá þér fært að mæta í Beina línu. Vill Sjálfstæðisflokkurinn algjört atkvæðajafnvægi í alþingiskosningum (þ.e.a.s. jafnt vægi atkvæða á bak við hvern þingmann burtséð frá úr hvaða kjördæmi hann kemur)? Einnig hver eru rökin fyrir afstöðu Sjálfstæðis- flokksins gagnvart algjöru atkvæðajafnvægi?  Elín Hirst Sæll Gunnar. Misjafnt vægi at- kvæða var mikið þjóðfélagsmein í íslenskum stjórnmálum um áraraðir. Búið er að laga þetta mjög. Mér er annt um landsbyggðina og vil að hún haldi sterkri röddu inni á Alþingi Íslendinga. Ísland verður ekki Ísland ef landið er ekki í byggð nema e.t.v. á tveimur stórum þéttbýlisstöðum. Ég veit að ég er ekki að svara spurningu þinni fullkomlega, en þetta er mín skoðun. Pétur Jónsson Styður þú Bjarna Benediktsson sem formann? Styður þú Bjarna Benediktsson sem forsætisráð- herraefni flokksins?  Elín Hirst Ég kaus Bjarna á landsfundi flokks- ins á dögunum. Bjarni er mjög skynsamur og réttsýnn maður. Ég hef kynnst honum vel í kosningabaráttunni og hef mjög góða sögu að segja af honum. Hins vegar finnst mér alvarlegt ef sjálfstæðismenn vilja ekki kjósa flokkinn út af honum, og vegna meintra tengsla hann við hrunið. Í Sjónvarpinu í gær svaraði hann því hreinskilnislega að hann væri mjög hugsi yfir stöðunni. Það myndi ég líka vera í hans sporum. Fyrra svarið svarar því seinna. Þorsteinn Harðarson Sæl Elín, spurning mín til þín er eftirfarandi. Hvers vegna á ungt fólk með börn að kjósa Sjálfstæðis- flokkinn frekar en annan flokk?  Elín Hirst Vegna þess að sjálfstæðisstefnan er sú stefna sem Ísland vantar bráðnauðsyn- lega. Við verðum að keyra samfélagið okkar í gang aftur. Við verðum að sættast eftir hrunið. Við búum í einu auðsælasta landi heims, hér eiga allir að hafa það gott. Lækkum skatta, eflum atvinnulíf, nýsköpun, fjárfestingar og nýtum orkuauðlindir okkar betur, en skynsamlega. Aðstoðum ungt fólk við að kaupa sér sína fyrstu fasteign. Það er eitt af kosningastefnumálum D-listans. Ísland aftur í fyrsta flokk. Ásmundur Sveinsson Sæl Elín. Miðað við reynslu þína úr fjölmiðlum, hefur þú einhverja skoðun á því hvers vegna sjálfstæðismönnum gengur jafn illa og raun ber vitni að komast að með sína atburði og málefni? Hversu mikil áhrif telur þú þetta hafa haft á fylgi Sjálfstæðisflokksins? Hvaða trúverðugleika hefur DV einnig sem fjölmiðill miðað við þá áráttuhegð- un sem þeir hafa sýnt af sér gagnvart formanni Sjálfstæðisflokksins og hótunum í hans garð fari hann ekki að þeirra dæmi?  Elín Hirst Sæll Ásmundur. Sem fjölmiðla- maður til margra ára hef ég haft heiðarleika að leiðarljósi og hagsmuni áhorfenda/ lesenda/hlustenda í öndvegi. Ég tel ekki hægt að gefa neinn afslátt af þessu þú getur ekki verið 95% heiðarlegur, skilur þú mig. Það er margt í okkar fjölmiðlaumhverfi sem er ekki eins og það á að vera, ég hef gagnrýnt RÚV og mikil ólag hefur verið í fréttahluta 365. DV þarf líka hlusta á gagnrýni en að kenna fjölmiðlum um gott eða slæmt gengi, er alltof ódýr skýring. Sigurlaug Guðnadóttir Ertu hlynnt eða andvíg byggingu mosku á Íslandi?  Elín Hirst Ég er kristin manneskja og sæki reglulega mína Seltjarnarneskirkju. En ég ber fulla virðingu fyrir öðrum trúarbrögðum og sé ekki af hverjum við ættum ekki að leyfa byggingu mosku. Natan Kolbeinsson Telur þú eðlilegt að landsfundur geti endurtekið atkvæðagreiðslur eins og gerðist með kristnu gildin á síðasta landsfundi ykkar?  Elín Hirst Ég er algerlega á móti því að flokk- urinn álykti í málum eins og þessum, þetta voru mistök. