Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 13
Erlent 13Mánudagur 15. apríl 2013
Taugastríð á
Kóreuskaga
N
orður-Kórea er hluti af öx-
ulveldum hins illa. Þannig
komst George Bush yngri,
fyrrverandi forseti Banda-
ríkjanna, að orði árið 2002 og
í frægri ræðu, er hann talaði um þetta
lokaða einræðisríki, ásamt löndun-
um Íran og Írak. Kannski má að hluta
til rekja hegðun Norður-Kóreu nú til
þessara orða. Viðbrögð ráðamanna
í Pyonyang, höfuðborginni, voru að
þau sögðust ætla að „eyða árásar-
aðilanum án miskunnar“ og áttu þar
væntanlega við Bandaríkin.
Orðaskak undanfarinna vikna á
Kóreuskaganum hefur svo sannar-
lega ratað í heimsfréttirnar og velta
menn því ef til vill fyrir sér hvað ráða-
mönnum í Norður-Kóreu gengur
til. Hinn ungi og óreyndi leiðtogi
Kim Jong-un, er sonur Kim Jong-
il, sem var sonur Kim Il-sung, sem
stofnaði Norður-Kóreu árið 1948.
Landið var frá 1895 og fram að lok-
um seinni heimsstyrjaldar undir yf-
irráðum Japana. En frá 1948 hefur
Kóreuskaginn verið skiptur, í Norð-
ur- og Suður-Kóreu.
Stríðinu ekki lokið
Sumarið 1950 réðst Norður-Kór-
ea inn í Suður-Kóreu vegna deilna
ríkjanna um yfirráð á Kóreuskag-
anum. Norður-Kórea og Kínverj-
ar börðust gegn herliði Sameinuðu
þjóðanna og Bandaríkjanna í blóð-
ugri styrjöld, sem kostaði um 3,5–4
milljónir manna lífið. Árið 1953 var
samið vopnahlé, sem hefur staðið
síðan, en stríðinu lauk aldrei form-
lega og þannig er staðan í dag.
Rafmagnið fór
Þegar Kim Il-sung lést árið 1994,
tók sonur hans við, Kim Jong-il og
þegar hann lést árið 2011, tók son-
ur hans, Kim Jong-un, við. Hann
stjórnar nú landi með um 25 millj-
ónir íbúa. Þeir lifa við alræðisfyrir-
komulag sem er einstakt í sinni röð,
reglulegar hungursneyðir, skort og
mjög takmarkaða þekkingu á um-
heiminum, en aðeins ríkisfjölmiðl-
ar hafa heimild til starfa í landinu.
Í verðlaunabókinni Engan þarf
að öfunda eftir bandarísku blaða-
konuna Barböru Demick er þessu
„lokaðasta landi heims“ lýst með
skelfilegum hætti. Til dæmis má
segja að rafmagnið hafi farið af
landinu í kringum 1990, þegar Sov-
étríkin hrundu og landið hætti að
fá ódýra olíu þaðan. Í bókinni er
rætt við fólk sem tekist hefur að
flýja hörmungarástandið sem ríkir
í landinu.
Talið er að fleiri hundruð þúsund
manns hafi látist úr hungri á árun-
um 1994–1997, en landið fær mikla
matvælaaðstoð frá alþjóðasam-
félaginu. Sú aðstoð fer hins vegar
mestmegnis í herinn og stjórnmála-
elítu landsins. Sameinuðu þjóðirn-
ar töldu í fyrra að milljónir manna
þyrftu matvæla aðstoð í landinu,
mest börn og þungaðar konur.
Vilja verða kjarnorkuveldi
Undanfarnar vikur hafa Norður-
Kóreumenn verið með stórkarlalegar
yfirlýsingar og meðal annars hótað
að ráðast á Suður-Kóreu, Banda-
ríkin, Japan og eyjuna Guam, þar
sem Bandaríkjamenn eru með her-
stöð. Landið hefur gert eldflauga- og
kjarnorkutilraunir og stefnir að því að
verða kjarnorkuríki. Það líst Banda-
ríkjamönnum og Suður-Kóreumönn-
um alls ekkert á: „Við samþykkjum
ekki að landið verði kjarnorkuríki og
við sættum okkur ekki við yfirlýsingar
Norður-Kóreumanna,“ sagði John
Kerry, hinn nýskipaði utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, í heimsókn í
Suður-Kóreu í síðustu viku, en mjög
sterk tengsl eru á milli Bandaríkjanna
og Suður-Kóreu.
