Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Side 17
Neytendur 17Mánudagur 15. apríl 2013 Algengt verð 243,8 kr. 242,9 kr. Algengt verð 243,5 kr. 242,7 kr. Höfuðborgarsv. 243,4 kr. 242,6 kr. Algengt verð 243,7 kr. 242,9 kr. Algengt verð 245,9 kr. 242,9 kr. Höfuðborgarsv. 243,5 kr. 242,7 kr. Eldsneytisverð 14. apr. Bensín Dísilolía Gott viðmót n Lofið fá starfsmenn Stöðvarinn­ ar á Laugavegi en ánægður við­ skiptavinur vildi koma ánægju sinni á framfæri. „Ég kem iðulega við á Stöðinni á morgnana á leið til vinnu og fæ mér kaffi og rúnstykki. Þar er mér alltaf tekið með bros á vör og góðu viðmóti. Það skiptir ekki máli hver af­ greiðir mig. Þar að auki er kaffið á góðu verði,“ segir viðskipta­ vinurinn. Útilokaðir n MMR fær lastið en eldriborgari hafði samband við DV og benti á aldursmismunun í skoðana­ könnunum. „Þær ná til fólks á aldr­ inum 18–67 ára svo það virðist sem þeir haldi að við höfum ekki skoð­ anir.“ Ólafur Þór Gylfason, fram­ kvæmdastjóri MMR, segir að þar séu daglega gerðar kannanir sem ná yfir allan aldur. „Hins vegar, þar sem spurningavagn okkar hefur alltaf náð að minnsta kosti upp að 67 ára hópnum, þá höfum við oft miðað birtingu niðurstaðna við þann aldurshóp. Og þá eingöngu til að viðhalda samanburði yfir tíma.“ Hann bendir á að efri aldursmörk séu algeng hjá öllum rannsóknar­ aðilum en MMR taki það hins vegar skýrt fram. „Við tókum hins vegar nýlega þá ákvörðun að breyta þessu verklagi og á næstunni mun­ um við uppfæra þær tölur sem við birtum þannig að þær sýni einnig niðurstöður fyrir þá sem eru yfir 67 ára aldri. Að öðru leyti tek ég undir með viðmælanda þínum, fólk yfir 67 ára hef­ ur vissulega skoð­ anir sem skipta miklu máli og við könnum þær reglu­ lega og tökum fullt tillit til þeirra.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is Athugasemd Fjallað var um lífrænar vörur í DV þann 10. apríl síðastliðinn þar sem teknar voru saman upplýsingar um hvar megi nálgast lífrænar vörur og veitingar. Við vinnslu greinarinnar var stuðst við upp- lýsingar af síðunni Náttúran.is og lífrænt Íslandskort sem aðalkona síðunnar, Guðrún Arndís Tryggvadóttir, bjó til og lét framleiða. Það skal hér með áréttað að upplýsingar um verslanir og veitinga- hús voru fengnar af Náttúran.is auk þess sem merkin sem notuð voru eru hönnuð og framleidd af Náttúran.is í samvinnu við Green Map. Það er því Náttúran.is sem á heiðurinn af þeirri vinnu að taka saman þær upplýsingar sem stuðst var við og merkin sem notuð voru. N ýir lágkolvetnakúrar koma reglulega fram á sjónar­ sviðið og eflaust kann­ ast margir Íslendingar við ýmsa slíka kúra sem hafa notið vinsælda hér á landi á einum eða öðrum tíma,“ segir næringar­ fræðingurinn Ólafur G. Sæmunds­ son spurður út í hvað honum finnst um lágkolvetnamataræðiskúra. Hann bætir við að vinsælasti kúrinn í þessum anda sé án efa hinn eini sanni Atkins­kúr sem kom fyrst á sjónarsviðið árið 1972 en sá kúr naut mikilla vinsælda hér á landi á árun­ um 2003 til 2004 með útkomu bókar­ innar Þú getur grennst og breytt um lífsstíl. Sú bók byggir á kenningum Atkins. Fullnægir ekki lágmarksþörf líkamans Ólafur segir að algeng skilgreining á lágkolvetnamataræðiskúrum sé að dagsneysla kolvetna sé á bilinu 20 grömm upp í 120 grömm. „Til að setja þessar kolvetnaráðleggingar í ákveðið samhengi við raunveru­ lega neyslu og kolvetnaþörf má nefna að miðað við um 2.000 hita­ eininga neyslu á dag er meðalmað­ ur að neyta um 250 gramma af kol­ vetnum sem jafngilda um helmingi orkunnar sem neytt er dag hvern. Varðandi kolvetnaþörf þá er vert að hafa í huga að skilgreind lágmarks­ þörf líkamans fyrir kolvetni á dag jafngildir um 130 grömmum. Þannig að augljóst má vera að það að neyta 20 til 100 gramma á dag fullnægir á engan hátt lágmarksþörf líkamans á kolvetnum.“ Þeir sem mæla með kolvetna­ snauðu mataræði halda því fram að með því náist til dæmis lægri blóðsykur, blóðþrýstingur og kól­ esteról. Ólafur segir að þyngdar­ tap sé að sjálfsögðu staðreynd á slíkum kúrum en bendir á að það sé vitað mál að þegar feitt fólk létt­ ist, fólk sem þjáist til dæmis af há­ þrýstingi og háu kólesteróli, þá leiði það til lækkunar á þessum breytum. „Þetta er fyrst og fremst tengt minni orkuneyslu sem leiðir til þyngdar­ taps.