Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 20
20 Lífsstíll 1. júlí 2013 Mánudagur
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
Sjálfsfróunar-
app fyrir konur
Nú er komið á mark-
að fyrsta appið sem snýr að
sjálfsfróun kvenna. App-
ið kallast HappyPlayTime
og veitir kennslu um kven-
mannslíkamann og ýmsar að-
ferðir til sjálfsfróunar. Þrátt fyr-
ir að vera enn í vinnslu hefur
HappyPlayTime vakið mikla
athygli. Hönnuður þess, Tina
Gong, segir það geta frætt konur
um staðreyndir um sjálfsfróun
og ýmsar aðferðir til að fróa sér.
Kennslan fer fram með stuttum
leikjum í snjallsíma.
Heillast af
eldri andlitum
Börn sem eiga foreldra sem eru
komnir yfir þrítugt þegar þau fæð-
ast eru líklegri til að heillast af eldri
andlitum en þau sem eiga yngri
foreldra þegar þau fæðast. Þetta
kemur fram í rannsókn Háskólans
í Saint Andrews í Skotlandi. Sam-
kvæmt rannsókninni eru konur á
háskólaaldri sem áttu eldri foreldra
þegar þær fæddust líklegri til að
heillast af eldri mönnum en þær
sem áttu yngri foreldra. Sama átti
við um unga menn í sömu stöðu
þegar um var að ræða langtíma-
samband en þá tók það mið af aldri
móðurinnar.
Raki og sveppur
veldur astma
Ný rannsókn á vegum háskólans í
Otago í Wellington á Nýja-Sjálandi,
sýnir fram á að raki og sveppur í
húsakynnum fólks hafi margvísleg
áhrif á heilsu barna.
Rannsóknin, sem er sú stærsta
sem gerð hefur verið á þessu sviði,
tók til 46.000 barna í 20 löndum og
sýndi fram á að það að búa í húsi
fullu af raka og myglusvepp veldur
astma, ofnæmi og exemi hjá börn-
um. Þá er fjöldi rykmaura meiri í
húsum með miklum raka og börn
eru líklegri til að fá ofnæmi fyrir ryki
á slíkum heimilum.
Hlaupabretti
á skrifstofunni
n Nýtt æði breiðist út um heiminn n Unnið gegn lífshættulegri kyrrsetu
N
ýtt æði breiðist út um heim-
inn, hlaupabretti á skrif-
stofunni. Æðið ætti að hafa
góð áhrif á heilsufar fólks
enda kyrrseta ein stærsta
heilsufarsógn í hinum vestræna
heimi.
Dr. James Levine er leiðandi í
rannsóknum á sjúkdómum sem
tengjast kyrrsetu hjá Mayo Clinic.
Hann er einn þeirra sem notast við
slíkt bretti. Auðvitað er ekki ætlast til
þess að fólk hlaupi á meðan það vinn-
ur, þess í stað er gengið löturhægt
allan daginn.
Levine útbjó sína fyrstu aðstöðu
árið 1999 eftir að hafa rannsakað
hvers vegna sumir söfnuðu á sig fitu
á meðan aðrir héldust grannir þrátt
fyrir að borða nákvæmlega sama fæði.
Levine komst að því að þeir sem
héldust grannir voru á mun meiri
hreyfingu. Á iði allan daginn, þrátt
fyrir að vinna hefðbundna skrifstofu-
vinnu. Þeir voru á þeytingi um skrif-
stofuna, stóðu reglulega upp og þótt
hreyfingin væri ekki mikil, þá reikn-
aði Levine út að brennslan væri allt
að 800 kaloríur á dag.
Langar kyrrsetur og
ótímabær dauði
Í annarri rannsókn komst hann að því
að kyrrseta er líka slæm fyrir þá sem
eru í góðu formi. Þótt kyrrsetufólk fari
í ræktina þrisvar í viku miðast efna-
skiptin við langar kyrrsetur.
Árið 2009 gaf Levine út bókina
Move a Little, Lose a Lot og vakti
mikla athygli fyrir þær sakir að í henni
boðaði hann að það væri algjör óþarfi
að eyða klukkutíma í ræktinni til
að bæta líkamsformið. Nóg væri að
hreyfa sig reglulega yfir daginn.
Þetta staðfesti stór rannsókn sem
birt var í tímaritinu Diabetologia, þar
sem sannað var að langar kyrrsetur
auka líkurnar á sykursýki, hjartasjúk-
dómum og ótímabærum dauða.
Í rannsókninni var gerður saman-
burður á 18 eldri rannsóknum sem
tóku alls til 800.000 manna. Sykur-
sýkisamtök Bretlands segja að sam-
kvæmt niðurstöðunum sé augljóslega
til góðs að þeir sem eyði miklum tíma
í sitjandi kyrrstöðu hreyfi sig meira.
Vísindamennirnir segja að í nú-
tímasamfélagi sé stöðugt tilefni til
að setjast niður, s.s. yfir sjónvarpinu,
undir stýri og við tölvuna. Margir
reyni auðvitað að jafna þetta út með
því að stunda líkamsrækt. Dr. Emma
Wilmot, sem leiddi rannsóknina við
Leicester-háskóla, segir þó að þótt
það sé betra að taka á því í ræktinni
eftir vinnu en að fleygja sér beint upp
í sófa sé öll kyrrsetan yfir daginn samt
óholl.
Unnið á hlaupabretti
„Fólk telur sér trú um að það stundi
heilbrigðan lífsstíl með því að hreyfa
sig í 30 mínútur á dag, en það þarf að
hugsa um hvað það gerir hinar 23,5
klukkustundirnar. Öll kyrrsetan set-
ur samt aukna áhættu á heilsufarið,“
sagði Wilmot.
Levine er með lausnina til að rjúfa
kyrrsetumunstrið án mikillar fyrir-
hafnar. Að vinna á hlaupabretti.
Fjöldi fyrirtækja hefur gert það
að lifibrauði sínu að framleiða skrif-
borðshlaupabretti. TreadDesk, Trek-
Desk, Exerpeturic, The Human
Solution, Ergo og Ergotresk eru með-
al fjölmargra.
Nokkur atriði reynast erfið þegar
unnið er á slíku bretti. Kaffidrykkja
reynist til að mynda nærri ómögu-
leg, ef farið er geyst verða starfsmenn
andstuttir og mása í símtölum við við-
skiptavini, sem er varla heppilegt. Þá
er líklegt að eigi viðskiptavinir erindi
við starfsmann sem standi á hlaupa-
bretti gleymi hann samstundis erindi
sínu. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Unnið gegn
heilsufarsógn
Kyrrseta er hættuleg
og stuðlar að slæmum
efnaskiptum og ótíma-
bærum dauða.
Ráð til að draga
úr kyrrsetu
n Hvetjið til þess að halda standandi fundi
n Farið í göngutúr í hádegishléinu
n Standið upp á 20 mínútna fresti
n Fáið ykkur hlaupabretti á skrifstofuna
Dr. James Levine Dr. Levine hefur unnið
á hlaupabretti síðan árið 1999.