Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2013, Blaðsíða 20
20 Sport 15. apríl 2013 Mánudagur
Slagurinn á milli spænsku risanna
n Lesendur DV spá spænskum úrslitaleik en ekki eru allir sammála
Í
slenskir knattspyrnuáhugamenn
eru á annarri skoðun en spænskir
ef marka má niðurstöður vef
könnunar á DV.is annars vegar
og sams konar könnun hjá spænska
íþróttablaðinu Marca. Í þeirri síðar
nefndu eru flestir þeirrar skoðun
ar að það verði Real Madrid og
Bayern München sem mætist í úr
slitaleik Meistaradeildarinnar þessa
leiktíðina meðan innlendir áhuga
menn veðja langflestir á að sá slagur
verði milli Real Madrid og Barcelona.
Fyrri undanúrslitaleikir keppn
innar fara fram í næstu viku og báðir í
Þýskalandi, á heimavöllum Borussia
Dortmund og Bayern München,
áður en haldið verður til Spánar í
byrjun maí þar sem seinni umferðin
fer fram.
Af þeim fjölda sem þátt tók í vef
könnun DV eru langflestir, tæp
43 prósent, á þeirri skoðun að úr
slitaleikurinn verði milli Spánar
meistara Real Madrid og líklegra
næstu Spánarmeistarar Barcelona.
Næstflestir telja að sá leikur verði
milli þýsku liðanna tveggja en 21,4
prósent setja sitt atkvæði á þann úr
slitaleik. Tæp 18 prósent telja úr
slitaleikinn verða keppni Bayern
og Real Madrid eða Dortmund og
Barcelona.
Hjá Marca hins vegar eru örlítið
fleiri þeirrar skoðunar að úrslitaleik
urinn á Wembley verði milli Bayern
München og Real Madrid en reyndar
munar innan við tveimur prósentu
stigum milli þeirra sem veðja á Þjóð
verjana í stað Barcelona.
En kannski verður úrslitaleikurinn
sjálfur hálfgert hjóm því afar margir
sparkáhugamenn, frá blaðamönn
um UEFA til bandarískra spekinga
ESPN og fleiri, eru á þeirri skoðun að
skemmtilegasta viðureign sem hægt
sé að hugsa sér í Meistaradeildinni
sé slagur Barcelona og Bayern í
undan úrslitum. Bæði lið sókndjörf
út í eitt með snillinga í öllum stöðum
og á bekknum sömuleiðis. n
albert@dv.is
KínversK innrás
er yfirvofandi
n Táningurinn Tianlang sló í gegn og mun hafa jákvæð áhrif á golf í Kína
H
inn fjórtán ára gamli kín
verski framhaldsskóla
nemi Guan Tianlang kom
aftur á óvart um helgina.
Hann hafði um nokkurra
mánaða skeið vakið heimsathygli
fyrir að vinna sér inn þátttökurétt á
einu allra virtasta golfmóti heims;
Mastersmótinu í Bandaríkjunum.
Engum hefði komið á óvart að
taugar fjórtán ára framhalds
skólanema yrðu ekki nógu sterkar
til að hann gerði þar góða hluti en
Tianlang sýndi annað. Hann stóð
sig frábærlega, sýndi ekki snefil af
taugaveiklun við hlið risastjarna
í golfinu, og spilaði svo vel að um
skamman tíma var hann meðal
efstu manna.
Þetta er ekki dapur árangur á
neinni mælistiku. Mastersmótið er,
að frátöldu Opna breska mótinu, hið
virtasta í golfinu og ef það kæmi ekki
mikið að sök væru þeir margir sem
gæfu aðra höndina til að geta tekið
þátt í því móti. Tianlang skaut aftur
fyrir sig þekktum gaurum sem lifað
hafa af golfi árum saman og hafa
meiri þekkingu og reynslu í litlaputta
en kínverski unglingurinn. Enginn
annar keppandi en Tianlang þurfti
að eyða tveimur klukkustundum í
námsbækur strax að loknum hverj
um hring um helgina. Það breytti
bara engu þegar allt kom til alls.