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig þetta mál var afgreitt eða ekki afgreitt. Var í annarri nefnd að vinna. Bjarni G Atlason Hvaða ráðherrastól værirðu spenntust fyrir ef allt gengur að óskum í kosningum?  Elín Hirst Já, ég gæti vel hugsað mér að verða ráðherra, líklega þarf ég þó að bíða nokkuð eftir því að hljóta slíkt embætti. Velferðarráð- herra, eða bara forsætisráðherra þegar fram líða stundir. Sigurlaug Guðnadóttir Ertu hlynnt eða andvíg því að Palestína stofni sjálfstætt ríki?  Elín Hirst Ég er hlynnt því. Er búin að fá nóg af ástandinu hjá þessum vinum okkar. Kári Hinriksson Ert þú búin að lýsa yfir stuðningi við Bjarna Ben á Facebook-síð- unni sem stofnuð var til að styðja við bakið á honum?  Elín Hirst Nei, ég hef ekki séð síðuna. Albert Sveinsson Sæl Elín, gætir þú bent mér á eina góða og vel heppnaða einkavæðingu sem hefur verið framkvæmd í tíð Sjálfstæðisflokksins „það er að segja ríkið hefur ekki misst verðmæti og fengið meira með því að einkavæða“?  Elín Hirst Einkavæðing er orðin eins konar grýla á Íslandi eftir hrun. Ástæðan er sú hvernig farið var með bankana, þeir einkavæddir og af mörgum talið að þeir hafi verið rændir innan frá. Ég held að þegar við eigum í höggi við óheiðarlega einstaklinga þá stöndum við ansi berskjölduð hvort sem við erum einkavædd eða ekki. Einkavæðingin er mjög gott form á mörgum sviðum, því ekki vil ég útþenslu ríkisins heldur frekar að minnka það að umfangi, verulega. Birgir Olgeirsson Nú sagði Bjarni, sem þú hefur stutt, í viðtalinu í gær að uppgjör við hrunið hefði ekki farið nægjanlega vel fram innan Sjálfstæðisflokksins. Hvernig vilt þú bæta úr því?  Elín Hirst Sæll Birgir. Já, ég er sammála því að það er ekki búið að gera upp hrunið innan flokksins. Ég vonaði að prófkjörin í haust myndu bæta úr því og þau gerðu það með vissum hætti, grasrótin í flokknum talaði. Kannski þarf flokkurinn lengri tíma til að hreinsa af sér þennan hrunstimpil. Jóhanna Guðmundsdóttir Ertu hlynnt kynjakvóta í stjórnun opinberra fyrirtækja hér á landi?  Elín Hirst Nei, ég er á móti kynjakvótum, en ég er mikill jafnréttissinni, femínisti ef þú vilt orða það þannig, ég vil breyta hlutunum með breyttum hugsunarhætti en ekki boðum og bönnum. Bjarni G Atlason Sæl Elín. Ertu trúuð?  Elín Hirst Sæll Bjarni. Takk fyrir spurninguna. Ég var einmitt að segja frá því í opinberu erindi á kvennadaginn hvernig ég uppgötvaði hvað trú væri. Aðalatriðið fyrir mér er hið góða, styðja það alltaf, alls staðar á hverjum degi, allt árið um kring. Guðfinnur Sigurvinsson Takk fyrir svarið. Nákvæmlega hvernig viltu breyta rekstrarforsendum RÚV?  Elín Hirst Sæll Guðfinnur. Ég vil gera það aftur að opinberri stofnun. Binni Rögnvalds Hefði ekki verið sniðugra að láta þig í fyrsta sæti hjá XD og þú hefðir getað keyrt kosningabarátt- una á slagorðinu: „Elín fyrst“?  Elín Hirst Góður. Það sem er búið að afbaka þetta blessaða þýska ættarnafn mitt. Mér sárnaði það ógurlega þegar ég var yngri en nú er ég orðin svo umburðarlynd. Elín Hirst og her, Vélin Fryst, Elín Fyrst, og ég veit ekki hvað og hvað. Jóhann Sigurbjörnsson Myndirðu beita þér fyrir því að heimili landsins fengu ADSL/Ljósleiðara móttakara frá RÚV þeim að kostnaðarlausu í stað þess að þurfa að greiða símafyrirtækjunum háar upphæðir á mánuði eins og fyrirkomulagið er í dag? Átti nefskatturinn ekki að dekka þetta?  Elín Hirst Það er ekki til neitt sem heitir kostnaðarlaust, það eru þá skattpeningar sem yrðu notaðir í það. Mig langar frekar að laga til að Landspítalanum til að byrja með. Jóhanna Guðmundsdóttir Á að hafa kynjafræði sem skyldunámsgrein í grunnskólum landsins?  