“ nær allt skammtímarannsóknir Hvað varðar rannsóknir sem sýna fram á að kolvetnasnauðir kúrar hafi góð áhrif segir Ólafur að flestar rann­ sóknir sem hafi verið gerðar séu nær allar skammtímarannsóknir. „Þær ná ekki yfir lengra tímabil en hálft ár og lengst eitt ár og þess utan verður að geta þess að þó fólk segist vera á ákveðnum kúr þarf það ekki á þýða að fólk sé í reynd að fylgja eftir því matar­ æði sem það segist vera að fylgja eft­ ir. Með öðrum orðum, fólk svindl­ ar á kúrnum. Þessu til stuðnings má nefna niðurstöður rannsóknar sem stóð yfir í eitt ár sem birtust árið 2007 í læknatímaritinu Journal of the American Medical Association. Þar var hópi kvenna skipt niður á fjóra mismunandi gerðir mataræðiskúra. Þegar niðurstöður rannsóknarinn­ ar eru skoðaðar kemur meðal annars í ljós að mjög fáar kvennanna héldu sig í reynd við þann kúr sem þær áttu að fylgja. Þannig voru til dæmis þær konur sem áttu að fylgja eftir Atk­ ins­mataræðinu að neyta að meðal­ tali um 140 gramma af kolvetnum á dag í stað 50 gramma sem lagt hafði verið upp með og konurnar á fitu­ snauðasta kúrnum voru að fá um 30 prósent orku sinnar úr fitu í stað 10 prósenta. Niðurstöður eins og þær sem birtast í niðurstöðum þessarar rannsóknar sýna vel hve erfitt er að fylgja eftir mataræði sem er langt frá eðlilegum neysluháttum fólks og þá hvort heldur lagt er upp með matar­ æði sem er hlutfallslega afbrigðilega hátt eða lágt í fitu.“ n kolvetnasvelti er ekki lausnin n Næringarfræðingur segir lágkolvetnakúra gamla lummu Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Hvað er rétt og hvað er rangt? n Ólafur svarar hér nokkrum fullyrðingum sem gjarnan eru settar fram Fullyrðing: Fólk sem neytir kolvetnaríkrar fæðu er að öllu jöfnu feitara en fólk sem neytir kolvetnasnauðrar fæðu. svar: Rangt. Samkvæmt faraldsfræðilegum rannsóknum er líklegra að fólk sem neytir kolvetnaríkrar fæðu sé léttara en fólk sem neytir kolvetnasnauðrar fæðu. Fullyrðing: Fólk sem sleppir svo til alfarið úr kolvetnum, neytir 20–100 gramma á dag, getur hámað í sig eins mikilli fitu og próteinum og það vill. svar: Rangt. Ástæða þess að fólk léttist á lágkolvetnamegrunarkúrum tengist fyrst og fremst fáum hitaeiningum sem neytt er og ástæða þess að fárra hitaeininga er neytt tengist ekki síst þeirri staðreynd að mataræðið verður svo óspennandi þegar kolvetnun- um er svo til úthýst. Sem dæmi má nefna að þeir sem fylgja eftir slíku mataræði neyðast til að útiloka heilu fæðuflokkana svo til algjörlega, fæðuflokka eins og kornmeti, mjólkur- afurðir (reyndar fyrir utan feita osta, rjóma og hreint skyr), ávexti sem og allar mögulegar sætindavörur svo sem súkkulaði, sæta drykki og svo auðvitað alla áfenga drykki! Fullyrðing: Einstaklingar þjóða sem neyta hlutfallslega kolvetnaríkrar fæðu eru öllu jöfnu feitari en einstaklingar þjóða sem neyta kolvetnasnauðrar fæðu. svar: Rangt. Þessi fullyrðing stenst engan veginn. Og augljósasta dæmið þar að lútandi eru margar Asíuþjóðanna sem neyta mjög kolvetnaríkrar fæðu en þrátt fyrir það er tíðni ofþyngdar/offitu þar lág. Ástæða ofþyngdar/offitu er að sjálfsögðu langoftast tengd ofneyslu hitaeininga og þá skiptir litlu máli hvort þær hitaeiningar, sem ofaukið er, komi úr fitu, kolvetnum, próteinum eða alkóhóli. Fullyrðing: Að fylgja eftir mataræði sem er mjög ríkt af fitu leiðir ekki til þyngingar eða ýtir undir þróun á krónískum sjúkdómum eins og kransæðasjúkdómum. svar: Rangt. Auðvitað er þessi fullyrðing röng! Fita er orkuríkasta orkuefnið en í einu grammi eru níu hitaeiningar á meðan fjórar hitaeiningar eru í einu grammi af kolvetnum og próteinum. En vegna orkuauðgi fitu er mjög auðvelt að neyta mjög margra hitaein- inga þegar fituríkrar fæðu er neytt. Og öllum ætti að vera ljóst að of mikil orkuneysla leiðir til þyngdaraukningar og einn helsti áhrifaþáttur sjúkdóma eins og hjarta- og æðasjúkdóma er aukin fitusöfnun í líkama og þá sérstaklega sú fita sem safnast saman í kringum líffæri í kviðarholinu. 20 grömm í epli Ólafur G. Sæmundsson sést hér með epli sem í eru rúm 20 grömm af kolvetnum. Kjörþyngd Það getur reynst erfitt að komast í og halda sér í kjörþyngd.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.