Sprenging í Kína
Gengi Guan Tianlang á mótinu mun
án alls efa fjölga til muna kylfingum
í Kína meira en orðið er. Þar hefur
þegar orðið gríðarleg sprenging á
fjölda iðkenda enda færast þar millj
ónir ár hvert upp í millistétt en það
er sá hópur sem hefur bæði fjármuni
og tíma aflögu til að finna sér dægra
styttingu. Þessi fjölgun hefur orðið
mikil og ör í landinu, og eins og gerst
hefur á Indlandi, Taílandi og Malasíu
má slá föstu að heimsklassa árangur
eins kylfings frá þessum löndum virki
sem sterasprauta á áhuga almenn
ings. Þetta má sjá í raun í alþjóðlegu
kvennagolfi þar sem slík sprenging
varð fyrir nokkrum árum. Þar af leiðir:
þátttaka Tianlang á Mastersmótinu
mun bara auka áhugann til muna.
Fleiri koma upp
En stór munur er engu að síður á
Kína og hinum löndunum sem
nefnd eru. Hagvöxtur í þeim er
fjarri því eins mikill og í Kína og
mun færri komnir í nægilega
miklar álnir til að geta spilað golf
á dýrum völlum. Golfiðkun í Asíu
almennt er dýr og reyndar mun
dýrari en í Evrópu eða Bandaríkj
unum. En það er að breytast í Kína
því með hratt vaxandi eftirspurn
fjölgar þar golfvöllum hraðar en
kjósendum Framsóknarflokks
ins. Af öllum þeim milljónum
sem spreyta sig á golfinu liggur
fyrir að töluverður fjöldi er góður
frá náttúrunnar hendi. Slá má því
föstu að Guan Tianlang og tugir,
ef ekki hundruð, kínverskra kepp
enda muni slást um keppnisrétt
á Masters og öðrum stórmótum
næstu árin. n
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Stóðst pressuna
Hinn fjórtán ára
Guan Tianlang frá
Kína hefur staðið sig
frábærlega á einu
erfiðasta stórmóti í
golfi sem haldið er.
MynD ReuteRS
Mancini gefst
upp aftur
Stjóri Manchester City, Roberto
Mancini, telur vonlaust að lið
hans nái að verja enska meistara
titilinn þessa leiktíðina úr því
sem komið er. Það er eðlilegt og
raunhæft mat þegar lítið er eftir af
deildinni og stigamunurinn jafn
mikill sem raun ber vitni. Ítalinn
hefur hins vegar verið svartsýnn
um slíkt síðan í byrjun febrúar og
hefur þráfaldlega síðan þá sagt í
viðtölum að munurinn sé of mikill
og titillinn sé runninn úr greipum
sinna manna. Ekki sérlega góð
skilaboð til leikmanna sinna.
Spennan ekki
á toppnum
Færa má til sanns vegar að fátt
getur komið í veg fyrir að Alex
Ferguson komi einum titli til á
hillurnar á Old Trafford nema þá
að leikmenn Manchester United
fari allir í verkfall og það núna –
sem hefur aldrei gerst og líkurnar
því hæpnar. Spenna er hins vegar
töluverð í samkeppni um næstu
tvö sætin í úrvalsdeildinni um
Meistaradeildarsæti í haust.
Þar eiga ein fimm lið raunhæfa
möguleika á þeim tveimur sætum
sem í boði eru þó möguleikar
Liverpool séu vissulega hverfandi.
Liverpool er nú níu stigum á eftir
Arsenal í þriðja sætinu og átta stig
um á eftir Chelsea í fjórða sætinu.
Er Mourinho
að bíða eftir
Ferguson?
Hún er safarík sú kenning að Jose
Mourinho hafi ákveðið að ljúka
samningi sínum hjá Real Madrid
í þeirri von að verða orðinn laus
og liðugur þegar Alex Ferguson,
stjóri Manchester United, sest í
helgan stein. Ýmsir lesa það milli
línanna nú þegar kvisast hefur
að Ferguson ætli að hætta eftir
næstu leiktíð en þá lýkur einmitt
líka samningi Portúgalans á Spáni.
Í öllu falli virðist Mourinho ekki
hafa áhuga á Chelsea á nýjan leik
ef marka má breska blaðið Daily
Mirror.
Dágóð skemmtun framundan Enginn knattspyrnuaðdáandi mun láta undanúr-
slitaleikina í Meistaradeildinni fram hjá sér fara. MynD ReuteRS