Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 23
þúsund krónur í sýningarkostnað. Óperan er eitt dýrasta listform sem um getur, og flóknasta. Það er mik- ið fjölmenni sem kemur að hverri óperu sýningu: Sinfóníuhljómsveit, kór, barnakór, söngvarar … Það hefur hins vegar margt breyst til góðs í hörpu. Aðsókn er það góð að sýningarkvöldin standa undir sér og skila jafnvel smá hagnaði sem fer upp í stofnkostnaðinn. En stofn- kostnaðurinn er gríðarlega mikill. Svo er húsaleigan vandamál. Stjórn- völd hafa skorið niður framlög til óperunnar og í dag fer verulegur hluti af ríkisstyrknum í húsaleigu. Slíkt var ekki raunin í Gamla bíói.“ Grimmilegur niðurskurður Því virðist sem, þrátt fyrir flutning í nýtt húsnæði, Íslenska óperan glími enn við fjárhagsvandamál. Í Gamla bíói var salurinn of lítill til að standa undir sér. Nú er salurinn nógu stór en þá fer ríkisstyrkur óperunnar að stór- um hluta í húsaleigu. „Það er alltaf eitthvað,“ segir Stefán. „En stjórnvöld hafa sem betur fer sýnt það í verki að það er áhugi fyrir því að hafa alvöru óperu á Íslandi. Framlög til óperunnar voru komin í þokkalegt horf fyrir hrun. Svo var allt skorið grimmilega niður og nú reynum við að ná þessu aftur upp í fyrra horf.“ Bjartir tímar Stefán segir bjarta tíma framundan hjá Íslensku óperunni. Harpa hafi sannað sig sem framúrskarandi tón- leikahús, sviðsmyndahönnuðir og listrænir stjórnendur hafi verið dug- legir við að finna leikrænar lausnir á erfiðu sviði hússins, og Carmen sé gríðarlega spennandi verkefni þar sem ungum söngvurum sé gefið risa- vaxið tækifæri. „Carmen er dramatísk ástarsaga og ég lofa því að í þessari uppfærslu verði fólki komið á óvart. Verkið er fært til í tíma og rúmi og farin mjög spennandi leið, sem ég vil þó ekki upplýsa hér hver er. Svo eru margir af okkar reyndustu söngvurum í burðarhlutverkum en einnig fá ungir söngvarar að þreyta frumraun sína. Þarna verður því spennandi blanda af reyndum og nýjum söngvurum. Eitthvað fyrir alla.“ n Menning 23Mánudagur 1. júlí 2013 Ein þEkktasta ópEra sögunnar S ýning á hljómsveitarmyndum Harðar Sveinssonar ljós- myndara var opnuð í Bologna í Ítalíu á föstudaginn. Sýn- ingin er haldin í galleríinu ONO Arte Contemporanea og er hluti af dagskrá í borginni sem helguð er ís- lenskri tónlist. „Sigur Rós og Björk munu spila í Bologna í sumar og haust og ég var beðinn um að lána galleríinu mynd- ir af íslenskum hljómsveitum sem ég hef tekið í gegnum tíðina,“ segir Hörð- ur Sveinsson ljósmyndari sem flaug til Ítalíu til að vera viðstaddur opnunina. Hörður er einn þekktasti hljóm- sveitarljósmyndari landsins. Hef- ur unnið á Fréttablaðinu, Monitor og Morgunblaðinu og sérhæft sig í að mynda tónleika auk þess sem portrett myndir hans af íslenskum tónlistarmönnum hafa vakið athygli og hlotið viðurkenningar. „Mér finnst þetta skemmtilegt og óvæntur heiður,“ segir Hörður um þá staðreynd að myndir hans séu nú komnar til Ítalíu á sýningu. Hann segist alltaf hafa haft áhuga á tónlist. „Og ég hef verið heppinn að fá að sinna þessu áhugamáli mínu í vinnunni.“ Hann segist hafa látið valið á myndunum í hendur sýningarstjóra. „Þau vildu aðallega stóru nöfnin í íslensku hljómsveitarflórunni í dag – Sigur Rós, Múm, Of Monsters and Men, Ólaf Arnalds og Björk,“ segir Hörður. Spurður hvaða hljómsveitir séu hans uppáhaldsmyndefni svarar Hörður: „Ætli ég hafi ekki haft mest gaman af því að mynda Reykjavík! og Trabant.“ Og ekki að undra, enda afar ljósmyndavænar sveitir þar á ferð. n simonb@dv.is n Ítalir spenntastir fyrir Sigur Rós og Of Monsters and Men Tónlistarljós- myndir á ÍtalíuStefán Baldursson óperustjóri Segir bjarta tíma framundan hjá Íslensku óperunni þrátt fyrir niður­ skurð og rekstrarerfiðleika. Mynd: SiGtryGGur Ari. „ Í dag fer verulegur hluti af ríkisstyrkn- um í húsaleigu. Botnleðja sló í gegn Hafnfirska rokkhljómsveitin Botnleðja hélt útgáfutónleika í Austur­ bæ á fimmtudagskvöld fyrir helgi. Botnleðja gefur nú út safnplötu með úrvali af lögum sveitarinnar. Platan heitir Þegar öllu er á botninn hvolft. Góð stemning var á tónleikunum þar sem Botnleðja spilaði alla sína helstu slagara. Óvæntir gestir tróðu líka upp – meðal annars sungu fjölmiðlavinirnir Andri Freyr Viðarsson og Helgi Seljan bakraddir í einu lagi. Augnablikið Mugison og Björk Vinsæl í útlöndum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.