Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 11
Lúxusinn í utanríkisþjónustunni Fréttir 11Mánudagur 1. júlí 2013 ferðastyrkir og fleira n Aðeins fjórar konur af 22 sendiherrum n Skorið niður eftir hrun Það væsir ekki um sendiherra Íslands í Þýskalandi, Gunnar Snorra Gunnarsson, í þessari nýtískulegu glæsivillu í Berlín. Húsið er 675 fermetrar og lauk byggingu þess árið 2006. Kostnaður við byggingu hússins var tæplega hálfur milljarður króna að núvirði, um 485 milljónir. Lóðin stendur við götuna Trabenerstrasse í einu dýrasta hverfi Berlínar, ekki fjarri sendiráðsskrifstofum Íslands. Garður hússins nær að vatninu Halensee og er útsýnið yfir vatnið ekki af verri endanum. Einkarými sendiherrans eru aðskilin frá móttökurými en auðvelt er að samnýta rýmin. Bústaðurinn var byggður samkvæmt verðlaunatillögu í samkeppni arkítekta sem efnt var til vegna byggingar hans. Húsið hefur vakið nokkra athygli erlendis og þykir hönnun þess látlaus en glæsileg. Rétt er að geta þess að bygging hússins stóðst kostnaðaráætlun og hefur verðgildi þess hækkað á síðustu árum. Sendiskrifstofur í sameiginlegri byggingu Norðurlanda Sendiherrabústaðurinn í Berlín er þó ekki allt og sumt. Sendiráð Norðurlandanna í Berlín eru öll á sömu lóð við Rauchstrasse við Tiergarten-garðinn. Var það gert í því skyni að efla samstarf sendiráðanna og er svæðið vettvangur ýmissa viðburða sem tengjast öllum löndunum. Byggingu sendiráðanna lauk árið 1999 og voru þau opnuð við hátíðlega athöfn það ár. Kostnaður Íslands við verkið var um 450 milljónir á verðlagi dagsins í dag. Í byggingunni er meðal annars að finna veglega veislusali og góðan tónleikasal. Starfsmenn sendiráðsins eru átta talsins: sendiherra, varamaður sendiherra, sendi- ráðsfulltrúi, viðskiptafulltrúi, þrír ritarar og bílstjóri. Sendiherra í Berlín Gunnar Snorri Gunnarsson er sendiherra Íslands í Berlín. Hann hefur starfað í utanríkis- þjónustunni í rjúma þrjá áratugi, meðal annars sem sendiherra í Brussel og Peking og ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu. 675 fermetra glæsivilla í Berlín n Sendiherrabústaður í einu dýrasta hverfi borgarinnar Glæsilegur sendiherrabústaður Sendiherrabústaður Íslands í Berlín var byggður árið 2004 og er í einu dýrasta hverfi Berlínar. Húsið er stórglæsilegt, bæði að innan og utan, og er afar fallegu umhverfi við vatnið Halensee. Sendiskrifstofur Sendiráð Íslands í Berlín er á sama stað og sendiráð annarra Norðurlanda, skammt frá sendiherra- bústaðnum. Sendiherra Íslands í Japan Stefán Lárus Stefánsson, sendiherra Íslands í Japan, starfaði sem forsetaritari á árunum 2000–2005. Sendiráðið í Tókýó kostaði 1,5 milljarða n Þrjár hæðir og kjallari n Samtals um 1.100 fermetrar Árið 2001 var mikið um dýrðir hjá íslensku utanríkisþjónustunni. Þá voru opnuð íslensk sendiráð í Mapútó í Mósambík, Vínarborg í Austurríki og Ottawa í Kanada auk þess sem opnað var glæsilegt sendiráð í Tókýó. Ákveðið var að festa kaup á þriggja hæða húsi miðsvæðis í Tókýó, einni dýrustu borg heims, og var svo ráðist í miklar endur- bætur á húsinu. Þegar upp var staðið var kostnaðurinn um 775 milljónir króna sem nemur tæplega 1,5 milljörðum á verðlagi dagsins í dag. Húsið er þrjár hæðir og kjallari, samtals um 1.100 fermetrar að flatarmáli. Ástæða þess hve stórt hús var keypt er að sendiherrabú- staður, sendiskrifstofur og móttökurými eru í sömu byggingu. Skrifstofa er á neðstu hæð, móttaka fyrir gesti á annarri hæð og íbúð sendiherra á þeirri efstu. Í kjallara er íbúð fyrir ritara auk aðstöðu þjónustufólks. Öll húsgögn hússins voru hönnuð sérstak- lega af arkíktekum þess. Húsið er í hverfi þar sem mörg önnur sendiráð eru staðsett og sendiráð annarra Norðurlanda eru ekki fjarri. Sérhönnuð húsgögn Öll húsgögn í sendiráði Íslands í Japan voru sérhönnuð fyrir byggingu hússins. Skipaði 10 sendiherra á 12 mánuðum Enginn utanríkisráðherra hefur verið jafnstórtækur við skipan sendiherra og Davíð Oddsson, sem gegndi stöðu utanríkisráðherra um tólf mánaða skeið á árunum 2004–2005. Á þeim tíma skipaði hann ellefu nýja sendiherra og voru flestir þeirra nánir samstarfsmenn Davíðs. Til samanburðar má nefna að forveri Davíðs, Halldór Ásgrímsson, gegndi embættinu í níu ár og skipaði 15 ráðherra á þeim tíma. Af þeim tíu sendiherrum sem Davíð skipaði gegna fimm enn embætti. Það eru meðal annars Júlíus Hafstein, fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins og náinn samstarfsmaður Davíðs til margra ára, Guðmundur Árni Stefánsson, ráðherra úr fyrstu ríkisstjórn Davíðs, Albert Jónsson, sem var lengi ráðgjafi Davíðs líkt og Kristján Andri Stefánsson, sem var einnig skipaður sendiherra. Aðrir sendiherrar sem Davíð skipaði voru til dæmis Ólafur Davíðsson sem varð sendiherra í Berlín haustið 2004. Hann var ráðuneytisstjóri Davíðs í for- sætisráðuneytinu til margra ára. Einnig má nefna Markús Örn Antonsson, borg- arstjóra Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík 1991–1994. Eina konan sem Davíð skip- aði var Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, fyrrverandi þingmaður og eiginkona Friðriks Sophussonar, fjármálaráðherra úr fyrstu ríkisstjórn Davíðs. Með Noregskonungi Hér sést Gunnar Pálsson, sendiherra Íslands í Ósló, ásamt Haraldi V. Nor- egskonungi á góðri stundu. Sendiherra í Nýju-Delí Guðmund- ur Eiríksson hefur verið sendiherra Íslands í Nýju-Delí á Indlandi frá árinu 2009. Áður var hann sendiherra í Suð- ur-Afríku en embættið var lagt niður.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.