Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 18
18 Lífsstíll 15. apríl 2013 Mánudagur Þ að verður skemmtileg til- breyting að sjá víðar buxur koma aftur inn hjá helstu tískuhúsunum. Sniðin eru kvenleg og draga fram fallegar línur konunnar. Buxurnar verða hærri upp í mittið og falla að um mjaðmasvæðið en víkka svo út þegar neðar dregur. Þetta snið er glæsilegt og það er mjög smart að klæðast þröngri flík að ofan til að brjóta upp stílinn. Pinnahælar við útvíðar buxur er alltaf flott og henta við hvaða tækifæri sem er. Nú er bara um að gera að fara á röltið og kíkja í búðarglugga og næla sér í eitt stykki útvíðar buxur fyrir vorið. Tími til að klæðast sundfötum Sundfatnaðurinn skartar mynstrum sem draga fram kvenlegar línur. Tankini eru einnig vinsæl sem ætti að gleðja konur sem hafa mjúkar línur. Ein rönd á sundbol getur gert mikið fyrir konu sem vill ná fram grennandi útliti og þá skiptir máli að línan sé á réttum stað til þess að undirstrika kvenleikann. Fyrir þær sem eru í feimnari kantinum er ráð að skella sér í stutt pils yfir sundfatnaðinn, en það hefur sést víða á tískupöllum á síðustu mánuðum. Hnésíð pils koma sterk inn Pilsin eru að lengjast, en þröng hné- síð pils verða ráðandi þetta sumarið. Það er fátt kvenlegra en að vera í hné- síðu pilsi og pinnahælum við. Það er gott ráð fyrir þær sem eru með ávalar mjúkar línur að velja slík pils í einum lit og forðast mynstur þegar um níð- þröng snið er að ræða. Nú er bara um að gera að undir- búa fótleggina fyrir sumarið og bera á þá gott krem og jafnvel brúnku- krem til þess að þeir njóti sín til fulls í sumardressinu. n iris@dv.is Víðu buxurnar eru málið í vor n Tískan er áberandi kvenleg og smart um þessar mundir Smart Rétt snið er atriði. Línur Tankini eru klæðileg og tilvalin fyrir þær sem vilja hylja magasvæðið. Djörf Þessi sundfatnaður hentar þeim ófeimnu. Platform Glæsilegir hælar eru málið allt árið um kring. Töff Katherine Hepburn var þekkt fyrir að ganga í víðum buxum sem þótti óvenjulegt á árum áður. Vítt Glæsilegt kvenlegt útlit er áberandi. Kvenlegt Victoria Beckham er alltaf með puttann á púls- inum hvað tískuna varðar og ekki klikkar hún í þetta skiptið í hnésíðu þröngu pilsi. Heimagert er gott og ódýrt: Silkimjúk húð Saltskrúbb er aldagömul aðferð til þess að viðhalda heilbrigði húðarinnar. Flestar sápur raska sýrustigi húðarinnar á meðan saltskrúbb sér til þess að húðin viðhaldi eðlilegu rakastigi og þurrkar ekki upp húðina líkt og sápur gera. En of þurr húð gerir okk- ur viðkvæmari fyrir kulda og dregur úr teygjanleika húðarinnar. Saltið losar húðina hana við dauðar húðfrumur og opnar hana svo að næringarefni eigi greiðari aðgang. Það er því nauðsynlegt að bera gott krem eða olíu á húðina eftir að hún hefur verið skrúbbuð með salti. Það má nota saltskrúbb í andlit sem og alla húðina, en það örvar blóðflæði og hjálpar líkamanum að losa sig við eitur efni. Það er einfalt og ódýrt að út- búa saltskrúbb sem nota má á allan líkamann, en hér eru upp- skriftir að skrúbbi og maska sem er gott að bera á eftir skrúbbið. Hunangsmaski n Ein msk. hunang n Ein tsk. rósavatn Þessu er blandað saman og borið á húðina og látið vera í 10–15 mínútur. Hreinsið af með volgu vatni. Saltskrúbb n Einn bolli gróft salt n 1/3 bolli kókosolía n 10 dropar ilmkjarnaolía – eftir smekk Þessu er blandað saman og borið á svæðið sem á að með- höndla og nuddað létt í hringi í svolitla stund. Gott er að bera kókosolíu á húðina eftir að skrúbburinn hefur verið skolaður af. Kringlótt er málið Kringlótt sólgleraugu í hippastíl hafa verið að sækja í sig veðrið undanfarin sumur. Í ár verður ekkert lát á vinsældum þeirra eins og sjá mátti á tískupöllun- um þegar sumartískan fyrir árið 2013 var sýnd. Því kringlóttari sem gleraugun eru því flottari, svolítið í anda John Lennon og fleiri stjarna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.