Mikið af úreltum vopnum
Þrátt fyrir stríðsbröltið og ógnanir að
norðan, halda íbúar Seoul, höfuð-
borgar Suður-Kóreu, ró sinni, enda
er þetta ekki í fyrsta skipti sem ástand
sem þetta skapast. Reyndar má segja
að aldrei hafi slaknað almennilega
á í samskiptum ríkjanna, frá lokum
Kóreustríðsins.
Norður-Kóreumenn eiga gríðar-
legt magn vopna sem þeir fengu
mestmegnis á sínum tíma frá Sovét-
ríkjunum. Mörg þessara vopna eru
hins vegar algerlega úrelt, eins og
til dæmis skriðdrekar þeirra, sem
margir eru frá 5. og 6. áratug síð-
ustu aldar. En nóg virðast þeir eiga af
mannafla fyrir herinn, um ein millj-
ón er undir vopnum og átta milljónir
sagðar vera í varaliði.
Hvað ef skellur á stríð?
Verði Norður-Kórea kjarnorkuríki
má slá því föstu að valdajafnvægi á
Kóreuskaganum mun breytast veru-
lega. En eins og staðan er núna, er
fátt sem bendir til þess að landið hafi
yfir nothæfum kjarnorkuvopnum að
ráða. Hins vegar gætu þeir mögulega
beitt úreltum „hefðbundnum her“
sínum gegn Suður-Kóreu og ef til vill
valdið töluverðum usla þannig. En
komi til stórstyrjaldar á her Norður-
Kóreu sennilega ekki möguleika gegn
her Suður-Kóreu og bandamönn-
um Suður-Kóreumanna. Her Suður-
Kóreu er með um 900.000 manns
undir vopnum og um þriggja millj-
óna manna varalið og er mun nú-
tímalegri en her grannans í norðri.
Gengið að samningaborðinu?
John Kerry hefur verið í Asíu undan-
farna daga til viðræðna við ráða-
menn þar, meðal annars í Kína, en
Kínverjar eru nær einu bandamenn
Norður- Kóreumanna, Rússar virðast
vera búnir að gefast upp á þeim. Þol-
inmæði Kínverja er líka lítil, því ef
til vandræða kemur á Kóreuskagan-
um, er líklegt að mikill flóttamanna-
straumur liggi til Kína og það vilja
þeir ekki. n
n Segjast eiga kjarnavopn en fáir trúa því n Þrýst á Kim Jong-un um að semja
Kim Jong-un Norður-Kórea gaf
út þá yfirlýsingu fyrir skömmu að
allir útlendingar ættu að koma
sér fá Suður-Kóreu, annars ættu
þeir á hættu að dragast inn í
kjarnorkustyrjöld. Mynd: ReuteRS
Gunnar Hólmsteinn Ársælsson
blaðamaður skrifar
Faðir og
sonur Kim
Il-sung, t.v. er „
eilífðarforseti“
Norður-Kóreu
samkvæmt
stjórnarskrá. Við
af honum tók
sonur hans Kim
Jong-il árið 1994.
Á sama tíma og spennan virðist vera að ná
hámarki á Kóreuskaganum er í dag, 15. apríl,
haldið upp á afmæli stofnanda Norður-
Kóreu, Kim Il-sung (1912–1994). Þrátt fyrir að
hann sé fyrir löngu látinn lifir hann enn meðal
íbúanna. Hann var allt í öllu í Norður-Kóreu
og persónudýrkunin á honum óstjórnleg.
Yfirleitt er talað um hann sem „hinn mikla
leiðtoga“ og í stjórnarskrá landsins hefur
hann stöðu sem „eilífðarforseti“ landsins.
Það má því segja að þannig sé búið um
hnútana að hann lifi svo lengi sem Norður-
Kórea er til. Talið er að öllu verði tjaldað til við
hátíðarhöldin vegna afmælisins.
Afmælisbarnið Kim Il-sung
n Haldið upp á afmæli eilífðarforsetans með pomp og prakt