Elín Hirst Já, það er mjög góð grein. Theodor Marrow Á hvaða framboð (fyrir utan Sjálfstæðisflokk) líst þér best?  Elín Hirst Framsóknarflokkinn, en ég vil alls ekki loforð sem eru of hástemmd og ekki er hægt að standa við. Það verður að vera alger- lega pottþétt. Þjóðin þolir ekki meiri ágjöf. Andrés Fjeldsted Að hvaða leyti telur þú áherslur Sjálfstæðisflokksins hafa breyst í efnahagsmálum? Efnahags- áherslur flokksins kjörtímabilið 2003–2007 skiluðu miklum þjóðhagslegum óstöðugleika og ójafnvægi. Við erum skaðbrennd af bankaævin- týrum fortíðarinnar, en hefur Sjálfstæðisflokk- urinn lært af hagstjórnarmistökum forðum? Stefnum við ekki í annað ójafnvægistímabil verðbólgu, eða hafa áherslur ykkar breyst miðað við áherslurnar 2003?  Elín Hirst Ég er algerlega ósammála þessari fullyrðingu þinni. Við greiddum niður allar okkur opinberu skuldir á þessum tíma og náðum góðum árangri í átt að stöðugleika. Hins vegar hefði átt að skera meira niður ríkisútgjöld, en ekki láta ríkið þenjast út, þrátt fyrir að vel áraði. Ég styð grunnstoðir velferðarkerfisins af öllu afli, en vil ekki að ríkið vaxi einstaklingnum yfir höfuð, þannig að hann fari að þjóna því en það ekki honum. Góða helgi Andrés, og takk fyrir spurninguna. Albert Sveinsson Sæl Elín aftur, gætir þú bent mér á eina vel heppnaða einkavæðingu, og við tölum ekki um bankana, sem framkvæmd hefur verið í tíð Sjálfstæðisflokksins, t.d Síminn, síldarvinnslan, áburðarverksmiðjan o.s.frv. Þar sem þetta er í stefnu Sjálfstæðisflokksins að einkavæða og það á að vera svo hagkvæmt að fara þá leið. Þá finnst mér sem kjósandi gott að fá dæmi.  Elín Hirst Gott að þú spyrð aftur. Skipaútgerð ríkisins, Bæjarútgerð Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga, sem var breytt í góð fyrirtæki. Dæmin eru mýmörg. Jóhann Gizurarson Sæl Elín. Maður saknar þín pínu af skjánum. Útilokar þú að stíga aftur fram fyrir myndavélina í framtíðinni?  Elín Hirst Takk Jóhann, fyrir hlýleg orð í minn garð. Nei, en líkurnar fara minnkandi eftir að ég hef ákveðið að hella mér út í stjórnmálin. En þar er ég að finna mig mjög vel og fer fram úr á morgnana full tilhlökkunar. Samskiptin við kjósendur eru skemmtileg og gefandi, skal ég segja þér. Andrés Fjeldsted Voru þá varnaðarorð sem heyrðust árið 2005, um „harða lendingu“ hagkerfisins vegna ofþenslu, ekki á rökum reist? Má skilja þig sem svo að efnahagshrunið hér árið 2008 hafi einungis verið vegna ofþenslu í bankakerfinu en ekki vegna hagstjórnarmistaka? Takk sömuleiðis og góða helgi!  Elín Hirst Sæll. Það var alþjóðlegt fjár- málahrun, og Ísland stóð afskaplega illa að vígi vegna þess að bankakerfið hér hafið vaxið samfélaginu yfir höfuð. Þá kom fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis að of náin tengsl hafi verið á milli viðskiptalífs og stjórnmála. Við verðum að læra af þessu. Natan Kolbeinsson Miðað við hvernig kannanir eru að mæla flokkana núna hvað ríkisstjórn vilt þú sjá eftir kosningar?  Elín Hirst Ég vil að Sjálfstæðisflokkurinn fari upp fyrir 30 prósent í fylgi og myndi sterka tveggja flokka stjórn með Framsókn eftir kosningar. Þá held ég að góðir hlutir færu að gerast í landinu. Ef flokkurinn fær undir 20 prósentum þá á hann að halda sig til hlés að mínum dómi. Skilaboð kjósenda gætu ekki verið skýrari. Fundarstjóri Hverjar eru þínar áherslur, Elín? Fyrir hvaða málum munt þú helst berjast, komist þú á þing? Hvar liggur metnaður þinn í pólitík?  