Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 12
12 Erlent 15. apríl 2013 Mánudagur Beltissylgja bjargaði lífi hans n Skotárás við matvöruverslun í Philadelphiu Þ að var eins gott að hann mætti ekki í íþróttabux- um í vinnuna, afgreiðslu- maðurinn í matvöruversl- un einni í Philadelphiu. Hann er nefnilega á lífi í dag sökum þess að hann mætti í buxum sem kröfð- ust þess að hann bæri belti um sig miðjan. Líkt og atriði úr teikni- mynd þá bjargaði beltissylgjan lífi mannsins þegar maður á hjóli hóf skotárás fyrir utan verslunina 8 Brother‘s Supermarket. Eitt skotanna hæfði hinn 38 ára Bienvenido Reynoso og var hon- um skiljanlega brugðið þegar allt var yfirstaðið. Hann þreifaði á lík- ama sínum í leit að skotsári en greip í tómt. Það eina sem hann fann, eftir að einhver benti honum á að það væri gat á skyrtunni hans, var byssu kúla sem var föst í beltis- sylgjunni og hann var ómeiddur. Á öryggismyndavélum versl- unarinnar má sjá þegar Reynoso fleygir sér í gólfið eftir að skotárásin hefst og kúlunum tók að rigna inn í verslunina af göt- unni. Í sömu andrá og hann fleygir sér niður sést að byssukúla hafnar í varningi í hillunni rétt fyrir ofan höfuðið á honum. Hann var því afar heppinn. „Ég er endurfæddur í dag,“ seg- ir Reynoso í samtali við banda- ríska fjölmiðla eftir skotárásina, að vonum þakklátur fyrir að vera á lífi og glaður yfir eigin heppni. „Þakka þér Guð, var það sem ég hugsaði eftir þetta.“ En annar maður sem lenti í árásinni var ekki jafn hepp- inn og slasaðist lífshættulega í árásinni eftir að hafa fengið skot í magann. Lögreglan handsam- aði árásarmanninn skömmu eftir árásina. mikael@dv.is n Hnífamann dreymdi um mannát og átti sér kynóra um látið fólk H inn tvítugi Dylan Andrew Quick var handtekinn í síð- ustu viku eftir að hann hafði ráðist á, stungið og skor- ið fjórtán samnemendur sína við Lone Star-háskólann í út- hverfi Houston með hnífi. Quick var yfir bugaður af öðrum nemendum meðan á árásinni stóð og höfðu þeir hann undir og sátu á honum þar til lögreglan kom á vettvang til að hand- taka hann. Hann hefur játað á sig verknaðinn. Fram hafði komið í umfjöllun bandarískra fjölmiðla að Quick væri vanstilltur ungur maður sem hefði látið sig dreyma um árás af þessu tagi í langan tíma. Nú opin- berast sífellt fleiri smáatriði um málið sem benda til þess að þarna sé á ferðinni fársjúkur maður með afar óhugnanlega óra. Órar um mannát Meðal þess sem Quick á að hafa deilt með lögreglumönnum við yfir- heyrslur vegna árásinnar er að hann dreymi um að leggja sér manna- kjöt til munns, þá eigi fjalli kynórar hans um við lík (blæti sem kallað er necrophilia) og þá hafi hann langað til að skera andlitin af fórnarlömbum sínum og bera þau sem grímu. Þessa óra hafi hann átt síðan hann var að- eins átta ára. Unglingaherbergi fjöldamorðingja Við húsleit á heimili foreldra hans í Harris-sýslu fundu rannsóknarlög- reglumenn fleiri hluti sem vöktu óhug. Til dæmis Hannibal Lect- er-grímu – sem er eins og margir vita ein frægasta mannæta í bók- mennta- og kvikmyndasögunni. Þá fannst verkfærasett til að kryf- ja dýr og fjöldi bóka um fjöldamorð og fjöldamorðingja. Þá hafði Quick breytt hárburstum og fleiri hefð- bundnum hlutum í vopn með því að tálga þá. Quick viðurkenndi að hafa vik- una fyrir árásina á skólalóð Lone Star lagst í rannsóknarvinnu um sambæri legar árásir á veraldarvefnum. Við árásina notaði hann ekki beinlínis neinar sveðjur. Hann hefur viðurkennt að hafa notað einskonar föndurhníf og síðan skurðhníf sam- bærilegan þeim sem notaðir eru af skurðlæknum. Þrátt fyrir val hans á vopnum þá ætlaði Quick sér hins vegar að myrða fórnarlömb sín. Blessunarlega tókst honum ekki að ráða neinum bana en af þeim fjórtán sem særðust þá enduðu tveir þungt haldnir á gjörgæsludeild. Þeir munu þó ná sér að fullu samkvæmt banda- rískum fjölmiðlum. Áttar sig ekki á alvarleikanum „Hann er áhyggjufullur yfir því sem gerðist, og hann hefur áhyggjur af því hvað verður um hann. Hann er enn ungur maður,“ segir Julian Laird, verjandi Quick, eftir að hann hafði rætt við skjólstæðing sinn. Hann seg- ir hins vegar að Quick reyni enn að melta hvað gerðist og virðist eiga í erfiðleikum með að átta sig á alvar- leika gjörða sinna. „Hann gat haldið uppi samræðum en hann var líka að segja mér hluti sem þarf að leggjast aðeins yfir.