Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2013, Blaðsíða 18
Ódýrustu vegasjoppurnar 18 Neytendur 1. júlí 2013 Mánudagur Góð þjónusta n Lofið fær Sjónlag í Glæsibæ en þangað leitaði maður sem þurfti ný gleraugu. „Gleraugnaumgjörð mín brotnaði og ég fór í þá verslun sem ég hafði keypt þau í nokkrum árum áður. Þar var mér tjáð að það tæki nokkrar vikur að fá ný. Ég þyrfti að fara til augnlæknis, fá mælingu og koma svo að panta ný. Ég sé illa án gleraugnanna og spurði hvort ég gæti fengið gjörð utan um glerið og fékk þau svör að það væri ekki hægt. Þá hringdi ég í Sjónlag og ætlaði að panta tíma hjá augnlækni mínum. Hann var í fríi og þegar ég sagði mínar farir ekki sléttar var mér boðið að koma strax í sjónmælingu sem og ég gerði. Konan þar sagði að það væri lítið mál að fá gjarðir utan um glerin og seldi mér bráðabirgðagjarð- ir á góðu verði. Nú á ég varagleraugu sem ég get notað þar til þau nýju berast. Mér fannst þetta fljót og góð þjón- usta.“ Eins og að tala við vegg n Viðskiptavinur hafði samband við Tal að fyrra bragði vegna erfið- leika með greiðslu á reikningi og er ósáttur við samskiptin. „Ég hringdi í þjónustuverið og fékk þau svör að stefna fyrirtækisins væri sú að veita hvorki greiðslufrest né greiðslu- dreifingu. Allir ógreiddir reikningar færu til innheimtu hjá Motus eftir 14 virka daga frá eindaga og ég yrði að eiga við Motus. Svo fór að tveir reikningar voru sendir í Motus en eftir að hafa reynt að semja við Tal þá voru þeir tilbúnir að veita mér greiðslufrest á einum reikningi en sáu sér ekki fært að taka hina reikn- ingana úr innheimtu. Höfuðstóll- inn, 33.000 krónur, varð að 60.000 krónum með innheimtu álagi og vöxtum,“ segir hann og bætir við að að ræða við Tal væri eins og að tala við vegg. „Ég fékk að tala við yfirmann hjá fyrirtækinu sem sagði það sama. Ég leitaði svara hjá samkeppnisaðilum Tals varðandi innheimtuaðferðir sem fyrirtækin nota. Síminn sendir ekki reikninga í innheimtu fyrr en eftir sex vikur frá eindaga, Vodafone sendir reikninga í innheimtu mánuði eftir eindaga, NOVA er með sama fyrirkomulag og Vodafone.“ DV leitaði til Viktors Ólasonar, for- stjóra Tals eftir viðbrögðum. „Að fá fréttir af óánægðum þjónustu- þega er eitthvað sem fyrirtækið tek- ur mjög alvarlega og reynir ávallt að læra af mistökum ef þau eiga sér stað. Það er mikilvægt að starfsfólk hafi umboð til athafna en að ferlum sé fylgt þannig að þetta er eitthvað sem verður skoðað. Talsmenn gera sér grein fyrir að sérhver samskipti geta ráðið framtíð viðskiptavina hjá okkur og því gerum við okkar allra besta. Viðskiptavinir njóta vaf- ans oft og tíðum en ég stend með mínu fólki og með hlífðarskjöld yfir þessum snillingum sem gera sitt besta til að mæta óskum, þörfum og kröfum viðskipta- vina. Við hlust- um á viðskiptavini og styðjumst við staðreyndir. Þessi bransi er oft flók- inn en það er okkar að gera hlutina einfalda. Við erum hér fyrir viðskiptavini og heimilin í landinu.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is n DV gerði verðkönnun á helstu áningarstöðum við veginn n Verð hefur hækkað lítillega frá því í fyrra n Ódýrasti ísinn í Vörmuhlíð Ó dýrasti ísinn fæst í Varmahlíð en þar er einnig að finna ódýrasta Prins Polo-súkkulaðið af stærstu gerðinni. Þetta er niður- staða könnunar sem DV gerði á verði á nokkrum vinsælum skyndi- bitum í vegasjoppum landsins. 