Elín Hirst Ég vil koma landinu mínu í gang aftur. Atvinnulífinu, létta heimilunum róðurinn, lækka skatta, hlúa að grunnstoðum velferðarkerfisins og síðast en ekki síst breyta andrúmsloftinu og hætta þessari neikvæðni. Mér þykir vænt um fólk og mig langar til að öllum líður vel og ég vil ekki bara tala um það heldur framkvæma hugsjónir mínar. Ég er líka dýravinur ef út í það er farið. Jóhann Sigurbjörnsson Verðlag í landinu hefur hækkað óþarflega mikið. Þar er helst um að kenna tollum og sköttum en einnig óþarflega mikilli álagningu birgja eða verslana. Þá hefur einnig verið fjallað um óþarflega háa álagningu á fötum og raftækjum. Hvaða stefnu hefur þú í þessum málum ?  Elín Hirst Það þarf að lækka tolla og virðis- aukaskatt og fjölda annarra skattagjalda. Þau eru að sliga atvinnulífið og heimilin. Fyrsta verk Sjálfstæðisflokksins komist hann til valda eftir kosningar. Vilhjálmur Einarsson Sonur þinn spilar með stórveldinu KV, ertu búin að kaupa ársmiða af honum á heimleiki liðsins og má ekki vænta þess að þú mætir á KV-park í sumar?  Elín Hirst Stefán sonur minn er frábær einstaklingur sem ég elska út af lífinu. Til skamms tíma fannst honum nú óþægilegt að hafa sjónvarpsmömmu sína á áhorfendapöll- unum, en ef til vill er hann vaxinn upp úr því. Ég spyr hann og kaupi þá ársmiða eins og skot. Góða helgi Vilhjálmur. Pétur Jónsson Takk fyrir svarið áðan, þú segir að ráðlegt sé að formaður sé forsætisráðherraefni. Þú segir að þú hafir kosið Bjarna og hann er nú hugsi. En styður þú Bjarna í dag?  Elín Hirst Ég styð Bjarna, hvort sem hann ákveður að stíga til hliðar eða sitja áfram. Birgir Kristinsson Vilt þú ekki Hönnu Birnu sem formann ?  Elín Hirst Hún gaf ekki kost á sér á síðasta landsfundi. Það sem mér finnst hins vegar frábært að það er engin forystumanna- kreppa í Sjálfstæðisflokknum. Hún er frábær stjórnmálaforingi og það að hún sé komin í landsmálin gerir flokkinn okkar sterkar, að mínu mati. Vona bara að niðurstaðan verði sú á kjördag. Fanný Jónsdóttir Nú skiptir miklu máli að aðstoða þá sem þurfa á að halda og á ég sérstaklega við um félagsþjónustuna, öryrkja og aldraða. En nú sér maður og heyrir af of mörgum dæmum um þessa svokölluðu „kerfisfræðinga“ – fólk sem kann á kerfið og nýtir sér hverja glufu. Með því er verið að taka fjármuni sem annars væri hægt að nýta til að aðstoða betur þá sem þurfa virkilega á því að halda. Hvernig, að þínu mati, er hægt að taka á þessum vanda?  Elín Hirst Kæra Fanný. Ég veit það ekki, þar sem ég sit hér við tölvuna, en ég er fljót að setja mig inn í mál og óttast ekki að leysa flóknustu hluti í rekstri samfélagsins með því að leita til fólks sem hefur bestu þekkinguna á hverju sviði. Jóhann Sigurbjörnsson Hvað finnst þér um þá flokksmenn sem hafa „vafasama“ fortíð, eins og Illuga (sjóður 9), Þorgerði Katrínu og Bjarna Ben (Sjóvá)? Ætti ekki að vera löngu búið að taka til í flokknum eins og aðrir flokkar hafa gert, til að mynda XB ?  Elín Hirst Já, þessi hrunstimpill er enn á Sjálf- stæðisflokknum, mér finnst okkur hafa gengið of hægt að taka okkur saman í andlitinu ef ég á að segja alveg satt. 16 Umræða 15. apríl 2013 Mánudagur M y N d iR SiG TR y G G u R A R i Elín Hirst segir að hrunstimpillinn sé enn á Sjálfstæðisflokknum. Hún segist vilja koma landinu í gang á nýjan leik. Nafn: Elín Hirst Aldur: 52 ára Menntun: B.Sc-próf í fjöl- miðlafræði og MA-próf eða Cand.mag.-próf í sagnfræði Staða: Skipar 5. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Suð- vesturkjördæmi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.