“ Laird bætir við að hann muni óska eftir því að geðlæknar meti sak- hæfi Quick sem virðist hafa átt erfitt uppdráttar það sem af er ævinni Lagður í einelti Fram hefur komið að hann sé með mjög skerta heyrn og að hann hafi mátt sæta einelti um árabil. Lík- lega af þeim sökum hefur hann nær alla sína skólagöngu bara fengið heimakennslu frá móður sinni. Árið 2011 hvarf hann sporlaust og hótaði að svipta sig lífi. Sendi hann foreldrum sínum farsíma- skilaboð sem í stóð: „Ef ég þarf að búa mikið lengur með ykkur þá mun ég líklega fremja sjálfsmorð.“ Svo fór að hann fannst síðar heill á húfi á skólalóð Lone Star-háskól- ans, þeirri sömu og hann gekk ber- serksgang á. „Lögreglan hefur fengið vissa yf- irlýsingu frá honum en það er ekki öll sagan. Það er meira í þessu sem hann hefur ekki sagt þeim. Það eru hlutir sem ég þarf að skoða betur og komast að. Þá mun almenning- ur fá að vita alla sólarsöguna og þá mun varpað ljósi á hvað gerðist og af hverju,“ segir Laird. En þrátt fyrir erfiða æsku Quick er málið litið alvarlegum aug- um og hefur hann verið ákærður í minnst þremur liðum fyrir alvar- lega líkamsárás. Fleiri ákærur eru yfir vofandi. Ef hann verður fund- inn sekur gæti hann átt yfir höfði sér allt að 20 ára fangelsi. n „ Lögreglan hefur fengið vissa yfir- lýsingu frá honum en það er ekki öll sagan. Það er meira í þessu sem hann hefur ekki sagt þeim. Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is Vildi nota andlit fólks sem grímu Óeðlilegir órar Dylan Quick lét sig dreyma um árásina á skólalóð Lone Star-háskólans í langan tíma. Hann átti sér einnig óra um mannát og að eiga kynmök við lík. Heppinn Reynoso var Guði þakklátur fyrir að lifa af skotárás þegar byssukúla hafnaði í beltissylgju hans. Hættur við að verða Belgi Bernard Arnault, ríkasti maður Frakklands, hefur dregið til baka umsókn sína um að verða belgískur ríkisborgari eftir hörð mótmæli gegn því í heimalandinu. Arnault, sem á lúxusvörusam- steypuna LVMH, sótti um ríkis- borgararéttinn í fyrra eftir að upp komu hugmyndir um að leggja 75 prósenta hátekjuskatt á ríkustu borgara Frakklands, sem þéna yfir eina milljón evra. Arnault sjálfur þvertók þó ávallt fyrir að skatta- ástæður lægju að baki umsókn- inni. „Ég útskýrði margoft að ég myndi halda áfram að búa í Frakk- landi og að ég myndi borga mína skatta hér en án árangurs,“ er haft eftir Arnault í dagblaðinu Le Monde. „Ég hef því ákveðið að taka af öll tvímæli um þetta og draga til baka umsókn mína um belgískan ríkisborgararétt.“ Í Frakklandi, sem og víðar um Evrópu, er hávær umræða um skattaskjól og skattaundanskot þessa dagana eftir að breska dag- blaðið Guardian komst yfir Jóm- frúaeyjaskjölin svokölluðu sem afhjúpuðu eigendur að aflands- reikningum víðs vegar um ver- öldina. Nýlega viðurkenndi einnig fyrrverandi fjárlagaráðherra Frakk- lands, Jerome Cahuzac að hafa átt leynilegan bankareikning í um 20 ár. Í mars síðastliðnum sagði hann af sér eftir ásakanir um skattsvik sem hann þó kvaðst saklaus af. En í september síðastliðnum bárust fregnir þess efnis að Arn- ault hygðist gerast belgískur ríkis- borgari og voru þau áform hans fordæmd af stjórnmálaflokkum beggja vegna miðjunnar í Frakk- landi. Eitt dagblað gekk meira að segja svo langt að afneita Arnault með fyrirsögninni: „Hunskastu í burtu, ríka fíflið þitt!“ Frægt er einnig þegar leikarinn Gerard Depardieu tilkynnti það síðla árs í fyrra að hann ætlaði að flýja 75 prósenta hátekjuskattinn. Auðæfi Arnaults eru metin á 19 milljarða punda sem gera hann að tíunda ríkasta manni veraldar samkvæmt Forbes. En nú hafa áform um auð- mannaskattinn verið slegin út af borðinu og ríkisstjórnin hefur ákveðið að leita annarra leiða. Tímasetning ákvörðunar Arnaults hefur því vakið grunsemdir. Skiluðu milljónum Tveir norskir táningar komust í fréttirnar nýlega eftir að hafa fund- ið sem nemur tæplega tíu milljón- um íslenskra króna um borð í lest. Eldri maður hafði skilið eftir tösku með fjármunum um borð í lest hann hafði verið á ferð. „Þegar ég opnaði töskuna sá ég fúlgur fjár,“ Bendik, sextán ára drengur, annar táninganna, við dagblaðið Vestby Avis. „Það fyrsta sem mér datt í hug var að hringja í lögregluna.“ Eigandinn er maður á áttræðis- aldri og afhenti lögreglan honum fjármunina á fimmtudaginn var.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.