22 áningarstaðir Þeir eru fjölmargir áningarstaðirnir við þjóðveginn sem ferðalangar kíkja á til að fá sér smá hressingu og ekki úr vegi að skoða hvað það kostar. Haft var samband við 22 veitinga- skála og vegasjoppur víðsvegar um land og fengið verð á þeim veitingum sem við kaupum oftast á ferðalögum. Tekið skal fram að allir söluskálarnir tóku vel í erindi blaðamanns og gáfu fúslega upp verð á tilteknum vörum. Einnig má nefna að suma staðina mætti frekar flokka sem veitingastaði en vegasjoppur en ekki er tekið tillit til gæða og þeirrar þjónustu sem við- skiptavinir fá í þessari könnun. Pylsur á svipuðu verði Pylsa með öllu er á mjög svipuðu verði um land allt en ódýrust er hún á Besta bitanum á Patreksfirði á 300 krónur en í Hreðavatnsskála fæst hún á 390 krónur. Það er misjafnt hvað hamborgaratilboðin innihalda en það ódýrasta er að finna í sölu- skála Olís á Reyðarfirði og Arnbergi á Selfossi sem er einnig Olísskáli. Verð í söluskálum Olís er það sama um allt land. Þar fæst ostborgari með frönskum á 1.020 krónur. Hag- stæðara tilboð er í Stöðinni í Borgar- nesi og Hamraborg á Ísafirði en þar er boðið upp á hamborgara, franskar og gos á 1.099 krónur. Hækkað lítillega DV gerði sambærilega könnun árið 2012 og ef borið er saman verð þá og nú má sjá að verðlag hefur hækk- að lítillega. Þá var ódýrasta ham- borgaratilboðið í Hamraborg á Ísa- firði og kostaði hamborgari ásamt hálfum lítra af gosi 699 krónur. Nú hafa þeir bætt frönskum við og er það tilboð á 1.099 krónur. Hamborgara- tilboð hjá Olís inniheldur það sama og í fyrra en hefur hækkað í verði um 30 krónur. Líkt og í ár þá var ham- borgaratilboðið dýrast í Þrastarlundi fyrir ári. Þá var það á 1.490 krónur en nú á 1.650 krónur. Pylsur voru í kringum 300 krón- ur en nú eru þær á bilinu 300 til 360 krónur. Svo virðist sem Prins Polo hafi lækkað örlítið í verði en í fyrra var algengt verð á Prins Polo XXL 200 krónur en nú er það í flestum til- fellum undir 200 krónum. Verð á ís hefur hækkað lítillega en í fyrra mátti fá hann á bilinu 200 til 300 krónur en nú fæst hann á 240 til 400 krónur. n Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is 1 Stöðin, Borgarnesi Hamborgaratilboð (Stöðvarborgari, franskar og gos frá Ölgerðinni 0,5 l) 1.099 kr. Pylsa með öllu 309 kr. Kók 0,5L 265 kr. Prins Polo XXL 189 kr. 2 N1 Borgarnesi Hamborgaratilboð (Ostborgari, franskar og gos úr vél) 1.395 kr. Pylsa með öllu 325 kr. Kók í plasti 0,5 l 259 kr. Lítill ís í brauðformi 300 kr. Prins Polo XXL 189 kr. 3 Baula, Borgarfirði Hamborgaratilboð (Ostborgari með grænmeti, frönskum, kokteilsósu og 0,5 l af kóki í dós) 1.450 kr. Fjölskyldutilboð (4 ostborgarar með grænmeti, frönskum, kokteilsósu og 2 l af gosi) 4.400 kr. Pylsa með öllu 350 kr. Kók í plasti 0,5 l 255 kr. Lítill ís í brauðformi 295 kr. Prins Polo XXL 195 kr. 4 Hreðavatnsskáli Hamborgaratilboð (Hamborgari og franskar) 1.490 kr. Pylsa með öllu 390 kr. Pepsi í plasti 0,5 l 110 kr. Prins Polo venjulegt 170 kr. 5 Besti bitinn, Patreksfirði Hamborgaratilboð (Hamborgari, gos og franskar) 1.350 kr. Pylsa með öllu 300 kr. Kók í plasti 0,5 l 230 kr. Prins Polo XXL 215 kr. 6 Söluskálinn Flateyri Hamborgaratilboð (Hamborgari, franskar og kokteilsósa) 1. 200 kr. Pylsa með öllu 300 kr. Kók í plasti 0,5 l 240 kr. Lítill ís í brauðformi 270 kr. Prins Polo XXL 200 kr. 7 Hamraborg, Ísafirði Hamborgaratilboð (Hamborgari, franskar og kók) 1.099 kr. Pylsa með öllu 320 kr. Kók í plasti 0,5 l 254 kr. Lítill ís í brauðformi 350 kr. Prins Polo XXL 200 kr. 8 Staðarskáli Hamborgaratilboð (Ostborgari, franskar og gos) 1.395 kr. Pylsa með öllu 325 kr. Kók í plasti 0,5 l 259 kr. Lítill ís í brauðformi 300 kr. Prins Polo XXL 189 kr. 9 N1 Blönduósi Hamborgaratilboð (Ostborgari, franskar og gos) 1.395 kr. Pylsa með öllu 325 kr. Kók í plasti 0,5 l 259 kr. Lítill ís í brauðformi 300 kr. Prins Polo XXL 189 kr. 10 KS Varmahlíð Hamborgaratilboð (Hamborgari, franskar, kok- teilsósa og gos úr vél) 1.240 kr. Pylsa með öllu 320 kr. Kók í plasti 0,5 l 250 kr. Lítill ís í brauðformi 240 kr. Prins Polo XXL 140 kr. Veganesti Fjölmargir ferðamenn koma við í vegasjoppunum og fá sér hressingu. Mynd: Sigtryggur Ari JóHAnnSSon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.